Vísir - 27.04.1978, Page 1
„Huldumeyjar"
handtökumálsins
komnar fram?
Lögreglumenn og
fulltrúi bœjarfógeta
í Keflavik segjast
ekki hafa vitað um
neins konar „gildru"
GUÐBJARTUR 06 KARl
ÞEKKTU EKKI KONUNA
VIÐ SAKBENDINGUNA
önnur stúlkan sem nú segist
hafa tekiö þátt i að tæla Karl
Guðmundsson og Guöbjart
Pálsson suður með sjó á sinum
tima að áeggjan Hauks Guð-
mundssonar hafði áður komið
fram við sakbendingu i málinu.
Þá þekktu hvorki Karl né Guð-
bjartur hana sem aðra af huidu-
meyjunumV
Þessar upplýsingar fékk Visir
hjá Þóri Oddssyni vararann-
sóknarlögreglustjóra i morgun.
Þórir sagði það vera rangt sem
komið hefði fram i einu blað-
anna að Haukur Guðmundsson
hefði verið handtekinn vegna
rannsóknar málsins nú, hann
hefði komið af sjálfsdáðum til
rannsóknarlögreglunnar þegar
hann frétti að „huldumeyjarn-
ar” væri til yfirheyrslu. Þá
sagði Þórir það ekki rétt að
stúlkurnar hefðu unnið eið að
framburði sinum, enda mættu
þær það ekki þar sem þær væru
sakaðar um lögbrot.
Tvær stúlkur hafa borið við
yfirheyrslur að þær hafi fengið
Karl og Guðbjart til að aka sér
aö Vogum á Vatnsleysuströnd 6.
desember 1976 eftir að smyglað
áfengi hefði verið sett i bil Guð-
bjarts. Þetta hafi veriö gert
samkvæmt beiðni Hauks sem
siðan stjórnaði handtöku tvi-
menninganna þar suður frá, en
þá voru stúlkurnar horfnar úr
bilnum.
Haukur Guðmundsson neitar
eindregið þessum staðhæfingum
stúlknanna. Fulltrúi bæjarfó-
geta i Keflavik og lögreglumenn
frá Keflavik hafa einnig verið
yfirheyrðir. Þórir Oddsson
sagði að þeir neituðu þvi að hafa
vitað til þess að gildra hafi verið
lögð við handtökuna.
Rannsókn handtökumálsins
lauk formlega seint á siöasta
ári. Taldi rikissaksóknari að
ekki væru fyrir hendi nægar
sannanir til að gefa út ákæru á
hendur Hauki nema nýjar upp-
lýsingar kæmu fram, enda
höfðu stúlkurnar sem áttu að
hafa lagt gildruna fyrir Guð-
bjart og Karl ekki fundist.
Rannsóknarlögreglan hefur siö-
an unnið aö málinu i kyrrþey
með þeim árangri að fyrir
skömmu játuðu tvær stúlkur úr
Keflavik að vera „huldumeyj-
arnar”. Sem fyrr segir kannast
Haukur ekki við að þær fari meö
rétt mál.
Rannsóknarlögregla rikisins
hefur sent málið til saksóknara
sem mun meta hvort framburö-
ur stúlknanna sé grundvöllur til
ákæru á hendur Hauki.
—SG
Sótarlandaferðir
óþarflega dýrar
— vegna gjaldeyrishafta
Sólarlandaferðir íslendinga eru óþarflega dýrar vegna þeirra
gjaldeyrishafta/ sem við búum við. Þeirra vegna verða íslenskir
ferðamenn yfirleitt að greiða töluvert hærra verð fyrir gistingu en
ferðamenn frá öðrum löndum.
Við vinnslu ferðamála-
blaðsins, sem fylgir Visi i
dag, var að vonum rætt
töluvert um gjaldeyrismál,
þótt forstöðumenn ferða-
skrifstofanna væru tregir
til að láta hafa mikið eftir
sér opinberlega um þau.
Meðal þess sem kom
fram var að nauðsynlegt er
að gera langtima samninga
til að halda niðri verði á
vinsælustu ferðamanna-
stöðum i Evrópu, yfir
mesta annatimann.
Eins og i öllum viðskipt-
um þarf að staðfesta þessa
samninga með þvi að
greiða ákveðna prósentu
heildarupphæðarinnar fyr-
irfram.
Erlendar ferðaskrifstof-
ur eiga ekki i neinum vand-,
ræðum með þetta, þær geta
fengið lán upp á hundruð
milljóna til að staðfesta
samninga um húsnæði i
Miðjarðarhafslöndum.
Samkvæmt islenskum lög-
um er hinsvegar óheimilt
að gera slika samninga,
eða eins og það er kallað
„að stofna til skulda er-
lendis”.
Þetta þýðir i raun aö Is-
lendingar verða að greiða
mun hærra verö fyrir gist-
ingu en ella.
— ÓT.
Portúgals viðrœður
ganga heldur hœgt
Lítil von um verkefni við Hrauneyjarfossvirkjun
Viðræður portú-
galskra og íslenskra
aðila um aukna sölu
á portúgölskum vör-
um hingað fóru
fram á Hótel Holti í
gær, þar sem fjöldi
þeirra sem taka þátt
í viðræðunum er
það mikill að hús-
rými opinberra
stofnana hrökk ekki
til.
1 gær kynntu Portú-
galirnir það sem þeir
hafa hug á að selja hingað
til lands. Viðræöur voru á
algeru byrjunarstigi
þannig að ekki var tima-
bært að ræða um verð eða
aðra skilmála.
Portúgalir hafa áöur
lýst þvi yfir að þeir geti
ekki til lengdar keypt
svona mikið af Islending-
um, nema þvi aðeins að
sala á portúgölskum vör-
um aukist hér á landi.
Portúgalir hafa sýnt
áhuga á að taka þátt i
virkjunarframkvæmdum
hérlendis. Þeir sáu um
einn verkþáttinn við Sig-
öldu og nú hafa þeir gert
tilboð i stiflulokur við
Hrauneyjarfossvirkjun.
Tilboð þeirra var hið
fjórða lægsta.
Sú spurning vaknar þvi
hvort hugsanlegt sé að til-
boði Portúgalanna verði
tekið til að tryggja við-
skipti landanna. Sam-
kvæmt upplýsingum
Landsvirkjunar eru regl-
ur fyrirtækisins þær, að
lægsta tilboði er tekiö
samkvæmt mati ráðu-
nauta fyrirtækisins og
Landsvirkjunar sjálfrar,
enda sé uin traust firma
aö ræða, ella væri grund-
völlur útboða brostinn.
—BA
MYJU SMDLARNIR
í FULLUM LITUM
Tillögurnar um nýju
peningaseðlana og gjald-
m iðilsbreytinguna hafa
aðvonum vakið mikla at-
hygli og verið ræddar
manna á meðal. Visir
birtir hér myndir af hin-
um nyju seðlum i fullum
litum og þótt hönnun seöl-
anna sé ekki lokið verður
vart um grundvaliar-
brevtingar að ræða, verði
fariö út i að fullvinna þá.
Kristin Þorkelsdóttír
teiknari hefur unnið aö
hönnun hinna nýju seðla
ásamt Stephen Fairbairn
og á bls. 10-11 er rætt við
þau um hvaöa hugmyndir
liggja að baki nvju pen-
ingaseðlanna sem verða
af fjórum stærðum.
—SG.