Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 13

Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 13
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 13 HÆTT var við ræðukeppni á milli Hagaskóla og Tjarn- arskóla í fyrrakvöld þar sem umræðuefnið þótti ekki við hæfi, en ákveðið hafði verið að ræða um ný- búa á Íslandi og átti Tjarn- arskóli að mæla með og Hagaskóli á móti nýbúum. Íþrótta- og tómstundaráð, sem sér um framkvæmd ræðukeppni grunnskólanna hafði áður leyft umræðu- efnið, en Gísli Árni Egg- ertsson, aðstoðarfram- kvæmdastjóri ÍTR, sem einnig er í forsvari fyrir málefni nýbúa hjá ráðinu, sagði að það hefðu verið mistök. Hann sagði að þetta væri afar viðkvæmt mál. Gísli Árni, sem tók þá ákvörðun að hætta við keppnina, sagðist m.a. hafa rætt við Þórhildi Líndal, umboðsmann barna og Guðrúnu Pétursdóttur, sér- fræðing um málefni nýbúa, um málið og að báðir aðilar hefðu verið sammála því að blása keppnina af. Þá sagð- ist hann einnig hafa heyrt haft eftir hæstaréttarlög- manni að það gæti beinlínis verið ámælisvert fyrir op- inbera stofnun að standa fyrir umræðum af þessu tagi, þ.e. að grundvöllur væri fyrir því að kæra þann aðila sem stæði fyrir henni. Ber að verja nýbúa fyr- ir ónærgætinni umræðu Gísli Árni sagði að sam- félagið hefði sett ákveðnar leikreglur um það hvernig taka ætti á móti fólki af er- lendum uppruna. „Okkur ber ákveðin skylda til þess að verja þessa einstaklinga sem eru að alast upp í okkar sam- félagi fyrir ónærgætinni umræðu,“ sagði Gísli Árni. „Í þessu tilfelli erum við al- veg sannfærð um það að við gerðum það rétta. Þrátt fyrir að málin hafi forklúð- rast svona þá átti að stoppa keppnina.“ Gísli Árni sagði að ÍTR hefði alltaf lagt áherslu á og hvatt til skoðanaskipta á meðal nemenda og þess vegna hefði keppninni verið haldið úti í öll þessi ár. Hann sagði að nemendur í grunnskóla hefðu samt fæstir nægan þroska til að fjalla um mál af þessu tagi og að umræðan gæti auð- veldlega sært þá nemendur sem væru nýbúar. „Þó svo það sé verið að fjalla um málefni innflytj- enda eða nýbúa á Alþingi þá þýðir það ekki það sama og að nota málefnið í kapp- ræðum í grunnskólum.“ Skólarnir koma með tillögur að umræðuefni Umræðuefnin í ræðu- keppni grunnskólanna eru valin þannig að hver skóli sendir tvær til þrjár tillög- ur til ÍTR og eiga þær að uppfylla ákveðnar kröfur. Gísli Árni sagði að um- ræðufnin mættu til dæmis ekki vera særandi eða fara út fyrir ákveðin velsæmis- mörk. Varðandi umræðu- efnið sem Hagaskóli og Tjarnarskóli fengu þá gerði ÍTR upphaflega enga at- hugasemd við það, eins og áður sagði, og því voru keppendur beggja skóla búnir að leggja drjúgan tíma í æfingar þegar ákveð- ið var hætta við keppnina, þar sem umræðuefnið þótti óviðeigandi. „Ég hafði ekki hugmynd um að þetta efni hefði kom- ið upp fyrr en á þriðjudag að mér var sagt frá því á fundi í miðstöðvar nýbúa að skólastjóri í borginni hefði leitað til miðstöðvarinnar um faglega ráðgjöf varð- andi það að taka svona mál- efni fyrir í kappræðum á meðal nemenda. Honum var sagt að það gæti alls ekki gengið því það væru ákveðnir sáttmálar sem þyrfti að hafa í heiðri gagn- vart innflytjendum og ákveðin siðferðismörk sem þyrfti að virða.