Vísir - 30.11.1977, Side 10
10
Miðvikudagur 30. nóvember 1977 visir
vísm
utgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdarstjóri: Davið Guömundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson (óbm)
Olafur Ragnarsson
Ritstjornarfulltrui: Bragi Guðmundsson.
Umsjon með Helgarblaöi: Arni Þórarinsson.
Frettastjori erlendra frétta: Guðmundur Petursson.
Blaðamenn: Edda Ándrésdóttir, Elias Snæland Jonsson, Guðjon Arngrimssv-in,
Jonina Michaelsdottir, Kjartan L. Palsson, Kjartan Stefansson, Oli Tynes,
Sigurveig Jonsdottir Sæmundur Guðvinsson.
Iþrottir: Björn Blóndal. Gylfi Kristjansson
Ljósmyndir: Jens Alexandersson- Jon Einar Guðjónsson.
Útlit og hönnun: Jon Oskar Hafsteinsson, Magnus Olafsson.
Auglysinga- og sölustjori: Pa!l Stefansson.
Dreifingarstjori: Sigurður R Petursson.
Auglysingar og skrifstof ur: Siðumula 8. Simar 8661 1 og 82260.
Afgreiðsla: Stakkholti 2-4, simi 86611.
Ritstjorn: Siðumula 14. Sími 86611 (7 linur)
Askriftargjald kr. 1500 á manuöi innanlands.
Verð i lausasölu kr. 80 eintakið.
Prentun: Blaðaprent.
HAMINGJAN
UNDIR HÁUM
Viðskiptaráðherra sýnir
á sér nýja hlið
Umræður i blöðum um gjaldeyrismálefni undan-
farna mánuði hafa leitt til þess að ólafur Jóhannes-
son viðskiptaráðherra hefur nú sett nýja reglugerð
um þau efni sem felur i sér aukið frjálsræði. Með
henni er stigið veigamikið skref i átt til frjálsra gjald-
eyrisviðskipta.
Fyrir ári greindi Visir frá þvi er ólafur Jóhannes-
son sagði á fundi í Reykjavík að hann teldi það geta
komið til athugunar að heimila mönnum að leggja
gjaldeyri inn i banka til ávöxtunar. I framhaldi af
þessari yfirlýsingu lagði Vísir ríka áherslu á að
breytingar i þessa veru yrðu gerðar á gjaldeyris-
reglunum.
ólafur Jóhannesson hefur i ráðherratíð sinni frem-
ur haft tilhneigingu til þess að setja haftareglur en
auka frjálsræði. Því fremur er ástæða til þess að
fagna þessari ákvöröun ráðherrans sem er skynsam-
leg og mun örugglega hafa góð áhrif og horfa til
bættra viöskiptahátta.
Viðskiptaráðherra hefur staðið við fyrirheit sitt frá
þvi i fyrra. Hann lét ekki við það eitt sitja að athuga
máliö eins og stjórnmálamenn gera stundum, heldur
hefur hann breytt hugmyndum í veruleika. Sann-
leikurinn er sá að við höfum búið við allt of þröngar
reglur um meðferð gjaldeyris.
Efnahagslegar aðstæður hafa leitt til þess á undan-
förnum árum að i bönkum hefur verið gjáldeyris-
skortur. I landinu hefur á hinn bóginn verið nægjan-
legt framboð af gjaldeyri. Haftareglurnar hafa
einungis leitt til þess að gjaldeyrisverslunin hefur
minnkað i bönkunum en vaxið á svarta markaðnum.
Gja Ideyrisskorturinn hefur þvi að nokkru leyti verið
heimatilbúinn. Hin nýja gjaldeyrisreglugerð sem
ólafur Jóhannesson hefur sett, getur hins vegar bætt
nokkuð úr skák i þessu efni. Með frjálsum gjaldeyris-
viöskiptum og réttri gengisskráningu á ekki að þurfa
að vera skortur á gjaldeyri.
Erlendar lántökur hafa að mestu lotiö haftareglum
eins og aðrir þættir g jaldeyrisviðskipta. Inn-
flutningsaðilar þurfa að sæta mjög mismunandi að-
stöðu til þess að fá skammtima greiðslufrest erlendis
og lán til langs tima eru óheimil án samþykkis ríkis-
stjórnarinnar.
