Vísir - 21.07.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 21.07.1978, Blaðsíða 10
10 Föstudagur 21. júli 1978 VISIR VÍSIR Útgefandi: Reykjaprent h/f Framkvæmdastjóri: Davffi Guðmundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Umsjón mefi helgarblaði: Arni Þórarinsson. Blafia- menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrimsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrin Páls- dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: Gunnar V. Andrésson,Jens Alexandersson. utlitog hönnun: Jón Öskar Hafsteinsson, Magnús Ölafsson. Auglýsinga- og sölustjóri: Páll Stefánsson Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúla 8. Simar 86611 og 82260 Afgreiösla: Stakkholti 2—4 simi 86611 Ritstjórn: Siöumúla 14 simi 86611 7 linur Askriftargjald er kr. 2000 á mánuöi innanlands. Verö i lausasöiu kr. 100 eintakið. Prentun Blaöaprent h/f. Það þarf ótta fjármálaróðherra Fjármálaráðstafanir fráfarandi ríkisstjórnar hafa um margt verið umdeildar. Skuldasöfnun ríkissjóðs í Seðlabankanum hefur t.d. takmarkað getu Seðlabank- ans til þess að standa undir af urðalánakerf i atvinnuveg- anna. Og miklar erlendar lántökur kalla yf ir okkur mjög erfiða greiðslubyrði á næstu árum. En þrátt f yrir þessar aðstæður hafa verið gerðar ýms- ar athyglisverðar umbætur í sjálfri f jármálasýslunni í tíð Matthíasar Á. Mathiesens fráfarandi fjármálaráð- herra. Greinargerð sú, sem hann hefur látið gera um stöðu ríkisjóðs, er til fyrirmyndar um það, hvernig ráð- herrar eiga að skila af sér. Undanfarin ár hafa lánsf járáætlanir verið afgreiddar með f járlögum. Ekki verður sagt að tekist hafi að beita þeim sem stjórntæki eins og að var stefnt. En eigi að síð- ur var hér um merkt nýmæli að ræða, sem á að auðvelda markvissa f jármálastjórn. Þá hafa einnig verið tekin upp ný vinnubrögð til þess að stemma stigu við því að einstakar ríkisstof nanir haldi sér innan þeirra marka, sem f járlög ákveða. Að vísu má segja að f járlög séu hálfgerð markleysa í óðaverðbólgu eins og þeirri, sem við höf um búið við. En án aðalhalds- aðgerða af þessu tagi væri hér mjög alvarleg ringulreið í rikisf jármálum. Nú fá menn þegar í ársbyrjun útkomu ríkissjóðs frá næstliðnu ári og ríkisreikningur er lagður fram fyrir þinglausnir að vori. öll þessi tæknilegu atriði varðandi f jármálasýsluna eru nýmæli, sem horfa mjög til bóta og eiga að auðvelda almenna f jármálastjórn rikisins. Bæði í þeirri ríkisstjórn, sem enn situr, og öðrum, hefur það verið svo, að einn maður hefur fengið það hlutverk að vera f jármálaráðherra, en aðrir hafa litið á sig sem eyðsluráðherra. Fjármálaráðherrann er dæmd- ur eftir því hvort gjöld fara fram úr tekjum eða hvaða áhrif fjárlögin í heild hafa á efnahagsstarfsemina í landinu. Ágæti annarra ráðherra er á hinn bóginn mælti í réttu hlutfalli við eyðslu þeirra á opinberu fé. Tæknileg- ar breytingar á f jármálasýslunni koma því að litlu haldi meðan ráðherrum er skipti í einn f jármálaráðherra og sjö eyðsluráðherra. Þeir þurfa allir að vera f jármála- ráðherrar, ef vel á að vera. Skóflustungur fjárfestingarœðisins Nokkrum dögum f yrir kosningar gaf fráfarandi ríkis- stjórn heimild til að hafist yrði handa um byggingu út- varpshúss. Menntamálaráðherra var fljótur að taka fram rekuna góðu, sem starfsmenn útvarpsins gáfu honum þegar hann tók við embætti, og taka fyrstu skóf lustunguna með hefðbundinni viðhöfn. Fæstum dylst að útvarpið býr við þröngan húsakost, bæði hljóðvarp og sjónvarp. En hitt hlýtur að vera álita- mál hvort verjandi sé að ákvaða hátt i þriggja milljarða króna f járfestingu við ríkjandi aðstæður í efnahagsmál- um. Eðlilegra væri að draga úr opinberri f járfestingu eins og frekast er kostur. Ábyrg ríkisstjórn hefði því skotið útvarpshússbyggingu á f rest eins og sakir standa. Allir flokkar predika samdrátt i fjárfestingu. Stjórn- málamenn hafa á hinn bóginn meira gaman að skóflu- stungum f járfestingaræðisins en fylgja skynsamlegum hagstjórnarkenningum. Fyrir þá sök er ráðist í byggingu útvarpshúss, sem óhjákvæmiiega kallar á verulega hækkun á þjónustu útvarps og sjónvarps. Ekki lækkar það verðbólguna. Haraldur