Vísir - 01.04.1978, Blaðsíða 7

Vísir - 01.04.1978, Blaðsíða 7
VISIB SPURT A GÖTUNNI Hörður Hilmarsson, operator: Nei, ég trúi ekki á þessar anda- lækningar. Þetta er bara einber fégræðgi og ekkert annað. Ég færi ekki til Filippseyja, sama hvað væri að mér. Það þarf vissa kunnáttu til við lækningar en þetta er allt annað. Sigriður Asmundsdóttir, hús- móðir: Jú, ég geri það nú svona að vissu leyti. Sumt er þó að mlnu mati algjört fúsk. Jú, ég hef nú svolitinn áhuga á þessum sem eru að beygja skeiðar og þess háttar. Þó svo að eitthvað væri að mér þá held ég að ég myndi nú ekki leita svo langt sem til Filippseyja til lækninga. Júlia Sveinbjarnardóttir, hús- móðir: Nei ég trúi þvi ekki að hægt sé að lækna með öndum og berum höndum. Það er kannski hægt ef sjúkdómurinn stafar af andlegum kvillum. Ég er van- trúuð á þetta ef um er að ræða likamlega kvilla. Þetta að beygja skeiðar — það eru bara sjónhverfingar. Þó er ég ekki nógu vel að mér i þessum efn- um til þess að ég geti fullyrt um það hér og nú. Lausn krossgátu í síðasta Helgarblaði Trúir þú á andalœkningar? Isabella Danielsdóttir, húsmóð- ir: Já ég trúi þvi að slikt sé til. Ég tel að myndin sem sýnd var i sjónvarpinu á mánudagskvöldið gefi ekki rétta mynd af anda- skurðlækningum. Ég hef ósköp litið lesið um fólk sem notar hugarorkuna til þess t.d. að beygja skeiðar. Mér finnst eitt- hvað gruggugt við það. Þó er á- byggilega til eitthvert afl sem hægt er að beita með huganum. KR0SSG4TAN m 1 I FDÖGUR-EITT ORÐAÞRAUTI 1 Þrautin er fólgin i því að breyta þessum f jórum orðum i eitt og sama orðið á þann hátt að skipta þrívegis um einn staf hverju sinni í hverju orði. I neðstu reitunum renna þessi f jögur orð þannig sam- an í eitt. Alltaf verður að koma fram rétt myndað íslenskt orð og að sjálfsögðu má það vera í hvaða beyging- armynd sem er. Hugs- anlegt er að fleiri en ein lausn geti verið á slikri orðaþraut. Lausn orðaþrautarinnar er að finna á bls. 21. SMÁAUGLÝSINGASÍMI VÍSIS ER 86611 1

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.