“ Verið að reyna að finna nýtt umræðuefni Í framhaldinu var kapp- ræðunum frestað um tíma en þegar þær áttu að fara fram í fyrradag voru þær stöðvaðar. Gísli Árni sagðist þá hafa kallað skólastjórana og starfsfólk ÍTR, sem hafði séð um keppnina, til fundar til að gera grein fyrir al- vöru málsins. Hann sagði að nú væri verið að reyna að finna nýtt umræðuefni fyrir skólana og nýjan keppnistíma. Gísli Árni sagði ennfrem- ur að ef ekki myndi nást samkomulag um það yrðu skólarnir dæmdir úr leik í keppninni. Mælsku- og ræðukeppni grunnskóla Reykjavíkur og nágrennis Kappræðum með eða á móti nýbúum hafnað Reykjavík fyrir að skólinn muni rúma um 500 nemendur, í tíu bekkjardeildum miðað við að hann verði einsetinn. Skólastarfi í haust stefnt í voða Minnihlutinn mótmælti tillögu bæjarstjórans og lagði Tryggvi Harðarson, einn af bæjarfulltrúum Al- þýðuflokksins, fram eftirfar- andi frávísunartillögu: „Bæjarstjórn Hafnar- fjarðar samþykkir að vísa frá tillögu bæjarstjóra um útboð kennsluþáttar við grunnskólann í Áslandi. Í fyrsta lagi er hér um að ræða uppgjöf meirihluta Sjálfstæðis- og Framsóknar- flokks við að reka skóla bæjarins af þeim krafti og metnaði sem grunnskólalög mæla fyrir. Í öðru lagi hafn- ar bæjarstjórn alfarið að skyldunám skólabarna í BÆJARSTJÓRN Hafnar- fjarðar samþykkti í fyrra- dag tillögu Magnúsar Gunn- arssonar bæjarstjóra um að bjóða út kennsluþátt vænt- anlegs grunnskóla í Áslandi með fyrirvara um að und- anþága fáist frá mennta- málaráðuneytinu. Tillagan var samþykkt með 6 at- kvæðum meirihlutans gegn 5 atkvæðum minnihlutans, samkvæmt henni verður einnig sótt um undanþágu til útboðs skólans og rekst- urs hans sem tilraunaskóla. Fyrsta skóflustungan að nýjum grunnskóla í Áslandi var tekin í maí í síðasta ári en ráðgert er að skólinn taki til starfa í haust þegar fyrri áfangi hans verður fullbú- inn. Áætlað er að taka seinni áfanga skólans í notk- un haustið 2002. Gert er ráð Hafnarfirði sé sett á upp- boðsmarkað þar sem mark- aðsöflunum verði att saman til að bjóða niður uppeldi og kennslu grunnskólabarna í Hafnarfirði líkt og átti sér stað með ómagaframfærslu hér á landi fyrr á öldum. Í þriðja lagi telur bæjarstjórn Hafnarfjarðar að umrætt útboð brjóti í bága við grunnskólalög landsins og kalli á lagabreytingu Al- þingis ef það verður að verða að veruleika. Í fjórða lagi er öllu skólastarfi á hausti komanda í hinu nýja Áslandshverfi stefnt í voða vegna tímaskorts, hvort heldur umrætt útboð geng- ur upp eða ekki. Því sam- þykkir bæjarstjórn að fela skólafulltrúa að hefja þegar undirbúning að því að aug- lýsa stöðu skólastjóra og annarra starfsmanna skól- ans svo hægt verði að hefja sem allra fyrst, nauðsynleg- an undirbúning skólastarfs- ins í Áslandsskóla næsta haust.“ Frávísunartillagan var felld með 6 atkvæðum gegn 5. Ef undanþága fæst frá ráðuneytinu mun það verða á grundvelli 53 gr. grunn- skólalaga, en þar segir m.a.: „Menntamálaráðherra get- ur, með samþykki sveitar- stjórnar, haft forgöngu um þróunar- og tilraunastarf í grunnskólum. Einnig getur hann veitt sveitarfélögum og einkaskólum heimild til að reka tilraunaskóla eða gera tilraunir með ákveðna þætti skólastarfs með undanþágu frá ákvæðum laga og reglu- gerða. Slík undanþága getur t.d. varðað nám, starfstíma skóla, kennslutilhögun, stundafjölda o.s.frv.