Vísir - 27.04.1978, Síða 5
5
VÍSÍR
Fimmtudagur 27. april 1978
OLÍULEITARMÆLINGAR FÓRU FRAJI/I
FYRIR VESTURLANDI ÁRIÐ 1971
,, Ekki er nein ástæða til
að búast við því fyrir-
fram að olía finnist á ís-
lensku yfirráðasvæði"
sagði Guðmundur
Pálmason, jarðeðlisfræð-
ingur. Hann er einn af
þeim sem setið hefur í
vinnuhópi á vegum Iðn-
aðarráðuneytisins er sett
hefur fram í tillöguformi
drög að reglum sem
byggja mætti á leyfis-
veitingu til olíuleitar.
Siðan vinnuhópurinn skilaði
þessum tillögum hafa enn borist
nýjar beiðnir þar sem óskað er
eftir leyfi til að gera mælingar
með oliuleit að markmiði. 1
þessum nýjustu beiðnum er ósk-
að eftir þvi að fá að framkvæma
athuganir i haust.
Guðmundur sagði að árið 1971
hefði einu fyrirtæki, Oliufélag-
inu Shell, verið veitt Ieyfi af Iðn-
aðarráðuneytinu til að fram-
kvæma mælingar út af Vestur-
landi. Guðmvndur, sem sjálfur
tók þátt i leiðangrinum, sagði að
þetta væri eina leyfið sem veitt
hefði verið til þessa. Niðurstöð-
ur þessara mælinga voru sendar
til Iðnaðarráðuneytisins sem fól
Orkustofnun þær. „Niðurstöð-
urnar voru þannig að ekki er
hægt að segja að neinar likur.
séu á að þarna sé oliu að finna”,
Guðmundur Pálmason.
sagöí Guðmundur. Hann kvaðst
þeirrar skoðunar að slikar mæl-
ingar væru okkur hagstæðar.
Fyrirfram væri að visu ekki
reiknað með að oliu væri hér að
finna, en á hinn bóginn væri það
ekki vitað fyrr en rannsóknir
hefðu farið fram. Hér væri um
dýrar mælingar að ræða og
mikinn tækjabúnað þyrfti til
þeirra, sem ekki væri fyrir
hendi hérlendis. Islendingar
fengju þvi þessar rannsóknir
framkvæmdar ókeypis og Iðn-
aðarráðuneytið fengi eintak af
þeim niðurstöðum sem fram
kæmu. Hann kvaðst vilja taka
það fram að ekki væri um nein-
ar boranir að ræða og óvist
hvort þær yrðu nokkru sinni.
Það væri þvi engin ástæða til að
óttast um lifrikið umhverfis
landið.
Aöspurður sagði hann að ekki
væri unnt að segja að beiðnirnar
væru um könnun á einu svæöi
fremur en öðru.
,,Það er I rauninni ekki hægt
að segja neinar fréttir af þessu
máli fyrr en stjórnvöld, væntan-
lega rikisstjórn hefur tekið á-
kvörðun. Nu stendur á stjórn-
völdum að taka ákvörðun um
það hvort við viljum að mæling-
ar fari fram og ef svo verður
hvort leyfin verða veitt sam-
kvæmt tillögum vinnuhópsins”
sagði Guðmundur Pálmason.
—BA—
A myndinni má sjá tvar Jónsson formann MIR, Nikolaj Kúdravtséf aðstoðarfiskimálaráðherra,
Valentin Gerazimof starfsmann Sovétrfkin—tsland og Viktor Moroz.
Aðstoðarfiskimálaróðherra
formaður MÍR
Nikolaj Kúdravtséf,
aðstoðarfiskimálaráð-
herra Sovétrikjanna,
sem nýíega var kjörinn
stjórnarformaður i fé-
laginu Sovétrikin — ís-
lamf hefur að undan-
förnu dvalist hér á landi.
Ráðherran sat aðalfund Menn
ingartengsla tslands og Ráð-
stjórnarrikjanna ásamt Viktor
Moroz varaforseta úkrainskra
vináttufélagsins og Valentin
Gerazimof ritara og starfsmanni
félagsins Sovétrikin— Island.
Arlega eru haldnir nokkrir
fundir, alltaf 17. júni auk þess
sem afmælis merkra Islendinga
hefur verið minnst. I fyrra var
minnst 75 ára afmælis Halldórs
Laxness, sem er viðlesinn I Sovét-
rikjunum. I ár er fyrirhugað að
halda upp á 60 ára afmæli Olafs
Jóhanns Sigurðssonar.
