Vísir - 27.04.1978, Blaðsíða 3
Fimmtudagur 27. april 1978
3
UNNAR THORODDStN Á BtlNNI LÍNU VÍSIS GUNNAR THORODDSíN Á BtlNNI LÍNU VÍSIS GUNNAR THORODDStl
Var hlynntur
samstarfinu
við Framsókn
„Ég var hlynntur þvi að ganga
til samstarfs við Framsóknar-
flokkinn þegar þessi rikisstjórn
var mynduð,” sagði Gunnar
Thoroddsen i svari við fyrirspurn
frá Jónasi Kristjánssyni.
Hann sagði að nii gengju báðir
stjórnarflokkarnir meö óbundnar
hendur til kosninganna.
Hrefna Hallgrimsdóttir spurði
ráðherrann hvernig kosningarnar
legðust i hann.
„Maður vonar það besta”,
sagði Gunnar.
—ESJ.
Frumvarp um
jöfnunargjald
lögfest í vor
„Frumvarpum jöfnunargjald á
innfluttar iðnaðarvörur kemur til
umræðu á þinginu á næstunni og
það er stefnt að þvi að afgreiða
það á þessuþingi”, sagði Gunnar
Thoroddsen, iðnaðarráðherra á
beinu linu Visis.
Hann var að svara fyrirspurn
frá Guðmundi Haukssynþi Hafn-
arfirði um endurgreiðslu á upp-
söfnuðum söluskatti. Ráðherra
minnti á, að i fjárlögum ársins
væri gert ráð fyrir endurgreiðslu
fyrir árið 1977, en jöfnunargjaldið
ætti sem kunnugt er að standa
m.a. undir frekari endurgreiðslu.
Guðmundur spurði einnig um
hvort lausn væri væntanleg á
„lyftaramálinu” svonefnda, sern
skýrt hefur verið frá i Visi. Gunn-
ar kvaðst vonast til, að það mál
fengi farsæla lausn. —ESJ.
Kröfluvirkjun
aftur i gang
nœstu daga
„Ef til vill fer Kröfluvirkjun i
gang aftur næstu daga, en hins
vegar ekki til verulegrar fram-
leiðslu”, sagði Gunnar Thorodd-
sen, iðnaðarráðherra, á beinu
linu Visis.
Hann var spurður um þetta at-
riði af Sigurði Ásgeirssyni.
—ESJ.
Eftirlit með opin-
berum rekstri
nauðsyn
„Það er nauðsynlegt að gera
annað slagið athugun á rekstri
opinberra fyrirtækja að hann sé
sem hagk væmastur”, sagði
Gunnar Thoroddsen i svari við
fyrirspurn frá Mariasi Arasyni
um aðhald i opinberum rekstri.
Gunnar benti á, að fjárlaga- og
hagsýslustofnun fjármálaráðu-
neytisins hefði reglubundið eftir-
lit með rekstri á vegum rikisins,
og eins væri hagsýslustofnun hjá
Reykjavikurborg. —ESJ.
Af hverju
hœttí Union
Carbide?
Hætti Union Carbide þátttöku i
járnblendiverksmiðjunni vegna
þess, að markaðshorfur voru
slæmar, eða kom eitthvað annað
þar tii?
Gunnar Thoroddsen var spurð-
ur um þetta efni af Þorbergi
Leifssyni, og sagði, að hin opin'-
berlega skýring fyrirtækisins hafi
verið hinar slæmu horfur.
,,Ég dreg ekki i efa, að þetta
sjónarmið hafi verið uppi hjá
þeim, en það er talið, að önnur á-
stæðan hafi komið þar mjög til.
Nýlega höfðu orðið mannaskipti i
'orystu Union Carbide og sagt er
að hinir nýju ráðamenn hefðu
viljað breyta starfseminni nokk-
uð, færa sig frá stóriðju yfir i
framleiðslu fyrir neytendur i vax-
andi mæli. Margir telja, að þetta
hafi verið meginástæðan, en um
það er ekkert hægt að fullyrða”,
sagði hann. —ESJ.
