Vísir - 09.08.1978, Side 7
VISIR Miðvikudagur 9. ágúst 1978
■ .....................
Bandarikin munu
koma fram sem full-
gildur aðili i viðræðum
Egypta og ísraela, sem
hefjast munu i Was-
hington i næsta mán-
uði, eftir því sem Cyrus
Sfðasta örþrifaráðið
Akvörðun Carters forseta um að boða leiðtoga tsraels og Egypta-
lands til fundar við sig i Camp David var aðalumtalsefni fjölmiðla I
Bandarikjunum i nótt og lita flestir hana sem örþrifatilraun til þess
að bjarga friðarumleitunum i Austurlöndum nær frá þvi að renna
algerlega út i sandinn.
Þar með sýnist Carter hafa spilað sinu siðasta spili af hendinni I
tilraunum Bandarikjastjórnar til þess að ýta Egyptum og lsraelum
til friðarsamninga. Mistakist þessi tilraun.er ekki að sjá, að hún hafi
nein önnur ráð.
Það oröaval Vance utanrikisráðherra, að Bandarikin muni verða
fullgildur aöili i þessum viöræöum, felur i sér, að Carter muni
leggja fram sinar eigin friðartillögur til þess að reyna aö brúa bilið
milli hinna tveggja, i stað þess að láta hingaö til nægja að Vance
bæri tilboðin á milli.
En leiðtogar Bandarikjaþings, sem Carter forseti bar bækur sinar
saman við, áður en hann boðaöi til fundarins, segja, að hann lumi
ekki á neinni nýrri friöaráætlun. Hann væri einungis að reyna, hvort
nýr fundur Sadats og Begins mundi ekki koma málinu á hreyfingu
aftur.
Þótt með þessum tiðindum hafi vaknað aö nýju vonir um, að
friðarviðleitni SadaJ.s þurfi ekki að verða til einskis, er bjartsýnin þó
ekki mikil. Það er augljóst, að Carter boðaði ekki til fundarins,
vegna þess að samningahorfur væru orðnar svo góðar. Þvert á móti
voru þær algerlega runnar út I sandinn. Fundarboðið er örþrifaráð
hálmstrá, sem gripið er til I veikri von.
Vance utanrikisráð-
herra USA sagði i gær-
kvöldi
Þetta orðaval Vance ráð-
herra, „fullgildur aðili”, þykir
benda til þess að Carter Banda-
rikjaforseti hafi loks oröið við
kröfum Egypta um virkari þátt-
töku i friðarumleitunum I
Austurlöndum nær.
Anwar Sadat Egyptalandsfor-
seti hefur lengi hvatt Banda-
rikjastjórn til þess að breyta frá
málamiðlunarhlutverki sinu og
leggja i staðinn fram sinar eigin
tillögur til friðar og knýja
Israelsstjórn til aö sýna meiri
sveigjanleika i viðræöunum.
Vance var spurður i gær-
kvöldi að þvi, hvernig augum
Israelsstjórn íiti þennan nýja
þátt Bandarikjastjórnar i við-
ræðunum, og sagði: „Þeir eru
harðánægðir yfir þvi, að við
skulum ætla áö gerast fullgildir
aðilar.”
Sadat, sem fyrir tiu dögum
gafst endanlega upp á beinum
viðræðum Egypta við Israela,
sagði á blaðamannafundi I gær-
kvöldi: „Þetta er að minu áliti
nýtt blað. Viö skulum ekki horfa
um öxl.”
Vance gerði þessa fundarboö-
un Bandarikjaforseta kunna á
blaðamannafundinum með
Sadat i Alexandriu i gærkvöldi.
Begin og Sadat höfðu báðir þeg-
ið boðið þegar i stað.
Leiðtogar ísraels biöa I dag
komu Vance utanrikisráðherra,
sem mun gefa þeim skýrslu af
viðræðum sinum við Sadat
Egyptalandsforseta aö undan-
förnu. Mun þeim einkum leika
hugur á að heyra, hverjar vonir
Sadat gerir sér um árangur hins
fyrirhugaða fundar, sem mun
hefjast 5. september.
