Vísir - 25.10.1978, Blaðsíða 10

Vísir - 25.10.1978, Blaðsíða 10
10 Esnm utgefandi: Reykjaprenth/f Framkvæmdastjári: Daviö Guömundsson Ritstjórar: Þorsteinn Pálsson ábm. ólafur Ragnarsson Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guðmundsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Umsjón meö helgarblaöi: Arni Þórarinsson. Blaöa- menn: Berglind Asgeirsdóttir, Edda Andrésdóttir, Elias Snæland Jónsson, Guðjón Arngrímsson, Jón Einar Guðjónsson, Jónina Mikaelsdóttir, Katrin PálS; dóttir, Kjartan Stefánsson, Oli Tynes, Sæmundur Guðvinsson. Iþróttir: Gylfi Kristjánsson og Kjartan L. Pálsson. Ljósmyndir: C^unnar V. Andrésson, Jens Alexandersson. Utlitog hönnun: Jón Oskar Hafsteinsson, Magnús Ölafsson. Auglýsinga-og sölustjóri: Páll Stefánsson Askriftargjald er kr. mo« kr. Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson á mánuöi innanlands. Auglýsingar og skrifstofur: Siöumúta 8. Verö i lausasölu kr. iso kr. Símar 86611 og 82260 eintakiö. Afgreiðsla: Stakkholti 2-Ao simi 86611 Prentun Blaðaprent h/f. Ritstjórn: Siöumúla 14 simi 86611 7 linur Útboð og sparnaður Þegar rætt er um hagræðingu og sparnað í ríkis- rekstrinum hafa stjórnvöld verið f remur treg til þess að lita á einn þátt, sem Ijóst er að getur stuðlað að veru- legum sparnaði, en það er útboð framkvæmda á vegum opinberra stofnana. Ýmis sveitarfélög hafa í síauknum mæli farið inn á þessa braut með góðum árangri og má i því sambandi nefna, að hjá Reykjavíkurborg hafa farið fram útboð á flestöllum verklegum framkvæmdum undanfarin átján ár. Þeir, sem fylgst hafa með útboðum borgarinnar hafa séð, að með þeim hefur verið hægt að spara verulegar fjárhæðir, miðað við kostnað verkanna ef þau hefðu verið unnin á vegum borgarinnar sjáifrar. Gott dæmi um þetta eru framkvæmdir Hitaveitu Reykjavíkur. Verkfræðistofur hafa annast hönnun og eftirlit með verkunum, þeim er síðan skipt niður í hæfi- lega stóra hluta, sem ýmsir verktakar vinna samkvæmt tilboðum. Svipað fyrirkomulag hef ur verið tekið upp við hitaveituframkvæmdir annars staðar á landinu og kostnaður við verkin yfirleitt verið undir kostnaðar- áætlunum sveitarfélaganna sem að þeim standa. Stór fyrirtæki í ríkiskerf inu hafa lítiðsem ekkert boðið út af verkefnum sinum á siðustu árum. Þannig hafa engin útboð verið á þessu ári hjá Vita- og hafnarmála- stofnuninni og Vegagerð ríkisins hefur aðeins boðið út framkvæmdir fyrir um 3% af heildarf járveitingu þessa árs til vegagerðar. í stað þess að leita tilboða í verkefnin á frjálsum markaði halda þessar ríkisstofnanir uppi flota bíla- og vinnuvéla og stórum hópi starfsmanna, sem sinnir árs- tíðabundnum verkefnum. Nýting tækjanna er enn verri vegna þess, að þau eru ekki lánuð milli stofnana eða nýtt annars staðar, þegar þaueruónotuð hjá þeirri stofnun, sem á þau. Tæki vega- gerðarinnar eru til dæmis ekki notuð við hafnarfram- kvæmdir eða önnur verkefni Vita- og hafnarmálastof n- unarinnar eða annarra ríkisstofnana að því er næst verður komist. Aætlað er, að um 80 milljarðar króna af heildarf jár- munamynduninni í landinu á þessu ári gætu fallið beint undir verktakastarfsemi, en mjög erf itt er að áætla hve mikill hluti þessara f ramkvæmda er boðinn