Vísir - 21.07.1978, Blaðsíða 9

Vísir - 21.07.1978, Blaðsíða 9
ENGINN NORSK- IIR VERKSTJÓRI Hafnfirðingur hringdi: „Ég vil gera athugasemd við grein Svarthöfða á miðvikudag- inn. Þar segir að norskur verk- stjóri hafi unnið hjá Norður- stjörnunni um tima en verið lát- inn hætta. Þetta er ekki rétt. Það kom bara fólk frá Bjelland i byrjun til að kenna á vélarnar en enginn norskur verkstjóri starfaði barna. Það má ekki blanda þessu saman við þetta verkstjóramál hjá BOH og þann sóöaskap sem forystumenn verkalýðs- hreyfingarinnar sýndu i þvi máli”. jafnan minnst „Þeir gala hœst, sem mega sín” Vegna skrifa Gunnars Þórarinssonar í Visi hefur 4161-5486/ vist- maður á Akurhóli óskað eftir að fá birt eftirfar- andi bréf: Hr. Gunnar Þórarinsson. Mikið hefur verið rætt hér um efni bréfs þins i dagbl. Visi þann 6. þ.m. Við undrumst ekkiskrif þin, vegna þess að við vitum hvers vegna þau eru tilkomin, en það ræði ég ekki i þessari grein. Þótt að ýmsu megi finna, þá hallar þú illa réttu máli, þeg- ar þú ræðst að forstöðumanni hælisins og starfsliði hans. Allt er þetta indælt fólk sem leggur sig mjög fram um að leysa vanda okkar. Heldur er það ekki rétt að yfirlæknirinn og félags- ráðgjafinn, sem koma hingað sinn hvorn laugardaginn, geri ekkert. Þeir halda alltaf fundi með vistmönnum og bjóða auk þess upp á einkaviðtöl. Eins er okkur boðið upp á fræðslukvik- myndir um vandamál okkar. Undir hverjum og einum komið Að vistmenn fari héðan jafn- nær og þegar þeir komu, er ekki alveg rétt, þvi það er undir hverjum og einum komið hvort hann hefur meðtakið þá fræðslu sem veitt er. Og nú er mikið gert af þvi að aðstoða menn við út- vegun á húsnæöi og atvinnu, er þeir fara héðan, má i þvi sam- bandi nefna heimilin á Ránar- götu 6 og Brautarholt 22, (nú i Tryggvagötu til bráðabirgða). Og einmitt vegna þessara heim- ila langar mig að birta haus af plaggi, sem ég fékk að sjá hér á hælinu nýverið, en þar er þetta skrifað: „Listi þessi er yfir vistmenn sem voru á Gunnarsholtshælinu á árunum 1976 og 1977 og út- skrifuðust þaðan þá. Menn fóru af hælinu ýmist til framhalds- meðferðar á Vifilsstaðadeild- ina, Ránargötu 6, eða Brautar- holt 22, en örfáir hafa komist áfram á eigin rammleik, en oft- ast þó með einhverri aðstoð A.A., eða annarra. Haft skal i huga að hér er aðeins um skammtima úrtak að ræða, en það ereftir að Vifilsstaöadeildin og vistheimilin að Ránargötu og Brautarholti tóku til starfa. Þessir menn hafa ekki komið til meðferðar á hælinu i Gunnars- holti frá þvi þeir útskrifuðust þaðan”. (Hér lýkur tilvitnun.) A eftir kemur svo nafnalisti yfir þá 34 menn og sést á þessu að ekki er mönnum aöeins veitt þessi aðstoð, heldur er einnig fylgst með þvi hvernig þeim vegnar. Ekki er þvi hægt að segja að forstöðumanninum, eða starfsliði hans sé alveg sama hvað um okkur verður eft- ir brottför héðan. Aðstandendur hælisins eiga að fá að njóta sann- mælis Hælisbyggingin er ekki „gamalt margendurbætt hús meö ærnum tilkostnaöi”, eins