Vísir - 27.04.1978, Qupperneq 10
10
VÍSIR
utgefandi: Reykjaprent h/f
Framkvæmdastjóri: Daviö Guömundsson
Ritstjórar: Þorsteinn Pólsson ábm.
ólafur Ragnarsson
Ritstjórnarfulltrui: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmund
ur Petursson. Umsjón meö helgarblaöi: Árni Þorarinsson. Blaöamenn: Berglind
Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elías Snæland Jons’son, Guðjón Arngrímsson,
Jón Einar Guðjónsson, Jonína Mikaelsdóttir, Katrín Pálsdóttir, Kjartan Stefáns-
son, Öli Tynes, Sæmundur Guðvinsson, Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L.
Palsson. Ljósmyndir: Björgvin Pálsson, Jens Alexandersson. utlitog hönnun: Jón
Oskar Hafstéinsson, Magnús Olafsson.
Auglysinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson
Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
Auglysingar og skrifstofur: Siöumúla 8.
simar 86611 og 82260
Afgreiösla: Stakkholti 2-4 simi 86611
Ritstjórn: Siöumúla 14 simi 86611 7 linur
Askriftargjald er kr. 2000 á
mánuöi innanlands.
Verö i lausasölu
kr. 100 eintakiö.
Prentun
Blaöaprent h/f.
Sálfrœði, hagfrœði,
pólitík
Seðlabankinn hefur nú kunngert hugmyndir sínar um
hundraðföldun á gengi krónunnar. í fyrra hafði bankinn
fremur lítinn áhuga á málinu og setti upp hálfgerðan
hunashaus þegarLárus Jónsson flutti þingsályktunartil-
lögu um að skera af krónunni tvö núll.
Ýmsir aðilar hafa hreyft þessari hugmynd á siðustu
mánuðum m.a. Benedikt Gröndal. Talsmenn allra
stjórnmálaflokkanna þar á meðal leiðtogar beggja
stjórnarflokkanna lýsa því yfir i samtölum við Visi i
gær, að þeir séu hlynntir aðgerð af þessu tagi eða haf i já-
kvæð viðhorf til hennar.
Þvi má ætla öö þessi sálræna aðgerð verði að veru-
leika. En á það verður að leggja áherslu, að hundrað-
földun á verðgildi krónunnar er í sjálf u sér engin lausn á
verðbólguvandamálinu. Þjóðin er eftir sem áður jafn
illa á vegi stödd í þeim efnum, ef annað og meira kemur
ekki til.
Gildi þessarar aðgerðar felst fyrst og f remst í þvi, að
hún auðveldar mönnum að nota krónuna sem viðmiðun. í
annan stað getur hún verið þáttur í þvi að auka tiltrú
manna á gjaldmiðilinn á nýjan leik, ef samstaða verður
að kosningum loknum um að snúa frá þeirri verðbólgu-
stefnu, sem hér hefur verið fyigt i áratugi.
Verði á hinn bóginn haldið áfram að fjárfesta með
seðlaprentun og knýja á um launahækkanir með inni-
stæðulausum ávísunum hefur margföldun á verðgildi
krónunnar enga þýðingu. Kjarni málsins er sá að þessi
breyting verður að haldast í hendur við markvissar end-
urreisnarráðstafanir í islenskum efnahagsmálum.
Sálrænar aðgerðir geta verið góðar með öðru, en þær
leysa ekki allan vanda einar út af fyrir sig. Það er t.d.
ekki vist að borgaði sig að ráða sálf ræðinga í stöður hag-
fræðinganna í Seðlabankanum og Þjóðhagsstofnun,þó að
sálfræðilausnir geti verið góðra gjalda verðar, þegar
saman fara að auki hagfræði og pólitík.
Það er sem sagt ástæða til að varaviö myntkerfis-
breytingu sem einhverri lausn á þeim vandamálum, sem
við er að etja. Eigi að siður er rétt að stíga þetta skref i
þvi skyni að auka virðingu fólks f yrir verðmæti peninga.
Engum vafa er undirorpið að með þessu móti má efla
traust fólks á annars konar aðgerðum, er miðuðu að þvi
að viðhalda verðgildi krónunnar.
Þegar Lárus Jónsson f lutti þingsályktunartillögu sina i
fyrra lagði hann í greinargerð áherslu á, að hundrað-
föluun á verðgildi krónunnar yrði að vera liður í sam-
ræmdum aðgerðum til þess að hamla gegn þeirri verð-
bólgu, sem við höfum með takmörkuðum árangri glímt
við undanfarin ár.