út. Sennilegt er talið að það sé aðeins um sjöundi hluti heildarfram- kvæmdanna. Othar Orn Petersen, framkvæmdastjóri Verktaka- sambands Islands, benti nýlega á í grein um þessi efni, að skattborgarar þessa lands vissu næsta lítið um kostnaðviðýmsar veigamiklar framkvæmdir, sem ríkið annaðist sjálft, enda væri það oft sama stofnunin, sem hannaði verkið, framkvæmdi það,hefði eftirlit með því og tæki það út. ,,Að þvi er manni skilst eru hækkanir oft flokkaðar undir verðbólgu án nákvæmari skýringa", segir Othar. Hann bendir auk þess á, að það skipti landsmenn ekki litlu máli, hvernig að verklegum f ramkvæmdum sé stað- ið og nefnir sem dæmi, að sé með sameiginlegu átaki staðið þannig að verklegum f ramkvæmdum að með auk- inni framleiðni og tækni fáist 5% betri nýting á fjár- magni gæti það sparað þjóðarbúinu 4000 milljónir króna miðað við árið 1978. Þetta eru stórar tölur og því full ástæða til þess að leggja áherslu á að ríkissjóður og ríkisfyrirtæki bjóði út sem mest af framkvæmdum sínum. Þannig yrði stuðlað að frjálsri samkeppni á verktaka- markaðnum og um leið betri nýtingu á fé skattborgar- anna. Miövikudagur 25. október 1978 VTSIR Vísir hefur fengiðtil birtingar erindi Eyjólfs Kon- ráðs Jónssonar alþm. um stjórnmálin og stöðu f jöl- miðla. Erindið var flutt á fundi f Varðarfélaginu fyrir skömmu en þar töluðu einnig dr. Gunnar Thoroddsen alþm. og ritstjórarnir Einar Karl Har- aldsson, Jónas Kristjánsson og Markús örn Antons- son. Þaö er vel til fundiö, aö Varöar- félagiö efni til umræðna um stjórnmálin og stööu fjölmiöla. Slik umræða er nil nauösynleg af tveim ástæöum, og hún þarf helzt aö vera sem hreinskilnust og hleypidómalausust, án þess þó að menn tali einhverja tæpitungu. Sá hildarleikur, sem háöur hef- ur veriö i islenzkum stjórnmálum á þessu ári og stendur raunar enn yfir, hefur beint sjónum manna aö hlutverk dagblaöa, útvarps og sjónvarps og afstööu stjórnmála- flokka til fjölmiöla. A hinn bóginn er svo aðför sú, sem verölagsyfir- völd standa aö gagnvart dagblöð- unum býsna iskyggileg. Þar er svo sannarlega um „bófahasar” að ræða, svo aö notuö sé samlik- ing viöskiptaráöherrans og eitt fleygu orðanna úr nýyrðasafni vinstristjórnarinnar. Fyrst skal þá vikiö nokkrum oröum aö sið- ara atriöinu: 72. gr. stjórnarskrárinnar hljóðar svo: „Hver maöur á rétt á aö láta i ljós hugsanir sinar á prenti, þó verður hann aö ábyrgjast þær fyrir dómi. Ritskoöun og aörar tálmanir fyrir prentfrelsi má aldrei i lög leiöa”. Ég fæ ekki séö, hvernig aöför verölagsyfirvalda aö dagblööun- um getur samrýmst þessu stjórn- arskrárákvæði. Þaö er ofvaxiö minum skilningi. Og ekki trúi ég því fyrren ég tek á, aö Hæstirétt- ur tslands muni ekki túlka þetta mikilvæga og skýlausa ákvæði stjórnarskrárinnar nægilega rúmt til aö aöför þessari veröi neyöa þau til aö gefa hundruö ein- taka sinna til rikisstofnana. Auö- vitað á rikið aö borga fyrir þau blöö, sem þaö kaupir, alveg nákvæmlega eins og allir aðrir og slfct veröur aldrei talið styrkur af rikisins hálfu, eöa hvi skyldu blöö t.d. afhenda Alþingi 50 eintök ókeypis, eins' og hér var áöur gert? Nú hefur raunar veriö upp- lýst, að vandlætarinn Dagblaöið selji rikinu ekki öllu færri blöö en