Vísir - 21.07.1978, Blaðsíða 28

Vísir - 21.07.1978, Blaðsíða 28
Fylgst af áhuga meö loönulöndun. Visismynd: KS. Föstudagur 21. júll 1978 VÍSIR Veiði glœðist ffyrir vestan Tvö þúsund tonnum af loðnu hefur nú verið landað i Bolungarvik, og er bræðsla i verksmiðju Einars Guðfinns- sonar h.f. komin i fullan gang. Hrafn GK 12 kom meö fyrstu loðnuna i land i fyrradag, en siöar hafa fjórir aðrir bátar landaö, HilmirSU, Skarðsvik SH, Guðmundur RE, og Skirnir AK. Aö sögn Jónatans Einarssonar, framkvæmdastjóra verk- smiðjunnar, gengur vinnslan þar vel, og eru brædd um f jögur hundruð tonn á sólarhring. Ætlun- in er að taka viö meiri loðnu eftir hádegi á sunnudag, þvi aö þá losn- ar ein þró. „Ekki er það verra, að við erum nú komnir meö nýja löndunardælu”, sagöi Jónatan. ,,Er þar um aö ræða þurrdælu, og er þvi ekki lengur settur sjór i loönuna þegar dælt er i land, eins og gert var áöur”. Milli tuttugu og þrjátiu skip hafa verið á loðnuveiöum á miðunum skammt frá Bolungarvik undanfarna daga. Tals- verður is er á svæðinu þar sem Arni Friöriksson fann loðnuna fyrst, og hafa bátarnir þvi orðiö aö færa sig austar. Jónatan sagði aö veiðin hefði verið heldur lítil, en væri nú eitthvaö að glæöast. —AHO Tegarakawpin frá Portúgal: Stálvík vill klára skipin Stálvík hefur lagt fram boð umaðfullsmíða er Ijóst aö alvarlegt ástand er að skapast togarana tvo sem kaupa á frá Portúgal og hjá Stálvíkog fleiri skipasmíðastöðvum hér yrðu þá aðeins skrokkarnir byggðir erlend- vegna skorts á verkefnum. is. Þessu boði mun ekki hafa verið tekið og Jón Sveinsson forstjóri Stálvikur staðfesti þetta tilboð er Visir bar það undir hann i morgun en sagði aö við þvi heföu litil svör fengist. Engir full- geröir samningar lægju fyrir um nýsmiöi hj^ Stálvik og þvi hefði þótt betra að fá eitthvert verkefni en ekki neitt. Samkvæmt þeim upp- lýsingum sem Vísir hefur aflaö sér er ljóst að Portúgalir munu kaupa mikinn tækjabúnað i togarana frá Noregi og má þvi segja að hér sé veriö aö flytja tækniþekk- ingu frá Noregi til Islands i gegnum Portúgal. Stálvik hefur lagt mikiö fé i hönnum skips sem á aö eyða mun minni oliu en nú tiðkast og hafa farið fram prófanir á þessu er- lendis viö góðar undir- tektir. Forráðamenn skipasmiðastöðva full- yröa við Visi aö bæði Norömenn og Portúgalir styöji sinn skipasmiða- iðnaö með 25-30% fram- lagi frá rikinu við smiði hvers skips. Hér fáist hins vegar ekki lán til aö smiða skip, hvað þá meira. Auk þeirra tveggja tog- ara sem kaupa á frá Portúgal er búið að sem ja um smiði þriggja lltilla togara i Póllandi og tæki I þau skip veröa einnig keypt frá Noregi. A sama tima er verið að segja upp tugum manna hjá Is- lenskum skipasmiöa- stöövum. — SG Verkefni skipasmiðastöðvarinnar Stálvikur I dag er smiði vörubilspalla. (Visism. SHE) Almennar umrœður i vinstristjórnarviðraDðunum ó lokastigi: Engin afvarfeg ágreiningsmál Fyrsta áfanga stjórnarmyndunarviðræðnanna ætti að ljúka i dag, og undirnefndir taka til starfa um helgina. Er ivið meiri bjartsýni rikjandi eftir fundina f gær, þar sem rætt var m.a. um varnartnálin, er ljóst var, að samningsgrundvöliur ætti að vera fyrir hendi í þeim málafiokki. óttast menn helst