Vísir - 27.04.1978, Page 9
9
Úr kvikmvndinni „Undir fargi óttans”, sem sjónvarpið svndi á laug'ardagskvöldið og' bréfritari vitnar
til.
Einar Einrsson skrifar:
Síðastliðinn laugardag var
sýnd mynd i sjónvarpinu er
nefndist „Undir fargi óttans”.
Mynd þessi, sem var bandarisk.
lýsti lifi útvarpsmanns undir
fangi McCartyismans. Að minu
áliti var þetta nokkuð góð mynd,
en það var samt ekki ætlun min
að ræða hér um kommúnistaof-
sóknir McCartys og félaga hans.
Það var eitt atriði umfram ann-
að sem vakti athygli mina. Út-
varpsmaðurinn vann hjá CBS
útvarpsstöðinni, sem ku vera
„frjáls útvarpsstöð”, en hvað
gerðist? Fyrir þá sem ekki sáu
þessa mynd skal ég rekja sögu-
þráðinn lauslega.
Aðurnefndur útvarpsmaður
sá um þætti i morgunútvarpi
CBS. Þessi útvarpsstöð, sem og
aðrar „frjálsar” útvarps-
stöðvar i Bandarikjunum er
fjármögnuð með auglýsingum.
Ef þeim fækkar, minnkar að
sjálfsögðu hagnaður stöðvanna.
Þetta vissu þeir, sem ofsóttu
alla sem ekki voru örugglega
hægrimenn.
Auglýsendur, sem auglýstu i
þætti útvarpsmannsins var bent
á að þarna væri á ferð hættuleg-
ur vinstrimaður — ekkert sann-
að, nei, staðreyndirnar voru
látnar liggja milli hluta.
Auglýsendurnir kipptu að sér
hendinni og CBS rak manninn.
Og þarna stóð hann atvinnulaus
en áfram hélt hin „frjálsa”
útvarpsstöð.
Ég held að þessi mynd sé
nokkuð gott innlegg i þær um-'
ræður sem hér hafa verið um
frjálst útvarp. Það er nefnilega
ekkert til sem heitir frjálst út-
varp. Það hlýtur alltaf að verða
einhverjum háð. Eikinu eins og
nú er eða auglýsendum.
Að lokum legg ég til að i hvert
sinn sem umræður um „frjálst
útvarp” hefjast, verði myndin
„Undir fargi óttans” sýnd.
Sem kunnugt er létust tveir farþegar i suður-kóreönsku flugvélinni, er Sovétmenn skutu á hana. Hér er
likkista annars farþegans tekin út úr flugvél sem flutti hana frá Sovétrikjunum til Helsinki.
Fordœmum morð á sak-
lausum fíugfarþegum
Einn úr Breiðholtinu skrifar:
Ég skora á stjórnvöld að mót-
mæla nú þegar við Sovétstjórn-
ina hinni villimannlégu árás á
óvopnaða farþegaflugvél, sem
villtist af leið yfir hinu heilaga
landiSovétrikjanna. Þaðer ekki
:i nokkur afsökun fyrir þessu
framferði Rússa. Þeir hreinlega
myrtu tvo farþega og særðu enn
aðra. Þegar þetta bréf er skrif-
að situr flugstjórinn ennþá i
varðhaldi hjá Rússum ásamt
siglingafræðingi þotunnar.
Þó svo að þessi vél hafi verið
frá Suður-Kóreu skiptir þetta
mál okkur talsvert miklu. Hér
er um að ræða viðurstyggilega
morðárás á saklausa flug-
farþega og áhöfn. og við eigum
öll að fordæma slika villi-
mennsku.
Allir vita, og-Sovétmenn lika,
að þegar flogið er yfir heim-
skautasvæðin geta átt sér stað
siglingaskekkjur. Þá geta og
siglingartæki alltai bilað og svo
eru mannleg mistök alltaf
möguleg, lika i Paradis-
Rússlandi.
Ef islensk stjórnvöld mót-
mæla ekki morðárásinni^ sýna
þau dæmalausan aumingja-
skap, og ég vona að allir lslend-
ingar fordæmi þá menn i Kreml
sem stóðu að þessum voðaverk-
um.
- ÚTBOÐ -
Framkvæmdanefnd um byggingu leigu og
söluibúða i Ólafsvík, óskar eftir tilboðum í
byggingu fjölbýlishúss við Engihlið,
Ólafsvik.
Húsið verður þriggja hæða fjölbýlishús
242 fermetrar . 2258 rúmmetrar, með 8
ibúðum. Skila á húsinu fullfrágengnu eigi
siðaren 31. mai 1979 .
Húsið er boðið út sem ein heild, en heimilt
er að bjóða i nokkra verkþætti þess sér-
staklega.
Útboðsgögn verða til afhendingar á skrif-
stofu Ólafsvikurhrepps og hjá tæknideild
Húsnæðismálastofnunar ríkisins gegn kr.
20.000,- skilatryggingu.
Tilboðum á að skila til skrifstofu Ólafsvik-
urhrepps eigi siðar en mánudaginn 22.
mai 1978 kl. 14.00 og verða þau opnuð að
viðstöddum bjóðendum.
Formaður framkvæmdanefndar um
byggingu leigu og söluibúða i Ólafsvik.
Alexander Stefánsson.
Byggingafélag
verkamanna Reykjavík
Til sölu:
þrjár þriggja herbergja Ibúöir:
I 4. byggingarflokki viö Meöalholt.
í 7. byggingarflokki viö Nóatún og
I 12. byggingarflokki viö Bólstaöarhliö.
Félagsmenn skili umsóknum sínum til skrifstofu félagsins
aö Stórholti 16 fyrir kl. 12 á hádegi fimmtudaginn 4. mai
n.k.
Félagsstjórnin.
HÓTEL VARÐBORG AKUREYRI
SÍMI (96)22600
Góð gistiherbergi
Morgunverður
Næg bilastæði
Er i hjarta bæjarins
Pierre Robert
Jone Hellen
SNYRTIVÖRURNAR VERÐA
KYNNTAR AF SNYRTISÉRFRÆÐINGI
FRÁ FYRIRTÆKJUNUM í SVÍÞJÓÐ í
EFTIRTÖLDUM VERSLUNUM.
Hafnarborg
Strandgötu 34
Snyrtivörudeildin
Glæsibæ
Fimmtudag 27. 4.
kl. 1-6
Föstudag 28. 4.
kl. 1-6
Föstudagskvöld
Kynnir Margaretha sumarsnyrtinguna
frá PIERRE ROBERT
sumarið 1978
Á ÚTStNARKVÖLDI Á HÓTEL SÖGU.
KÖMIÐ
I VERSLANIRNAR,
KYNNIST NÝJ-
UNGUMí
F R Æ Ð I S T U M
FEGRUN HJA
MARGARETHA
ODE
SEM KÝNNIR SUM-
ARSNYRTINGUNA
1978.
cM’fnerióku