aörir, enda ekki nema sjálfsagt aðseljahver jum,sem kaupa vill. Blööin, sem rikið hefur keypt, munuveraum200,ogþau hafa að langmestu leyti fariö til sjúkra- húsa. Ég fæ raunar heldur ekki séð, að neitt væri óeölilegt viö þaö, aö rikisstofnanir eins og útvarp og sjónvarp greiddu dagblööunum fyrir þá þjónustu að birta dag- skrárog ýmsar tilkynningar, ná- kvæmlega á sama hátt og t.d. kvikmyndahús veröa aö greiöa fyrir auglýsingar sinar. Slikt gjald yröi þó auðvitaö aö vera hóflegt, og skal ég játa, að hætt er við, aö þeir sem sýknt og heilagt reyna aö seilast til rikisfjár, mundu leitast viö aö teygja úr slikum greiðslum, þar til i raun- inni yröi oröiö um rikisstyrkveit- ingar aö ræða, en ekki heilbrigöa greiöslu. Þar þurfa sjálfstæöis- menn aö vera á verði, en hætta hvimleiöu heilagleikatali, sem enga stoö á i raunveruleikanum. Áhrif fjölmiðla á stjórn- málaþróun En hver eru þá áhrif fjölmiðl- ast persónuleikanum”, hvaö sem tautar og raular, sýnast eitthvaö allt annað en þeir eru. Hlutdrægni i Sjónvarpi og tJtvarpi Útvarpiö er auövitaö áhrifa- mikiö lika, en þó er reginmunur á þvl og sjónvarpinu, eins og allir þekkja. Sjónvarp og útvarp eru gagn- rýnd eins og vera ber. Stundum er þvi haldið fram, aö hlutdrægni gæti, og víst er um það, aö þeir sem þátttakendur eru I stjórn- málabaráttu t.d. telja oft að þeirra málsstaö sé lltill gaumur gefinn, en önnur sjónarmið sitji I fyrirrúmi. Svo verður sjálfsagt lengst af, bæöi vegna þess, aö hver og einn tdur sitt mál mikil- vægast og eins af hinu, að frétta- mat blaöamanns hlýtur aö fara aö einhverju leyti eftir þvi, sem hann eöa þá hans stofnun telur mikilvægast, jafnvel þótt fyllsta heiöarleika sé reynt aö gæta. Ég hygg þvi, aö það sé óheppilegt, aö einungis einn maöur frá rikisfjöl- miölum silji t.d. þingfundi og afli þingfréttanna. Æskilegra væri aö skipta þar eitthvaö störfum. Raunar getég ekki neitaö, aö mér finnst hlutleysi rikisfjölmiöla oft á yztu nöf, jafnvel þótt ég reyni að hafa 1 huga þau sjónarmið, sem siöast voru nefnd. Breytingin á blöðunum sl. tvo áratugi En nóg um þetta, vikjum nú beint aö blöðunum. Breyting á hnekkt, ef málið gengur til Hæstaréttar. Fr j álshy ggj umenn verða að vera vel á verði. Þessi aöför sýnir aö frjáls- hyggjumenn veröa vel aö vera á verði gegn tiltækjum núverandi valdhafa. Og hroki Svavars Gestssonar, viöskiptaráöherra, í sjónvarpsþætti meö Jónasi Kristjánssyni, ritstjóra, siöastliö- iö föstudagskvöld sýnir, svo aö ekki verður um villzt, aö fullur vilji er aö láta kné fylgja kviöi, hvar sem hagsmunir og frjáls- ræði borgaranna rekst á kúgunar- og ofstjórnarnáttúru þessa fólks. Hitt er svo þvi miður annaö mál, aö ritstjórinn hélt ekki nógu vel á sjónarmiðum sjálfstæöis- og frjálshyggju, sem ætla veröur aö hann fylgi. Þau sjónarmiö skýr- ast þó væntanlega betur I hring- borðsumræðum hér á eftir. En þá sögu veröur aö segja eins og hún er, aö Dagblaöiö hefur árum saman visvitandi rangtúlkaö afstööu Sjálfstæöisflokksins til svonefndra rikisstyrkja til dag- biaöa og blákalt haldið þvi fram, aö önnur blöö nytu rikisstyrks. Sjálfstæöisflokkurinn' hefur mér vitanlega aldrei gert samþykkt um rikisstyrki til dagblaöa, þótt hitt sé aö vísu