Vísir - 27.05.1978, Síða 26
26
Laugardagur 27. mal 1978.
Eins og venjulega fyrir kosn-
ingar hafa blóðin verið svo hund-
leiðinleg að |iau hafa varla verið
lesandi. Þessi bannsetta pólitik er
orðin svo leiðinleg aö ekki er einu
sinni hægt að gera grfn að henni
lengur.
Hins vegar komu ýmsir hiutir á
óvart. Eins og tU dæmis þegar
Adda Bára spurði i Þjóðviljanum
siðastliðinn sunnudag: ..HVERT
BER AÐ STEFNA t ATVINNU-
MALUM REVKVtKINGA?”.
Það er óvenjulegt að frambjóö-
andi skuli viðurkenna svona
óvissu sina. Og það besta sem
hægt er að Rvra fyrir öddu er að
visa henni á Birgfburgermeister,
sem telur sig vita allt um málið.
—o—
En þótt Þjóðviljinn sé alltaf
pólitlskari en fjandinn sjálfur þá
gefur hann þó smá pláss undir
tóniistarfrétt á sunnudaginn. Og
það var nú %arla um annað að
ræða þvi bæði snerti þetta verka-
lýöinn og svo var þetta stórfrétt:
„LUÐRASV EIT
VERK ALYDSINS BLÆS t
ALDARF.I ói: ÐUNG”.
Ansi er haoi við að eftir aldar-
fjórðung veiði litið loft eftir i
köppunum. \ema þeir fái ein-
hverja verka lyðsforingja til liðs
við sig. Guöinund J. þrýtur víst
seint örendiö.
—o—
tþróttir eru alltaf skemmti-
legar aflesírar, ekki sist fréttir
um þessi misnotuðu viti sem
maður sér i öðru hverju blaði
annan hvern dag. Timi er kominn
til að einhver aðili látí þennan
ósóma til sin taka. Annars er
hætt viö aö farið verði að misnota
fleira, svo sem félagssjóði og þar
frameftir götunum.
En skemmtilegasta iþrótta-
fréttin i Visi á mánudaginn var:
„HEIMSMET t STÖNG”. Hvaða
sérvitri iþróttamaður er það sem
geymir heimsmetið sitt i stöng?
—o—
Neysluvenjur hafa verið mjög
tíl umræðu undanfarið og sýnist
sitthverjum um hvað við skulum
eta. Nýtt framlag þar um kom i
Dagblaöinu á mánudaginn þar
sem sagtvar frá manni sem:
,,GEKK LENGI MEÐ TÓLF
LAGA PLÖTU t MAGANUM”.
Ekki er furða þótt hann hafi
verið lengi með hana, grammó-
fónplötur eru sjálfsagt ekki auð-
meltar.
—o—
Dagblaðið setti svo nýtt met i
manngæsku á þriðjudaginn. Þar
var frétt um mann sem var
rændur átján þúsund krónum. En
það virtist hvorki reiði né hefni-
girni hafa kviknað út frá þvi, ef
marka má fyrirsögn Dagblaðs-
ins: „HVAÐ ERU ATJAN
ÞUSUND KRÓNUR A MILLI
VINA’UOg hvað mega menn þá
ekki gera ef þeim er illa við ein-
hvern? —o—
Þjóðviljinn er á miðvikudaginn
með meira af þessum þraut-
leiðinlegu frambjóðendavið-
tölum, eins og raunar öll hin
blöðin. Munurinn er sá aö Þjóð-
viljinn talar eingöngu við sinar
sálir. Einn þeirra sem Þjóöviljinn
talar við er Sævar Bjarnason sem
er þriðji á lista vinstri manna I
Grindavík. Sævar kemur dálítið á
óvart, þvi hann segir: „ENGIN
TENGSL VID FÓLKIД.
Tengsl við fólkið er uu einmitt
það sem kommar si .n . sig hvað
mest af og er þvi i |ulegt að
hitta fyrir mann se1 . lur skit i
þau.
—o—
Annað skrýtið v iótal var við
Sturlu Þórðarson. lannlækni á
Blönduósi, sem er á lista vinstri
manna þar i plássi. sturla segir:
,,ÞAÐ VANTAR SPVTU OG ÞAÐ
VANTAR SÖG”. Sjúklingum
hans eru sendar innilegar
samúðarkveðjur.