að flokkana greini á hvað efnahagsmálin áhrærir. Karl Steinar staðfestir leynifundinn ,,Ég vil helst ekki tjá mig neitt um fund þeirra Geirs Hallgrimssonar og Guðmundar J. Guðmundssonar, þvi framkvæmdastjórn Verkamannasambandsins hefur ekki komið saman eftir viðræður þeirra” , sagði Karl Steinar Guðnason varaformaöur Verkamanna- sambands tslands er rætt var við hann I morgun. Frétt Visis um leyni- fund þeirra Guðmundar J. og Geirs Hallgrims- sonar hefur vakið veru- lega athygli. Forsætis- ráðherra hefur staöfest aö fundurinn hafi verið haldinn, en formaöur Verkamannasambands- ins hefur hins vegar neitaö þvi aö vita nokkuö um málið. —BA. Nakkuö skiptar skoðan- ir múnu vera hjá flokkun- um.—um gildi þeirrar „yfirferöar” sem farin hefuc’ýerið siðustu daga, þar sem yfirborð hvers málaflokks hefur veriö kannað, og almennt er varað við of mikilli bjart- sýni. Alþýðubandalagsmenn, sem Visir hefur rætt viö, eru i miklum vafa um heilindi Alþýöuflokksins I stjórnarmyndunarviö- ræðunum. Benda þeir á aö lausung sé óvenju mikil I þessum viðræöum og einsdæmi að ekki skuli vera lagður fram um- ræöugrundvölluf af háifu Alþýðuflokksins sem for- ystuflokks um þessar við- ræ6ur‘ Gsal/ÓM Bensinið í 145 Bensinhækkun stendur nú fyrir dyrum, og mun bensfnlitirinn kosta 145 krónur eftir hækkunina, samkvæmt heimildum sem Vfsir hefur aflað sér. Nú kostar hver litri 119 krónur, þannig að hækkunin nemur 26 krónum á hvern litra. Verðlagsnefnd mun þegar hafa samþykkt þessa hækkun, en eftir er að fá samþykki rikis- stjórnarinnar. Búist er við að hækkun- in taki gildi nú á aiira næstu dögum, jafnvel þegar um helgina. —AH Uppboði hjá Breiðholti var frestað Fyrirtækiö Breiðholt h.f. á stöðugt i miklum greið- sluerfiðleikum og fyrir skömmu átti að fara fram nauðungaruppboö hjá fyrirtækinu að kröfu Gjald- heimtunnar. Uppboöinu var frestað á sfðustu stundu og hefur því vcriö haldiö fram, að Björgvin Guðmundsson borgarfuiltrúi hafi knúið fram frestun gegn mótmæi- um gjaldheimtustjóra. Visir haföi samband viö Björgvin I morgun og spuröi hvort það væri rétt að hann hefði upp á sitt eindæmi látiö fresta upp- boðinu og þá hvers vegna. „Þetta er ekki rétt. Hins vegar er fyrirtækiö með umfangsmiklar framkvæmdir sem eru framkvæmdanefnda- ibúöirnar og þar á borgin mikiila hagsmuna að gæta. Ég hef áhuga á aö Breiöholt geti haldið áfram sinni starfsemi vegna þessara fram- kvæmdá sem borgin fjár- magnar aö verulegu leyti”, sagöi Björgvin Guömundsson. Hann sagöi aö Breiöholt væri nú aö reyna aö selja steypustöö sina og kom- ast þannig út úr greiöslu- erfiöleikunum. Gjaldheimtustjóri og lögfræöingur Gjaldheimt- unnar eru báöir i sumar- leyfi og tókst VIsi ekki aö ná tali af þeim. Friöjón Skarphéðinsson yfirborg- arfógeti sagöi I samtali viö Visi aö uppboösbeiðni Gjaldheimtunnar vegna Breiöholts heföi veriö aft- urkölluö á siöustu stundu en vissi ekki ástæöuna. Hins vegar sagöi Friöjón aö slikt væri svo algengt aö þaö þætti ekki tiöind- um sæta. —SG \• Þú ótt möguleika d að eignast þennan glœsilega CAMPTOURIST tjaldvagn í ferðagetraun VÍSIS VÍSIH smii 86611 VÍSIR '_VÍSlKsimi 866n VÍSXR__

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.