Vísir - 30.11.1977, Síða 5
VÍSIR
íMiðvikudagnr 3«. nóvember 1977
Tillögu Waldheims
iit/ög vel tekið
Tillaga Kurt Waldheims fram-
kvæmdastjóra Sameinuðu þjóð-
anna um að efna til fundar á veg-
um Sameinuðu þjóðanna með
deiluaðilum i Austurlöndum nær
hefur fengið viðast góðar undir-
tektir. Á Vesturlöndum telja
menn, að slikur fundur gæti að
minnsta kosti orðið góð byrjun.
Fulltrúar Araba hjá Sameinuðu
þjóðunum hafa tekið vel tillög-
unni, sem gerir ráð fyrir fundi til
undirbúnings framhaldi Genfar-
ráðstefnunnar. Fulltrúi Sýrlands,
sem fordæmt hefur heimsókn
Sadats til Israels og tilraunir
hans til þess að reyna einn sins
liðs að hrinda friðarviðræðum af
stað á nýjan leik, lét eftir sér hafa
i gær að honum fyndist tillaga
VValdheims mjög athyglisverð.
Slikur fundur gæti orðið stórt
skref i átt til árangursrikrar Gen-
farráðstefnu.
fsraelsstjórn hefur ekkert látið
frá sér heyra um tillögu Wald-
heims, en heimildir, sem standa
henni nær telja að Sameinuðu
þjóðirnar þyki naumast rétti vett-
vangurinn, þvi að þær geti ekki
talist hlutlausar i deilunni.
Fulltrúi Palestinuaraba sagði,
að ráðagerð Waldheims kæmi á
óvart, en hún væri vel verð athug-
unar.
Um leið og Waldheim lagði
fram fundartillögu sina i gær,
gerði hann grein fyrir þvi, að
hann mundi senda fulltrúa sinn i
Kairófundinn sem Anwar Sadat
forseti hefur boðað til i næstu
viku. fsrael og Bandarikin hafa
þegið fundarboðið, en Sovétrikin
Sýrland og PLO hafa afþakkað.
Jódania kveðst þvi aðeins munu
sækja fundinn, að allir boðnir
mæti.
Vorster spáð yfír-
burðasigrí í dag
Flóttafólkið hafðimeð
sér 3 kommúnista-
fanga til Darwin
Vietnam skoraði i
morgun á Ástraliu að
senda aftur heim 120
smálesta togbát og þrjá
kommúnistiska verði,
sem flóttafólk frá Viet-
nam hafði með sér i
haldi til Darwin.
Báturinn kom i gær til Darwin
með 180manns innanborðs. Áhöfn
bátsins hafði yfirbugað verðina
þrjá skömmu eftir að lagt var af
stað frá Saigon og tekið fjölskyid-
ur sinar um borð, áður en lagt var
á haf út.
Liklegast þykir, að áströlsk
yfirvöld verði við áskorun Viet-
nam um að skila bátnum og vörð-
unum.
Flóttafólkið gekk á land i gær
og var sett i einangrun, en vörður
settur um bátinn og áhöfnina,
sem er enn um borð. Um 80 börn
voru i þessum hópi. Sum þeirra
aðeins nokkurra mánaða gömul.
Flestir búast við þvi
að þjóðarflokkurinn,
sem lengi hefur setið að
völdum í Suður-Afriku,
fari með yfirburðasig-
ur af hólmi, þegar hvit-
ir ibúar landsins ganga
að kjörborðinu i dag.
Hinn 62 ára gamli John Vorst-
er forsætisráðjerra sem býður
sig fram til fjórða kjörtimabils-
ins, hefur beint kosningabarátt-
unni gegn erlendri ihlutun i
málum Suður-Afriku, og þá
einkanlega gegn vopnasölu-
banni Sameinuðu þjóöanna.
„Gerum heiminum það ljóst i
dag og i eitt skipti fyrir öll, að
smáir þótt við séum, staddir þar
sem við erum, munum við berj-
ast-með öllu tiltæku til þraut-
ar", sagði Vorster á siðasta
kosningafundium i gær.
Þjóðarflokkurinn hafði 116
þingsæti, þegar þing var rofið
og 69 þingsæta meirihuta fram
yfir stjórnarandstöðuna. Er bú-
ist við þvi, að flokkurinn bæti
við sig sætum enn.
Þar sem útslitin þykja fyrir-
fram ráðin, beinist eftirvænt-
ingin fremur að þvi, hver hinna
Snjó-
þyngsli
verði stærsti stjórnarandstöðu-
flokkurinn, siðan gamli Samein-
ingarflokkurinn leystist upp i
fyrra.
Nýi lýðveldisflokkurinn þykir
liklegastur arftaki hans, en
hann hefur 23 þingsæti. Fram-
sóknarsambandið sem hefur 18
þingsæti, mun þó veita honum
harða keppni. Suður-Afriku-
flokkurinn hefur aðeins 6.
rifjast upp, þegar þessi fréttamynd barst frá Portland I
i Bandarikjunum, hve harðindin voru mikil þar vest-
i fyrravetur, meöan viö hér á Islandi hrósuöum ein-
þvi mildasta vetrarveðri, sem um getur I manna
. — Eins og myndin bcr meö sér snjóaöi þarna i Port-
dögunum og varö af tnikiö öngþveiti I umferöinni.
á skiöunum er staddur á einni fjölförnustu umferð-
arbrú Oregoníylkis, en hún var ekki fær öörum en fjallabílunt
nteð keOjuútbúnaö — og svo auövitaö skiöamönnum.
LIKUR A FAR-
6JALDASTRÍÐI
FLUGFÉLACA
Mikil óeining er á fargjalda-
fundi IATA I Fórida þar sem
fulltrúar um 35 flugfélaga eru
saman konir til þess aö reyna aö
afstýra fargjaldastriöi á flug-
leiöum yfir Atlantshafiö.
Það er ákvörðun italska flug-
félagsins, Alítalia um lækkun á
öllum fargjöldum sinum, sem
hleypt hefur öllu i loft upp.
Alitalia lækkaði fargjöld á öll-
um sinum flugleiðum um 25%,
eftir að Laker-flugfélagið
breska byrjaði sinar ódýru
leiguferðir fyrir tveim mánuö-
um.
A fargjaldafundinum skiptust
fulltrúar mjög i tvö horn vegna
lækkunar Alitalia, ýmist íylgj-
andi eða algjörlega andvigir.
Snérust umræður i gær allar um
þetta atriði.
Fundinum er ætlað að ákveöa
fargjöld fyrir ferðamannatima-
bil næsta sumars. Þykir ekki
liklegt, að samkomulag náist
um slikt á þessum eina fundi.
LURIE