Morgunblaðið - 08.02.2001, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 08.02.2001, Blaðsíða 14
AKUREYRI 14 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ HELGI Vilberg, skólastjóri Mynd- listarskólans á Akureyri, sagði að ákvörðun bæjarráðs þess efnis að skipa nefnd til að fara yfir aðkomu bæjarins að myndlistarmenntun í bæjarfélaginu og aðkomu að Mynd- listarskólanum, væri hið besta mál. Hins vegar mætti ekki gleyma því að skólanefnd skólans hafi haft forgöngu um það að aðlaga skólann breyttum aðstæðum og það ferli væri í gangi. Helgi sagði að ákveðin öfl í bænum hafi með ómerkilegum málatilbúnaði reynt að sverta ímynd skólans og gera rekstur hans tortryggilegan. Skólastjóri Myndlistarskólans var gagnrýndur mjög harðlega í fjölmiðl- um í haust og hefur Helgi talað um rógsherferð í því sambandi. Helgi er yfirmaður skólans og annast eftirlit með daglegum rekstri og vinnur sér- staklega að stefnumótun í málefnum hans ásamt skólanefnd. „Ég er óánægður með þá neikvæðu umræðu sem varð um skólann sl. haust. Fremur hefði ég kosið að menn ræddu málefnalega um stöðu skólan- um og framtíð hans. Ég hef lagt mig fram um að vinna hlutina vel en ég er ekki óskeikull frekar en aðrir. Það er eðlilegt að séu skiptar skoðanir og menn takist á um málefnin og ég skorast ekki undan því að axla þá ábyrgð sem starfinu fylgir. Ósáttur við ummæli formanns bæjarráðs Helgi gerir jafnframt athugasemd- ir við ummæli Ásgeirs Magnússonar, formanns bæjarráðs og bæjarfulltrúa Akureyrarlistans, í Morgunblaðinu á þriðjudag vegna þessa máls. Í máli Ásgeirs kom fram að töluverð um- ræða hafi átt sér stað í haust um stöðu Myndlistarskólans en á þeim tíma kom fram hörð gagnrýni á skólann í fjölmiðlum. „Bæði er ástæða til þess að fara ofan í ýmsa hluti í sambandi við það mál en ekki hvað síst það að hluti þess náms sem þarna fer fram er í formi námskeiðahalds sem við höf- um ekki verið að styrkja almennt og hluti þessa náms er á framhaldsskóla- stigi sem er ekki í verkahring sveit- arfélaga. Þá hefur verið rætt um nám á háskólastigi, sem er heldur ekki á vegum sveitarfélaga,“ sagði Ásgeir m.a. Helgi sagði að formaður bæjarráðs svari meginspurningunum sjálfur án þess að hika. „Það er að hans mati ekki á verksviði sveitarfélaganna að styrkja námskeiðahald né heldur nám á framhaldsskólastigi og allra síst nám á háskólastigi. Hvað stendur þá eftir? Er það ekki sóun á tíma og fjár- munum að setja á stofn nefnd þegar málið liggur ljóst fyrir? Eða hvað vak- ir fyrir Akureyrarlistanum með þess- um sérkennilega málatilbúnaði?“ Málin í réttum farvegi Með nýjum framhaldsskólalögum frá 1999 er, að sögn Helga, skólum eins og Myndlistarskólanum í Reykjavík og Myndlistarskólanum á Akureyri gert kleift að sækja um lög- gildingu sem framhaldsskólar og gerður árangursstjórnunarsamning- ur við þá eins og aðra framhaldsskóla. „Þessi málefni eru í réttum farvegi að mínu mati og ekki ástæða til að flækja þau frekar.“ Helgi sagði að starf skól- ans gengi vel og með eðlilegum hætti en að reksturinn væri þungur. Að- sókn að skólanum hefur aldrei verið meiri en þar stunda 50 nemendur nám í dagskóla og 170 manns sækja þangað námskeið. Þá hafa 14 kenn- arar komið að kennslu í skólanum í mislangan tíma í senn. Framlag rík- isins til skólans á þessu ári er 9,5 milljónir króna og framlag Akureyr- arbæjar er 15 milljónir króna. Þá eru tekjur skólans af nemendagjöldum 6–7 milljónir króna. Bæjaryfirvöld vita gang mála „Ef það er þannig að bærinn vilji ekki styrkja skólann, þá aðlagar mað- ur sig bara því. En það er ekki þannig að bæjaryfirvöld viti ekki hvað er