Vísir - 01.04.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 01.04.1978, Blaðsíða 10
10 Laugardagur 1. april 1978 visra VISIR utgefandi: Reykjaprenth/f Framkvæmdarstjóri: DaviöGuömundsson Rítstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. Olafur Ragnarsson Ritstjornarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Gúð- mundur G. Petursson. Umsjón með helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöamenn: Edda Andrésdóttir. Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jónina Michaelsdottir. Katrin Pálsdóttir, Kjartan L. Palsson, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson Iþrottir: Björn Blóndal, Gylfi Kristjánsson. Ljosmyndir: Jens Alexandersson, Jon Eínar Guðjónsson. utlit og hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnus Olafsson. Auglysinga- og sölustjóri: Páll Stefánssor Dreifíngarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og sk'rifstofur: Siðumúla 8 simar 86611 og 87260 Afgreiðsla: Stakkholti 2-4 simi 86611 Ritstjórn: Siðumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 1700 á mánuöi innanlands. Verð i lausasölu kr. 90 eintakiö. Prentun Blaöaprent h/f. EÍnkaréttur ó því að hafa vit fyrir öðrum Upp á síðkastið hafa á ný orðið nokkrar umræður um frjálst út- varp. Ungir menn hafa kvatt sér hljóðs i blöðum og mælt bæði með og móti. Athyglisvert er, að hér eiga m.a. hlut að máli menn, sem um lengri eða skemmri tíma hafa búið erlendis við frjálsan útvarpsrekstur. Greinar af þessu tagi hafa birst hér í blaðinu siðustu vikur. Andmælendur aukins frelsis í þessum efnum halda því einkum fram, að hér sé fyrst og fremst verið að þjóna peningalegum sjónarmiðum. Frelsi til útvarps- fjölmiðlunar er hafnað fyrir þá sök, að slíkar stöðvar hljóti að byggja á hagnaðarsjónarmiði. Því er haldið fram, að slíkar stöðvar séu ekki frjálsari en aug- lýsingamarkaðurinn leyfir. Fullyrðingar af þessu tagi eru settar f ram í hugsunarleysi. Þeir sem melta þær hráar gera sig seka um að brjóta málið ekki til mergjar. Einn þeinra ungu manna, sem fjallað hafa um þetta mál í Vísi, hefur í þessu sambandi réttilega bent á, að andmælendurnir einblíni á út- varpsstöðina sjálfa. Þeir gleyma hlustendunum. Og þegar allt kemur til alls eru það þeir, sem skipta mestu máli. ............ Ef útvarpsstöð hefur enga hlustendur verður lítið úr auglýs- ingahagnaði. Efnisval þessara útvarpsstöðva hlýtur þvi fyrst og fremst að miðast við áhuga hlustenda. Aðöðrum kosti er þess tæplega að vænta að reksturinn gangi. Þetta sjónarmið á því ekki við um útvarpsstöðvar frekar en blöð. Eða ætli menn vilja banna blöð fyrir þá sök að þau þrifast að hluta til á auglýsingatekjum? Þá er þvi haldið fram af hálfu þeirra, sem eru andvígir frjáls- um útvarpsrekstri, að einmitt sú staðreynd, að slíkar stöðvar myndu i einhverjum mæli taka mið af áhuga almennings, hefði í för með sér ómenningarlega f jöl- miðlun. í þvi sambandi er talað um óæskilega múgmenningu. Þessi röksemdafærsla byggir í raun réttri á því, að i hverju þjóð- félagi eigi að vera valinn hópur manna, er segi hinum hvað sé menningarlegt og hvað ómenn- ingarlegt. Þeir eru alltaf til, sem eru reiðubúnir til þess að segja öðr- um hvað þeim er fyrir bestu. Við það er ekkert að athuga í sjálfu sér. En þegar þeir fá einkarétt á því að hafa vit fyrir öðrum er komin brotalöm í lýðræðið. Ein- mitt þess vegna er nú vaxandi áhugi á því að brjóta einokunar- fjötrana af útvarpsfjölmiðlun- inni. Menn sjá í hendi sér hversu skoðanamyndun væru þröngar skorður settar, ef blaðaútgáfa væri undir rikiseinokun. I raun og veru er hér þó einvörðungu um tæknilegan mismun að ræða. Að réttu lagi ættu menn að vera frjálsir að því að koma hug- myndum sinum á framfáeri með þeirri tækni, sem fyrir hendi er. Og þá gildir einu, hvort um er að ræða boðskap af einu eða öðru tagi, menningarlegt efni eða dægrastyttingu. Ef fólk vill hlusta á poppút- varpsstöð á það að hafa leyfi til þess. Valið á að vera fólksins. Um