Menachem Begin forsætis-
ráðherra lauk i gærkvöldi lofs-
Anwar Sadat
orði á þetta framtak Carters
forseta, og kvað slikt frumkvæði
lýsa hugrekki. Sagði hann, að
Vance utanrikisráðherra hefði
náö undraverðum árangri i
ferðum sinum til Austurlanda
Cyrus Vance
nær.
Aðrir leiötogar i tsrael völdu
sin ummæli af varkárni og i
Israel virðast flestir efins um
nokkurn umtalsverðan árangur
þessa fundar.
Jimmy Carter
Menahem Begin
Carter vekwr
wpp nýjar við-
roeðwr wm frið
í Awstwrlöndwm
Enn einn andófsmaður
PAFI
FLUTTUR TIL
PÉTURSKIRKJU
Jarðneskar leifar
Páls páfaVI verða flutt-
ar i dag frá sumarhöll
páfa i Albanhæðum til
Péturskirkjunnar i
Páfagarði,
Þúsundir manna tóku
að safnast i morgun við
leiðina, sem með kist-
una verður ekið, til þess
að votta hinum látna
virðingu sina.
Páll páfi sem lést af hjartaslagi
á sunnudaginn, áttræður oröinn,
fór i tveggja mánaöa sumarfri til
sumarhallarinnar þann 14. júli,
og virtist þá þegar finna á sér, aö
hann ætti ekki afturkvæmt. —
„Vér erum að fara, en vér vitum
ekki, hvort vér snúum aftur, eða
hvernig vér komum þá aftur”,
sagði hann.
Fyrir nokkrum vikum gerði
páfinn ráðstafanir varðandi hvar
honum yröi valinn legstaöur
(milli Jóhannesar 23. og Piusar
12., sem voru siöustu forverar
hans) og hvernig útförin yrði
gerð.
Kista hans mun standa uppi
fram til laug.irdags, þegar hann
verður jarðsunginn. Er búist viö
þvi, aö tugir þúsunda<nuni leggja
leið sina til þess að kveðja páfa
hinstu kveöju.
A meöan munu 115 kardinálar
velja eftirmann Páls VI.
Óeirðir
í Fíladelfíu
Oeirðir brutust út í
vesturhluta Fíladelfíu í
gær, eftir að lögreglan
neyddist til að beita
háþrýstislöngum og skot-
vopnum til þess að bera út
hóp náttúrulifsmanna af
heimili þeirra.
Einn lögreglumaður var drep-
inn og niu til viðbótar særðust i
áhlaupi lögreglunnar á aðalstööv-
ar þessa hóps, sem kallar sig
„Move” og samanstendur aðal-
lega af blökkufólki.
Húsið sem fólkið hafðist viö i er
sagt morandi i rottum, og i
fimmtán mánuði hefur fólkið
þráast við að yfirgefa það I trássi
viö fyrirmæli heilbrigðisyfir-
valda, fógetaúrskuröi og fleira.
Um 300 lögreglumenn
umkringdu húsið i gær og notuðu
háþrýstivatnsslöngur til þess að
hrekja ibúana úr kjallaranum,
þar sem þeir höfðu leitað hælis.
Segir lögreglan, að þá hafi verið
hafin skothrið á lögreglumenn-
ina, en þó tókst að yfirbuga verj-
endurna, sem voru tólf fullorðnir
fyrir utan börnin.
Eftir að þeir höfðu verið færðir
burt og húsiö jafnað viö jöröu með
jarðýtum gerðu blökkumenn i
hverfinu uppþot. Grýttu þeir lög-
regluna og vörpuðu púðurkerling-
um að hestum hennar. Nokkrir
menn tróðust undir hófum hest-
anna.
Lifnaöarhættir þessara sam-
taka „Move” voru taldir leiða til
óhollustu. Fólkið fleygöi úrgangi
og rusli i garöinn og lét hann
rotna þar, enda hafði hann mikið
aðdráttarafl á rottur. Ennfremur
neitaði það að jaröa sina látnu og
sýndi eitt sinn fréttamanni lik af
mánaðargömlu barni, sem lá og
rotnaöi i húsinu. Um 50 hundar
reyndust vera i húsinu.
I mai i vor settist lögreglan um
húsið, en eftir 56 daga umsátur
var þvi aflétt, enda náðist sam-
komulag um, að ibúarnir mundu
flytja úr þvi 3. ágúst. Þegar til
kom, neituðu þeir að hreyfa sig
þaðan.