Vísir - 19.02.1979, Page 18
22
Mánudagur 19. febrúar 1979 VISIR
LlF QG LIST LIFOGLIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LlF OG LIST LÍF 06 UST
ÞjóðleikhúsiO sýnir:
Ef skynsemin blundar..
eftir Antonio Buero
Vallejo.
Þýöing: örnólfur Arnason.
Leikmynd og búningar:
Baltasar.
Lýsing: Kristinn Daniels-
son.
Leikstjórn: Sveinn Einars-
son.
Aöalhlutverk : Róbert
Arnfinnsson Kristbjörg
Kjeld. Rúrik Ilaraldsson,
llelgi Skúlason, Arnar
Jónsson, Gunnar Eyjólfs-
son Helga Bachmann.
Á frumsýningu Þjóöleik-
hússins 15. þ.m. var is-
lenskum leikhússgestum i
fyrsta sinn boöiö aö sjá eitt
eiga reyndar fleiri eld i
hjarta en listamenn einir
og i ööru lagi þykir mér
túlkun leikstjóra og leik-
hóps slæva um of hinn póli-
tiska og siöferöilega boö-
skap.
Seinni böggullinn sem
skammrifinu fylgir er
fremur tæknilegs eölis.
Vitanlega væri fáránlegt aö
leika um einn frægasta
málara sögunnar án þess
eitthvaö sæist af verkum
hans. Þetta er leyst meö
þvi að kasta myndum upp
bakvegg sviösins, og þær
standa sannarlega fyrir
sinu. En þegar myndirnar
eru þar komnar er náttúr-
lega jafnfráleitt aö láta
leikarana umgangast sviö-
Ef skynsemin
blundar.....
„Róbert Arnfinnsson staöfestir hér aö I persónusköpun
hefur hann meira vald en aðrir islenskir leikarar”, segir
Heimir i leikdómi sinum.
Viðfangsefnið er góðra gjalda vert....... En tveir bögglar fylgja skammrifi og
verða dólítið stórir bitar í hóls í þessari sýningu
iö eins og engar myndir
af verkum Antonio Buero
Vallejo spænsks leikskálds
sem samkvæmt þvi sem
segir i leikskrá hefur um
nokkurt skeið veriö einn
fremstur maöur á sinu
sviöi á Spáni enda verk
hans alla jafna bönnuö eða
i þaö minnsta ritskoöuö
harkalega.Þaösé meiraaö
segja fyrst á siöustu árum
sem þau njóti hylli á er-
lendri grund.
Vallejo velur sér aö viö-
fangsefni brot úr lifi
málarans fræga Don
LEIKHÚS
Heimir
Pálsson
skrif ar
Francisco de Goya og sýnir
okkur átakanlega mynd af
honum i uppreisn gegn
haröýðgi og kúgun. Þótt
leikurinn gerist þannig fyr-
ir margt löngu, er tilvisun-
in til samtiöar höfundar
augljós. Viðfangsefniö er
góöra gjaldavertog veröur
hvort tveggja i senn áleitið
og dramatiskt. Jafnframt
veröur umf jöllunin sérstæö
og ætti aö veröa eftirminni-
leg. En samt fylgja tveir
bögglar skammrifi og
veröa dálitiö stórir bitar i
háls i þessari sýningu.
Eins og mörgum er
kunnugt var málarinn
Goya heyrnalaus um langt
skeið ævi sinnar. Þetta
notar Vallejo til þess aö
gera hann aö tákni hins
einmana og striöandi
listamanns. 1 heima-
landi hans er þetta senni-
lega nokkuö sniöug brella,
þvi hún beinir athyglinni
frá beinskeyttri pólitiskri
ádeilu en að einmana-
leikanum sem slikum:
Hann kemur fram I þvi aö
tala veröur fingramál eöa
bendinga- við Goya, og til
þess aö láta okkur
áhorfendur, finna einsemd
hans, heyrist ekki heldur
hvaö aörir segja þegar
Goya er viöstaddur. Þetta
„stilbragö” gerir þaö að
verkum, að mjög mikiö
reynir á svipbrigöaleik —
og jafnframt dregur þaö úr
hraöa sýningarinnar.
