Vísir - 30.11.1977, Síða 2
VISIK
spyr
í*'
k
c
Reykjavík
----V-----
J
Hvers vegna halda ts-
lendingar 1. des hátíð-
legan?
Ilildur Hafstein, 11 ára:Þá var ts-
land fullvalda riki. Ég man ekki
hvenær.
Þóroddur Þóroddssson, 11 ára:
Þá var einhver þjóðveldishátíð...
eöa já fullveldishátið.
Nó má taka gjaldeyri undan
koddanum og leggja í banka
Miðvikudagur 30. nóvember 1977 ‘VISIH
„Almannarómur segir að talsverður gjaldeyrir sé I umferð og nú er ætlunin að fá menn til að leggja
hann i banka", sagði ólafur Jóhannesson (Vlsism. JEG)
,,Ég tel óþarft að vera með
smámunasemi varðandi það
hvernig menn hafi eignast
gjaldeyri þegar þeir opna
reikning. Það er betra að fá aur-
ana inn heldur en að vera að
rekast i þvi þótt mönnum hafi
oröið á smáyfirsjón”, sagði
Óiafur Jóhannesson viðskipta-
ráðherra á fundi með frétta-
mönnum i gær.
Tilefni fundarins var það að
nú verður landsmönnum heimilt
að leggja inn á almenna spari-
fjárreikninga i erlendum gjald-
eyri allan þann gjaldeyri sem
ekki er sky.lt að selja gjaldeyris-
bönkunum. Er hér fyrst og
fremst um að ræða erlend
vinnulaun og þóknanir afgang
af áhafna- og ferðagjaldeyri arf
erlendis frá, fé sem menn taka
með sér við flutning til landsins
svo og umboðslaun sem inn-
flytjendur geta ráðstafað til
vöruinnflutninga.
Gert er ráð fyrir að taka á
móti innistæðum i fjórum gjald-
miðlum. Það eru bandarikja-
dollurum, þýskum mörkum,
sterlingspundum og dönskum
krónum. öðrum frjálsum gjald-
eyri sem komið er með mundi
bankinn skipta yfir i einhvern
hinna fjögurra gjaldmiðla áður
en féð er lagt inn.
Þeir Ólafur Jóhannesson og
Þórhallur Ásgeirsson ráðu-
neytisstjóri sögðu að bankar
myndu skipta þessum gjald-
miölum innbyrðis fyrir fólk,
þannig að sá sem leggur til
dæmis inn dollara getur tekið
innistæðuna út i pundum ef hann
vill frekar.
Viðskiptaráðherra sagðist
hafa falið Seðlabankanum fyrir
nokkru að athuga hvort breyta
þyrfti lögum tii að koma þessu á
eða hvort reglugerðarbreyting
nægði. Hefur reglugerðinni nú
verið breytt og tekur breytingin
þegar gildi. Hins vegar þarf
talsverðan undirbúning i gjald-
eyrisbönkunum, Landsbankan-
um og Útvegsbankanum áður
en hægt verður að taka á móti
gjaldeyri til ávöxtunar. Lögð
verður áhersla á að hraða þeim
undirbúningi eftir þvi sem unnt
er. Stefnt er að þvi að byrja að
taka á móti fé á gjaldeyris-
reikninga fljótlega upp úr ára-
mótum.
Það kom fram á fundinum að
hér er um tilraun að ræða og ef
hún gefst vel má búast við aö
reglur um gjaldeyri til ferða-
laga verði rýmkaðar áður en
langt um liður.
Það sem af er þessu ári hefur
verið keyptur ferðamanna-
gjaldeyrir fyrir tæpa fimm
milljarða króna, þar af vegna
viðskiptaferð fyrir 617,4
milljónir króna. t fyrra nam
gjaldeyrissala vegna ferðalaga
tæplega 3,2 milljörðum króna.
—SG
Tíðindalaust nteðan ekki er kœrt
Steingrimur Jónsson, lt ára:Það
var einhver stofnun sem mátti
ráða... nei, þá hætti Danakonung-
ur að ráða yfir okkur.
Anna Marlsdóttir, hiismóðir:
Fullveldisdagurinn? Vita þaö
ekki allir.
Sjálfstæðisflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn taka prófkjör
sin alvarlega og gæta þess að
fylgja settum reglum i hvi-
vetna. Þótt einstakir menn fái
skrokkskjóður i prófkjörunum
er látið við það sitja. Aiþýðu-
bandalagið er með svonefndar
forkannanir sem enginn skilur
nema þokulúðrarnir I þeim
flokki. Framsóknarflokkurinn
yill hafa vaðið fyrir neðan sig og
efnir til skoöanakannana, en
auglýsir eins oft að þær séu ekki
bindandi. Samt fer nú fólk og
lætur sig hafa það að taka þátt i
skollaleiknum, þótt það geri sér
Ijóst að litlu skiptir hvaö það
kýs. Flokksforingjarnir verða
að hafa sitt fram engu að siöur.
Að þvi leyti eru skoðanakannan-
ir flokksins bindandi.
Nú sér maður i blaði, að
skoðanakönnun Framsdknar-
fiokksins á Vesturlandi hefur
fariðfram með alveg sérstökum
hætti. Samkvæmt fréttinni hafa
atkvæöaseðlar verið borniri hús
i Ólafsvik, en auk þess var kosið
á kjörstað i plássinu. Þrjú
hundruð áttatiu og fimm Fram-
sóknarmenn i Ólafsvik, eða
stuðningsmenn flokksins,
greiddu atkvæði með þessum
hætti, og þykir þeim sem til
þekkja það vera mikil býsn. En
hverju skiptir það. Kosningin er
ekki bindandi.
Skoðanakönnun Framsóknar i
Ólafsvlk fór fram undir stjórn
Alexanders Stefánssonar, sem
samkvæmt niðurstöðum hennar
skipar nú annað sætið á lista
fiokksins i Vesturlandskjör-
dæmi. Með vissum hætti var
þarna verið að berjast fyrir
póiitisku iifihelsta fyrirmanns-
ins ipiássinu. Fólk mun þviekki
hafa tekið óstinnt upp, þótt það
væri látið kjósa á heimilum sin-
um. Svo var hinn eiginiegi kjör-
staðuröllum opinn. Eflaust hafa
Ólafsvikuratkvæðin falliö Alex-
ander i hag. Um leið og Timinn
skýrir frá þvi að Halldór E. Sig-
urðsson hafi orðið efstur við
þessa óbindandi skoðanakönn-
un, segir blaðið að þátttakan
hafi verið mjög góð. Það er svo
sem ekki aö furða miðaö við
þátttökuna i ólafsvik, Aiexand-
er lenti i öðru sæti með 1731 at-
kvæði og Dagbjört Höskulds-
dóttir lenti i þriðja sæti með 1597
atkvæði.
Nú kynni einhver að halda því
fram að atkvæðagreiðslan i
Óiafsvik væri heldur óheppileg
fyrir flokkinn og lista hans i
Vesturlandskjördæmi. En ó-
ekki. Atkvæðagreiðslan i ólafs-
vik er hreinn hvalreki fyrir
flokkinn, eða öllu heldur höfuð
hans á Vesturlandi, sjálfan sig-
urvegarann úr hinni óbundnu
skoðanakönnun, Halldór E. Sig-
urðsson. Nú getur hann i kyrr-
þey lagt höndina á kollinn á
Alexander Stefánssvni og sagt
við hann, að ekki sé heppilegt að
hann skipi annað sæti listans
eftir atkvæðagreiðsluna i Ólafs-
vik. Það sé slæmt fyrir flokkinn.
Andstæðingar flokksins gætu
hreinlega haldið þvi fram að
flokkurinn væri vangefinn eink-
um þegar tillit væri tekið til
fyrri atburða, scm tengzt hafa
honum.
Halldór hefur nefnilega tilbú-
inn mann i annað sætið. Það er
Haukur lngibergsson, skóla-
stjórj Samvinnuskólans. Auð-
vitaö ætti Dagbjört að ganga
upp i annað sætið. verði um ein-
hverjar breytingar að ræða. En
Halldór E. villnú einu sinni hafa
þetta svona, og eins og ailir vita
eru skoðanakannanir flokksins
óbindandi.
Þótt skoðanakannanir flokks-
ins séu óbindandi burðast hann
við að hafa yfirkjörstjórn, sem
væntanlegar ieggur blessun
sina yfir allt brallið. Þegar
fréttist um hina riflegu at-
kvæðagreiðslu i Óiafsvík og
þann rúma hátt, sem þar var
hafður á um kjörstaði, sneri
blað sér til formanns kjörstjórn-
arinnar, Ólafs Sverrissonar i
Borgarnesi. Hann sagði, að eng-
ar kærur hefðu borist. Þar meö
er málið leyst af hendi flokks-
ins. Hann er nefnilega vanur
þvi, eins og segir i visunni: að
kasta öilum syndum bak við sig
og sjá þær aldrei meir.
Svarthöfði