Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 2

Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isBreytinga þörf á HM segir Kjartan Steinbach / C4 Haukar og HK leika til úrslita í bikarkeppninni / C2 4 SÍÐUR Morgunblaðinu í dag fylgir blað frá Verslunarmanna- félagi Reykjavík- ur, „Þitt mál“.Viðskiptablað Morgunblaðsins Sérblað um viðskipti/atvinnulíf 12 SÍÐUR Sérblöð í dag Morgunblaðið/RAX Ingunni fagnað á Akranesi FJÖLDI manns fagnaði komu nóta- og togveiðiskipsins Ingunnar AK til Akraness í gær og eftir að séra Eð- varð Ingólfsson hafði blessað skipið og áhöfn þess var almenningi boðið að skoða það. Ingunn AK hélt frá Talcahuano í Chile 14. janúar sl. og komið var við í Saint John’s á Nýfundnalandi til að taka olíu og vistir en 23 daga tók að sigla um 7.000 mílurnar, sem eru á milli Talcahuano og Akraness. Þetta er nýjasta skipið í íslenska flotanum og er það í eigu Haraldar Böðvarssonar hf. ASMAR-skipa- smíðastöðin í Talcahuano sá um smíðina en skipið er 79,90 metra langt og 12,60 metra breitt. Það er 1.981 brúttótonn og getur borið allt að 2.000 tonn af afla. Aðalvélin er af gerðinni MAK og skilar um 5.875 hestöflum en hliðarskrúfur eru 900 hestöfl. Skipið er m.a. útbúið 80 tonna togspilum og tveimur öfl- ugum flottrollsvindum. Að sögn Marteins Einarssonar skipstjóra gekk heimferðin mjög vel og var meðalhraðinn um 14 míl- ur, en skipið fer á loðnuveiðar á næstu dögum. VARNARLEYSI starfsfólks sölu- turna gagnvart ræningjum er líklega helsta orsök þess að söluturnar verða helst fyrir barðinu á vopnuðum ræn- ingjum sem ógna starfsfólki og heimta peninga. Þá hefur það sín áhrif að eigendaskipti eru tíð í grein- inni og rekstraraðilar staldra oft stutt við. Þetta er mat Sigurðar Jónssonar, framkvæmdastjóra SVÞ – Samtaka verslunar og þjónustu. Hann segir að reynt hafi verið að bregðast við rán- um í söluturnum með því að bjóða eig- endum og starfsfólki þeirra upp á fræðslu- og forvarnanámskeið en afar treglega hefur gengið að fá fólk á námskeið. „Eigendur söluturna eru því miður ekki í neinum samtökum, þannig að þeir eru ekki á skrá hjá okkur, hvað þá að þeir hafi samband við okkur að fyrra bragði,“ segir Sig- urður. „Við höfum þó reynt, í samstarfi við lögreglu, að fá þessa aðila á námskeið í forvörnum og réttum viðbrögðum við ránum. Því miður hafa eigendurn- ir ekki sýnt þessu áhuga nema í mjög litlum mæli. Það heyrir til undantekn- inga ef þeir senda afgreiðslufólk sitt á þau námskeið sem í boði eru. Síðast boðuðum við til fræðslufundar fyrir hálfu öðru ári. Þá tímasettum við fundinn sérstaklega eftir óskum sölu- turnaeigenda en samt mættu ekki nema örfáir. Nokkru áður höfðum við boðað til forvarnanámskeiðs fyrir verslunarfólk og þá kom enginn úr hópi söluturnaeigenda.“ SVÞ – Samtök verslunar og þjón- ustu hafa tekið saman fræðsluefnið Varnir gegn vágestum að norskri fyr- irmynd, sem þýtt var og staðfært í samstarfi við m.a. tryggingafélög, kortafyrirtæki og lögreglu. Af- greiðslufólki í verslunum hefur síðan verið boðið upp á námskeið þar sem farið er vítt yfir sviðið. „SVÞ leggja áherslu á skipulegt forvarnastarf til að efla rekstrar- öryggi og bæta öryggi og starfs- ánægju verslunarfólksins. Þetta er heildstæð forvarnaáætlun sem bygg- ist á því að öryggisbúnaði sölustaða er fyrst komið í lag og fólk síðan tekið á námskeið. Þar er farið yfir alla þætti sem varða rán, hnupl, tryggingar, meðferð peninga og greiðslukorta o.s.frv.