Vísir - 27.04.1978, Blaðsíða 2
2
Fimmtudagur 27. april 1978
Veistu hvaö áætlað er aö
Kröfluvirkjun muni
kosta?
ólalia Sveinsdóttir húsmóðir: Al-
máttugur. Ég get ekki imyndað
mér þá tölu.
Þórný Jónsdóttir, afgrciðslu
mær: Éger vissumað hún kostar
fleiri milljarði.
Krlendur Jóhannsson, húsgagna
smiður: Við skulum nú tala sem,
minnst um það. Þetta eru leiðin-1
leg mistök hverjum svo sem uml
er að kenna. a
Jón G. Ualldórsson, viðskipta
lræðingur: Nú, einhver var að
nefna 11 milljaröi. Þessi virkjun
helur ekki komið að gagni, hvað
svo sem siðar kann að verða.
Snorri I). Ilalldórsson lcigubif-
reiðarstjóri: 5-6 milljarða. Méii
lýst nú ekki allskostar vel á þetta®
fyrirtæki. Það hefði átt að kanníj.
hiutina betur áður en farið var út:
i sjálfar framkvæmdirnar.
GUNNAR THORODDSEN Á BEINNI IÍNU VÍSIS GUNNAR THORODDSEN Á BEINNI IÍNU VÍSIS
Ný stjórnarskrárnefnd skili
tillögum innan tveggja ára!
,,Eg er sammála því, að rétt sé að skipa nýja stjórn-
arskrárnefnd, og tel aðgefa ætti henni ákveðinn tíma,
t.d. tvö ár, til að skila tillögum", sagði Gunnár
Thoroddsen er hann svaraði fyrirspurn frá Jóni Sig-
urðssyni, Mosfellssveit, um stjórnarskrárnefndina,
sem setið hefur undanfarin ár.
,,Það eru sex ár siðan þessi hún ekki sent frá sér neinar tillög-
nefnd var kosin”, sagði Gunnar, ur”.
,,og hún hefur ekki verið starfs-
laus. Nefndin hefur t.d. aílað Gunnar sagði aðspurður, að
mikilla gagna. Hins vegar hefur nefndarmenn hefðu enga þóknun
VANDI RARIK VAR
UM 3 MILLJARÐAR
„Fyrir tæpum fjórum árum,
þegar stjórnarskiptiu urðu,
skildi fyrrverandi iðitaðarráð-
hcrra. Magnús Kjartansson,
þannig við, að þá var fjárhags-
v a n d i U a f m ag ns ve i tna n n a
rúmlega einn milljarður, sem
\æri á núgiidandi veröiagi um
þrii- milljarðar. Sá vandi, sem
jni var viðað etja, var margfallt
stærri en það, sem við eigum mi
við að glima”, sagði Gunnar
Thorodtlsen, er hann svaraði
spurningu Þorvalds Mavvbv um
livort vandamál Itarik hefði
aidrei verið lyrir hendi i svipuð-
um mæli og nú væri, til að
mynda i tið fyrrverandi iðnað-
arráðherra.
Gunnar sagði, að fjárhags''-
vandi hefði verið viðloðandi
fyrirlækið frá þvi þaö var stofn-
að. Það stafaði af þvi, að þetta
fyrirtæki hefði tvenns konar
tiigang. Annárs vegar væri
þetta viðskiptafyrirtæki, sem
framleiddi og seldi raforku og
ætti að standa undir sér. Hins
vegar væru lagðar á það marg-
ar félagslegar skyldur, þ.e. að
sjá um ýmsar framkvæmdir,
sem útilokaö væru að gætu stað-
iö undir sér, en þættu nauösyn-
legar af félagslegum. ástæðum.
Þvi miður hefði ekki verið af
rikisins hálfu sinnt nægilega
þessari félagslegu skyldu. Það
þyrfti að leggja fram féúrrikis-
sjóði eða afla fyrirtækinu tekju-
stofna til að standa undir þeirri
hiið. Gunnarsagði, að rikissjóð-
ur hefði orðið eftir stjórnar-
skiptin að taka á sig 931 milljón
krónur vegna fjárhagsv.anda
Rarik auk þess að gefa eftir 148
miiljónir af aðflutningsgjöldum.
1 íramhaldi af þessu hefði svo
verðjöfnunargjald á raforku
verið sett á til að leysa þennan
mikla vanda.sem þá blasti við.
—KS.
þegið fyrir sin störf i nefndinni, en
starfsmaður hennar hefði fengið
greiðslu fyrir sina vinnu.
-ESJ
Gunnar svarar fyrirspurn frá hlustanda á beinu línu Vís-
is. Blaðamenn fylgjast með. Vísismynd: JA.
Andvígur því að
sameina Iðnaðar-
banka öðrum banka
,,Ég tel ekki vinning
að þvi að sameina Iðn-
aðarbankann öðrum
bönkum”, sagði Gunnar
Tboroddsen i svari við
f y r i r s p u r n S v e i n s
Björnssonar, kaup-
manns.