Þarna fannst mér leikurum
bregöastboglistin, þótt þaö
megi vel standa til bóta er
sýningum fjölgar. Einnig
dreg ég i efa aö rétt sé aö
leggja svona mikla áherslu
á einstæðingsskap lista-
mannsins. 1 fyrsta lagi ef-
ast ég um aö hann sé jafn-
mikill og af er látiö, það
ems og engar
væru. Þaö gera þeir heldur
ekki.langar stundir standa
þeir og ræöa um myndirn-
ar. En á sviöi Þjóöleikhúss-
ins dregur það dilk á eftir
sér: Leikari sem snýr baki
við áhorfendum þarf meira
en litinn raddstyrk til þess
aö hljóö hans týnist ekki
upp 1 gimaldiö. Og þaö er
þetta sem gerist. Mér hefur
oft þótt aöfinnsluvert á
þessu sviöi hve illa getur
heyrst til leikara. Tali þeir
baksviös og frá áhorfend-
um veröur mál þeirra i
besta falli aö torskildu
muldri. Og þaö er sama
hvaö leikari hefur örugg
svipbrigöi: A rasskinnum
hans sjást þau ekki.
Þaö tvennt virtist mér
megingallar sýningarinnar
og um leiö helsta orsök
þess aö hún varö úr hófi
þung og á köflum beinlínis
þreytandi. Og þar fór illa,
þvi þarna er margt gott á
ferö.
Um einstaka leikara er
hægtaö vera fáorður. Þaö
hljómar eins og léleg klisja
að segja aö Róbert Arn-
finnsson staöfesti hér aö i
persónusköpun hefur hann
meira vald en aðrir is-
lenskir leikarar. Þaö er
lika óþarft aö taka fram aö
Kristbjörg Kjeld komist
-mæta vel frá því aö sýna
sálarkreppu ástkonunnar
Leocadiu. Og þá eru taldir
aöalleikararnir tveir.
1 hlutverki prestsins — og
þar meö fulltrúa hinnar
tvistlgandi kirkju — fannst
mér Helgi Skúlason standa
sig mun betur en oft áöur.
Hann lék af smekkvisi og
stillingu sem fór vel. Hins
vegar þótti mér þeir Arnar
Jónsson (Ferdinant VID og
Gunnar Eyjólfsson (ráö-
gjafi hans) eins og þeir
væru ekki staddir i sama
leikriti. Þaö skrifa ég á
reikning beggja — auk
leikstjórans. Mér þótti t.d.
leikstill Arnars allt of llkur
þvi sem hann beitti viö
Þorleif Kortsson (Skolla-
leikur), einkum raddbeit-
ing. 1 Skollaleik átti hún vel
við, þvi þar var leikið meö
stilfærslum, en þarna kom
persónan mér fjarska ein-
kennilega fyrir sjónir:
Ferdinant varö illmennsk-
an holdi klædd, og maöur
undraöist hvaö I ósköpun-
um ráögjafihans þyrfti aö
vera aö koma flugum I
munn honum. Mér heföi
fundist nær samkvæmt
texta leikritsins aö snúa
hlutverkum viö: Gunnar
fór meö ráögjafann einsog
sauömeinlausan lyga-
hrapp.
Þrátt fyrir þær aö-
finnslur sem hérhafa verið
settar á blaö, er engin
ástæöa til annars en þakka
Þjóðleikhúsi fyrir að hafa
bætt nafninu Antonio Buero
Vallejo I hóp þeirra höf-
unda sem hafa fengið leik-
rit sin sýnd á Islandi.
HP
E.s.: Mikið heföi veriö
gaman ef Goya heföi veriö
staddur á sviöi Þjóðleik-
hússins frumsýningar-
kvöldiö. Ég heföi viljaö sjá
myndina sem hann heföi
málaö af áhorfendum!
HP
Allt fró
frímerkj-
um til
vélsleða
Listiðn heldur sýningu
Norrœna húsinu á
íslenskri hönnun
Félagið Listiön opnaöi
fyrir helgina sýningu i Nor-
ræna húsinu i tilefni af
fimm ára afmæli félagsins.
Sýningin nú er hin sjö-
unda sem félagiö stendur
fyrir og getur þar aö lita
nýja hluti og eldri sem fé-
lagar i Listibn hafa hannað
eöa gert. Er þar aö finna
mikið af húsgögnum, silf-
urmunum og ennfremur is-
lenskar ullarvörur. Þá er
grafisk sýning á frimerkj-
um og merkingum fyrir-
tækja og hvernig þær eru
notaðar. Einnig er á sýn-
ingunni arkitektúr eftir Is-
lenska arkitekta.
