Vísir - 27.01.1978, Síða 4
Nauðungaruppboð
annað og siðasta á Fljótaseli 12, þingl. eign Gunnars
Gunnarssonar fer fram á eigninni sjálfri mánudag 30
janúar 1978 kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 78., 79. og 80. tbl. Lögbirtingablaðs 1977 á
hluta i Flúðaseii 61, taiin eign Hiimars Jónssonar fer fram
eftir kröfu Jónasar A. Aðalsteinssonar hrl., Arna Guðjóns-
sonar hr., og Jóns N. Sigurðssonar hrl. á eigninni sjálfri
mánudag 30. janúar 1978 kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavik
Nauðungaruppboð
sem augiýst var I 78., 79. og 80. tbl. Lögbirtingabiaðs 1977 á
hluta í Flúöaseli 90, talin eign Eysteins Guðmundssonar
fer fram eftir kröfu Arna Stefánssonar hrl. o.fl. á eigninni
sjálfri mánudag 30. janúar 1978 kl. 16.15.
Borgarfógetaembættið i Reykjavik
Stóragerði —
4ra herbergja íbúð
Til sölu falleg 4ra herbergja ibúð á 4. hæð.
íbúð er ein stofa, 3 svefnherbergi, eldhús
og bað.
Uppl. i sima 26264 og 20178.
Sölumaður
Fasteignasala i miðborginni óskar eftir sölumanni. Um-
sóknir með uppl. um aldur og fyrri störf sendist augld.
Siðumúla 8 fyrir 2. febrúar merkt „Sölumaður 622”.
Aðstoðargjaldkeri
Óskum eftir að ráða aðstoðargjaldkera að
Fjármáladeild vorri, nú þegar.
Innifalið i starfinu er innheimta lög-
boðinna trygginga og almenn skrifstofu-
störf.
Verslunar- eða samvinnuskólamenntun
æskileg en starfsreynslu er krafist.
Frekari upplýsingar gefnar á skrifstofu
vorri að Ármúla 3.
Samvinnutryggingar
— Starfsmannahald —
ALLT TIL SKERMA:
Skermagrindur '
Skermafóöur Kögur, legg-
Skermasatin ingar, dúskar,
Skermavelúr litlir dúskar
Skermasiffon fyrir skápalyl
Sérverslun
UPPSETNINGA BÚÐIN
Hverfisgötu 74, a/
simi 25270.
ísaksturskeppni
Bifreiðaklúbbs Reykjavíkur
verður haldin að Leirtjörn, Mosfellssveit
sunnudaginn 29. janúar kl. 2.
Væntanlegir keppendur hafið samband
við skrifstofuna, Laugavegi 166, simi 22522
eftir kl. 8 i kvöld.
Miðjarðarhafið er ekki lengur sá unaðsreitur og eitt sinn var látið af.
Mengunin hefur séð fyrir því
Mengun Miðjarðar-
hafsins ó rœtur
að rekja til verk-
smiðja inni í landi
Haffræðingurinn, kaf-
arinn, rithöfundurinn og
sjónvarpsstjarnan,
Jacques-Yves Cousteau,
hefur nýlokið við að eyða
nær tvö hundruð milljón-
um króna til þess að
finna út nákvæmlega,
hversu skítugt Mið-
jarðarhafið er orðið.
Hann telur að fénu hafi
verið vel varið.
„Vissulega er Miðjarðarhaf-
inu mest mengunarhætta búin
af öllum höfum heims,” sagði
sá frægi neðansjávarkönnuöur
Frakka i viötali nýlega. „Ég'sé
ekki hvernig við getum ráðið
fram úr þessu vandamáli, án
þess að gripa til hrikalegra ráð-
stafana, og hrikalegar ráðstaf-
anir kosta mikið fé.”
Cousteau ræddi við blaða-
menn, þegar hlé var gert á
fundum alþjóöaráðstefnu, sem
fjallaði um mengun Miðjarðar-
hafsins. Sólbrúnn og sællegur,
vel á sig kominn af sundiþrótt-
inni bar Costeau það ekki með
sér, að hann væri orðinn 67 ára.
Og það var ungs manns ákafi
og óþolinmæði, sem gætti hjá
honum yfir seinagangi ráðstefn-
unnar, en á hana sendu öll
strandriki Miðjarðarhafsins
fulltrúa — nema Albania.
