Vísir


Vísir - 21.07.1978, Qupperneq 12

Vísir - 21.07.1978, Qupperneq 12
12 c Hin árlega Skálholtshátiö veröur nú um helgina i Skál- holti. hinum merka kirkjustaö og áður biskupssetri, en þar var biskupsstóll i nær hálfa áttundu öld. Skálholtsfélagiö byrjaði á þvi að halda þessa Skálholtshátið fyrir rUmlega aldarfjórðungi en fórmaður þess félags var þá nú- verandi biskup. Konur i kven- félagi Biskupstungna sáu um kaffiveitingar og hafa þær nú með kaffisölu sinni safnað fé til bókasafnsins i Skálholti. Skál- holtshátiöin hefur verið haldin reglulega siöan 1963, en kveikj- an aðhátíðinni á sinum tima var endurreisn Skálholts. Hátiðin nú um helgina hefst kl. 13.30 meö klukknahringingu en messa hefst kl. 14. Biskup tslands herra Sigurbjörn Einarsson predikar og þjónar fvrir altari ásamt séra Guðmundi Ola Guömundssyni. Meðhjálpari er Björn Erlends- son. Tónlistin skipar stóran þátt i hátiðinni og ekki sist við helgi- athöfnina i kirkjunni en Róbert A Ottósson radd- og hljómsetti alla þætti messunnar. Skál- holtskórinn syngur og forsöngv- arareruþeir Ingvar Þóröarson, Bragi Þorsteinsson og Siguröur Erlendsson • Trompetleikarar eru þeir Lárus Sveinsson og Jón Sigurðsson og orgelleikari er Haukur Guðmundsson. Söng- stjóri er Glúmur Gylfason. Eftir messu verður samkoma i kirkjunni og hefst hún kl. 16.15. Skálholtshátíðin um helgina Einn af þekktustu orgelleik- urum Dana Dr. Finn Viderö leikur nokkur verk á orgel og Björn Þorsteinsson sagnfræði- prófessor flytur ræðu. Þá verö- ur flutt verk -eftir Þorkel Sigur- björnsson er nefnist Syngið drottni nýjan söng. Þetta verk hefur einu sinni verið flutt áður en það var i Háteigskirkju sl. haust. Flytjendur þessa verks á Skálholtshátiöinni verða kór Háteigskirkju auk félaga úr Sinfóniuhljómsveit íslands. Einsöngvarar eru þau Guöfinna Dóra Ölafsdóttir, Rut Magnús- son, Friðbjörn G. Jónsson og Halldór Vilhelmsson. Stjórn- andi er Martin Hunger Friðriksson. Ferðafélagið: FJÓRAR HELG- ARFERÐIR Starfsemin hjá Ferða- félaginu er einnig i full- um blóma þessa helg- ina. Farið verður i fjór- ar dagsferðir og þrjár dagsferðir á laugardag og sunnudag. Farið verður i Þórs- mörk og gengur hópur þaðan yfir Fimmvörðu- háls, fjallshrygginn milli Mýrdalsjökuls og Eyjafjallajökuls. Gist verður I Sæluhúsum Ferðafélagsins. Fararstjórar verða þeir Magnús Guðmundsson og Hjálmar Guðmundsson I Þórs- mörk og Finnur Fróðason stýrir ferðinni um Fimmvörðuháls. Leið Ferðafélagsins liggur einnig i Landmannalaugar um helgina og farið verður I Eldgjá á laugardeginum og gengið um Landmannalaugasvæðið lika. Siðast nefnda helgarferðin verður svo farin norður á Kjal- veg. Farið verður I Kerlingafjöll og Hveravelli og I þeirri ferð veröur farið um Þjófadali og Hvítárnes. A laugar.dag kl. 15 er ferð i Blá- fjallahella og i fjallagrasaferð. Fararstjórar i þessum dagsferð- um eru Sigurður Kristinsson og Einar ólafsson I Bláfjallaferöina og Anna Guðmundsdóttir I fjalla grasaferðina. A sunnudaginn kl. 13 er farið fjörugöngu I kjósinni og farinr smá hringferð þar. Fararstjóri : fjörugöngunni er Siguröur Krist insson. —ÞJH Tónleikar í Hóteigskirkju á morgun Kór Háteigskirkju flytur á Skálhoitshátiöinni n.k. sunnudag Lofsöng eftir Þorkel Sigurbjörns- son. A morgun gefst þeim Reyk- vflúngum er ekki komast austur I Skálholt aö hlýöa á þetta verk i Háteigskirkju kl. 17. L'm flutning á verkinu I Skálholti er getið á öörum staö á þessari sföu og vis- um viö til þess. A tónleikunum I Háteigskirkju mun Halldór Vilheimsson syngja kantötu eftir Bach og Jósef Magnússon leikur sónötu eftir Handel. Aögangseyrir aö tónleik- unum er kr. 500. —ÞJH. Útivist: Þórsmörk og Sprengisandur Tvær helgarferöir eru á dag- skrá