þetta gilda nákvæmlega sömu lögmál og blaðaútgáfu. I því sambandi er þó á það að lita, að stofnun og rekstur staðbund- inna útvarpsstöðva er smáfyrir- tæki í samanburði við blaðaút- gáfu. Ef menn vilja í raun og veru viðhafa rikiseinokun á einhverju sviði fjölmiðlunar fyrir þá sök, að hún sé ekki á færi annarra en f jársterkra aðila, væri miklu nær að banna frjálsa blaðaútgáfu en útvarp. Röksemdafærslur þeirra, sem eindregið vilja áf ramhaldandi rikiseinokun á út- varpsf jölmiðlun, hrynja til grunna, þegar málið er skoðað. Þverstæðurnar í þeirra eigin málflutningi eru of miklar til þess að röksemdafærslurnar verði teknar gildar. Áhugi fyrir frjálsri útvarps- fjölmiðlun fer greinilega vax- andi. Málið hef ur verið f lutt inn á Alþingi, en þar eru of margir seinvirkir kerfismenn. Þeir tala um frelsi, en skilja ekki alltaf í hverju það er í raun og veru fólg- ið í hinu daglega lífi fólksins í landinu. ÚR HUGSK0TIMU e f t i r B .i r g i 5 i q u r ð s s o n Hvar upphófst armurinn illi? Skæruliöar Palestinumanna frömdu hryöjuverk á dögunum. Þeir drápu á fjórða tug israelskraborgara ogsæröu enn fleiri. Að sögn var þetta mesta árás palestinskra skæruliöa á Israel til þessa. Ummæli Begins, forsætisráöherra Israels vegna árásarinnar voru á þá leiö aö Frelsissamtök Palestinu „væru fyrirlitlegri en nokkur samtök er saga mannsins greinir irá fyrir utan nasista”. Samtökin réöust ekki á fólk eöa sta öi þar sem hermenn væru. „Samtökin hafa einsett sér aö myröa aöeins óbreytta borgara”, sagöi hann. Hann sagöi aö árásin væri eitt- hvert mesta ódæðisverk allra tima. Begin skýröi frá þvi aö tveir skæruliöar heföu drukknaö þeg- ar gúmbát þeirra hvolfdi. Þeir heföu ætlaö aö taka gisla í Tel Aviv og haft meöferöis flugmiða þar sem sagöi: „Markmiö okk- ar er aö frelsa bræöur okkar sem hafa sætt pyntingum I fangelsum ykkar i 10 ár.” Skæruliðar þessir tilheyröu hópi sem kallaöist „Sveit fórnar- lamba Kafr Kasem’i Kafr Kasem er nafn á þorpi þar sem israelskir hermenn skutu til bana 43 Palestinumenn árib 1956. Þeirhöföu unniö sér þaö til lifsóhelgis aö r júfa útgöngubann óafvitandi, þ.e. i sakleysi van- þekkingarinnar. „Þeim sem úthella saklausu blóöi verður ekki þyrmt”, sagöi Begin. Hann hét þvi aö aflima „hinn iila arm PLO, frelsissam- taka Palestinu.” — Og þess var ekki langt aö biöa aö öxin félli: Arás Israelsmanna á Suður-Libanon. 1 þeirri árás hafa ekki aðeins palestinskir skæruliðar falliö. Fjöldi óbreyttra borgara hefur iátiö lifiö. Tugir ef ekki hundruð. Saklaust blóö runnið úr sárinu sem skyldi aflima „hinn illa arm.” Kurt Waldheim fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóö- anna fór höröum orðum um hryðjuverk Palestinumanna. Um árás Israelsmanna haföi hann mildari orö. Hiö ævaforna og mikilvirka lögmál: Auga fyrir auga.tönn fyrir tönn, rétt- lætir hefndina. Jafnvel tiltölu- lega siögóöur maöur eins og umræddur framkvæmdastjóri er undir áhrifum þessa lögmáls. Hvaö þá heldur almenningur: Hefiidin skal réttlætt. — Nú vill svo til ef notuð er rétt- lætis-mælistika þessa viður- styggilega haturslögmáls þá hafa tsraelsmenn vinninginn. Þeir hafa drepiö meira. Rifiö fleiri tennur úr, blindaö fleiri augu en Palestinumenn. Þeir hafa yfirburöi i drápunum og limlestingunum bæöi hvaö varöar óbreytta borgara og striðsmenn. Þeir ættu þvi aö hafa margfullnægt réttlæti þessu samkvæmt tölfræði lög- málsins. En fólkiö i heiminum lætur ekki aö sér hæöa. Flestir fara — eins og áöurnefndur framkvæmdastjóri — mildum oröum um árás tsraelsmanna. Margir eru enn dýpra sokknir i blekkingu haturslögmálsins en hann: Þeirsjá aöeinshryöju-og hermdarverk sem slik þegar Palestinumenn eiga i hlut en verk ísraelsmanna sjá þeir aö- eins sem aögeröir, árásir. Þeir hafa komiö sér upp þvi lagi að horfa aöeins til einstakra at- burða — eins og hér um ræöir — en ástæöurnar aö baki þeirra láta þeir lönd og leiö. Engar spurningar fram bornar. — Og satt er það: Hermdarverk palestinskra skæruliöa stinga