“ Að sögn Sigurðar er gert ráð fyrir að starfsfólk sem lendir í ráni fái und- antekningarlaust áfallahjálp, óháð mati þess sjálfs. „Málinu er einfald- lega ekki lokið fyrr en viðkomandi hefur fengið áfallahjálp,“ segir hann. Að loknu námskeiði vottar lögregla viðkomandi sölustað og setur upp merkingar á áberandi stað þar að lút- andi. Söluturnar útundan í forvörnum gegn ránum Gengur treglega að fá fólk á námskeið KENNARAR við Iðnskólann í Reykjavík hafa fengið leiðréttar greiðslur vegna vangoldinna launa á tímabilinu frá og með haustönn 1997 til áramóta 1999/2000. Áætlað er að samtals sé um að ræða ná- lægt 50 milljónum króna í beinum launagreiðslum til kennara, en að jafnaði starfa um 120 fastir kenn- arar við skólann, skv. upplýsingum Baldurs J. Baldurssonar, trúnað- armanns kennara. Leiðréttingarnar má rekja til ágreinings sem uppi var á milli kennara og fyrrverandi skóla- meistara Iðnskólans um túlkun kjarasamninga. Unnið var að út- reikningum vegna leiðréttinganna allt síðastliðið ár og gert upp við kennara jafnóðum. Baldur sagði að hér væri fyrst og fremst um að ræða leiðréttingar vegna rangrar framkvæmdar skólans á kjara- samningum og rangra og óná- kvæmra útreikninga á launum. Samkvæmt heildarsamantekt Iðnskólans yfir leiðréttingar á launum kennara, sem nú liggur fyrir og kynnt var á síðasta kenn- arafundi, áttu kennarar inni ógreidd laun vegna tæplega 28 þúsund vinnustunda fyrir prófa- vinnu, heimayfirvinnutíma og hópálag á umræddu tímabili. Nem- ur sú upphæð alls 37–39 milljónum króna. Sá skólinn um að inna þessar greiðslur af hendi en þar við bæt- ast svo leiðréttingar vegna greiðslna fyrir deildarstjórnun kennara og hafa fjármála- og menntamálaráðuneytið annast uppgjör vegna þess. Er talið að þar geti verið um 13 milljónir króna að ræða til viðbótar. Dæmi um að einstakir kenn- arar hafi átt inni 2 milljónir Baldur sagði að dæmi væru um að einstakir kennarar hefðu átt inni verulegar fjárhæðir, sem nú hefðu fengist greiddar. „Bara deildarstjóraleiðréttingarnar gátu numið allt að tveim milljónum á einstaka kennara,“ sagði hann. Baldur sagði kennara sátta við þessar lyktir mála að því frátöldu að enn væri eitt mál sem varðaði nokkra kennara, úr tíð fyrrverandi skólameistara, óútkljáð en það yrði væntanlega leitt til lykta fyrir dómstólum. Nálægt 50 millj- ónum í leiðréttar launagreiðslur Kennarar í Iðnskólanum ÖKUMAÐUR sem olli árekstri tveggja bifreiða á Reykjanesbraut til móts við Staldrið í gærkvöldi ók af vettvangi og fann lögreglan bif- reið hans síðar um kvöldið. Öku- maður bifreiðarinnar sem ekið var á var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild en samkvæmt upplýs- ingum lögreglu kvartaði hann und- an eymslum í baki og fæti og mátt- leysi í höndum. Lögreglan fékk tilkynningu um atburðinn rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi og hóf þegar leit að bif- reiðinni sem ekið var af vettvangi. Bifreiðin fannst í Mjódd og þá var ökumaður á bak og burt en hundur var í bílnum. Lögreglan lét flytja bifreiðina á brott með kranabifreið og fór með hundinn á hundahótel. Ekki var búið að finna ökumann- inn í gærkvöldi. Flúði af vettvangi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.