Erlendar lántökur fara þvi fyrstog fremst fram á
vegum opinberra aðila nema helst að þvi er varðar
kaup á skipum og f lugvélum. Nú er ekki þvi að heilsa
að erlend lán séu ekki notuð til uppbyggingar atvinnu-
fyrirtækja í landinu. Haftakerfið gerir það hins vegar
aö verkum aö fyrirtækin fá þessi lán gegnum opin-
bera miliiliði.
Framkvæmdasjóður tekur erlend lán og veitir aftur
f járfestingarsjóöum einstakra atvinnuvega sem siðan
lána atvinnufyrirtækjunum. Þetta milliliðakerfi er
þungt i vöfum og lýtur að nokkru leyti flokkspólitískri
forskrift og er þvi ekki nægjanleg trygging fyrir þvi
að arðsemissjónarmið ráði rikjum. Þar við bætist aö
þessi háttur leiðir til þess að atvinnufyrirtækin þurfa
að taka dýrari lán en vera þyrfti ef innlendu milli-
lióunum væri sleppt.
Oll rök hniga því í þá átt að rýmka reglur um meö-
feró gjaldeyris og verslun með hann. Fyrsta skrefið
hefur nú verið stígið og er ástæða til að sjá hvernig
það reynist. En viðskiptaráðherra mætti gjarnan
hefja athugun á frekari frjálsræðisaðgerðum i þess-
um efnum og gera hugmyndir þar að lútandi að veru-
leika.
Hann hefur farið ágætlega vel af stað með reglu-
gerðinni, sem sett var i gærdag en getur að sjálfsögðu
gert betur.
FJOLLUM
c
Indriði G.
skrifar
Guðmundur Gíslason Hagalin
Hamingjan er ekki alltaf ótukt
Skáldsaga
Almenna bókafélagið.
Guðmundur Gislason Hagalin
erkominn undiráttrættog skrifar
skáldsögur þau árin sem hann
heldur ekki fram ævisögu sinni,
sem þegar er orðin allmörg bindi.
Skáldsögur hans flestar eru með
vestfirzku ivafi, og svo er um þá
nýjustu, sem nýlega er komin út
og nefnist hinu langa og óþjálá
nafni: Hamingjan er ekk, alltaf
ótukt. Allt verður þó mun þjálla,
þegar farið er að lesa bókina, en
hún fjallar að mestu ieyti um
Markús Sveinbjarnarson, smá-
vaxinn en knáan mann, sem tekur
sérfyrirhendurá gamalsaldrí að
kenna unglingum sjósókn.
Framan af er sagan fremur
ágripsmikil, þar sem farið er
hratt yfir sögu, en þegar liður á
verkið þéltist söguþráðurinn.
Frásögnin hefur einkenni mikill
ar orðgnóttar og henni bregður
viða til vestfirzks framburðar,
eins og hann var upp úr alda-
mótunum, þegar Guðmundur var
hagvanur i sinum heimabyggð-
um. Má með nokkrum sanni segja
að með rithætti sinum nú hafi
höfundurinn lokað hringnum
hvað orðfæri snertir, og orðið um
margt likur þvi sem hann var
upphaflega, þegar lesendur fögn-
uðu hinum sérkennilega tals-
máta.
Ekki tel ég mig þess umkominn
að sjá hvort hér er á ferðinni verk
sem styðst við sögulegar stað-
reyndir. Mikið fremur ber að lita
svo á, aö með þessu verki hafi
Guðmundur verið að kveða á um
heppilegt og nánara samband
a'.sku og aldurdóms, og hver vinn-
ingur getur orðið af sliku sam-
bandi. Hinu er ekki að leýna að i
bókinni fyrirfinnast históriur,
sem munu eiga sér nokkur for-
dæmi, og dettur mér þá i hug saga
af spitalaferð kerlingar einnar,
sem þarna er sögð nokkuð itar-
lega. einnig aödragandi hennar.
Fleira kemur kunnuglega fyrir
sjðnir i þessu verki, að slepptri
dæmisögunni um samskipti ung-
linganna við gamla sjógarpinn.