i augun. Sú óskmynd sem lsraelsmenn vilja aö heimurinn hafi af skæruliöum Palestinu- manna er þvi áleitin: Illyrmi — gjörsneydd mannlegum til- finningum — sem ógna lifi og limum israelskra borgara, rétt- dræpir af lögmætum her Israels. Þvl áleitnari sem þessi mynd verður þeim mun f jarlæg- ari veröur spurningin: Hvar upphófst hinn illi armur? Palestinumenn voru reknir af landi sinu áriö 1948. Þeir hafa veriö landlaus þjóö i þrjátlu ár. Þeir eru réttlausir I samfélagi þjóöanna — persona non grata —. Þeir hafa lifaö I ömurlegum flóttamannabúöum án frum- stæöustu þjóöréttinda. Palestinumaöur er án vega- bréfs,feröafrelsis og réttlitill til vinnu. Frændþjóöir Palestinu- manna hafa snúiö viö þeim baki hver af annarri. Sá litli stuöningur sem þeir njóta verö- ur æ meira ioröi en á borði. Þeir voru hraktir úr Jórdaniu eftir blóöug átök viö her Husseins konungs. Þeir hefðu veriö upp- rættir i Suður-Líbanon ef Sýr- lendingar heföu ekki skorist I leikinn. Þeir hafa verið sýndar-bitoein I munni stór- veldanna I pólitiskum loddara- leik. Her raþjóöii^ tsr aelsmenn, s em rændi þá landinu, hefur meö- höndlaö þá sem þriöja flokks ’mannverur. Framferöi Israels- manna viö Palestinumenn hefur um margt minnt á þaö sem gyðingar uröu sjálfir aö þola þegar þeir voru landlaus þjóö. Frá upphafi vega hafa tsraels- menn gengiö fram af skefja- lausri hörku við aö uppræta andstööu Palestinumanna. Þeir hafa jafnaö þorp viö jöröu, drepiö konur og börn, myrt og limlest' leiötoga Palestinu- manna. Aöfarir þeirra hafa ekki aðeins miöaö aö þvi aö vernda sjálfa sig fyrir skæruliöum. heldur ekki siður aö þvi aö upp- ræta þjóöaranda Palestinu- manna. — „Viö vitum aö tsraelsmenn munu reyna aö drepa hvern þann sem getur hugsaö” var haft eftir Soraya Antonius fyrir fjórum árum. Hún er formaöur Upplýsinga- þjónustu arabiskra kvenna i Beirut. „Þeir hafa sagt mér aö þeir ætii aö sprengja mig i tætl- ur. Ég lifi viö daglega ógn og ég hræðist ofbeldi. En við eigum I striöi. Við getum ekki sigraö. En viö erum að vinna á I þvi sem aö minu áliti er meira viröi en striössigur. Israelsmenn eru byrjaðir aö spyrja sjálfa sig spurninga, sérstaklega þeir ungu. Eina vonin er sú aö i Israel skapist vitund um aö til- vist tsraelsrikis megi ekki byggja á hugmyndum um yfir- burði gyöinga gagnvart öðrum kynstofnum.” Orð þessarar konuum þá ógn sem sifellt vofir yfir henni eru ekki tóm. Mörg dæmi eru um aö Israelsmenn hafi ekki aðeins reynt aö uppræta þá Palestinu- menn sem vega að þeim með vopnum. Þeir hafa myrt ogsýnt tilræði mönnum sem höföu ekki notaö önnur vopn en penna og rödd. Þeir myrtu Kanafani rit- stjóra blaösins Hadaf árið 1972 og sendu rithöfundinum Anis Sayyegh bréfsprengju sama ár. Hann lifði af en særöist illa. Vikurnar á undan tilræöinu höfðu blöö og útvarp i tsrael haldið uppi linnulausum áróðri gegn honum, þar sem meöal annars sagöi: „Menntamenn eins og Anis Sayyegh skulu ekki halda að þeir séu ósnertanleg- ir.Þeir eitra hug arabanna”. — „Það varsannleikurinn I bókum hans sem þeir þoldu ekki” er haft eftir bróður hans. Engin þjóð veraldarinnar sem hefur sjálfsvitund lætur ræna sig landinu og þar meö sjálf- stæði sinu og lifsmöguleikum baráttulaust. Þvi öflugri sem mótstööumaöurinn eiiþeim mun meiri veröur örvænting þeirrar þjóöarsem á sjálfasig aö verja. Þvi minni stuöning sem hún fær frá öðrum þjóöum þvi meiri verður biturð hennar. Miskunnarleysiö i baráttuaö- feröum hennar helgast i hennar augum af þvi aö hún á fárra kosta völ i viðureign sinni við ofurefliö. Hermdarverk Palestinu-skæruliöa eru ekki sprottin úr hugum sálsjúkra ill- yrma eða samtökum „sem eru fyrirlitlegri en nokkur samtök sem saga mannsins greinir frá fyrir utan nasista.” Hermdar- verkin eru nauövörn þjóöar sem er á barmi glötunar. Hversu ljót og hryllileg sem þau eru jafnast siöleysi þeirra ekki á viö það hermdarverk að ræna þjóö landi hennar og vinna aö upprætingu hennar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.