Vísir - 28.11.1977, Page 13

Vísir - 28.11.1977, Page 13
VISIR Mánudagur 28. nóvember 1977 13 „AÐALATRIÐIÐ AÐ AFGREIÐA FJÁR- LÖG HALLALAUS" - segir fjármólaréðherra, en telur of snemmt að segja til um hvernig þáð verður gert „Fyrirsjáanlegt er að útgjötd rikissjóðs á árinu 1978 muni aukast um 7-8 miljarða króna, m.a. vegna samninga við opinbera starfs- menn og launahækk- ana vegna visitölu- breytinga i desember,” sagði Matthias Á. Mathiesen fjármála- ráðherra i samtali við Visi. Fjármálaráðherra sagði að einnig væri eftir að yfirfara verðlagsforsendur fjárlaga- frumvarpsins, eins og alltaf væri gert um mánaðarmótin nóvember-desember, til þess að athuga að hve miklu leyti hægt sé að gera ráð fyrir verðlags- bótum vegna næsta árs. Eins og Visir skýrði frá fyrir helgina, sagði Þórarinn Þór- arinsson formaður þingfbkks Framsóknarflokksins i leiðara i Timanum, að til greina kæmi að mæta þessum auknu útgjöldum með öflun nýrra tekna að hálfu og niðurskurði annarra Utgjalda að hálfu. Fjármálaráðherra sagði að ekki væri orðið ljóst ennþá, hvort hægt væri að skipta þessu þannig. „Hvernig þessu verður mætt er að sjálfsögðu ekki hægt að segja á þessari stundu,” sagði hann, ,,en það hlýtur að verða gert með samdrættii útgjöldum og, að þvi leyti sem það ekki nægir, með tekjuöflun. En fjár- lögin fyrir 1978 verður að af- greiða hallalaus, það er aðal- atriðið.” — SJ Kassakúla! Útgáfufyrirtækið Barnaleikur h.f. sendir nú frá, sér fyrsta leik- tæki sitt — Kassakúluna. Kassa- kúlan er islenskt þroskaleikfang af nýstárlegri gerð sem jafnt ung- ir sem aldnir geta haft ánægju af að setja saman. Kassakúlan var kynnt á Iðn- kynningunni i Laugardalshöllinni Ihaust. Nú er hún gefin út i nýrri mynd I fjölbreyttara formi, en fyrri útgáfuna má nota saman með og skeyta við þá nýju. Prent- un annaðist Offsettækni s.f. en Kassagerð Reykjavlkur aðra vinnu. —KS Dagvistun í vesturbœnum Á hverfisfundi Dagvistunar- samtakanna fyrir skömmu var sérstakur starfshópur myndaður til að kanna I sam- ' vinnu við ibúasamtök vestur- bæjar leiðir til úrbóta i dag- vistunarmálum. ífréttfrá samtökunum seg- irað hverfafundurinn I vestur- bænum hafi verið haldinn vegna þess hve ástandið er þar slæmt i dagvistunarmál- um. Ákveðið var að skora á alþingismenn að hækka fjár- veitingar til þessara mála. —SG ♦fWlWVSSVM K SSA H CiL. Á M tdf;;: BOSCH Fyrir iðnaðarmanninn Stingsagir. Hjólsagir margar stærðir Höggboravélar Vinkil slípivélar BOSCH er með tvöfaldri einangrun. Framleitt fyrir mikið álag. Varahluta- og viðgerðarþjónusta á eigin verkstæði. handverkfæri eru í notkun á f jölda smærri og stærri verkstæða við húsbyggingar,skipasmíða stöðvar og fl. Efflll er þýsk og svissnesk framleiðsla. Gæði ofar öllu. Útsölustaðir: Akurvík, Akureyri, Byko, Kópavogi og umboðsmenn viða um landið. / untiai Sfyzekóöo-n h.f. SUÐURLANDSBRAUT 16 - SÍMI 35200 - 105 REYKJAVÍK Vinsamlega sendið mér myndalista og verð á Bosch iðnaðarverkfærum. Nafn Heimili

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.