Vísir - 25.10.1978, Page 8

Vísir - 25.10.1978, Page 8
i 8 Mi&vikudagur 25. oktdber 1978 VÍSIR Burt Reynolds i studi Það mætti ætla að við umsjónarmenn Fólks hefðum einhvern sérstakan augastað á Burt Reynolds. Að minnsta kosti hefur honum verið gefið ágætis pláss i dálk- inum að undanförnu. En þetta hlýtur að koma til af þvi, að maðurinn er mikið í fréttum, og hér er þá ein enn. Það er engin ástæða til að óttast þessa ör, sem virðist hafa farið í gegnum höfuðið á honum. Henni var bara komið svona haglega fyrir, en myndin var tekin þeg- ar Reynolds kom fram i sjónvarpsþætti á dög- unum. Stjórnandi þáttarins vissi að það þarf hreint ekki mikið til þess að koma leikar- anum í stuð og fá hann til að gera hitt og þetta. Og með lagni tókst honum að fá leikarann til að raka helminginn af yfirskegginu af sér. Það fylgir sögunni að skeggið hefur Reynolds haft f rá því á árinu 1973. Ástœða til cið fagna Roddy Llewellyn stendur þarna stórum stöfum, og það er reyndar nafn unga mannsins, sem lyfti glasi slnu fullu af kampavíni. Roddy þessi er góðvinur Margrétar prinsessu, eins og oft hefur verið getið í fréttum. Tilefni kampavínsdrykkjunn- ar og myndatökunnar er útkoma fyrstu plötu hans og afmælis, en Roddy varð 32ja ára þennan dag. Haldið var upp á hvort tveggja í næturklúbbi í London, sem heitir Tramp. Á bak við litlu myndavélina er kanslari V-Þýska- lands, Helmul Schmidt. AAyndin er tekin I Kamakura I Japan, en þar var kanslar.in í fimm daga opinberri heimsókn fyrr I þessum mánuði. Þetta geysistóra Buddha-líkneski á bak við kappann vekur sjálfsagt áhuga og athygli Ijósmyndara yfir- leitt. Það hefur áreiðanlega ekki farið framhjá kanslaranum held- ur, og við gerum ráð fyrir að hann hafi þegar fest það á f ilmu. Umsjón: Edda Andrésdóttir

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.