Vísir - 01.04.1978, Síða 15
Laugardagur 1. april 1978
15
og lögreglunnar"
mf að
ra
ónu-
ingur
rir
'inns-
iið"
Möskuldsson
Helgarblaðið
par sig nw al*
Frœðistörfum
lur GuðvinssoBt
tlexandersson
Rannsóknarlögreglan fór tugi ferða I Hafnarf jaröarhraun til aö leita líkamsleifa Guömundar og Geirfinns
„Það gefur auga leið aö innbrot
i söluturn, þar sem þjófurinn er
kannski tekinn á staðnum, er af-
greitt fljótar heldur en til dæmis
stórt skattsvikamál eöa fjár-
svikamál. Þessir stóru fá sina
refsingu eins og hinir, þótt það
taki oft lengri tima og segja megi
aö veröbólgan vinni meö þeim
sem lenda i f járglæfrum þar sem
rannsókn tekur langan tima”.
— En af hverju tekur mörg ár
aö rannsaka sum stærri mál? Eru
þau ekki jafn áriðandi og smærri
málin?
,,Að sjálfsögöu eru þau þaö.
Hins vegar hefur ekki veriö starf-
andi i rannsóknarlögreglunni
neinn bókhaldslæröur maöur.
Rannsóknarlögreglumenn hafa
orðið aö sinna þessu ásamt öllu
ööru sem upp kemur hverju sinni.
Þeir hafa ekki fengiö neinn frið i
stærri málin heldur oröiö aö sinna
sinum vöktum og þeim málum
sem þá koma upp, upplvsa inn-
brot og þar fram eftir götunum.
Stærri málin sem útheimta mikla
vinnu mæta þá gjarnan afgangi.
Þaö er ekki fyrr en á allra siö-
ustu árum sem menn hafa getað
helgaö sig stærri málum sem upp
koma.
Viövikjandi þessum áhrifum
utanaðkomandi aöila vil ég taka
fram, aö þaö hefur aldrei komið
fyrir að nokkur hafi reynt aö hafa
áhrif á mig I þeim störfum sem ég
gegndi, hvorki dómsmálaráöu-
neytiö eöa aðrir. Eina alvarlega
pressan sem rannsóknarmenn
veröa fyrir er frá blööunum. Mik-
il skrif um tiltekiö mál geta haft
áhrif á geröir lögreglumanna og
dómara, en svona afskipti eru
aldrei til góös. Þessir menn veröa
aö hafa vinnufriö”.
— Nú viröast þaö oft vera sömu
mennirnir sem alltaf er veriö aö
dæma. Hefur fangelsisvist engin
áhrif á þessa menn?
„Fangelsisrefsing eins og hún
er framkvæmd hér hefur aö min-
um dómi engin önnur áhrif en þau
að halda viökomandi frá brotum
meöan hann situr inni. Áhrif
fangavistar á einstaklinginn
sjálfan eru aöeins til hins verra.
Þaö er ekki fyrr en á allra siöustu
árum aö reynt hefur veriö aö gera
eitthvaö fyrir þá sem dvelja i
fangelsum, gera athuganir á þvi
hvernig megi hjálpa þeim á
markvissan hátt. En þaö viröist
ekki vera augljóst mál hvar fá
mætti fé til kennslu og uppbygg-
ingar manna i fengelsum.
Fangelsis- eða hælisvist getur
samt veriö nauösynleg þeim sem
alltaf eru aö brjóta af sér eöa eru
nálægt þvi aö drekka sig i hel. En
sem betrunarvist er hún ekki til.
Það er hins vegar nauösynlegt aö
fá þetta nýja gæslufangelsi sem á
aö byggja. Þar þarf aö verja
hjúkrunaraðstaöa og vinnupláss
fyrir rannsóknarmenn, geölækna
og aöra nauösynlega starfsmenn.
Hins vegar vil ég benda á aö hér
eru menn ekki umsvifalaust
sendir i fangelsi fyrir smærri af-
brot og þeir fá mörg tækifæri til
aö taka sig á áfcr.r en þeir eru
sendir á Litla Hraun. En milli 50
og 100 afbrotamenn eru stööugt á
leiöinni út eöa inn um fangelsis-
dyrnar, hinir svonefndu vanaaf-
brotamenn”
Rannsóknarmenn voru
stundum leiddir á villi-
götur eins og þessi frétt
ber með sér,
oganuHaaHb ——-—
Góður árangur
— Er ekki margt sem skortir til
aö létta störf rannsóknarlögregl-
unnar?
„Þaö vill oft gleymast aö
árangur rannsóknarlögreglunnar
hér viö aö upplýsa afbrot er mjög
góöur miðaö viö aörar þjóöir. Þaö
kemur sjaldan fram aö til dæmis
á lögregla á öörum Noröurlönd-
um I miklum erfiöleikum meö aö
upplýsa sum mál sem þar koma
upp.
Hins vegar þurfa rannsóknar-
lögreglumenn hér aö fá mun fleiri
tækifæri til að afla sér aukinnar
menntunar I starfi. Aö visu þok-
ast þetta i rétta átt en þaö þarf aö
gera miklu meira i þessum efn-
um. Segja má aö rannsókn al-
gengustu brotamála útheimti
ekki mikinn tækjakost, en til
rannsóknar á stærri málum er
góöur tækja- og tæknibúnaöur
nauösynlegur”.
— Hvaö olli þeirri ákvöröun
þinni að segja upp störfum hjá
rannsóknarlögreglunni?
„Ég var búinn aö vinna mikiö
hjá sakadómi meðan ég var i
laganámi og vann þar siöan i sjö
ár sem fulltrúi áöur en ég hóf
störf hjá Rannsóknarlögreglu
rikisins. Ég var einfaldlega orö-.
inn mjög þreyttur á þessum störf-
um og auk þess hef ég alltaf veriö
mjög óánægöur meö afstöðu
rikisins til dómarafulltrúa. Þeir
vinna nákvæmlega sömu störf og
embættisdómarar en launin hins
vegar i engu samræmi við þaö. ;
En þetta hefur veriö góöur skóli
aö mörgu leyti sem kemur sér vel
aö hafa gengiö i gegnum nú þegar
ég hef snúiö mér aö almennum
lögfræöistörfum”, sagöi Orn
Höskuldsson.
-SG
Nauðungaruppboð
sem auglýst var i 14. 19. og 23. tbl. Lögbirtingablaðs 1977 á
eignmm Hringbraut 11, hæö og ris, Hafnarfiröi, þingl. eign
Guöna Einarssonar o.fi. fer fram eftir kröfu Innheimtu
Hafnarfjaröar á eigninni sjálfri þriöjudag 4. aprfl 1978 kl.
3.00 e.h.
Bæjarfógetinn I Hafnarfirði
Nauðungaruppboð
sem auglýst var f 94., 97. og 100. tbl. Lögbirtingablaös 1977
á hluta I Eyjabakka 16, talin eign Jóns Einarssonar fer
fram eftir kröfu Veödcildar Landsbankans á eigninni
sjálfri þriöjudag 4. aprfl 1978 kl. 16.15
Borgarfdgetaembættiö I Reykjavik
Nauðungaruppboð
sem auglýst var I 94., 97. og 100. tbl. Lögbirtingablaðs 1977
á hluta I Arahólum 4, þingl. eign Bjarna Marteinssonar fer
fram eftir kröfu Veödeildar Landabankans á eigninni
sjálfri þriöjudag 4. aprfl 1978 kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið i Reykjavlk
//Samantekin ráðaödraga f jórmenningana inn í mál-
ið".