rétt, aö I rööum flokksins eru menn mismunandi staöfastir I þessari afstööu. Hvimleitt og óraunveru- legt heilagleikatal t mlnum huga er aftur á móti hvort tveggja jafn fráleitt, aö styrkja dagblöö af rikisfé og aö anna á stjórnmálaþróun. Um þaö gæti auövitaö hver okkar um sig, sem hér taka þátt I umræðum, talaö I alla nótt. En ég er ekki viss um, aö menn yröu miklu visari, þótt margar langar ræöur yröu um þetta fluttar og skal þess vegna reyna aö drapa aöeins á fá atriði. Auövitaö geturlftil, einföld frétt i fjölmiöli haft áhrif á af- stöðu manna, hvaö þá pólitiskar fréttaskýringar. Um okkur leikur upplýsingamiölun og áróöur úr öllum áttum, eins og vera ber i lýðfrjálsu landi. Þar veröur aö treysta á dómgreind hvers og eins, en foröast valdboöin. Prent- frelsið, skoðanafrelsiö, er megin- reglan, en meiöyröalöggjöf setur prentfrelsinu eölilegar skoröur. öllum er ljóst, hve gifurlega áhrifamikiö sjónvarp getur verið, bæöi til góös og ills. Stjórnmála- mönnum er jafnvel fyrirskipaö aö „afklæöast persónuleikanum”, eins og einu sinni var komizt að oröi, enda t.d. mál manna, að „The new Nixon” „Nixon hinn nýi” hafi veriö búinn til af sér- fræöingum á sviöi kvikmynda- geröar og fjölmiölunar meö þeim hörmulegu afleiöingum, sem heimsbyggöin þekkir. En á sama hátt og sjónvarpið gat „selt” tveim þriöju bandarlsku þjóöar- innar skúrkinn Nixon getur þaö stórskaöaö sjónarmiö og mál- flutning annarra manna, sem annaö hvort vilja ekki læra hundakúnstirnar eða geta það ekki. Sjónvarpsþættir hér veröa raunar oft þvingaöri en sambæri- legir þættir erlendis, bæöi vegna þess aö timi er stundum naumur og þátttakendur margir og eins hygg ég af hinu, aö menn séu hér tregir til, góðu heilli, aö „afklæö- Islenzku dagblööunum hefur oröiö gifurleg siöustu tvo áratugina. Orfá dæmi skal ég nefna um Morgunblaöiö, þaö blaö sem ég þekki bezt vegna 15 ára ritstjórn- arstarfs. Fyrir rúmum tveim áratugum voru t.d. þingfréttir allra blaöa yfirleitt skrifaöar út- frá þvl sjónarmiöi, hvaö þeim flokki hentaöi bezt, sem viðkom- andi blaö studdi. Og sjónarmiða andstæöinga var löngum vart getið, nema þá helzt til að snúa út úr orðum þeirra. I ritstjórnartiö Bjarna Benediktssonar var þessu breytt að þvi er Morgunblaöiö varöar, eins og alkunna er, og hin blööin fetuðu að nokkru I fótsporiö. Greinar um margháttuö þjóömál birtu menn helst ekki heldur fýrr á árum, án þess aö efniö félli nokkurn veginn I kramiö, væri til stuðnings hugsjóninni, enda leit- uöu menn oftast meö greinar sin- ar til blaösins, sem studdi flokka þeirra. Þetta breyttist jafnt og þétt ár frá ári. Morgunblaðið tók aö birta miklu fjölbreyttara stjórnmálaefni og auglýsti bein- línis eftir gagnrýniog opnum um- ræðum. Það tók aö leita sjónar- miöa manna úr öllum flokkum. Og loks kom þar, aö blaöiö baö forystumenn allra stjórnmála- ftokka aö skrifa áramótayfirlit eða svara ákveönum spurningum um viöhorf um áramót. Margir töldu fráleitt að gefa út slikt blað A fimmtiu ára afmæli Morgun- blaösins i nóvember 1963 birtist grein meö hugleiöingum um þaö, hvernig Morgunblað framtfðar- innar kynni að veröa. Grein þessi var gleymd og grafin, en rykiö

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.