hér í gangi, því þau vita námkvæmlega í hvaða farvegi þetta mál er varðandi breytingar á skólanum,“ sagði Helgi Vilberg. Í nefndinni sem ætlað er að fara yf- ir alla þætti er varða aðkomu bæj- arins að myndlistarmenntun í bæjar- félaginu og yfir alla þætti í starfsemi Myndlistarskólans og aðkomu bæjar- ins að þeim rekstri, sitja Þröstur Ás- mundsson, Jakob Björnsson og Gunnar Ragnars. Nefndinni er ætlað að skila tillögum sínum til bæjarráðs fyrir lok næsta mánaðar. Helgi Vilberg, skólastjóri Myndlistarskólans á Akureyri Ákveðin öfl í bænum reyna að sverta ímynd skólans KARLMAÐUR á fimmtugs- aldri hefur verið dæmdur í hér- aðsdómi Norðurlands eystra til greiðslu sektar í ríkissjóð að upphæð 90 þúsund krónur. Maðurinn var einnig sviptur ökuréttindum í þrjú ár auk þess sem hann var dæmdur til að greiða allan sakarkostnað. Maðurinn var ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa í byrjun júní síðasta sum- ar ekið dráttarvél undir áhrif- um áfengis í Eyjafjarðarsveit, en ökuferðin endaði utan veg- ar. Maðurinn mætti ekki þegar málið var tekið fyrir og þótti mega jafna því við játningu. Það auk niðurstöðu alkóhól- rannsóknar sem sýndi magn alkóhóls yfir þeim mörkum sem leyfileg eru þótti dómnum sanna sök mannsins nægilega. Maðurinn gekkst undir sátt, greiddi sekt og sætti ökuleyf- issviptingu fyrir nokkrum ár- um, m.a. vegna brota á umferð- arlögum. Héraðsdómur Undir áhrifum á dráttar- vélinni Grýtubakkahreppur - Fyrirhugaðer að byggja að minnsta kosti tvö einbýlishús í Grýtubakkahreppi næsta sumar, annað á Grenivík en hitt verður byggt á Ártúni. Benedikt Sveinsson rekur smíðafyrirtækið Trégrip ehf. á Ártúni og segir hann að greini- legt sé að áhugi fólks sé að aukast á að fjárfesta í eininga- húsum og jafnvel fá húsin afhent fullfrágengin. Hann segir mikið framboð á erlendum eininga- húsum á ýmsu byggingarstigi, en að hans mati er oft hægt að bjóða fólki slík hús sem smíðuð eru hér á landi á svipuðu verði eða jafn- vel ódýrari. Húsið sem nú er í smíðum á Ártúni er byggt fyrir Svein Jó- hannesson á Hóli og verður það afhent fullbúið með viðbyggðum bílskúr í ágústmánuði í sumar, en um er að ræða alls um 170 fer- metra. Húsið er byggt á Ártúni og flutt þaðan þangað sem setja á það niður til frambúðar. Áður hefur Benedikt smíðað hús sem flutt var að Laufási. Morgunblaðið/Jónas Baldursson Sveinn Sigurbjörnsson, Vilhjálmur Ingvarsson og Benedikt Sveinsson við húsið sem er í smíðum. Fyrir framan er Atli Birgir, sonur Benedikts. Tvö einbýlis- hús smíðuð í Grýtubakka- hreppi KEPPNI á Akureyrarmótinu í skák er mjög jöfn og tvísýn en að loknum fjórum umferð- um eru efstir og jafnir þeir Þór Valtýsson og Gylfi Þór- hallsson með 3,5 vinninga. Í B-flokki er einnig hart barist en þeir Eymundur Ey- mundsson, Sveinbjörn Sig- urðsson og Haukur Jónsson eru efstir og jafnir með 3 vinninga. Fimmta umferð verður tefld í kvöld, fimmtu- dagskvöld, kl. 19.30 en alls eru tefldar sjö umferðir í mótinu. Keppni í yngri flokkum á Akureyrarmótinu lýkur laug- ardaginn 10. febrúar, á af- mælisdegi Skákfélags Akur- eyrar. Félagið verður með tíu mínútna mót á morgun, föstu- dag, kl. 20. Tefldar verða 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. Jöfn keppni á Skákþingi Þór og Gylfi með forystu ÁSTRÍÐUR Grímsdóttir hefur ver- ið skipuð í embætti sýslumanns í Ólafsfirði og tekur hún við starfinu 1. júlí næstkomandi. Hún lauk lög- fræðiprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1993. Skömmu síðar stofnaði hún lögfræðiþjónustu í Mosfellsbæ. Árið 1994 fékk Ástríð- ur málflutningsréttindi fyrir hér- aðsdómi og stofnaði þá lögfræði- stofuna Lögbæ í Mosfellsbæ. „Það leggst mjög vel í mig að flytja til Ólafsfjarðar,“ sagði Ástríður, en hún kvaðst engin tengsl hafa við staðinn. „Ég á eng- ar ættir að rekja þangað norður eða neitt slíkt. Ég hef tvisvar ekið í gegnum bæinn en ekkert stoppað. Það er næst á dagskránni hjá mér að fara í heimsókn til Ólafsfjarðar og skoða staðinn.