Ctivistar nú um heigina auk einnar dagsferöar. t allar ferö- irnar er lagt frá L'mferöamiö- stööinni vestan megin. Onnur helgarferöin veröur i Þórsmörk. Þar sem tjaldaö veröur i Sóraenda sem er tjald- stæöi Ctivistar. „Við erum vel staösett þarna,” sagöi Kristján Baldvinsson hjá Ctivist, „þvi þaöan liggja gönguferöir til allra átta um mörkina. Fararstjóri veröur Erlingur Thoroddsen. Hin helgarferðin verður farin um Sprengisand. „Þetta er ein- stök öræfaferð,” sagði Kristján okkur Við förum um Langafell, Kiöagil, Fjórðungsöldu, Tómasarhaga og Eyvindarkofa. Það verður gist i tjöldum”. Fararstjóri I Sprengisandsferð- inni verður Jón I. Bjarnason. I helgarferðirnar veröur lagt kl 20 i kvöld og komið aftur i bæ- inn á sunnudagskvöld. Dagsferðin á sunnudaginn verður i Marardal sem er sér- kennilegur dalur vestan undir HengJi, umluktur háum hömrum Feröin hefst kl. 13 frá Umferöar- miðstöðinni Þess má að lokum geta að á laugardagsmorgun veröur farið i ferð frá Isafirði að vegum Uti- vistar með Fagranesinu um Hornstrandir. Svo þeir sem eru á tsafirði ættu bara að skella sér með. —ÞJH Hressir göngugarpar i útivist- arferö. Stemmur, og íslensk þjóðlög: w „HER ER EKKERT HRAFNAÞING" Tónleikar í Norrœna húsinu í kvöld kl. 21. á vegum íslenska einsöngvarafélagsins ,,Við Magnús förum meö nokkrar stemmur viö visur sem viö höfum valiö úr Númarimum eftir Sigurö Breiöfjörö,” sagöi Njáll Sigurðsson en hann ásamt Magnúsi Jóhannssyni mun fara meö fslenskan kveöskap á hefö- bundinn hátt I Norræna húsinu I kvöld kl. 21. ,,Viö völdum ýmsa bragarhætti og ýmis kvæðalög og kveöum viö Magnús ýmist I sitt hvoru lagi eöa saman og I lokin munum viö flytja tvær svokallaöar tvisöngsstemmur”. Auk þeirra Magnúsar kemur Ingveldur Hjaltested fram á tónleikunum og syngur hún ým- is lög eftir islensk tónskáld. Þá munu félagar úr einsöngvarafé- laginu syngja islensk þjóðlög I raddsetningu Jóns Asgeirsson- ar.Þessir félagar eru þau Rut L. Magnússon, Elin Sigurvinsdótt- ir, Guöfinna Dóra Olafsdóttir, Friöbjörn G. Jónsson og Halldór Vilhelmsson. En snúum okkur aftur að þeim Magnúsiog Njáli. Þeir eru báðir I Kvæðamannaféiaginu Iðunnisem stofnað var árið 1929 og verður þvi 50 ára á næsta ári. Félagsmenn i Iðunni eru um 200 og heldur félagið fundi einu sinnii' mánuði að Freyjugötu 27. „A þessum fundum förum við með íslenskan kveðskap i hefð- bundnu formi og er það ýmist kveðskapur eftir islensku skáld- in eða hagyröingana I félag- inu,!’, fræddi Njáll okkur. „Haldi fólk að það geti ekki komið saman visu þá er það fyrst og fremst vegna þess að það hefur ekki komist i kynni viö þessa kúnst og hefur þvi ekki haft hana nógu mikið fyrir aug- unum og eyrunum. En um leið ogþaðfærtækifæritilþessþá er björninn unninn.” „Kvæöamannafélagiö hefur farið í sumarferöir og þá er bók- staflega verið að yrkja allan timann. Þaö eru ortar 200 visur i einni svona ferð”. „I félaginu eru bæði hagyrð- ingar og vísnavinir og svo þeir sem hafa gaman af kveðskapn- um fyrst og fremst eða flutningi hans með kvæða eöa rimnalög- um”. Félagið hefur komið sér upp safni af bæði vísum og kvæöa- lögum. Þaðerueitthvaðá fjórða hundraö rimnastemmur sem eru til I þessu safni. Tilgangur félagsins er að halda við hinni gömlu kveöskaparlist, sem er bundin við hina gömlu bragar- hætti rúnnanna. „Við höfum ákveðna visu til þess að minna okkur á ákveðið lag, t.d. vatnsdælingástemman „Hér er ekkert hrafnaþing”. Það er mjög mikill áhugi hjá okkur aö komast i samband viö yngra fólk sem hefur áhuga að þessum gömlu þjóðlegu fræöum okkar”, sagði Njáll að lokum. Og hafi einhverjir áhuga þá standa honum opnar dyrnar að Freyjugötu 20.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.