Vísir - 30.11.1977, Side 3
VISIR Miðvikudagur 30. nóvember 1977
3
„Við höfum ekki lengur
bolmagn til rekstursins,"
segir framkvœmdastjóri
félagsins
„Það sigur stöðugt á
ógæfuhliðina og þvi var
þessi leiða ákvörðun
tekin,” sagði Eggert
Ásgeirsson fram-
kvæmdastjóri Eauða
kross íslands i samtali
við Visi.
Stjórn Rauða kross Islands
hefur ákveðið að hætta rekstri
Sjúkrahótels RKl i Reykjavik
frá næstu áramótum að telja.
Eggert sagði að sivaxandi halli
hefði orðið á rekstrinum og væri
núsamsafnaðurhalliorðinn 21,4
milljónir króna.
„Þessa upphæð höfum við
þurft að taka úr sjóðum Rauða
krossins og hefur það valdið
vanskilum við aðrar deildir
félagsins,” sagði hann.
Rauði krossinn hóf rekstur
sjúkrahótelsins 15. nóvember
1974. Strax fyrsta árið skorti
nokkuð á að daggjöld sjúkra-
hótelsins nægðu til að greiða
reksturskostnaðinn. A.þessuári
hefðu daggjöldin þurft að vera
66% hærri til að standa straum
af rekstrinum, en þau eru nú
3.400 krónur.
Styttir legutimann
„Ætlunin með sjúkrahótelinu
var að létta á sjúkrahúsunum,
þannig að biðtimi sjúklinga eftir
plássi á sjúkrahúsi styttist. Um
leið áttum við von á að slik
stofnun myndi auðvelda
sjúklingum leiðina útí lífið eftir
dvöl á sjúkrahúsi,” sagði Egg-
ert.
„Hótelið hefur ótvírætt
sannað gildi sittog við erum enn
hrifnir af hugmyndinni. Hér
hefur verið til jafnaöar 90% nýt-
ing á rúmum og þvi er þörfin
augljós. Fólk getur mjög oft
ekki farið beint heim til sín af
sjúkrahúsi. Margir búa einir og
geta þá ekki séð um sig og eins
búa margir það langt frá
læknisþjónustu að þeir geta ekki
snúið heim fyrr en þeir þurfa
ekki lengur á slikri þjónustu að
halda.
Við héldum i upphafiað þörfin
fyrir sjúkrahótel væri aðallega
meðal fólks utan af landi en það
hefur komið i ljós að Reyk-
vikingar hafa lika mikla þörf
fyrir þessa þjónustu.”
Minni kostnaður
Rekstrarkostnaður sjúkra-
hótelsinser mun minni en gerist
á sjúkrahúsunum. Til dæmis
eru daggjöld við Borgarspital-
ann nú 27.400 krónur. Ástæðan
er sú að minni þjónusta er veitt
á hótelinu og starfsfólkið er
ófaglært, auk þess sem húsið
sjálft er ódýrara en sjúkrahús-
in.
En á sambærilegri stofnun
eins og Arnarholti eru daggjöld-
in 6.400 krónur og i sjúkraskýl-
um úti á landi eru daggjöldin
4.900 krónur.
Eggert sagöi aö daggjalda-
Setustofa sjúkrahótels RauOa krossins. A hótelinu hafa frá opnun þess dvaiið hátt á annað þúsund
manns en i einu geta dvalið þar 28 manns. Visismynd JA
nefnd ætti samkvæmt reglugerð
að bæta halla hjá sjúkrastofn-
unum á næstu 12 mánuðum eftir
að nefndin verður vör við hall-
ann. Þetta kvað hann hins vegar
ekki hafa verið gert og væri
sjúkrahótelið þar ekki eitt á
báti.
„Við höfum ekki lengur bol-
magn til að reka hótelið, en við
vonum að aðrir t.d. heilbrigðis-
yfirvöld geti tekiö þetta að sér.
Við höfum enga ákvörðun tek-
ið um húsnæðið en til að byrja
með verður það látið standa
autt. Það er ódýrara en að reka
það. Þessa ákvörðun verður þó
að taka fljótlega. En við erum
ekki búnir að gefa upp alla von
um að hægt verði að byrja á
þessari þjónustu aftur i ein-
hverju formi,” sagði Eggert As-
geirsson. Stjórn RKÍ hefur
skipað þrjá menn i nefnd til að
kanna reksturinn og finna hon-
um framtiðarveg, ef þess er
nokkur kostur. I nefndinni eru
þeir Björn Tryggvason, fyrrv.
form. RKI, Arinbjörn Kolbeins-
son læknir og Erling Aspelund
hótelstjóri. Leiði sú könnun til
þeirrar niðurstöðu að RKl sé
ekki fært að hefja reksturinn á
ný, þá er stjórnin reiðubúin aö
láta öörum aðila i té húsnæðið
að Skipholti 21 með vægum
kjörum ef sá aðili hefur aðstöðu
til að endurvekja starfsemi
sjúkrahótelsins. —SJ
RAUÐI KROSSINN LOKAR
SJÚKRAHÓTELI SÍNU
Hollensku eggin
mun ódýrari
Verð á eggjum frá Hol-
landi yrði enn hagstæðara
en Vísir skýrði frá í gær
ef þau væru f lutt inn það-
an.
Samkvæmt nýju tilboð sem
Einar Bergmann i Kjöt og Fisk
fékk frá Hollandi um hádegi i
gær lækkaði flutningskostnaður
með flugi úr 255 krónum á kiló
niður i 142. Hingað komið kost-
aði þá hvert kiló af eggjum frá
Hollandi aðeins 383 krónur og
smásöluverð þá að likindum i
kringum 460 krónur.
Hollendingar bjóða eggin á
rúmar 240 krónur hvert kiló
komið á flugvöll eða i skipaaf-
greiðslu. Hins vegar er vist von-
laust að leysa úr eggjaskortin-
um hér með innflutningi þar
sem hann er bannaður eins og á
öðrum landbúnaðarafurðum.
— SG
Stúdentar vilja fé
til heilsurœktar
Stúdentar við Háskólann
fjárveitingar á næsta ári til
heilsuræktar. — SG
eru óánægðir með að þurf a
að greiða aðgang að sund-
laugum borgarinnar og af-
not af iþróttahúsi Háskól-
ans.
Hagsmunanefnd Stúdentaráðs
segir i frétt sem nefndin hefur
sent frá sér, að skólastarfinu fylgi
litil likamleg áreynsla og þvi
verði að telja hvers konar leik-
fimi eðlilegan þátt skólastarfs-
ins.
Háskólaráð hefur fjallað um
málið og samkvæmt tillögu þess
hefur fjárveitinganefnd verið
skrifað og farið fram á nægilegar
VERKSMIÐJUSALAN
byrjar ó morgun
Fatagerðin Bót
Skipholti 3
--------------------------------- -----------------------------------------------------------------