Á þessu stigi málsins er ástæðulaust að gera litið úr
hugmyndinni um nýjan gjaldmiðil. Þvert á móti er á-
stæða til að binda nokkrar vonir við þessa nýskipan. Hitt
er annað mál, að eðlilegt er að almennir borgarar séu
ekki um of trúaðir á að valdaaðilarnir i þjóðfélaginu nái
þeirri viðtæku pólitisku samstöðu, sem óhjákvæmileg er,
ef jafnvægi á að nást í þjóðarbúskapnum.
Alþýðuflokksmenn hafa sett fram tillögur um kjara-
sáttmála og talsmenn Sjálfstæðisflokksins ræða um
þjóðarsátt. Nafngiftin skiptir ekki máli. Aðalatriðið er
að menn átti sig á því, að einvörðungu víðtæk pólitísk
samvinna aðila, sem hafa ítök i hagsmunasamtökum
launþega og vinnuveitenda, getur breytt rikjandi á-
standi. Hugmyndir um nýja krónu verður að skoða i
þessu Ijósi. Og fyrst menn eru í alvöru farnir að tala um
þjóðarsátt og kjarasáttmála ætti ekki öll von að vera úti.
Fimmtudagur 27. april 1978 vism
• Rœtt víð Kristfiw Þorkeísdóttur og
„Portrait er einn míkilvægasti öryggisþátturinn í seðlagerð. Það hefur áhrif á
val þeirra manna sem prýða seðlana hvað til er af mannamyndum frá fyrri tíð og
hvaðer vitað um lifsstarf viðkomandi" sagði Kristin Þorkelsdóttir teiknari i sam-
tali við Vísi um tillögur sinar að nýjum peningaseðlum.
Upphaflega var Kristinu falið
að teikna 10 þúsund króna seðil
þegar Halldór Pétursson féll frá,
en honum hafði -verið falið að
vinna seðilinn.
,,Áður en tillögur lágu fyrir um
10 þúsund króna seðilinn kom i
1 jós að bæta þyrfti við fleiri seðla-
stærðum sem þýddi um leið heild-
arendurskoðun á peningaseðlum
okkar. Jafnframt var farið að
ræöa hugmyndina um gjald-
miðlabreytingu og út frá þvi farið
að vinna að alveg nýjum seðl-
um”, sagði Kristin.
Hún hófst þegar handa og meö
henni hefur unnið að þessu verk-
efni Stephen Fairbairn sem er
starfsmaður hjá henni. PZn hvern-
ig á að ákveða útlit peningaseðla
og hvað eiga þeir að sýna?
Menningarverðmæti
,,Ég hef áður minnst á portrait
og þýðingu þess við tillögur að
seðlunum. ViðStephen lögðum til
grundvallar gömul islensk menn-
ingarverðmæti og byggðum á is-
gera
Óbeinir
eiga að fara út úr
visitöiunni.
Afnema þarf þá
reglu að draga
niðurgreiðslur
frá visitöluút-
reikningi.
Skattleysismörk
á að setja við
fjórar milljónir
króna.
Rikisstjórnin hefur lagt fram á
Alþingi tvö frv. um skattamál,
sem marka munu þáttaskil i
þessuefni. Ifrv. tillaga um tekju-
og eignaskatt er stefnt að þvi að
gjörbreyta álagningu þessara
skatta, og með frv. um stað-
greiðslu skatta er i fyrsta sinn
stigið úrslitaskref i þá átt að inn-
heimta skatta og gjöld af tekjum
samtimis þvi sem þær myndast.
Heildarskattbyrði af tekjuskött-
um er minnkuð verulega, skatt-
sbgar mildaðir og persónuaf-
sláttur hækkaður.
Merk nýmæli eru i skattfrv.
T.d. gefst nú launþegum kostur á
þvi aö velja milli þess að iá 10%
af launum sinum frádregin i stað
margra .og flókinna frádráttar-
liða. Þetta er talið valda þvi að
70-80% framteljenda telja ein-
vörðungu fram með þessum eina
frádráttarlið. Með þessu er fram-
tal gert eins einfalt og auðið er.
Mörg önnur merk nýmæli eru i
þessu frv. t.d. sérsköttun hjóna og
gjörbreyttar reglur um afskriftir
og söluhagnað, svo nokkuð sé
nefnt. Bæði þessi frv. fela i sér
stórt skref i þá átt að draga úr
óþægindum og óréttlæti, sem
gjarnan eru fylgifiskar hárra
tekjuskatta og auka frjálsræði
fólks tíl tekjuöflunar án þess að
þurfa að sæta refsingu fyrir það
siðar í drápsklyfjum eftirá-
greiddra tekjuskatta.
Gagnrýni stjórnarand-
stöðu léttvæg.
Til marks um að rétt er stefnt
■