og þú segir. Elsti hlutinn er að- eins 24 ára og engu hefur veriö til kostnað, auk venjulegs við- halds, nema hvað það var vatnsklætt nýlega. Húsnæöið er gott, bæði vistmannaherbergi og salir og fæðið fannst þér greinilega hreint afbragð, eins og okkur hinum. Að þeir fáu vistmenn sem fá vinnu i hey- kögglaverksmiðjunni, þurfi að vera sérstakir vinir forstöðu- mannsins, er þvættingur. Eins og ég sagði má aö ýmsu finna, en mér finnst rétt að að- standendur þessa hælis fái aö njóta sannmælis. Andrúmsloftið yfirleitt gott Að minu mati er þessi staður vel viðunandi, við erum hér vegna þess að við erum sjúkl- ingar og erum þvi ekki gjald- gengir á almennum vinnumark- aði, meðan á lækningu stendur. En hér höfum við lika gott næði til að athuga okkar gang. Við eigum bara svo erfitt með að sætta okkur við það að viö erum sjálfir vandamálið og þurfum þvi margir hverjir að dvelja hér lengi. Sem sagt, gott húsnæði, gott fæði og vinna fyrir alla sem nenna að vinna. Andrúmsloftið er yfirleitt mjög gott hér, ótrú- lega gott i svo fjölmennum hópi, en alltaf kemur einn og einn sem eitrar, en þeir stoppa yfir- leitt stutt, þvi þeir þurfa aö fara i bæinn til að ná sér niöri á þessu vonda fólki, sem veldur ógæfu þeirra. Nei, Jammi minn, þú talar úr glerhúsi og það sannast á þess- um skrifum þinum, að þeir gala jafnan hæst, sem minnst mega sin. Guð veri meö þér I Hlað- gerðarkoti. t-NNNNNN NNNNNVJ-; I / / í ✓ ! ✓ / \ / iísw'tvvNmwwNwwmNNNmwwxmwxwxwv: Frœðslu- og leiðbeiningorstöð Ráðgefandi þjónusta fyrir: Alkóhólista, aðstandendur alkóhólista og vinnuveitendur alkóhólista. SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS UM ÁFENGISVANDAMÁLIÐ Fræðslu- og leiðbeiningarstöð Lágmúla 9, simi 82399. I | 1 1 FERÐAVÖRUR fjölbreytt úruat Ýmsar vörur sérslaklega ætlaöar göngulólkl. Skófatnaöur, eldunartækl, dúnsvetnpokar, mjög létt tjöld (göngutjöld) o.fl. SAl /I BUÐIM Rekin af Hjalparsveit skata Reykjavik SNORRABRAUT 58.SIMI 12045 urfeí c éSNYRTIVÖRUR Mjög fjölbreytt lína dásamlegra ame- rískra snyrtivara fyrir allar húögeröir og öll tækifæri. Heimsfræg og viður- kennd lúxusvara framleidd í Frakk- landi úr bestu fáanlegum hráefnum meö fullkomnustu aöferöum, sem þekkjast, eftir uppskriftum, sem nýta alla nýjustu efnafræöi- og tækniþekk- ingu nútímans. Hagstætt verö mióaö vió gæöi. Einnig aðrar snyrtivörur, t.d.: REVLON, MAX FACTOR, CHRISTIAN DIOR, SANS SOUCIS, ROC, PHYRIS, MARYQUANT. LÍTIÐ INN OG LÍTIÐ Á , LAUGAVEGS APOTEK sny rtivörudeild SOJA- BAUNA KJÖT NUTANA PRO er sojakjöt (unnið úr sojabaunum). Það bragðast líkt og venjulegt kjöt en inniheldur minna af fitu og meira af eggjahvítu- efnum. Fita: Kolvetni: NUTANAPRO 3% 38% Uxakjöt 74% 0% Svínakjöt 73% 0% Eggja- hvítuefni: 59% 26% 27% Venjulegur málsverður (um 150 gr.) af kjöti samsvarar um 410 hitaeiningum. Ef NUTANA PRO er notað í staðinn verður máisverðurinn aðeins 85 hitaeiningar! Gód keilsa ep öæfa fevers inaRRS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.