Vísir - 30.11.1977, Side 4
4
COSY STOLLINN
með hóu eða lógu baki
A HÚeCiðG
BOSCH
Combi
Borvél
2ja hraða og með h
Tvöfaldri einangrun
Rennibekkur
Smergel
Hjólsög
Slípikubbur
■% Stingsög
Boraskerpir_ §
Stingsög
m/móton
IfcBosch Combi
Nytsöm tæki á hvert heimili.
Útsölustaðir:
Akurvík/ Akureyri Bykó Kópavogi,
og víða I verslunum um landið.
/
unrtcii Sfyzeiióöo-n k.f.
SUÐURLANDSBRAUT 16 - SlMI 35200 - 105 REYKJAVÍK
Vinsamlega sendiB mér myndalista og verö á BOSCH Combi
Nafn
heimili
Senn er á enda fyrsta kosn-
ingabarátta Suöur-Afriku sem
háð er undir alsjáandi ljósopum
sjónvarpstökuvéia, og þykir
mönnum litið til um áhrif þessa
fjölmiðils á stjórnmálastraum-
ana.
Pað eru ekki liðin full tvö ár,
siðan sjónvarp byrjaði i Suður-
Afriku, og enn sem komið er
einungis um eina stöö að ræða.
Eins og hér á lslandi takmark-
ast dagskráin og útsendingar-
timinn við kvöldið. En hálf dag-
skráin er á afrikönsku, eins og
mállýska Búa var kölluð, en hin
helftin á ensku. Eru dagaskipti
á því, hvort dagskráin fær fyrri-
hlutann og hvor þann seinni.
Þessi nýi fjölmiðill hefur hrif-
ið Suður-Afriku á svipaðan
rháta og við tslendingar minn-
umst fyrir ellefu.árum, þegar
islenska sjónvarpiö hófst. 1
matsölum, setustofum gistihúsa
og öikrám leggjast allar sam-
rasöur niður um leið og imba-
kassinn á hillunni úti i horni fer i
gang.
Samt eru Suður-Afrikubúar
allir á einu máli um, að áhrif
hans á kosningarnar, sem fram
fara i dag, séu næsta litil.
Frambjóðendur og kosninga-
snialar segjast helst finna mun
inn á þvi, að fleiri séu heima
staddir,þegar þeir knýja dyra á
kvöldin, en áöur var. Jú, og eit,t
nýmælið var þaö, að þjóðar-
flokkurinn varð að gera hlé á
kosningafundi sinum og draga
fram sjónvarpstæki, svo að
fundarmenn þyrftu ekki að
missa af framhaldsþættinum
„Gæfa eða gjörvileiki’'.
En Suður-Afrikusjónvarpið
hefur ekki boðið upp á neinar
„eldhúsdagsumræður" á borð
við þær sem þekkjast i kosn
ingabaráttu annarra landa.
Einu umræðurnar hafa verið
þær, þar sem fréttaskýrendur
og kosningaspámenn hafa leitt
fram hpsta sina. Það hafa ekki
verið neinir dagskrárþættir, þar
sem flokksforingjar hafa komið
fram og skýrt út stefnu flokka
sinna, eða frambjóöendur karp-
að.
Sjónvarpið hefur látið frétta-
þættina duga til þess að afgreiða
kosningarnar. Hefur það kallað
fram gagnrýni stjórnarand-
stæðinga. Finnst þeim ráðherr-
ar stjórnarflokksins æði tiöir
gestir i fréttunum, og með þvi
fái skoðanir, stefna og fram-
bjóðendur stjórnarflokksins
meira rúm i sjónvarpinu en aðr-
ir. — Slikt þekkist annarsstaðar
af bernskuárum sjónvarps, og
hefur svo sem skotið upp kollin-
um hér.
Beiskyrtastur i þessari gagn-
rýni hefur verið Framsóknar-
bandalagið, sem er vinstrisinn-
aðastur þeirra flokka, er bjóða
fram til þessara kosninga. Rene
de Villers, talsmaður flokksins
(sem lætur af þingmennsku
núna), kaliaði það „hneykslan-
lega misnotkun kerfisins á fjöl-
miðlum".— „Það gengur alveg
fram úr hófi, hve mikil áhersla
er lögð á yfirlýsingar ráðherr-
anna — sem er óhjákvæmilegt
að ákveðnu markr, en hefur far-
ið langt fram úr þvi, sem sann-
gjarnt getur talist eða jafn-
ræði," sagði hann. Kvað hann
Hokk sinn mundu beita sér fyrir
þvi, að frambjóðendum yrði
ætlaður jafn timi i sjónvarpinu
til þess að koma skoðunum sin-
um á framfæri eða til kappræðu
við aðra stjórnmálamenn.
Lýðveldisflokkurinn tekur i
sama streng um að stjórnar-
flokkurinn njóti séraðstöðu i
fréttatimum sjónvarpsins.
Talsmaður flokksins segir hann
munu beita sér fyrir kappræðu-
þáttum og jafnræði i sjónvarps-
dagskránni. — „Það verður að
tryggja það i framtiðinni, að
enginn einn flokkur njóti for-
réttinda,” sagði hann.
Þjóðarfiokkurinn hefur visaö
þessari ádeilu á bug. — „Það
verðurekki hjá þvf litið, að ráð-
herrar eru fréttaefni, og að það
sætir tiðindum, sem ráðamenn
þjóðarinnar hafa að segja
henni,” sagði einn talsmanna
stjórnarflokksins, og hélt uppi
vörnum fyrir starfsmenn sjón-
varpsins, sem hann kvað leitast
við að auðsýna réttlæti.
Forráðamenn sjónvarpsins
lijggja stjórnmálamönnunum
sjálfum á hálsi fyrir ósam-
vinnulipurð. — „Upptökusalir
okkar stóðu til reiðu fyrir
flokksdagskrár, kappræðuþætti
og hvað eina, ef þeir hefðu að-
eins getað náð samkomulagi
innbyrðis," segir málpipa sjón-
varpsins. Upplýsti hann, að
flokkarnirhefðuekkiorðið á eitt
sáttir um, hvernig skipuleggja
ætti þessa stjórnmálaþætti, eða
hve mikinn tima hver flokkur
átti að fá „Við. kæröum okk
ur ekkert um að þurfa aö taka
að okkur hlutvérk dómara i
þeirri glimu,” sagði sjónvarps-
maður.
Hvaö sem því liður öllu, hefur
sjónvarpiö helgað sig kosning-
unum að sáralitlu ieyti. Frétta
ritið „The Point", sem oft er
hliðhollt stjórn þjóðaflokksins i
skrifum sinum, gat ekki orða
bundist. 1 nýjasta tölublaöi þess
segir: „Suður-Afrikusjónvarpið
brást i fyrstu prófraun sinni tii
hlutlausrar meðferðar á stjórn-
málabaráttunni." — Á sama
stað er sjónvarpið ennfremur
sakaö um að hafa ekki dregið
fram fyrir áhorfendur sina gildi
kosninganna og mikilvægi. Og
að fréttaskýrendur hafi þrætt
linu þjóðarflokksins. — „The
Point" ber sig undan þvi, að
kosningafréttir sjónvarpsins
hafi að meginefni verið ræðu-
kaflar og pólitisk ávörp og aöal-
lega þá um utanrikismál.
Blaðið bætir við: „Þessar
kosningar snúast ekki um, hvað
Suþur-Afrikumönnum finnst um
Bandarikin, eða um vopnasölu-
bann Sameinuðu þjóðanna. Það
á að heita að þær snúist um
stjórnmálaáform varðandi
framtiðarstjórn Suður-Afriku."