Vísir - 27.01.1978, Síða 24
VÍSIR
gftnft aæflfc
Smáauglýsing í Vísi er enginQf|4óauglýsing s''?'
Opiö virka daga til kl. 22.00 ^PH H Hlai wÖO I
Laugardaga kl. 10-12
Sunnudaga kl. 18-22
Urðu vor-
ir við
Ijósagang
LANDSIG HÆTT
Landsig við Kröflu er
nú hætt, að þvi að talið
er, og hefur land ekkert
sigið undanfarna tvo
daga, að sögn Einars
Tjörva, yfirverkfræð-
ings Kröflunefndar.
Talið er að mesta umbrotahrin-
an sé gengin yfir og að stöðvar-
húsið viö Kröflu sé farið að risa
eitthvað smávegis.
1 Kelduhverfi var allt við það
sama i' gær og nótt að sögn Viöars
M. Jóhannssonar, fréttaritara
Visis i Kelduhverfi. bó kom nokk-
uð snarpur kippur i gærkveldi.
Sagöi Viðar að menn fyndu litíö
fyrir skjálftunum þótt stansláus
skjálftavirkni sæist á mælum.
— KS
— varnarliðið á
ferðinni
ibúar á Stokkseyri, Eyrar-
bakka i borlákshöfn og viöar,
urðu varir viö mikinn Ijósa-
gangáhafiúti seinni partinn i
gær. Fékk lögreglan á Selfössi
fjöldann allan af upphringing-
um vegna þessa og um tíma
þagnaöi siminn vart. Þegar
betur var að gáö reyndist
varnarliðiö vera meö æfingu á
þessum slóöum, og notaðj
þaö m.a. svifblys. Óttinn um
aö þarna væru menn i nauðum
staddir, reyndist þvi ástæöu-
laus.
— EA
Einum sleppt
úr gœslu-
varðholdi
Einum mannanna sem setið
hafa i gæsluvarðhaldi vegna
rannsóknar á fikniefnamál-
um var sleppt i gærkvöldi.
Eru þvi fjórir i gæsluvarðhaldi
nú. Enn er ekki hægt að gefa
upplýsingar um magn það,
sem um er að ræða, en mál
þessara manna tengjast.
—EA
Jens Alexandersson Ijósmyndari Visis tók þessa mynd f
gær en þá voru menn i óða önn að taka niður eitt Ijósa-
mastrið við völlinn.
Melovöllurinn
á suðurleið
„Gamli, góði” Mela-
völlurinn hefur nú
brugðið fyrir sig betri
fætinum og haldið af
stað nokkra tugi metra i
suðurátt.
Nokkuð er siðan hafist var
handa við niðurrif giröingarinnar
sem var umhverfis völlinn og i
gær voru menn i óða önn að taka
niður eitt ljósamastrið við hann.
Ekki hefur verið ákveðið hvað
gert veröur við ljósin, hvort þau
verða sett upp á nýjum stöðum
eða höfð til bráðabirgða þar sem
þau standa nú.
Völlurinn sjálfur verður færður
til vegna Þjóðarbókhlöðunnar og
hann á að veröa tilbúinn 2. april
næstkomandi en þá hefst Reykja-
vikurmótiö i knattspyrnu.
1 fyrramálið klukkan 10 mun
Vilhjálmur Hjálmarsson taka
fyrstu skóflustunguna að bók-
hlöðunni nýju.þar sem verður til
húsa Landsbókasafn cg Háskóla-
bókasafn.
Húsnæði Landsbókasafnsins
við Hverfisgötu verður nýtt undir
Þjóðskjálasafnið. þegar þaö losn-
ar.
— GA
Þjóðverjar funda
um þátttöku í
jarðefnavinnslu
Fulltrúi frá islensk-
um hluthöfum Jarð-
efnaiðnaðar hf. er far-
inn til Þýskalands til að
sitja fund sem haldinn
er til að ákveða hvort
þýsk fyrirtæki gerist
eignaraðilar að fyrir-
tækinu.
Af bjóðverja hálfu munu sitja
fundinn fulltrúar iðnaðarráðu-
neytisins þar i landi, þingmenn,
og fulltrúar viðkomandi fyrir-
tækja.