Nefndarálit um
innkaup opinberra
aðila kemur
bráðlega
„Við höfum nú til athugunar
með hvaða hætti sé mögulegt að
greiða fyrir islenskum iðnaði með
innkaupum opinberra aðila.og er
nefndarálit væntanlegt bráðlega.
Sums staðar er það þannig, að
innlend tilboð eru tekin framyfir
erlend tilboðþótt þau séu eitthvað
hærri”, sagði Gunnar Thorodd-
sen, iðnaðarráðherra, á beinu
linu Vi'sis.
Hann var að svara fyrirspurn
frá Páli Gislasyni um, hvort ekki
væri nauðsynlegt að leggja á-
herslu á val islenskra tilboða.
Hannnefndi i þvi sambandi tilboð
i verkefni eins og Grundartanga-
verksmiðjuna.
Um það sérstaka 'mál sagðist
ráðherra hafa rætt nýlega við for-
ráðamenn tslenska járnlendifé-
lagsins.
„En við verðum að hafa það i
huga, að um leið og við óskum eft
ir að islensk iðnfyrirtæki hafi að
öðru jöfnu forgang, verður for-
sendan að vera að tilboð þeirra
séu samkeppnishæf”, sagði hann.
—ESJ.
Kjarodómur ákveði
laun þingmanna
„Ég tel ekki, að þingmenn eigi
sjálfir hvorki með lögum né á
annan hátt að ákveða sin laun.
Eðlilegt er að laun þeirra séu á-
kveðin af kjaradómi á sama hátt
og laun forseta tslands, hæsta-
réttardómara, ráðherra og ráðu-
neytisstjóra”, sagði Gunnar
Thoroddsen i svari við fyrirspurn
frá Jóni tsleifssyni um, hvort nú-
verandi fyrirkomulag þessara
mála væri eðlilegt. —ESJ
Á að fello niður álögur
af tœkjum til iðnaðar?
„Það hefur verið stefnt að þvi
að létta álögur á iðnaðinn. Það
hefur verið gert m.a. með þvi að
afnema 20% söluskattinn af tækj-
um og aðföngum til iðnaðarins”,
sagði Gunnar Thoroddsen, er
hann svaraði spurningu frá Rafhi
Jónssyni, hvort hann væri fylgj-
andi þvi að álögur á hráefni og
tæki til iðnaðarins yrðu felldar
niður til eflingar honum. Gunnar
Björnsson spurði einnig um þetta
mál.
Gunnar Thoroddsen sagði, að
þetta gjald hefði verið lækkað
niður i 10% i' ársbyrjun 1975 og i
ársbyrjun 1977 var það fellt niður.
Auk þess hefði verið veitt heimild
til þess i nýjum tollalögum að
fella niður ýmiss konar aðflutn-
ingsgjöld af tækjum og hráefni til
iðnaðari'ns. KS.
Hvenœr kemur
heildarlöggjöf um
umhverfismál?
Gunnar Thoroddsen flutti fyrir
skömmu á alþingi frumvarp til
laga um umhverfis og mengunar-
mál. Bogi Ingimarsson spurði
ráðherra, hvenær búast mætti við
heildarlöggjöf um það efni.
Gunnar sagði, að þetta frum-
varp, sem lagt hefði verið fram,
hefði fengið vandaðan undirbún-
ing. Sérstök nefnd undir forsæti
Gunnars Schram hefði undirbúið
það. Hins vegar hefði það verið
lagt fram nú til kynningar og ætl-
unin væri að almenningur og fé-
lagasamtök sem málið snertir
sérstaklega kynntu sér þaö. Sagð-
ist Gunnar vonast til, að það yrði
lagt fram aftur á næsta þingi,
hver sem þá væri i stjórn, og að
þá tækist að lögfesta þetta frum-
varp. —KS
Vonast til að
frumvarpið um
sáttasemjara verði
afgreitt í vor
Þórður Kristinsson spurði ráð-
herra, hvort hann gerði ráð fýrir
þvi, að frumvarp hans, sem lagt
hefur verið fram á Alþingi, um að
starfs rikissáttasemjara verði
gert að aðalstarfi, nái fram að
ganga á þessu þingi.