“ Ástríður sagðist hafa verið ákveðin í að breyta til, en hún hef- ur rekið eigin lögmannsstofu um nokkurra ára skeið. „Ég fór að skoða málið með opnum huga og var ekki búin að gera upp við mig hvort ég myndi áfram sinna lög- mannsstörfum eða fara út í eitt- hvað allt annað. Þegar ég sá að starf sýslumanns í Ólafsfirði var auglýst laust til umsóknar fór ég að velta því fyrir mér hvort þetta væri eitthvað sem ég hefði áhuga á. Eftir því sem ég skoðaði málið betur varð ég sannfærðari um að svo væri,“ sagði Ástríður. Fjöldi nýrra verkefna Hún sagði að um væri að ræða skemmtilegt starf, embættið væri lítið og sinna þyrfti öllum mála- flokkum sem upp kæmu, en ekki væru tök á að deildaskipta svo litlum embættum. „Það gefur starfinu verulega mikið gildi og ég hlakka til að fara norður og takast á við þetta nýja starf,“ sagði Ástríður. „Ég hef sem lögfræð- ingur reynslu af flestum þeim mál- um sem snúa að sýslumannsemb- ættum, en hef þá vitanlega verið hinum megin við borðið. Ég er viss um að ég á eftir að fást við fjölda nýrra verkefna í þessu starfi.“ Eiginmaður hennar er Atli Ing- varsson stoðtækjafræðingur. Hann starfar hjá Stoðtækni – Gísla Ferd- inandssyni ehf. og mun verða að störfum bæði í Ólafsfirði, þar sem fyrirtækið hefur sett upp skóverk- smiðju, og einnig í Reykjavík. Í Ólafsfirði verða smíðaðir bækl- unarskór, en um er að ræða þróun- arverkefni sem fyrirtækið fékk styrk að upphæð 39 milljónir króna til að vinna að. Skóverksmiðjan verður í húsnæði sem áður hýsti fiskvinnslu Sæunnar Axels hf. Þau Ástríður og Atli eiga fjögur börn, þrjú þeirra eru uppkomin en yngsti sonurinn er að ljúka námi í 10. bekk grunnskóla í vor og flytur hann með foreldrum sínum norður í Ólafsfjörð í sumar. Ástríður Grímsdóttir skipuð sýslumaður í Ólafsfirði Ætlaði að breyta til Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson MARGIR af ástsælustu söngv- urum Norðurlands koma fram á stórtónleikum í Glerárkirkju á Akureyri sunnudaginn 11. febrúar kl. 17. Álfta- gerðisbræð- ur, Eiríkur Stefánsson, Erna Gunn- arsdóttir, Óskar Pét- ursson, Pálmi Gunnarsson, Örn Birgis- son og Þórhildur Örvarsdóttir stíga þá á svið og bjóða upp á einsöng, dúetta og að sjálf- sögðu kvartett. Pálmi Gunnarsson og Óskar Pétursson munu syngja saman dúett, sem þeir hafa aldrei áður gert, þannig að ljóst er að mjög áhugaverða skemmtun er að ræða. Undirleikarar á tónleik- unum verða Arnór Vilbergsson, Einn&sjötíu, Helena Bjarna- dóttir, Kristján Edelstein og Stefán Gíslason. Kynnir verður leikarinn og útvarpsmaðurinn góðkunni Gestur Einar Jónas- son. Nýstárleg og skemmtileg fjáröflunarleið Það eru drengir í 6. aldurs- flokki Þórs í knattspyrnu sem standa að tónleikunum en með þessu móti hyggjast drengirnir og aðstandendur þeirra safna fé vegna keppnisferðalaga á komandi sumri. Sannarlega ný- stárleg og skemmtileg tilraun. Mikill áhugi er fyrir tónleik- unum og hefur fjöldi miða þeg- ar verið seldur. Forsala heldur áfram út vikuna í Pennanum/ Bókval í Hafnarstræti og Gler- ártorgi en miðar verða einnig seldir í kirkjunni frá kl. 15 á tónleikadaginn. Stórtónleikar í Glerárkirkju Margir ást- sælustu söngvarar Norðurlands koma fram Óskar Pétursson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.