- Þá er sýndur islenskur
vélsleöi sem Ágúst Hálf-
dánarson véltæknifræöing-
ur hefur hannaö. Aö sögn
Gunnars Snæland, er að-
stoöaöi viö hönnunina, á
hessi vélsleöi að henta
einkar vel viö islenskar aö-
stæöur og er nú þegar búiö
aö framleiða þrjá. Taldi
hann aö sleðinn væri vel
samkeppnisfær viö erlenda
sleöa bæöi hvaö snerti verö
og gæöi.
Aö félaginu Listiðn
standa hönnuöir og listiön-
aðarmenn I hinum ýmsu
Gaf Kjarvalsmálverk
Jörgen B. Strand aöal-
ræöismaöur i Kaup-
mannahöfn, hefur nýlega
gefiö til tslands málverk
eftir Jóhannes S. Kjarval,
málaö áriö 1949.
Málverkiö er úr Gálga-
hrauni og ber heitiö
„Margtbýr I steininum”.
Þaö var á sýningu þeirri
sem danska mennta-
Hliðarhopp í
Háskólabíói
Mánudagsmynd Há-
skólabiós er aö þessu
sinni franska myndin
Hliðarhopp og er Claude
Chabrol leikstjóri.
Chabrol er i flokki
frumherja frönsku „ný-
bylgjunnar” ásamt
Tr uffa ut, G oda rd
Rohmer ogRivette. Þess-
ir leikstjórar eiga það
sameiginlegt að hafa
starfaö við franska kvik-
myndaritiö Cahiers du
Cinema meö góöum
árangri.
Allir eru þeir aldir upp
með annan fótinn i kvik-
myndahúsum. Góð
frammistaöa þeirra I
kvikmyndagerð byggist á
fræöilegum athugunum
þeirra á uppbyggingu
kvikmynda. auk þeirrar
reynslu sem þeir öðluðust
meö þvi að skoða myndir
og sjá þannig handbragö
annarra leikstjóra. Eftir
þvi sem árin liöu þróaöist
siöan still þeirra i mis-
munandi áttir.
Þessar upplýsingar eru
úr fréttatiikynningu Há-
skólabiós um myndina
Hliöarhopp. Þar segir
ennfremur að áður hafi
margar myndir Chabrols
verið sýndar þar. Þar á
meðal megi nefna Vin-
konurnar, Ótrú eiginkona,
Dýrið skal ekki deyja,
Slátrarinn og Blóöugt
brúðkaup.
Hliðarhopp er frá árinu
1975. Eiginkona Chabrols
Stephane Audran, er i
aðalhlut verki ásamt
Bruce Dern. Auk þess
kemur fram I myndinni
fjöldi úrvals leikara.
Myndin fjallar um
hjónaband bandarisks
rithöfundar og franskrar
stúlku af heföarættum.
Þótt þau hafi hist i New
York ákveða þau aö
stofna heimili i Paris.
Eiginkonan ýtir óspart
undir ritstörf eigin-
mannsins og uppskeran
veröur hver metsölubókin
á fætur annarri. En
hjónabandiö og sam-
komulagið er ekki eins
heilsteypt og það litur út á
yfirborðinu... —sj
islenski vélsleöinn, Snjólfur 644 á sýningu Listiðnaöar. Viö
hann stendur Gunnar Snæland.en hann var ráögefandi
hönnuöur, en aö ööru leyti var sleöinn hannaöur af Ágústi
Hálfdánarsyni. —Ljósm. G.V.A.
greinum nytjalista og er
-hlutverk félagsins aö
kynna Islenskan listiðnaö,
iönhönnun og hibýlamennt.
I þvi skyni stendur félagið
aö kynningum sem þessari
tíl að stuöla aö betra list-
matí og betri framleiöslu-
háttum i iðnaöi. Formaður
félagsins er Stefán Snæ-
björnsson innanhússarki-
tekt.
Sýningin I Norrama hús-
inu verður opin daglega til
26. febrúar á venjulegum
sýningartima. —HR
málaráöuneytiö efndi til I
Charlottenborgarhöll í
tilefni af áttræöisafmæli
listamannsins. Málverkiö
er 102 sm hátt og 130 sm
breitt.
Málverkiö sendi Strand
forsætisráöherra og hefur
þaö nú veriö hengt upp í
forsætisráöuneytinu, aö
ósk gefandans.
„Margt býr i steininum” eftir Jóhannes S. Kjarval, er
nú I eigu tslendinga.
LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG UST LÍF OG LIST LÍF OG LIST LÍF OG LIST