Vísir - 01.04.1978, Qupperneq 19
19
vísra Laugardagur 1. aprll 1978
Davi6 ræöh: viö Bjarna heitinn Benediktsson, forsætisráöherra, viö
opnun Iönsýningarinnar 1968.
„Ja, mér liöur að minnsta kosti
vel og er hamingjusamur. Þaö er
þess vegna sem ég brosi svona
mikiö.
En ég held aö þjóðfélagiö sé i
afskaplega mikilli hættu statt.
Þaö sem okkur vantar mest er
leiötogi, sem þjóöin treystir og
trúir fullkomlega. Fólk þarf aö
treysta þvf aö hann sé ekki eigin-
hagsmunamaður, heldur beri
þjóöarhag fyrir brjósti. Þjóöin
þarf aö treysta dómgreind hans
og þeirra samstarfsmanna sem
hann velur sér og þjóöin þarf aö
gefa slikum leiötoga tækifæri og
friö til aö koma málum i lag. Við
þurfum aö sameinast i þvi aö
byggja upp en ekki rifa niöur.
Sambandiö milli almennings og
stjórnmálamannanna hefur rofn-
að. Það vantar allt trúnaöar-
traust á milli. Stjórnmálamenn
eru fyrirlitnir og tortryggöir og
engir skammaðir eins og þeir.
Þetta er lifshættulegt þjóðinni og
sjálfstæði hennar.”
//Hef ekki skaplyndi til
Alþingissetu"
—-Þú sagöir i blaöaviötali I
haust, aö þú gæfir ekki kost á þér i
prófkjör Sjálfstæðisflokksins
vegna þess að þaö samræmdist
ekki starfi þinu sem formaður
FII. Var þaö eina ástæöan?
„Nei, þaö var ekki eina
ástæöan. Hins vegar fer þetta
ekki saman. Iönrekendafélagiö er
ópólitiskt félag, sem þarf aö geta
unniö meö hvaöa rikisstjórn sem
er. Auk þess tel ég ekki aö eigi aö
nota félagiö sem stökkpall upp i
pólitiskan frama.
Það er auövitaö alvarlegt mál,
aö ekki skuli vera fleiri menn á
Alþingi, sem hafa veriö og eru
starfandi I atvinnulifinu.
Alþingismennirnir eru flestir
bara atvinnustjórnmálamenn og
vantar betri tengsl við sjálft at-
vinnulifið.
En ég held aö ég hafi e' skap-
lyndi til Alþingissetu. Ég held aö
ég mvndi veröa svo skúffaður yfir
hvað seint miöaöi. Ég óttast sem
sé aö ég þyldi ekki öll þau von-
brigöi, sem hljóta aö vera þvi
samfara aö vera stjórnmálamaö-
ur á Alþingi tslendinga.
Sem dæmi um seinaganginn get
ég tekiö jöfnunargjaldiö,
•, en ioks standa nú vonir til að
þaö veröi lögfest innan skamms.
Þegar ég fékk þessa hugmynd á
samningafundi fyrir tveim árum,
var ég svo viss um aö þarna hefði
ég dottið niður á hina ágætustu
lausn á ákveönu vandamáli og
enginn var beinlinis á móti þvi.
Viö höfum barist fyrir þvi.
Iönaöarráðherra hefur barist fyr-
ir þvi. Fjármálaráöherra hefur
barist fyrir þvi. Viöskiptaráö-
herra hefur barist fyrir þvi.
Hreinn meirihluti er fyrir málinu
á Alþingi. Samt tekur tvö ár að
koma þvi i gegn. Tregðulögmálið
virðist vera svona erfitt viöur-
eignar.”
Stefnuskráratriöin rekur
upp á sker
—Hvaöa álit hefur þú á stjórn-
málaflokkunum hér?
„Það hefur veriö sagt, aö hver
þjóð i lýöfrjálsu landi fái þá stjórn
sem hún á skiliö og þvi eru stjórn-
málaflokkarnir hvorki betri né
verri en þjóöin sjálf. Þeir hafa
kosti og galla eins og mannfólk-
ið.”