—o—
Stórfrétt Þjóðviljans á mið-
vikudag f jallaði þó um öllu alvar-
legra mál: „ASTANDIÐ t
GRJÓTAÞORPI”.
NUNA er sko kóminn timi til að
hyggjaað samskiptum okkar við
varnarliðið. Þegar ástandið er
komið niður I Grjótaþorp, þá á
sko að berja i boröið.
—o—
Vlsir hafði á miövikudaginn
samband við ýmsa pólitiska for-
ystumenn og spurði um álit á
skoðanakönnunum sem síðdegis-
blöðin höfðu framkvæmt. Sam-
kvæmt því átti Sjálfstæðis-
flokkurinn að halda slnu og vel
það.
Birgir tsleifur varð skelfingu
lostinn við þessa spá og sagði:
,,LtTIÐ MARK TAKANDI A
SLÍKUM SKOÐANAKÖNN-
UNUM”. ttrekaði Birgir svo enn
einu sinni að Sjálfstæðismenn
myndu að öllum Hkindum biða hið
mesta afhroð i þessum kosn-
ingum.
En Sigurjón Pétursson er
mesta hrekkjusvin og hann getur
aldrei látið borgarstjórann I friði.
Sigurjón sagði: „Al’GLJÓST AD
SJALFSTÆÐISFLOKKURINN
HELDUR MEIRIHI.UTANUM”.
Við verðum að vona að Sigurjón
hafi rangt fyrir sér, eins og venju-
lega. Okkur er hlýtt til Birgis og
þætti leitt ef hann yrði fyrir þvi
áfalli að vinna.
—o—
Morgunblaðið þykist gera allt
betur en hin blöðin og það verður
að segjast að því hefur tekist það
að undanförnu. Blöðin hafa öll
veriö leiðinleg. er Mogginn hefur
vei iö alveg ser á báti.
Luiu skemintilegu viðbrögðin
sem maður hefur séð i Mogg-
anum var þegar Guðrún Helga-
dóttir lýsti því yfir að keppnin um
borgarstjórastólinn væri milli
Kalla Marx og Birgis ísleifs.
Moggamenn urðu aö vonum
flemtri slegnir og æptu ofboös-
lega i leiðara að endirinn væri I
nánd. Það var þó nokkur huggun
að önnur Alþýðubandalagskvinna
spurði: „Halda menn virkilega að
Karl Marx verði borgarstjóri i
Reykjavik.”
Þetta var nokkur huggun fyrir
Moggann sem þóttist þarna
greina sundrung mikla I liði óvin-
anna og taldi af og frá að menn
gætu kosið Alþýöubandalagiö
þegar upplausnin væri slik að
menn gætu ekki einu sinni komið
sér saman um borgarstjóra.
—o—
Þjóðviljinn var á fimmtudaginn
með kokhreystilega yfirlýsingu
frá Svavari Gestssyni:
„LANDINU VERÐUR EKKI
STJÓRNAÐ GEGN VERKA-
LÝÐSHREYFINGUNNI”.
Þetta eru vist áreiðanlega orð
að sönnu. Það er miklu meira
útlit fyrir að landinu verði stjórn-
af af verkalýðshreyfingunni,
hvernig svo sem kosningarnar
fara. Og það er dálltiö vafasamt
að það sé skárra.
—o—
Timinn kemst að merkilegri
niðurstöðu á föstudaginn, um
hvernig menn eigi að gera upp við
sig hvað þeir kjósa:
„HEILBRIGÐ SKYNSEMI ER
BESTI RAÐGJAFINN”. Spurn-
inginer eiginlega hvar menn eiga
að finna snefil af heilbrigðri skyn-
semi i þessu brölti.
En annars er stórfurðulegt að
TÍMINN skuli halda þessu fram.
Ef heilbrigð skynsemi fengi að
ráða, fengju framsóknarmenn
varla marga borgarfulltrúa.
—o—
Timinn er á föstudaginn með
fréttum Ibúðamálin og segir þar i
fyrirsögn: „LAN TIL ELDRI
ÍBUÐA HÆKKA t 1.8
MILLJÓNIR”. Væri nú ekki nær
að lána fólki?