Blöndal lög- fræðingur segir að lýð- ræðisflokkarnir eigi að neita öllum viðræðum við Alþýðubandalagið þar til útflutningsbann- inu hefur verið aflétt. t Ekki er langt i aö mánuöur sé liðinn frá lokum kosninga. Eng- in stjórn hefur veriö mynduð og þaö sem verra er: engar raun- verulegar stjórnarmyndunar- viðræður hafa átt sér stað.Enn sem komið er, virðast stjórn- málamenn vera að „þreifa fyrir sér” og þeir, sem gerst þekkja telja að stjórnarmyndun muni dragast langt fram eftir næsta mánuði. I skugga útf lutningsbanns Þessar stjórnarmyndunarvið- ræður eru að þvi leyti sérstæð- ar, að þær fara fram i skugga útflutningsbanns Guömundar J. Guömundssonar. Eru nú liðnir margir mánuðir, siðan reglu- legur útflutningur hefur átt sér stað. Þjóðin hefur veriö tekju- laus og er farið að saxast á varasjóöi. Það hefur verið bent á það i leiðara Visis, að vitanlega eigi aö gera kröfu um það I stjórn- armyndunarviðræöum að út- flutningsbanni veröi aflétt. Og það á að gera meira en það: Lýðræðisflokkarnir eiga að neita að eiga nokkrar viöræður um rikisstjórn við Alþýðu- bandalagið þar til þessu banni hefur verið aflétt. Til hvers voru könnunar- viöræöurnar Ég hef haldið uppi gagnrýni á seinagang við stjórnarmyndun. Ég hefi bent á, að stjórnar- kreppa er orðin næsta alvarleg þegar liðin er meira en vika frá þvi að stjórn fellur. Miklu frek- ar er hún háskaleg, þegar svo er ástatt i landi eins og nú, aö gripa verður til harkalegra efnahags- ráöstafana innan mjög skamms tima, ef ekki á að hljótast áf þjóðarvoði. Gagnrýni minni var svaraö með þvi, að nokkrar könnunar- viðræður væru nauðsynlegar áður en raunverulegar viðræður ættu sér stað. Nú hefur komið i ljós, að þess- ar viðræður þjónuðu engum til- gangi. Ég veit ekki, hvað stjórn- málaleiðtogar hafa sagt forseta tslands. Hitt veit ég, að Benedikt Gröndal hóf stjórnar- myndun sina með þvi að bjóöa til samstarfs Alþýðubandalagi og Sjálfstæðisflokki. Það tók Alþýðubandalagið ekki nema dagstund aö svara sliku boði neitandi og er svar þess flokks með þeim hætti, að útilokað er að Benedikt hafi ekki vitað um Vilmundur í frysti Þegar séð varð að i vændum var stórfelld tilfærsla á atkvæð- um fyrir siðustu Alþingiskosning- arn, þótti mörgum sem nauðsyn- legt væri að bjarga i horn, eins og það er kallaö á knattspyrnuvell- inum. Um tima virtist ekki horfa vænlega i þeim efnum. Stjórnar- andstöðuflokkar voru þrir og lifs- mark tveggja þeirra var ekki ýkja mikið. Alþýðubandalagið eitt sat grátt fyrir járnum, og bjóst nú við aö hiröa afrakstur þeirrar iðju sinnar að hafa komið fjármálum rikisins á kaldan klaka á stjórnartimabilinu 1971- 74, en neita siðan meö sérkenni- legum hætti aö mynda vinstri stjórn aö nýju við tilraunir Ólafs Jóhannessonar á siðsumarsdög- um 1974. Þá voru allir kassar tómir og ekki fýsilegt fyrir flokk yfirboða og peningaausturs að ganga til stjórnarsamstarfs. Kom lika á daginn að áætlun Alþýðu- bandalagsins um erfiðleika næstu stjórnar var rétt. Tveir mætir borgaraflokkar sátu I súpunni, lamdir til „hag- stæðrar” efnahagsstefnu af hinni pólitisku verkalýðsforustu og skammaðir dag hvern af Alþýðu- bandalaginu, sem ræður verka- lýðsforustunni, fyrir að koma ekki lági á efnahagsmálin. Sið- asta aðgerð fráfarandi rikis- stjórnar stendur enn óleyst i út- flutningsbanni Verkamannasam- bandsins. I framhaldi af þvi hóf Þjóðviljinn að tala um slæman viöskilnaö, en þagnaði fljótt. Kannski einhver hafi bent þeim á blaðinu á, að erfitt er aö stjórna þegar hálfgildings verkfallsað- gerðir mæta hverri stjórnarat- höfn. Alþýðubandalagið var eitt um hituna Alþýðubandalagið var næstum eitt um hituna sem stjórnarand- stöðuflokkur allt siðasta kjör- timabil og átti marga auövelda leiki. Alþýðuflokkurinn og hin klofnu tveggja þingmanna sam- tök sátu i þingsölum að visu, mestmegnis með bláa grön, og Benedikt — Kjartan — Karl Steinar Hinn mikli f jöldi sem kaus Alþýöuf lokkinn í fyrsta sinn á þessu sumri, af því þar voru ungir menn með nýtt tungutak á ferð, mega horfa upp á það dag eftir dag, að aðrir menn ráði stefnunni. Og þetta lyktar illa. r

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.