Markús, sem tekur að sér uppeldi
þeirra bæði á sjó og landi. Landið
i bókinni er t.d. vestfirzkt og
landshættir allir.
Þorsteinsson
Guðmundur
undur
G. Hagalin rithöf-
Það er i rauninni merkilegt
hver þrekskrokkur Guðmundur
Gislason Hagalin er að hann skuli
enn vera i fullu fjöri sem höfund-
ur og hafa jafnsterkum minnum
fram að tefla og raun ber vitni i
þessari bók. Að visu fer honum
eins og gömium meisturum, að
sagan gerist raunar viða þar sem
textanum sleppir. verður eins-
konar undirsaga, einkum framan
af, enda er farið yfir heila manns-
ævi i nokkrum köflum áður en
kemur að viðureigninni við ung-
lingana. Þetta er einfaldasta snið
frásagnar og hefur á sér yfir-
bragð sveiflu, sem gamall sagna-
maður heiur á færi sinu en er
varla til eftirbreytni.
Vestfirðir eru mikið sagnapláss,
enda mannlif með f jörugasta móti
þegar komið er i sjávarplássin.
Illu heilli hefur byggðin dregist
mikið saman frS þvi um og fyrir
aldamótin siðustu, þótt ekki sé
ástæða til að ætla annað en byggð
vaxi að nýju þegar þörf krefur.
Há fjöll og djúpir firðir hafa eng-
|an Vestfirðing hindrað við að
koma fram málum sinum, hvorki
við konur eða útveg. Og þess eru
dæmi að menn sóttu á háa fjali-
vegi um nætur til að reka per-
sónuleg erindi i næsta firði, og
voru komnir aftur að morgni án
þess nokkur vissi um ferð þeirra
nema þá ógreind heimasæta.
Slikur söguvettvangur hefur haft
mikil áhrif á rithöfundarferil
Guðmundar Gislasonar Hagalin.
Efnin hafa komið upp i fang hon-
um eins og reistur gæðingur, og
enn lifa sögur, sem ekki hafa
orðið tilefni bóka.
Guðmundur Gislason Hagalin
mun afkastamestur núlifandi höf-
unda, og hafa þó margir tekið til-
hendinni á vettvangi sagnagerð-
ar. Hreysti hans er með ólikind-
um, og þótt mesti blossinn sé far-
inn úr Vestfirðingum hans og
þeim gerist þunggengt á hið háa
fjali, þar sem heimasætan hvilir i
dúnsa'ngum sinum i hliðinni hin-
um megin, verður þó alltaf af
þeim saga i höndum Guðmundar.
Og Markús Sveinbjarnarson er
enn ein minnileg persóna i per-
sónusafni höfundar. og skiptir
engu þótt hann sé notaður sem
efniviður i dæmisögu sem m.a.
ytir undir kröfuna um meiri sjó-
vinnunámskeiö.
IGÞ
Þolreið
Na'sla I.andsmót hestamanna
verður haldið i Skógarhólunt i
Þingvallasveit 13.-16. jtilt á
næsta ári. Gert er ráð fyrir að
þar verði svnd unt 600 hross.
Þar verða öll bestu kvnbóta-
hross landsins með og án af-
kvæma. úrval góðhesta verður
sýnt og öll helstu kappreiða-
hross reynd i Skógarhólum.
Aætlað er að efna til hesta-
markaðar, þar sem hægt verður
að skoða fjölda söluhrossa og
verða veittar itarlegar upplýs-
ingar um söluhrossin.
Fyrirhugað er að efna til póst-
ferðar i Skógarhóla með liku
sniði og á Landsmótinu 1974.
Ennfremur er i athugun að
koma á keppni i þolreið sem
sta'ði i viku.
Framkvæmdastjóri mótsins
er Pétur Hjálmarsson ráðu- ingsnefndar er Bergur Magnús-
nautur og formaöur undirbún- son hjá Fáki. —sq
■ er s í •% * tk n Ak Ak% ík
*«»»»>.»».». ♦
•,JMF wjy.
« ♦ * * ^ ♦. *>. ? 4