Vísir - 27.01.1978, Side 3
vism Föstudagur 27. janúar 1978.
3
„Aðalskipulag, eins og lögin
gera róð fyrir, er ekki til"
— segir í álykktun frá Torfusamtökunum
„Nýtt aöalskipulag fyrir
Reykjavik hefur enn ekki verið
lagt fram lögum samkvæmt og
þar af leiöandi ekki verið staðfest
og hefur þvi ekkert formlegt
gildi .” sagði Guðrún Jónsdóttir
arkitekt formaður Torfusamtak-
anna á fundi með blaðamönnum,
þar sem fjallað var um nýbygg-
ingar sem gert er ráð fyrir að
reistar verði á Hótel tslandsplan-
inu.
Á fundinum kom það fram að
samkvæmt fimmta kafla skipu-
lagslaga nr. 19/1964 á að auglýsa
aðalskipulagstillögu formlega,
eftir að borgarstjórn hefur gengið
frá henni og skipulagsstjórn
rikissins fallist á framlagningu.
Tillagan á siðan að liggja frammi
almenningi til sýnis samkvæmt
sérstakri auglýsingu sem a.m.k.
á að birtast i Lögbirtingarblaði
bæði uppdrættir og greinargerð, i
sex vikur þannig að menn eigi
kost á þvi á þeim tima og tveim
vikum betur að koma á framfæri
athugasemdum við tillöguna. Um
þær athugasemdir þarf borgar-
stjórn siðan að fjalla , taka til
greina eða hafna með rökstuðn-
ingi. Siðan fer málið á ný til
skipulagsstjórnar rikisins, sem
metur þá hvort hún mælir með
þvi við félagsmálaráðherra að
hann staðfesti skipulagstillöguna.
óeðlileg vinnubrögð.
Guðrún sagði að ekki hafi verið
farið með skipulagið á löglegan
hátt og þvi væri hér um ákaflega
óeðlileg vinnubrgð að ræða, að
leggja fram til samþykktar i
borgarstjórn deiliskipulags til-
lögu sem brýtur algjörlega i bág
við staðfest skipulag frá 1967, sem
er enn i fullu gildi. Einnig hefur
skipulagsstjóri lýst þeirri skoðun
sinni að deiliskipulagið fyrir Hó-
tel íslandsplanið, eða Hallæris-
planið eins og það hefur verið
nefnt brjóti ótvirætt i bága við
gildandi aðalskipulag. Raunveru-
leg aðalskipulagstillaga eins og
lögin gera ráð fyrir virðast sam-
kvæmtþessu ekki vera til, þannig
að hæf sé til að leggja fram.
Nýbyggingar, sem gert er
ráö fyrir
Tillagan gerir ráð fyrir að 5000
fermetra húsnæði sé rifið. Siðan á
að byggja upp á ný sem hér segir:
1. 5000 fermetra atvinnuhúsnæði.
2. 6000 fermetra ibúðarhúsnæði,
sem talið er samsvara 80 litlum
ibúðum.
3. Byggja á tveggja hæða bygg-
ingu yfir Hótel Islandsplanið og
vestasta hluta Austurstrætis.
Undir þeirri byggingu er gert ráð
fyrir bifreiðageymslu fyrir 140
bila.
Torfusamtökin hafa gert
athugasemdir við þessa tillögu.
Þar segir m.a.:
Um fyrsta þáttinn er það að
segja að engar likur eru á þvi að
nýtt atvinnuhúsnæði af sömu
stærð og fyrir er auki á fjöl-
breytni i atvinnurekstri. Hvað
varðar ibúðir þá hlýtur að vera
með þvi fyrirkomulagi sem sýnt
er að láta þær standast ákvæði
byggingarsamþykktar Reykja-
vikur, þar sem ekki er gert m.a.
ráð fyrir leiksvæði fyrir börn.
Um byggingu á Hótel tslands-
planinu segir að reynsla erlendis
frá er viða sú, að ekki hefur tekist
að halda þeirri starfsemi sem til
stóð. Hér verður ekki á ferðinni
neitt „Kúltúrhús” eins og stofnað
er til viða erlendis, enda trúlega
ofviða ekki stærri borg en
Reykjavik.
Það eru engin húsverndunar-
samtök svo skyni skroppin að þau
haldi þvi fram að allt sé gott sem
gamalt er, en það er áreiðanlega
öllum fyrir bestu, að i þessu máli
sé sýnd full gát, áður en 11 hús
séu rifin og nýbyggingar komi i
staðinn, segir i athugasemdum
frá Torfusamtökunum.
—KP.
Guðrún Jónsdóttir formaður Torfusamtakanna
Alexandersson.
Hver
er hvað?
Þegar þú þarft að finna rétta
viðskiptaaðilann til þess að tala
viö, þá er svarið að finna í
uppsláttarritinu ÍSLENSK
FYRIRTÆKI.
Þar er að finna nöfn og stöóur
þúsunda stjórnenda og
starfsmanna í íslenskum
fyrirtækjum, hjá stofnunum og
félagasamtökum og auk þess
starfsmenn stjórnar-
ráðsins og sveitastjórnar-
menn.
Sláið upp í
fSLENSK FYRIRTÆKI
og finnið svarið.
ÍSLENSK
FYRIRTÆKI
Ármúla 18.
Símar 82300 og 82302
Japonsk
islenikí vörublllínn
í aprfl og maí næstkomandi getum við aftur
boðið eftirtaldar gerðir af HINO vörubílum
frá samsetningarverkstæði okkar:
Hafið samband við okkur sem fyrst og fáið
upplýsingar um verð og greiðsluskilmála.
t
1
§
2
í
HINOZM Heildarþungi 26.000 kg. Vél 8 cyl. 270 hestöfl.
HINOKB Heildarþungi 16.800 kg. Vél 6 cyl. 190 hestöfl.
HINO iK 1 Heildarþungi 12.500 kg. Vél 6 cyl. 140 hestöfl.
HINfl IKI Heildarþungi 8.400 kg. 1 Vél 6 cyl. 90 hestöfl.
SIGN OF QUALITY
BILABORG HF.
SMIÐSHÖFÐA 23 — SÍMI 81298