—o—
t Smáauglýsingar - simi 86611
J
Til sölu
m söiu
segna flutnings. rautt eldhúsborð
með 7 pinna -tólum. Þarfnast
sprautunar. K;-. 40 þús. Litið
þægilegt soiasett. Ósamstætt
iklæði. Þartnast yfirdekkingar á
„r. 30 þús. "liivalið i sumarbú-
-taðinn eða í ,'Monvarpsherbergið.
Stiginn barna-'oll sérlega verk-
egur á kr. m~þús. Uppl. i sima
■0399.
I’il sölu
.egna brottíli inings. Þvottavél,
-vefnbekkuim >nyrtiborð. Uppl.
si'ma 74903
l il sölu
■. ökvatjakkai i vinnuvélar
ymsar stærðir Einnig til sölu á
sama stað tvo vinnuvéladekk,
afturdekk á f< Igum, undir JCB-
gröfu seljast odyrt. Litið slitin).
' ppl. i sima 3” 101 næstu daga.
Til sölu 2 skrifborð
180x60 cm, vélritunarborð 35x60
cm„ Haztler búðarkassi, litið not-
aður. Borgundarhólmsklukka
(eikarkassi) mjög falleg. Uppl. i
sima 27470 kl. 4—6.
Húsdýraáburður.
Bjóðum yður húsdýraáburð til
sölu á hagstæðu verði og önnumst
dreifingu hans ef óskað er.
Garðaprýði. Simi 71386.
Hvað þarftu að selja?
Hvað ætlarðu að kaupa? Það er
sama hvort er. Smáauglýsing i
Visi er leiðin. Þú ert búinn að sjá
það sjálf/ur. Visir, Siðumúla 8,
simi 86611.
Tr jáplöntur.
Birkiplöntur i úrvali, einnig
brekkuviðir, Alaskavíðir, greni
og fura. Opið frá kl. 8—22 nema
sunnudaga frá kl. 8—16. Jón
Magnússon, Lynghvammi 4,
Hafnarfirði. Simi 50572.
Sokkasala
Litið gallaðir herra-, kven- og
barnasokkar seldir á kostnaðar-
verði. Sokkaverksmiðjan, Braut-
arholti 18, 3. hæð. Opið frá kl.
10.-3.
Oskast keypt
Reiöh jól
fyrir 6-8 ára óskast. Simi
51748.
Notaöur isskápur'.
Oska eftir að kaupa notaðan is-
skáp, mesta breidd 61 cm, mesta
hæð 145 cm. Uppl. i sima 43311
milli kl. 9 og 5.
Skrifborð
ca. 160x80 cm. óskast. Uppl. i
sima 16688 og eftir kl. 7 i sima
76509.
Húsgögn
Gamalt svefnsófasett
til sölu. Uppl. i sima 18914
Til sölu sófasett
á kr. 40 þús. Sófaborð á kr. 15.
þús. borðstofuskápur á kr. 80 þús.
Uppl. i sima 32571.
Nýlegt sófasett
til sölu og sýnis að Meistaravöll-
um 29 2. hæð t. hægri e.kl. 2 Uppl.
i sima 21975.
Fallegur útskorinn simabekkur
til sölu. Til sýnis og sölu i K.B.
bólstrun Rauðarárstig 20.
Uppl. i sima 16980.
Til sölu vegna brottflutnings.
Antik boröstofuborð meðsex stól-
um. Ljósakróna, standlampi og
svefnbekkur Uppl. i sima 12353.
Sem nýtt
sófasett og sófaborö til sölu á kr.
150 þús. einnig eldhúsborð og 4
stólar með baki sem nýtt frá
Krómhúsgögn á kr. 60 þús. Uppl. i
sima 76664.
Svefnherbergishúsgögn.
Svefnbekkir og rúm, tvibreiðir
svefnsófar, svefnsófasett, hjóna-
rúm. Kynnið yður verð og gæði.
Sendum i pðstkröfu um land allt.
Húsgagnaverksmiðja
Húsgagnaþjónustunnar,
Langholtsvegi 126. Simi 34848.
Hansahillur og skápur
til sölu á hálfvirði. Einriig svefn-
sófi og svefnbekkur. selst ódýrt.
Simi 71362.