“ Deilur í bæjarstjórn Hafnarfjarðar um væntanlegan grunnskóla í Áslandi Samþykkt að bjóða kennsluþátt skólans út Hafnarfjörður AÐSÓKN í Sundlaug Kópa- vogs hefur rúmlega tvöfald- ast frá því hún var opnuð ár- ið 1991. Alls sóttu um 430 þúsund gestir laugina á síð- asta ári miðað við 214 þús- und fyrir 10 árum. Aðsókn almennra sund- gesta jókst um 9,5% á síð- asta ári miðað við árið 1999. Alls sóttu um 385 þúsund al- mennir gestir laugina í fyrra, sem er um 33 þúsund fleiri en árið áður. Þar að auki komu um 46 þúsund skólabörn í skipulagt skóla- sund á vegum grunnskóla í Kópavogi og Menntaskólans í Kópavogi. Samanlagt sóttu því um 430 þúsund gestir laugina í fyrra, eins og áður sagði. Aðsóknin í laugina hefur aukist sérstaklega mikið á síðustu fimm árum en í fyrra komu um 146 þúsund fleiri gestir í laugina en árið 1996. Athyglisvert er að meðal- aðsókn á hvern íbúa í Kópa- vogi hefur aukist úr 13 sund- ferðum á ári í rúmlega 18, þrátt fyrir að fjölgun íbúa í Kópavogi hafi verið mikil miðað við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Til þess að mæta aukinni aðsókn í laugina ákváðu bæjaryfirvöld í lok árs 1999 að auka þjónustutíma laug- arinnar. Nú er opið frá klukkan 6.30 til 22 á virkum dögum allt árið um kring. Um helgar er opið frá klukkan 8 til 18 frá október og fram í mars, en 8 til 19 frá apríl og út september. Morgunblaðið/Kristinn Mikil aðsókn var í Sundlaug Kópavogs á síðasta ári og fjölgaði almennum gestum um 9,5% frá árinu 1999. Aðsókn í Sundlaug Kópavogs hefur tvöfaldast á 10 árum Kópavogur NÍU manna stjórn foreldra- félags leikskólans Reykjakots í Mosfellsbæ sagði af sér á foreldrafundi í fyrrakvöld. Kjörin var fimm manna nefnd til að vinna að lögum fyrir foreldrafélagið og undirbúa fund þar sem ný stjórn verð- ur kjörin, en kosning var ekki á dagskrá á umræddum fundi. Að sögn Garðars Skarp- héðinssonar, fyrrverandi stjórnarmanns, vildi mikill meirihluti félagsmanna að stjórnin segði af sér og hún hefði tekið fundarmenn á orð- inu. Hann segir að stjórn for- eldrafélagsins hafi ekki skipt sér af rekstri leikskólans dags daglega og það hafi ekki tekið afstöðu með eða á móti leikskólastjóranum enda af- sögn stjórnarinnar honum óviðkomandi. Stjórnin hafi reynt að sýna hlutleysi í leik- skólastjóramálinu svonefnda, en meirihluti foreldra hafi verið óánægður með hana og viljað hressa upp á starfið. Forsaga málsins er sú að nýr leikskólastjóri var ráðinn sl. haust og í kjölfarið kvört- uðu nokkrir foreldrar vegna breytinga á rekstrinum, að sögn Garðars. Málin hefðu verið rædd á félagsfundi 5. desember sl. og þá hefði verið ákveðið að gefa öllum tveggja mánaða frest til að átta sig betur á stöðunni og sjá hvern- ig hlutirnir þróuðust. Því hefði í raun verið um fram- haldsfund að ræða í fyrra- kvöld, en leikskólastjóri boð- aði til fundarins. Garðar segir að fundurinn hafi verið ágæt- ur og tekist hafi verið á um ýmis málefni en niðurstaðan hafi verið góð fyrir alla. Farsæll endir því annars hefði komið til átaka „Þegar stjórn foreldra- félags, sem á að vera skemmtinefnd fyrir börnin, er orðin óstarfhæf vegna deilna er eins gott að hún segi af sér og nýtt fólk taki við. Ég held að þetta hafi verið far- sæll endir því annars hefði komið til einhverra átaka inn- an foreldrafélagsins,“ segir Garðar Skarphéðinsson. Fundur í leikskólanum Reykjakoti í Mosfellsbæ Stjórn foreldra- félagsins segir af sér Mosfellsbær

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.