,,Ég held, að Iðnaðarbankinn
haii gert ákaflega mikið gagn
fyrir iðnaðinn. Það hefur verið
reynt að efla bankann siðustu ár-
in m.a. með þvi að gefa honum
leyfi tii nýrra útibúa bæði i Breið-
holti og á Selfossi, sem hefur gefið
góða raun. Ég tel að Iðnaðar-
bankinn eigi að starfa áfram,”
sagði Gunnar.
—ESJ.
Fer Snorri Jónsson á G-listann?
Timinn segir frá þvi i frétt i
gær að Æskulýðsfylkingin sé að
ganga frá lista til Alþingis-
kosninga i Reykjavik og muni
fylkingin væntanlega birta
þennan lista sinn i dag. Siðast
þegar fylkingin bauð fram
minnir undirritaðan að hún hafi
fengið hundrað atkvæði. Þessi
listi hinna ungu og róttæku er að
þvi leyti inerkilegur, að augljóst
er að betur hefur gengið að
koina honum saman en lista Al-
þýðubandalagsins til sömu
kosninga. Þar hefur bókstaflega
hvorki gengið né rekið siðustu
vikurnar eöa allt frá þvl að
Snorri Jónsson sagði sig úr upp-
stillingarnefnd þegar hann fékk
þvi ekki framgengt að Asmund-
ur talnafróði fengi efsta sætiö á
listanum — erfði Magnús
Kjartansson sem ýtt var út af
listanum.
Þau vandamál sem upp komu
við samsetningu lista Alþýðu-
bandalagsins, við það að fulltrúi
verkalýðsins krafðist manns,
virðast ætla aö veröa seinleyst.
Skiljanlegt er eins og Alþýðu-
bandalagiö notar verkalýðs-
hreyfinguna að hún vilji fá
menn á framboöslista. Það
hafði hins vegar ekki verið
reiknað með þvi að hún ætti
fleiri en einn fulltrúa i þremur
nokkuð öruggum sætum. Hitt
áttu eins og fyrr að vera
inenntamenn, helst þeir sem
taka laun samkvæmt launastig-
um Bandalags háskólamanna.
Til að fara að einhverju leyti
eftir þessum vilja bandalags-
manna bauð Snorri Jónsson upp
á menntamann, Asmund talna-
fróða en hann hafði getið sér
gott orð innan verkalýðs-
hreyfingarinnar fyrir aö vera
lipur á tölvu. Þykja þeir menn
jafnan merkilegir meðal þeirra
sem litið hafa lagt sig eftir pró-
sentureikningi.
En svo var harkan mikil i
uppstiilingarncfnd Alþýðu-
bandalagsins, að hún vildi ekki
hinn háskólamenntaða tölvu-
stjóra af þvi hann vann fyrir
verkalýöshreyfinguna. Þá
kvaddi Snorri nefndina af mikl-
um skörungsskap og hélt til út-
ianda þar sem hann sat ein-
hverja ráðstefnuna i þrjá daga.
Snorri er fyrir löngu kominn
heim, en samt bólar ekkert á
sáttum eða iista Alþýðubanda-
lagsins.
í rauninni er verkalýðs-
hreyfingunni vorkunn. Hún
kemur hvergi mönnum aö I svo-
nefndum verkalýösflokkum, Al-
þýðubandalaginu og Alþýðu-
flokknum. Björn Jónsson gekk
til liðs við Aiþýöuflokkinn á sin-
um tima en þar voru sllkir
snillingar i fleti fyrir að ekki var
hægt að koma Birni nógu
framarlega á lista til að hann
næði kosningu. Og nú hefur
Snorri Jónsson félagi Björns i
stjórn Alþýöusambandsins
komist að raun um að ekki er
siður erfitt að komast á fram-
færi i Alþýðubandalaginu séu
menn úr röðum verkalýösins.
Snorri Jónsson á nú aðeins
einn leik eftir, og hefur bæði
skapsmuni og þrek til að leika
hann til úrslita. Hann hefur sagt
sig úr uppstillingarnefnd flokks
sins út af Asmundi og er þvi
sjálfur fyllilega til umræðu sem
kandidat i fyrsta sæti listans i
Reykjavik. Raunar getur upp-
stiilingarnefndin úr því sen:
komið er ekki látið standa sig að
þvi að vlsa verkalýöshreyfing-
unni á dyr. Eðvarð er að visu á
listanum, sárnauðugur, en vera
hans þar breytir engu um það,
að endurnýjunin verður að vera
i þágu verkalýðshreyfingarinn-
ar. Annars fer fyrir bandaiag-
inu eins og krataflokknum, að
verkaiýðsforingjar þykja sistir
manna til að taka örugg sæti á
listum. Aftur á móti þvkja þeir
ágætir við að koma fram póli-
tlskum hermdarverkum til
hagsbóta fyrir stjórnarand-
stöðu. Þessi staða er Snorra
Jónssyni kunnari en flestum
öðrum. Og nú stendur upp á
hann að sanna að Alþýðubanda-
lagiö sé ekki flokkur mennta-
manna sem hafi verkalýðs-
hreyfinguna fyrir skóþurrku.
Það gerir Snorri með þvi að
beygja bandalag háskóla-
menntaðra á listanum til undir-
gefni og taka sjálfur fyrsta
sætið.
Svarthöfði