Vísir - 27.01.1978, Side 8
(
V
Cr öskubusku, sem Þjóðleikhúsið frumsýndi nýlega
Visis-mynd Jens Alexandersson
Norrœna húsið:
Kvikmynd um
Corl von Linné,
— sýnd ó laugardag kl. 16
Kvikmynd um sænska visinda-
manninn og náttúrufræðinginn
Carl V. Linné verður sýnd i Nor-
rænahúsinu klukkan 16 á laugar-
dag.
Þann 10. þessa mánaðar voru
liðin tvö hundruð ár frá dauða
Linné og er ártiðar hans minnst
viða um heim um þessar mundir.
Carl V. Linné hafði á sinum tima
mikla þýðingu á sviði læknis-
fræði, landafræði, liffræði, jarð-
fræði og lyfjafræði. Stærstu afrek
sin vann hann á sviði grasa-
fræðinnar, þar sem hann fann upp
aðferð til þess að flokka jurtarikið
með þvi að byggja á mismunandi
æxlunarkerfum jurtanna. Kerfi
hans, vfkkað og aðhæft er enn
notað óbreytt.
Liné viðaði að sér efni til rann-
sókna sinna á umfangsmiklum
ferðum um Sviþjóð og þessum
ferðum hefur hann lýst i mörgum
ferðabókum.
Carl von Linné var prestsonur
frá Smálöndum Hann las læknis-
fræði við Uppsalaháskóla og tók
einnig guðfræðipróf til þess að fá
vegabréf til Þýskalands.Hóllands
og Englands. í Hollandi fékk hann
útgefið verk sitt Systema
Naturae. Hann var prófessor i
læknis- og náttúrufræði við Upp-
salaháskóla þar sem hann
starfaði til dauðadags.
—KP
Metaðsókn í
Þjóðleikhósinu
Fjoður verður
að fimm hœnum
— nemendur Leiklistarskólans vinna að
lokaverkefni sínu
Aðsókn hefur verið með
eindæmum góð hjá Þjóð-
leikhúsinu í vetur. Oftast
hefur verið sýnt fyrir fullu
húsi. Niu verk hafa verið á
fjölunum ýmist á stóra
sviðinu/ litla sviðinu/ í
skólum eða i leikför um
landiö.
Nýtt barnaleikrit hefur nú verið
frumsýnt, en það er öskubuska.
Alls koma tæplega 30 leikarar,
söngvarar og hljóðfæraleikarar
fram i þeirri sýningu. Aðalhlut-
verkið, öskubusku, leikur Edda
Þórarinsdóttir.
Þjóðleikhúsið frumsýndi i haust
þrjú ný verk og hefur það aldrei
gerst áður i sögu þess á einu og
sama hausti. öli þessi leikrit hafa
fengið hinar bestu viðtökur og eru
sýnd nánast fyrir fullu húsi.
'I’ýnda teskeiðin eftir Kjartan
Ragnarsson var frumsýnd i
september og hefur til þessa verið
sýnd 27 sinnum. Grænjaxlar, hóp-
vinnuverk Péturs Gunnarssonar
og Spilverks þjóðanna hefur verið
sýnt 29 sinnum.aðallega i skólum.
Annað eins iiggur nú fyrir af
pöntunum. Stalin er ekki hér eftir
Véstein Lúðviksson, hefur einnig
hlotið góða dóma og er alltaf upp-
selt á sýningarnar.
Uppselt hefur verið á allar sýn-
ingar á Fröken-Margréti, sem
sýnd hefur verið á litla sviðinu
siðan i haust.
Æfingar standa yfir á einu af
stórverkum heimsbókmennt-
anna, ödipus konungi eftir Sófó-
kles i islenskum búningi Helga
Hálfdánarsonar. Einnig standa
yfir æfingar á gamanleiknum A
sama tima að ári eftir Bernard
Slade, en leikritið verður frum-
sýnt utan Reykjavikur.
Káta ekkjan eftir Léhar verður
væntanlega frumsýnd þann 22.
mars.
— KP.
Samkomur
Samkoma á veguin Kristilegs
sjómannastarfs verður haldin að
Fálkagötu 10 á sunnudag kl. 4.
Þar mun Þórður Jóhannesson
sjóm annatrúboði prcdika, en
hann hefur um árabil haldið sam-
koinur á þessum stað. Ennfremur
mun séra Kolbeinn Þorleifsson
sýna litskyggnur, sem hann hefur
tekið saman um starfsemi félags-
ins.
„Þetta leikrit er tilbrigði um
ævintýri eftir H.C. Andersen sem
nefnist „Það er alveg áreiðan-
legt”, sagði Flosi ólafsson leikari
i samtali við Visi. Hann hefur
samið þessi tilbrigði sérstaklega
fyrir nemendur i Leiklistarskóla
islands sem Ijúka námi i vor.
Þetta er lokaverkefni þeirra.
Æfingar standa nú yfir og er
leikritið fært upp i samvinnu við
alla sem standa að sýningunni.
Þetta litla ævintýri H.C. Ander-
sen fjallar um það þegar rógvélin
fer i gang og gerir eina fjöður að
fimm hænum.
Flosi sagði að það hefði ráðið
úrslitum við val þessa verkefnis
að i fjórða bekk skólans eru nú sjö
konur og einn karlmaður.
Þórhildur Þorleifsdóttir er leik-
stjóri og Messiana Tómasdóttir
gerir leiktjöldin.
—KP
Spartacus
í Austur-
bœjarbíói
Menningartengsl tslands og
Ráðstjórnarrikjanna gangast
fyrir sýningu á kvikmyndinni
Spartacus i Austurbæjarbiói á
laugardaginn klukkan 15. Þetta
er litkvikmynd gerð árið 1975 eftir
samnefndum ballett Arams
Khatsatúrjans.
Maris Liepa sem starfaði hér i
Þjóðleikhúsinu á siðasta ári fer
með eitt aðalhlutverkið i kvik-
myndinni.
—KP