Sovéski ráðherrann vildi taka
það fram, að hann hefði fyrst og
fremst heimsótt ísland, sem full-
trúi Sovétrikin—Island, en ekki
vegna starfs sins. Hann hafði þvi
ekki gert ráð fyrir að kynna sér
sérstaklega sjávarútveg íslend-
inga. Matthias Bjarnason, sem
hann hitti i heimsókn sjávarút-
vegsráðherra til Sovétrikjanna,
gerði honum hins vegar kleyft aö
kynnast litið eitt sjávarútvegi Is-
lendinga.
I haust er fyrirhugað að MIR
efni til svonefndra sovéskra
kynningardaga sem helgaðir hafa
verið einstökum sovétlýðveldum.
I septembermánuði verða þeir
helgaðir úkrainskra sovetlýð-
veldinu og er væntanlegur hingaö
til lands 25 manna hópur þaðan,
þ.á .m. Anatoli Mokrenko barriton
einn af fremstu söngvurum óper-
unnar i Kiev, sem hefur hlotið
heiðurstitilinn þjóðlistarmaður
Sovétrikjanna.
—BA.
FASTEIGNASKRA FRA
AFDREP
HVERFISGATA 44
28644
2ja herb. íbúðir
EINARSNES
2ja herb. risibúð ihúsi sem stendur á stórri eign-
arlóð.
Verð kr. 6. millj.
3ja herb. íbúðir
DÚFNAHÓLAR
3ja herb. ibúð á 3juhæð 13ja hæða blokk.
Stofa, 2 herb., nýjar innréttingar.
Steypt bilskúrsplata fylgir.
Verð kr. 12 millj.
ASPARFELL
3ja herb. ibúð á sjöttu hæð i háhýsi.
Stór bilskúr fylgir.
Verð 12.5-13 millj.
SMYRLAHRAUN, HAFNARFIRÐI
3ja herb. ibúð i þribýlishúsi.
Stofa, 2 herb. bilskúr fylgir. Litið áhvilandi.
Verð 12-12.5 m.
4ra herb. íbúðir
DVERGABAKKI
4ra herb. ibúðir á 3ju hæð. Falleg og notaleg
ibúð, með stóru aukaherbergi i kjallara.
Verð kr. 14.5 millj.
ÆSUFELL
4ra herb. ibúð á 6. hæð i háhýsi.
Frábært útsýni. Litið áhvilandi, sérstaklega
falleg ibúð.
Verð kr. 14 millj.
Stœrri ibúðir
GAUKSHÓLAR
5 — 6 herb. ibúð á 5 . hæð i háhýsi.
Fagurt útsýni. Bilskúr fylgir.
Verð 17 milli.
BUGÐULÆKUR
5 herb. ibúð i fjórbýlishúsi. Skemmtileg ibúð á
góðum stað.
Verð 16 millj.
r
I smíðum
RAÐHÚS VIÐ ENGJASEL
Húsið selst fullfrágengið að utam einangrun,
gler og miðstöðvarofnar fylgja. Bein sala eða
skipti á Ibúð.
Verð kr. 14 millj.
Einbýlishús
ARNARTANGI, MOSFELLSSVEIT
Einbýlishús á góðum stað i fögru umhverfi.
Verð kr. 23 millj.
ÞINGHÓLSBRAUT, KÓPAVOGI
Einbýlishús á fallegum stað i Vesturbæ
Kópavogs
Bilskúrsréttur.
Verð kr. 20 millj.
Höfum kaupendur að eftirtöldum
I hafnarfirði. eignum:
2ja herb. íbúðum
4ra herb. m/bílskúr nálægt Arnar-
hrauni
Eldra einbýlishúsi.
I REYKJAVÍK
Góðri sérhæð.
Húsi með 2 ibúðum. Bílskúr þyrfti
helst að fylgja, þó ekki skilyrði.
4ra til 5 herb. íbúð í Laugarnesi,
Heima- eða Fossvogshverfi.
Lítilli íbúð í vesturborginni.
3ja herb. íbúð í Háaleitishverf i, Neðra-
Breiðholti eða gamla bænum.
3ja herb. íbúð í Hlíðunum eða
nágrenni.
3ja herb. íbúð í Hraunbæ.
Einbýlishúsi ca. 150 fm í Breiðholti.
Önnur hverfi koma til greina.
3
OO
c
Skrifstofuhúsnœði
90 fm skrifstofuhúsnæði í miðborg
Reykjavikur. Upplýsingar eingöngu á
skrifstofu Afdreps.
Verslun
Lítil verslun
hjarta Reykjavikur.
Verslað er með snyrtivörur herra,
tóbak og túristavörur. Upplýsingar á
skrifstofunni.
Höfum eínnig fleiri verslanir s.s.
nýlenduvöruverslun, barnafataversl-
un o.fl.
cd
O-
'J2
Komum og verðmetum samdœgurs
KVÖLD’OG HELGARSÍMI SÖLUMANNS 76970
o
s:
H
c
c
28644
28645
J