—Finnst þér mikill munur á
flokkunum, þegar þeir eru i rikis-
stjórn?
„Þeir veröa allir aö beygja sig
fyrir vissum lögmálum raun-
verulegs lifs. Viö þekkjum tugi
dæma um þaö aö stefnuskrár-
atriöi þeirra rekur upp á sker,
þegar flokkarnir eiga aö stjórna
þjóðarskútunni og þurfa aö fást
viö vandamálin á borði en ekki
bara i oröi og á þann hátt verða
þeir allir nokkuð likir, þegar þeir
eru viö stjórn.”
Tró'llslega leiðinlegir
Jafnframt formennsku i Félagi
islenskra iönrekenda á Daviö sæti
i framkvæmdastjórn Vinnuveit-
endasambandsins, en þvi sæti
fylgir vinna aö gerö kjarasamn-
inga, sem hann sagöi aö væri bæöi
„óhemju timafrek og þeir helgi-
siöir, sem gerö kjarasamninga
eru samfara eru tröllslega leiöin-
legir?
— En hvaöa álit hefur hann á
verkalýðsfélögunum?
„Ég held aö þau þyrftu langtum
meira miöstýringarvald en nú er.
Hér er Daviö viö skápinn, sem
hann teiknaöi utan um huröirn-
ar flnu.
Alþýöusamband Islands þyrfti aö
vera mun sterkara, en eins og
nú horfir viröist valdið þvi miöur
vera aö dreifast enn meira,”
sagöi hann. „Aukinn styrkur ASI
væri betri fyrir hinn almenna
félagsmann þegar til lengdar læt-
ur.
Annars er þaö sem er aö gerast
i þessum samningamálum þaö.
aö þeir eru farnir að skipta
hundruöum,mennirnir, sem hafa
atvinnu af gerð og túlkun kjara-
samninga og þvi að reka félög að-
ila vinnumarkaöarins. Hættan er
sú, aö hjá öllum þessum aðilum
veröi ekki mikill spenningur fyrir
þvi aö gera þetta einfaldara og
missa þar meö atvinnuna.
Fundahöld og gerö kjarasamn-
inga eru vertlö hjá þessum mönn-
um. Hvaö yröi um þá ef friöur
yröi á vinnumarkaðinum?
Það er hægt aö gera kerfiö ein-
faldara og þrátt fyrir þaö sem ég
sagöi hér áðan, álft ég aö viljinn
sé nú fyrir hendi hjá forystu ASI
Svona var siiungsaflinn I Veiöi-
vötnum fyrir 25 árum.
og atvinnurekendum aö vinna aö
þvi. Nú eru I gildi um 620 taxtar,
en þeim veröur vonandi fækkaö
niöur I 50 I næstu samningum.”
Hvorugur vildi þetta
—Hvernig gengur samstarfiö
við aöra iönrekendur? Eru þeir
sammála öllu sem þú gerir?
„Meöan þeir halda áfram aö
kjósa mig, hljóta þeir að vera
sammála.”
—Veröa menn sárir þegar þú
talar um aö iönfyrirtæki séu ekki
nægilega vel rekin, eins og þú
geröir i umræöuþættinum meö
Guömundi J. Guömundssyni um
daginn?
Þetta voru nú orö Guðmundar,
en ekki min. Ég held að islensk
fyrirtæki séu furöu vel rekin miö-
að við þær aðstæöur og það
óvinsamlega umhverfi sem þau
búa við. Og stjórnun og rekstur
fyrirtækjanna fer batnandi. En
þaö er hægt aö bæta mikiö enn,
guöi sé lof. Þá er eitthvaö til aö
keppa aö.
Þaö getur vel veriö aö yfirlýs-
ingar af þessu tagi særi ýmsa
menn, en sannleikurinn á ekki aö
gera þaö. Þaö særöi mig t.d. ekki
þegar Guðmundur sagöi aö ég
heföi staöið mig illa i baráttunni
fyrir iönaöinum, þvi ég veit aö ég
hef ekki náö fram nema broti
þeirra mála, sem ég ætlaöi mér,
rétt eins og ég hef staöiö mig illa i
samningunum viö Guömund.