„Það er óskemmtilegt, en
óhjákvæmilegt,” sagöi hann um
samningaströglið. „Mér er
ljóst, að það verður að fara
þessa einu leið.”
Costeau, sem heimsfrægur er
orðinn af neöansjávarkönnun-
um og kvikmyndum sinum, kom
til mengunarráðstefnunnar i
Monte Carlo með betri yfirsýn
og þekkingu á vandamálinu en
nokkur annar ráðstefnufulltrúi.
Hann hafði einmitt nýlokið sex
mánaða siglingu um Miðjarðar-
hafið á hafrannsóknarskipi
sinu, Calypso. A þeim tima
rannsakaði hann itarlega meng-
unina i sjónum.
Sérfræðingarnir á Calypso
tóku á þessari siglingu 3.600
sævarsýni á mismunandi stöð-
um, og eru þessi sýni núna til
athugunar i rannsóknarstofnun-
inni i haffræðisafni Cousteaus
i Monte Carlo.
Eins og áður er sagt nam
kostnaður þessa leiöangurs tæp-
um tvö hundruð milljónum
króna, og sagðist Costeau ætla
að gefa niðurstöður rann-
sóknanna umhverfisverndará-
ætlun Sameinuðu þjóðanna
(UNEP).
Af þessum tilraunum eru ekki
nema i fáum tilvikum komnar
miðurstöður, en Coustau, er
kominn með góða mynd af meg-
in vandamálunum.
Hann hefur hnekkt þeirri al-
mennu trú, að Miðjarðarhafinu
stafi mest mengunarhætta af
oliuleka og skolpleiðslum frá
borgum. Þó segir hann, að
hundruðir þúsunda smálesta af
hvorutveggja fari árlega i Mið-
jarðarhafið.
„Bakteriur frá úrgangi og
skólpi eiga takmarkað æviskeið
I sjónu. og oliumengunin fer
minnkanu svo að hún verður
naumast nokkuð vandamál eftir
svona 30 ár,” segir hann.
En aðalvandinn er hinsvegar
kvikasilfurseitrun og geisla-
ur úrgangur, sem berst með
franska fljótinu Rhone og
itölsku Pó.
„Kvikasilfrið verður þarna til
eilifðarnóns og geislavirku efnin
eyðast ekki upp fyrr en eftir 350
þúsund ár,” segir Cousteau,
sem er annars ákafur andstæö-
ingur eftirlitslitillar þróunar
kjarnorkunnar.
Cousteau lýsir eftirspurn
orkusoltinna þjóða eftir kjarn-
orkunni sem ógnarhættu fyrir
kynslóðir framtiðarinnar, hugs-
un sem menn þori naumast að
hugsa til enda.
Hann telur vera oröna knýj-
andi þörf fyrir þvi að hefjast
handa gegn mengun lengst inni i
landi, enda vill hann og aðrir
rekja 80 til 90% ástæðna fyrir
mengun Miðjarðarhafsins sem
annarra hafa til landmengunar.
Og með þvi að hefast handa
gegn landmenguninni, er átt viö
að halda nokkur hundruð kiló-
metra upp eftir ánum Rhone og
Pó og verja gífurlegu fjármagni
til þess að hreinsa til i verk-
smiðjunum, sem standa á ár-
bökkunum.
Varlega áætlaður kostnaður
af slikriherferðer talinn mundu
nema ekki undir fimm milljörð-
um dollara á tiu eða tuttugu ára
timabili.
Þegar umræður eru þarna
komnar, snerta þær orðið gifur-
lega hagsmuni og ofboðslegar
fjárhæðir og verða um leið há-
pólitiskar. Cousteau telur að
rikisstjórnir Miðjarðarhafs-
landa geri sér orðið ljósa alvöru
málsins, en hann dregur i efa
vilja þeirra til þess að hafast
eitthvað að. Hann sagöist hafa
veitt þvi eftirtekt á sex daga
ráðstefnunni iMonte Carlo, hve
mikillar „sjálfselsku” gætti i
afstöðu rikjanna. Til ráðstefn-
unnar hafði verið boðaö til þess
að gera nýja alþjóðasáttmála til
þess að stemma stigu við meng-
un á landi.
A ráöstefnunni voru geröar
margar breytingatillögur á
samningsuppkasti, sem UNEP
hafði lagt fram. En allar tillög-
urnar gengu i þá átt aö draga úr
ströngustu ákvæðum.