Vísir - 19.02.1979, Side 4
4
Fiskveiðar Norðmanna 1978:
HEILDAR-
AFLINN
2,3 MILL'
JÓN TONN
Heildarfiskafli Norömanna á
árinu 1978 varö 2.384.600 tonn. A
árunum 1977 og 1976 var aflinn f
kring um 3,2 milijón tonn en árið
1975 var aflinn hins vegar um 2,3
milljón tonn. Og Norftmenn búast
viö enn minni afla á árinu 1979.
Til samanburðar má geta þess aö
heildarfiskafli islendinga varö á
siöasta ári um 1,5 milljón tonn.
baö er einkum loönuveiöin i
Barentshafi sem hefur minnkaö.
Einnig er þorskstofninn viö Noreg
talsvert minni en gert var ráö
fyrir. Ástæðan er of mikil veiöi á
smáfisk. Norömenn kenna hér
um yfirgangi Sovétmanna sem
m.a. séu meö minni möskvastærö
I veiöarfærum sinum en leyfilegt
sé.
Sameiginleg fiskveiöinefnd
NorömannaogSovétmanna hefur
ákveöiö heildarkvóta þeirra á
þorski fyrir áriö 1979. Veröur
hann 660 þúsund tonn en var 810
þúsund tonn siöasta ár.
Af honum fara 90 þúsund tonn
til þriöja lands. Sovétrikin og
Noregur fá hvort um sig 285 þús-
und tonn og auk þess 40 þúsund
tonn hvort af þorski á grunnsævi.
Á þessari vertið veröa þvi
minni verkefni fyrir norsku verk-
smiöjuskipin og gæti uppihald
þeirra oröiö allt aö þrir mánuöir.
Auk þess er ekki reiknaö meö þvi
aö nokkur endurnýjun veröi á
Mánudagur 19. febrúar 1979 VISIR
Erf iðleikar steðja að norskum sjávarútvegi og fiskvinnstu jafnt og íslenskri og nú
horfa norskir sjómenn upp á minnkun af la og minni tekjur.
verksmiöjuskipaflota Norö-
manna.
Lagt ertil aö algjört veiöibann
veröi á Noröurhafssildinni þar til
annað hefur veriö ákveðiö.
Siöustu ár hefúr veiðikvóti fyrir
feitsild fariö siminnkandi.
Sjómenn ná ekki lág-
markslaununum
Af þorskfiskum var landaö i
Noregi um 470 þúsund en var um
507 þúsund tonn áriö 1977 , 498 þús-
und tonn árið 1976 og 442 þúsund
tonn áriö 1975.
Heildarþorskaflinn áriö 1978
varð 279 þúsund tonn og 305 þús-
und tonn áriö 1977.
Nokkrir hópar sjómanna náöu
ekki lágmarkslaunum á árinu
1978. Aflaverömæti ársins var um
2,8 milljaröar og er þar meö taliö
ýmsir opinberir styrkir. Saman-
burðartölur áranna 1977 og 1976
eru 3,1 milljaröur og 2,8 mill-
jaröar þannig aö ljóst er aö tekju-
rýrnunin er veruleg.
„Norske Fiskarlag” lagöi til
siöastliöiö haust aö stuöningur viö
norskar fiskveiöar yröi um lmill-
jarður norskra króna. Stórþingiö
samþykkti hins vegar að
stuöningurinn yröi 640 milljónir
þar af yröi 115 milljónir veittar
sem lán. Hreinn stuöningur yröi
þvi 525 milljónir norskra króna
sem yrði 85 milljón króna meiri
stuðningur en árið 1978.
Stöðugt verð á blokkinni
Si'öa st liðiö ár var einnig erfitt
fyrir útflutning á sjávarafuröum
frá Noregi. Þar lagöist allt á eitt,
hækkun fiskverðs innanlands
aukin vinnslukostnaöur og efaa-
hagserfiðleikar i mörgum
þýöingarmiklum viöskiptalönd-
um.
Fall dollarans á alþjóölegum
gjaldeyrismörkuöum kom þeim
illa. Taliö er aö útflutningsverö-
mæti norskra sjávarafuröa fyrir
siðasta ár veröi um 200 milljón
norskum krónum minni en áriö
1977 en þá voru þau um 4,5 mill-
jarðar norskra króna.
Með ærnu erfiði tókst aö losna
viö gamlar birgöir af skreiö og
saltfiski.
VORUR
SEM VANDAÐ ER TIL
Ðvnaht skíóabindin9ar
skíðaskór
SKÁTABÚÐIN
SERVERSLUN
FYRIR
FJALLA- OG
FERÐAMENN.
SNORRABRAUT 58 SÍMI 12045 Rekin af (fí) Hjálparsveit Skáta Reykjavík
Andlitsböð
Húðhreinsun unglinga — Litun
— Kvöldsnyrting — Handsnyrting
Dömur athugið
Sérstakur afsláttur af
3ja skipta andlits-
ý' nuddkúrum
s/ f *