Vísir - 01.04.1978, Page 3
visra Laugardagur 1. april 1978
3
Alþýðuflokksmenn
i Grindavík:
Stjórnarfrumvarp um verðlagsmál:
r
a morgun
Prófkjör um skipan
fimm efstu sæta á lista
Alþýðuf lokksfélags
Grindavíkur við bæjar-
stjórnarkosninga r í
Grindavik fer fram á
morgun, sunnudag.
Atkvæðisrétt hafa allir búsettir
Grindvikingar, sem náð hafa 18
áa ára aldri á kjördag i bæjar-
stjórnarkosningunum og sem
ekki eru flokksbundnir i öðrum
stjórnmálaflokkum.
Kjörfundur verður frá kl. 10 til
22 i félagsheimilinu Festi. Niður-
stöður prófkjörsins eru bindandi
hljóti sá frambjóöandi, sem kjör-
inn er, 20% af kjörfylgi flokksins
við siðustu sambærilegar kosn-
ingar. í bæjarstjórnarkosningun-
um 1974 hlaut flokkurinn 217
atkvæði og tvo menn kjörna. Báð-
ir bæjarfulltrúar flokksins gefa
kost á sér.
1 framboði eru 10 menn, og gefa
þeir allir, að einum undanskild-
um, kost á sér i öll fimm sætin.
Frambjóðendurnir eru:
Guðbrandur Eiríksson, skrif-
stofustjóri, Jón Gröndal, kennari,
sem einungis gefur kost á sér i
fjórða og fimmta sæti, Jón Hólm-
geirsson, bæjarritari, Jón Leós-
son, netagerðarmaður, Lúðvfk P.
Jóelsson, verkamaður, Pétur
Vilbergsson, sjómaður, Sigmar
Sævaidsson.rafvélavirki, Svavar
Arnason, bæjarfulltrúi, Sverrir
Jóhannsson, umboðsmaður, og
Sæunn Kristjánsdóttir, frú.
— ESJ
komin bókin Orð og
eftirPálHallbjörnsson. I
bókinni eru einkum hug-
leiöingar og bænir höfundar
sem er meðhjálpari i Hall-
grimskirkju.
Páll Hallbjörnsson er kunn-
ur úr viðskiptalifinu en hefur
auk þess samið nokkrar bækur
og eitt leikrit.
I formála segir höfundur
meðal annars:
„Það væri ekki ósennilegt
að fólk kynnti sér nokkuö
viðhorf, skoöanir og innihald
bókarinnar, ekki sist vegna
þess, að á lengstum tima ævi-
skeiðs höfundar hefur hugur
hans og hönd verið meira
tengt viðskipta- og athafna-
lifinu en hinu andlega. Og
vissulega gæti þaö orðið ein-
hverjum gott og gagnlegt að
kynnast þvi lifsviðhorfi, sem
ég tel allra mestu gæfu mina
og hvers einstaka einstakl-
ings.”
Orð og ákall er 480 blaösiður
að stærð, vönduð að allri gerð
og frágangi. A bókarkápu eru
birt lofsamleg ummæli
biskups um bókina. — SG
„Ekki gengið nógu
í frjálsrœðisátt"
— segir Gunnar Snorroson formaður Kaupmannasamtakanna
r/Mín skoöun er að
flestar breytingar sem
geröar verða á þeim æva-
fornu verðlagslögum sem
við búum við núna hljóti
að verða til bóta," sagði
Gunnar Snorrason for-
maður Kaupmannasam-
takanna við Vísi er hann
var spurður álits á stjórn-
arfrumvarpi um verð-
iagsmál er lagt var fram
á Alþingi fyrir skömmu.
Gunnar sagðist ekki hafa séð
frumvarpið i heild sinni en hann
taldi að það gengi ekki nógu
tangt i frjálsræöisátt. Vlsaði
hann i þvi sambandi tii tillagna
að nýjum lögum um samkeppni,
verðmyndun og samruna fyrir-
tækja er Verslunprsamtökin
sömdu og Albert Guðmundsson
flutti á Alþingi fyrr i vetur.
Sagði hann að umsögn Kaup-
mannasamtakanna um drög að
stjórnarfrumvarpinu, er nú
hefði verið lagt fram, hefði
byggst á tillögu Alberts.
Um ákvæði stjórnarfrum-
varpsins um frjálsa álagningu
ef næg samkeppni væri fyrir
hendi sagði Gunnar að til þess
hefði ekki þurft lagabreytingu. í
núgildandi lögum um verölags-
mál væri heimild þar að iútandi
en hún væri ekki nýtt. Ýmsir
varnaglar væru i frumvarpinu
um frjálsa álagningu og sagði
Gunnar að hann hefði þá trú að
þegar innflutningur sé frjáls
væri frjáls verðmyndun
nauðsynleg til þess að gerð yrðu
hagkvæm innkaup.
Um einstaka þætti frum-
varpsins sagði Gunnar að hann
byndi miklar vonir við að hið
nýja verðlagsráð myndi starfa
miklu faglegar en verölags-
nefnd hefði gert. Sú nefnd væri
pólitisk og hefðu ákvarðanir
hennar ekki byggst á nægri
þekkingu á högum verslun-
arinnar.
— KS
langt
Þau vita allt um
IB-lán
Hafir þú hug á að kynnast betur
hinum nýju IB-lánum og IB-veð-
lánum, skaltu bara koma eða hringja.
IB-ráðgjafar okkar kunna svör við
spurningum þínum. Sé þess óskað,
geta þeir einnig rætt og ráðlagt um
hve lengi sparað er og hversu há
upphæð.
Að ýmsu þarf að hyggja til að sparn-
aðaráætlunin standist.
Hvað þarf lánið að vera hátt til að
takmarkinu verði náð? Hvað eru líkur
á að hægt sé að leggja mikið inn
mánaðarlega?
Svör við þeim spurningum ráða mestu
um hve langt sparnaðartímabilið þarf
að vera.
Kynntu þér möguleikana betur.
Hafðu samband við IB-ráðgjafana
í aðalbanka eða einhverju útibúanna.
Fyrirhyggja léttir framkvæmdir.
Banki þeirra sem hyggja að framtíðinni
Iðnaðarirankinn
Lækjargötu 12, Sími 20580