Svefnbekkir og svefnsotar
til sölu. Hagkvæmt verð. Sendum
i póstkröfu út á lanri l'ppl. að
öldugötu 33, simi 194uT
JSL
Heimilistæki
Litill isskápur
til sölu. Uppl. i sima 52152
Teppi
Gólfteppaúrval.
Ullar og nylon gólfteppi. A stofu,
herbergi, ganga, stiga og stofnan-
ir. Einlit og munstruð. Við bjóð-
um gott verð, góða þjónustu og
gerum föst verðtilboð. Þaðiborg-
ar sig að lita við hjá oldtur,Náður
en þið gerið kaup annars staðar.
Teppábúðin, Reykjavikurvegi 60.
Hafnarfirði. Simi 53636.
5vN_
Til sölu
26” drengjareiðhjól með girum.
Uppl. i sima 71567.
Til sölu
vel með farinn Silver Cross
kerruvagn ásamt gæruskinns-
kerrupoka, leikgrind <net) og
upptrekkt barnaróla á gólfstatffi
Uppl. i sima 19577 eftir kl. 17.
Verslun
Björk — Kópavogi.
Helgarsala — Kvöldsala.
Islenskt keramik, islenskt
prjónagarn, hespulopi, nærföt og
sokkar á alla fjölskylduna. Sæng-
urgjafir, snyrtivorur, leikföng,
gjafavörur i úrvali. Verslunin
Björk. Álfhólsvegi 57. simi 40439.
Bókautgáfan Rökkur, Flókagötu
15,
Reykjavik, hefir ekki afgreiðslu-
tima siðdegis sumarmánuðina
frá 1. juni, en svaraði sima 18768
kl. 9-11.30 um bækur útgáfunnar,
verð og kjör, og fengið viðtals-
tima á afgreiðslunni er þeim
hentar. en forstöðumaöur útgáf-
unnar verður til viðtals á fyrr-
nefndum tima nema sumarleyfi
hamli Flestar bækur útgáfunnar
fást hjá BSE og Æskunni og flest-
um boksölum Uti á landi. — Góðar
bækur. gott verð og kjör. — Sim-
inn er 18768 9-11.30 árdegis
Versl. Leikhúsið,
Laugavegi 1. Simi 14744 Fischer
Price leikföng i miklu úrvali m.a.
bensinstöðvar, búgarður, þorp,
dúkkuhús, spitali, plötuspilari,
sjónvarp, skólabill, flugvél, gröf-
ur, simar, skólahús, og margt
fleira. Póstsendum. Verslunin
Leikhúsið, Laugavegi 1. simi
14744.
Fatnadur fi
J
Verksmiðjusala.
Ödýrar peysurá alla fjölskylduna
Bútar og lopaupprak. Odelon
garn 2/48., hagstætt verð. Opið
frá kl. 1—6 Les-prjón Skeifunni 6.
Fyrir ungbörn
Til söiu
vel með farið barnaburðarrúm á
hjólgrind og sem ný leikgrind.
Uppl. i sima 28807 eftir kl. 5.
fe
Tapað fundið
Tapast hefur brún budda
viðDigranesveg 18, Kóp. Finn-
andi vinsamlega hafi samband i
sima 51505 Fundarlaun.
Tapast hefur gulbröndóttur
og hvitur kettlingur (læða) með
rautt háisband. Gegnir nafninu
Snúlla. Finnandi vinsamlegast
hringið i sima 26133.
*f t
Fasteignir
Lóð til sölu.
Lóð i Selás til sölu. Tilboð Merkt
„Selás” sendist augld. Visis fyrir
1. júni.
Sumardvöl
12—14 ára drengur
óskast i sveit. Uppl. á Hólum,
simstöðin Króksfjarðarnes.
.M67
Hreingerningar
Ávallt fyrstir.
Hreinsum teppi og húsgögn með
háþrýstitækni og sogkrafti. Þessi
nýja aðferð nær jafnvel ryði,
tjöru, blóðio.s.frv. úr teppum. Nú
eins og alitaf áður tryggjum við
fijóta og vandaða vinnu. Ath.
veitum 25% afslátt á tómt hús-
næði. Erna og Þorsteinn, simi
20888. /—n
Dýrahald
2 hestar til sölu
á Kolstöðum i Miðdölum annar 5
vetra hinn 2ja vetra graöfoli i sér-
flokki. Uppl. i sima 2422 Keflavik.