Gunnar sagði, að hann hefði
skilið aðila vinnumarkaðsins
þannig, að þeir væru sammála
um nauðsyn þessa, og hann gerði
sér þvi miklar vonir um, að þetta
frumvarp gæti orðið að lögum á
þessu þingi. —KS
Gera úttekt ó
skipasmíða-
iðnaðinum
„A siðastliðnu ári fór fram
rækileg könnun á öllum skipa-
smiðastöðvum á landinu”, sagði
Gunnar Thoroddsen, iðnaðarráð-
herra, i svari við fyrirspurn frá
Sigurði Ásgeirssyni.
Hann sagði, að nefnd ynni nú að
þvi að gera úttekt á skipasmiða-
iðnaði landsmanna og koma með
tillögur. —ESJ.
,Ekki hœgtað dœma
einn eða annan'
„Það er hægt að dæma einn eða
annan i þessu sambandi. Það er
margt ókunnugt i iðrum jarðar,
og ekki hægt að vita um þaö allt
fyrirfram”, sagði Gunnar Thor-
oddsen á beinu Unu Visis þegar
Guðni Sigurjónsson spurði, hvort
sérfræðingar Orkustofnunar hefðu
brugðist i sambandi við Kröflu-
virkjun.
Ráðherra sagði, að ýmiskonar
óhöpp hefðu komið fyrir á svæð-
inu, sem hefði auk þess reynst
öðruvisi en sérfræðingar gerðu
ráð fyrir.
„Þettá er fyrsta meiriháttar
tilraun til að nýta gufuorku okkar
til raforkuframleiðslu, og þessa
tilraun varð að gera. Það, sem
þar hefur gerst, mun verða okkur
að miklu gagni i framtiðinni, þvi
gufan á háhitasvæðunum er ein af
okkar mestu orkulindum” —ESJ.
GUNNAR THORODDStN Á BtlNNI LÍNU VÍSIS GUNNAR THORO
GETA LÁNAÐ
HÁTT í 3 MILL-
JARÐA í ÁR
Gunnar sagði, að i ár myndi
Iðnlá nasjóður hafa um 1750
miUjónir til útlána, og væri
þottaað raungildi mun meira en
t.d.árið 1974. Þá myndi Iðnþró-
unarsjóður hafa um 1000
miUjónir til útlána.
„Iðnlánasjóður og lönþröun-
arsjóöur munu hafa hátt i þrjá
milljaröa til útlána á þessu ári”,
sagði Gunnar Thoroddsen i
svari við fyrirspurn frá Haraldi
Sumarliðasyni um lánveitingar
til islensks iðnaðar.
Lengri aðlögunartími ?
„Við teljum, aö húsgagnaiön-
aðurinn sé ein af þeim greinum,
þar sem komið gæti til athugunar
að óska eftir lengri aðlögunar-
tima samkvæmt EFTA-samn-
ingnum”, sagði Gunnar Thorodd-
sen i' svari við fyrirspurn frá
Þresti Leifssyni á Akureyri.
„Það er gert ráð fyrir þvi i
EFTA-samningnum, að hægt sé
að óska eftir framlengingu á að-
lögunartima ef hægt er að sýna
fram á, aðeinstakar greinar eigi i
miklum erfiðleikum. Þetta er ein-
mitt verið að kanna varðandi hús-
gagnaiðnaðinn. 1 fyrra var sér-
stök nefnd skipuð i þvi skyni, og
hún hefur þegar skilað mér
bráðabirgðaáliti en heldur áfram .
störfum”, sagði Gunnar. —ESJ.
Mappdrætti
napjKlrættisár!
100 bílar
LADA SPORT í maí
ALFA ROMEO í ágúst
FORD FUTURA í október
Auk þess parhús í Hafnarfirði og fjöldi
annarra glæsilegra vinninga. Lægsti
vinningur 25. þúsund kr.
Sala á lausum miðum og endurnýjun
flokksmiða og ársmiða stendur yfir.
Dregið í 1. flokki 3. maí.