Hann stóö sig raunar illa lika, þvi
hvorugur vildi þaö, sem út úr
samningunum kom.”
Eins og púkinn á f jósloft-
inu
—Tekurðu þaö aldrei nærri þér,
þegar þú ert skammaöur fyrir
þaö sem þú segir opinberlega ?
„Jú, einstöku sinnum. Annars
fæ ég mest hrós. Eftir siöastasjón
varpsþátt hringdi til dæmis
ókunnugt fólk látlaust i tvo daga
til aö láta.i ljós ánægju sina meö
þáttinn. Þar á meðal voru marg-
ar konur, og þaö kæmi mér ekki á
óvart ef ég yrði ekki lengi eini
maöurinn á tslandi meö þessu
nafni .
Mér þykir ákaflega vænt um
þessar hringingar. Þegar maöur
reynir aö leggja sig fram viö eitt-
hvað, er gott að fólk láti heyra i
sér, hvort sem þaö er til aö
skammast eða hrósa. Þaö er leiö-
inlegt islenskt fyrirbrigöi aö
þegja yfir hvoru tveggja,
óánægju og ánægju.
Ef mér finnst skammirnar
ósanngjarnar, tek ég þær nærri
mér, en þegar þær eru sann-
gjarnar finnst mér þær ágætar og
nauðsynlegar. Þaö albesta sem
mér er gert er þegar mér er sagt
til syndanna fyrir þaö sem ekki er
nógu vel gert.”
—Verða skammirnar til þess að
þú dregur úr stóru orðunum?
„Ætli ég sé ekki eins og Dúkinn
á fjósloftinu. Eins og hann magn-
ast ég bara viö skammirnar og
verö ennþá stóryrtari næst.”
Kapítalisti á Islandi
—Aö lokum Daviö, hefuröu ein-
hvern tima veriö róttækur?
„Mér skilst aö ég sé talinn all
róttækur. Ég er kapítalisti og þvi
hlýt ég að vera róttækur á Islandi,
þar sem Island er á hraöri leiö aö
verða al-sóslaliskt riki.”
-SJ.
CITROÉN* þiónusto
Til oð veito eigendum Citroén biionno
ennþá betri þjónustu, hðfum við flutt
i nýtt og fuHkomið húsneði að
Smiðjuvegi 32, Képavogi, og jafnframt
leggst niður rekstur verkstasðisms
al Reykjavikurvegi 45, tflafnarfiiii.
CITROÉN*
þjónustuverkstœði
Bílaverkstœðið BRETTI
Smiðjuvegi 32, Kópavogi.
Simar: 75155 og 75156
Skrifstofustjóri
Varnarliðið óskar eftir að ráða skrifstofu-
stjóra á aðalskrifstofu verslunar varnar-
liðsins.
Reynsla við skrifstofustjórn og bókhalds-
rekstur áskilin.
Mjög góð enskukunnátta nauðsvnleg.
Verslunarmenntun æskileg.
Viðskiptafræðingur án starfsreynslu
kemur til greina.
Umsóknir sendist til ráðningarskrifstofu
varnarmáladeildar, Keflavikurflugvelli
(simi 92-1793), fyrir 14. apríl n.k.
Tantra yoga
Fyrir hugrekki, styrk, þjóðfélags- og and-
lega vitund.
ókeypis leiðbeiningar i Háskóla íslands
(Félagsstofnun stúdenta.v/Hringbraut) 3.
april, og að Laugavegi 42, 3. hæð, 4. og 5.
april. Kennari Ananda Marga.
AÐALFUNDUR
Tollvörugeymslan hf.
Aðaifundur Tollvörugeymslunnar hf
verður haldinn i Kristalssal Hótel Loft
leiða föstudaginn 21. april 1978 kl. 17.
Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN
Laugardaginn 1. april kl. 16:00, fyrir-
lestur:
EEVA JOENPELTO: „Yrkesforfattarens
stötestenar”.
SIXTEN HAAGE frá Sviþjóð sýnir grafík-
myndir i bókasafninu 1.-10. april.
Veríð velkómin.
NORRÆNA
HÚSIÐ