011 sveitarfélög á Suðurlandi
eru hluthafar i þessu fyrirtæki
og fjölmargir einstaklingar. í
byrjun er gert ráö fyrir að flytja
út byggingarefni af Mýrdals-
sandi, en búast má við efnistöku
viðar þegar fram liða stundir.
Vestmannaeyingar eru hlut-
hafar, enda hafa þeir lengi verið
að velta fyrir sér á hvern hátt
megi nýta gosefnin sem komu
upp á yfirborðið þegar siðast
gaus i Eyjum.
Ingólfur Jónsson, alþingis-
maöur, sem verið hefur einn af
frumkvöölum stofnunar þessa
fyrirtækis, sagði Visi i morgun,
að samþykkt hefði verið aö
fjalla ekki um þetta mál i fjöl-
miölum fyrr en linurnar væru
teknar að skýrast. ,,Það er
ekki búið að ganga frá þvi að
bjóðverjar taki þátt i þessu”,
sagði Ingólfur.
„Hins vegar vonum við að
þessi mál komist á hreint áður
en langt um liður og þá verða
allar upplýsingar veittar”.
—ÓT
VISIR A MORGUN:
Eitthvað fyrir alla í
nýja helgarblaðinu
Helgarblað Visis kemur i
þriðja sinn út i nýju formi á
morgun, laugardag. Eins og les-
endur hafa tekið eftir hafa
laugardagsblað Visis og
upprunalega helgarblaðið runn-
iðsaman I eitt blað og á morgun
verður þessi helgarútgáfa 32
siður. Er þetta liður i viðtækri
skipulagsbreytingum og endur-
bótum á Vis i, eins og áður hefur
verið kynnt.
Ihinu nýja helgarblaöi Visis á
morgun verður geysifjölbreytt
lesetni fyrir kaupendur blaðsins
um helgina. Meöal annars er
rætt við Þráin Bertelsson kvik-
myndagerðarmann, Gunnar
Þórðarson tónlistarmann og
Lummurnar hans og ýmsar
gamlar iþróttakempur. Heim-
sótt er sérstæð fjölskylduhljóm-
sveit.rifjuð upp atriði úr hálfrar
aldar sögu Slysavarnafélags Is-
lands og kannaö hvort vegfar-
endur i Reykjavik vilja þiggja 1
nefið. Auk þess eru fjölmargir
fastir efnisþættir i helgar-
blaðinu að vanda.
Enn f óum við lán
,,Þetta lán I Japan cr I sam-
ræmi við lánsfjáráætlun rlkis-
stjórnarinnar sem lögð var
fram á Alþingi fyrir jólin,”
sagði Höskuldur Jónsson, ráðu-
neytisstjóri i morgun.
Þar var gert ráö fyrir 4,9
milljarða lántökum erlendis.
Þetta lán sem nú hefur verið
tekið er upp á 4.04 miltjaröa.
,,Fé sem fæst með þessari
lántöku verður variö tíl marg-
vislegra framkvæmda”, sagði
Höskuldur. Þar ber hæst
byggðalinu, Rafmagnsveitur
rikisins kaup á hlutabréfum i
Járnblendifélaginu, jarðstöö og
flugöryggistæki.
—JEG
SEMJA BLOÐIN
HVERT
FYRIR SIG?
,,Við teljum að blaðaútgef-
endur verði að standa saman og
vera i sama félagsskap. Þetta
tókst ekki og þvi sagði formaöur
félagsins af sér”, sagöi Kristinn
Finnbogason framkvæmda-
stjóri Timans, i samtali við Visi
i morgun, þegar viö inntum
hann eftir gangi mála hjá Fé-
lagi blaðaútgefenda. Kristinn
sagði að Dagblaðið hefði aldrei
gengið i félagið og bjóðviljinn
hefði sagt sig úr þvi vegna hugs-
anlegs möguleika á þvi að félag-
ið tengdist Félagi islenska
prentiðnaðarins og þar með
Vinnuveitendasambandinu. Þar
með voru þrjú blöð eftir Morg-
unblaðið, Timinn og Visir. Ekki
hefur verið kosin stjórn i Félagi
blaðaútgefenda i sex ár.
,,Það getur vel farið svo að
blöðin verði að semja hvert
fyrir sig”, sagði Kristinn.
Blaðamenn sögðu upp samn-
ingum 24. þessa mánaðar.—KP