Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 24

Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 24
KOSNINGARNAR Í ÍSRAEL: SIGUR SHARONS 24 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÍSRAELSKIR kjósendur sýndu í forsætisráðherrakosningunum á þriðjudag að þeir hefðu misst trúna á að Ehud Barak, fráfarandi forsætis- ráðherra, gæti tryggt frið við Palest- ínumenn og öryggi landsins. En þótt ísraelska þjóðin hafi fylkt sér að baki Ariel Sharon, leiðtoga Likud-flokks- ins, óttast margir að sigur hans þýði skipbrot friðarferlisins. Atkvæði féllu líkt og spáð hafði ver- ið í skoðanakönnunum, en samkvæmt bráðabirgðaúrslitum hlaut Sharon 59,5% atkvæða og Barak 40,5%. End- anleg úrslit eiga að liggja fyrir á þriðjudag í næstu viku. Barak hringdi í Sharon og játaði sig sigraðan strax og útgönguspár höfðu verið birtar á þriðjudagskvöld. Síðar um kvöldið sagði hann af sér sem leið- togi Verkamannaflokksins og kvaðst myndu láta af þingmennsku og hætta afskiptum af stjórnmálum, að minnsta kosti um sinn. Í ávarpi til stuðningsmanna sinna varði Barak stefnu sína í friðarmálum og kvaðst þess fullviss að hann hefði gert rétt í því að bjóða Palestínumönnum um- talsvert landsvæði í skiptum fyrir frið. „Við höfum tapað orrustunni en við munum vinna stríðið. Þótt við göngumst undir vilja kjósenda hvik- um við ekki frá sannfæringunni um að við séum á réttri braut,“ sagði Barak í ávarpinu, en hann tók við embætti forsætisráðherra í júní 1999. Sharon hét því hins vegar í sigur- ræðu sinni að koma á „öryggi og ein- ingu meðal þjóðarinnar“. Hann tók skýrt fram að hann myndi halda frið- arumleitunum við Palestínumenn áfram og sagði að til þess að ná frið- arsamningum þyrftu báðir aðilar að fallast á sársaukafullar tilslakanir. Hvatti hann Palestínumenn til að láta af ofbeldisverkum og ganga að samn- ingaborðinu. Sharon freistar þess að mynda þjóðstjórn Ariel Sharon verður sjötti forsætis- ráðherrann á einum áratug og sá ell- efti síðan Ísraelsríki var stofnað árið 1948. Fyrsta verkefni hans er að mynda nýja ríkisstjórn og það verður væntanlega ekki heiglum hent. Ekki var kosið til þingsins að þessu sinni og Sharon þarf því að kljást við sömu þingskipan og reyndist forvera hans þung í skauti. Ótalmargir flokkar eiga sæti á þinginu og þar eiga jafnan miklar sviptingar sér stað. Það segir sína sögu að Benjamin Netanyahu, fyrrverandi forsætisráðherra og leið- togi Likud-flokksins, kvaðst í des- ember hafa fallið frá því að keppa við Sharon um útnefningu flokksins, þar sem hann teldi ómögulegt að mynda starfhæfa stjórn við núverandi skipan þingsins. Í sigurræðu sinni boðaði Sharon myndun þjóðstjórnar, eins og hann hafði heitið í kosningabaráttunni. Hann bauð Verkamannaflokknum sérstaklega til samstarfs, en þátttaka hans er afar mikilvæg, því ella þyrfti Likud-flokkurinn að mynda stjórn með mörgum litlum flokkum strang- trúaðra og hægrimanna, sem óvíst er að gætu myndað tryggan meirihluta. The Jerusalem Post hafði í gær eftir nánum vini Sharons að Barak hefði lýst sig fylgjandi myndun þjóðstjórn- ar í símtalinu á þriðjudagskvöld. Skoðanir munu vera skiptar innan Verkamannaflokksins um stjórnar- þátttöku, en það ræðst væntanlega að miklu leyti af því hver tekur við leið- togahlutverkinu af Barak. Sharon skipaði í gær sérstaka nefnd til að vinna að stjórnarmynd- uninni. Samkvæmt ísraelskum lögum verður sigurvegari kosninganna að mynda stjórn innan 45 daga frá því endanleg úrslit eru tilkynnt, eða fyrir 30. mars, ella þarf að boða til nýrra forsætisráðherrakosninga. Umdeildur harðlínumaður Ariel Sharon hefur alla tíð skipað sér í sveit með harðlínumönnum og er æði umdeildur. Þegar hann hrökklað- ist úr framlínu ísraelskra stjórnmála árið 1983 hefðu eflaust fáir búist við að hann ætti eftir að verða kjörinn forsætisráðherra nærri tveimur ára- tugum síðar, þá kominn á áttræðis- aldur. Sharon er fæddur árið 1928 og sautján ára gamall gekk hann til liðs við hreyfingu sem barðist fyrir stofn- un Ísraelsríkis. Hann komst síðan til metorða innan ísraelska hersins en tók sæti á þingi árið 1973. Hann stjórnaði sem varnarmálaráðherra innrás Ísraelshers í Líbanon árið 1982. Ári síðar neyddist hann til að segja af sér ráðherraembætti eftir að rannsóknarnefnd Ísraelsstjórnar átaldi hann fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir fjöldamorð sem kristnir fal- angistar frömdu í flóttamannabúðum Palestínumanna í Líbanon. Hann uppskar þá hatur araba, þótt ábyrgð hans á ódæðinu sé umdeilanleg. Shar- on tók þó aftur sæti í ríkisstjórn og gegndi meðal annars embættum landbúnaðarráðherra, húsnæðis- málaráðherra og utanríkisráðherra. Hann var einn helsti talsmaður land- náms gyðinga á herteknu svæðunum, enda þvertekur hann nú fyrir að land- nemabyggðirnar verði lagðar niður. Sharon tók við leiðtogaembættinu í Likud-flokknum eftir að Benjamin Netanyahu beið ósigur fyrir Barak í kosningunum árið 1999. Óvissa um framhald friðarumleitana Viðbrögð Palestínumanna við kjöri Sharons hafa verið blendin. Palest- ínska sjálfstjórnin lýsti því yfir að hún myndi starfa með hinum nýkjörna forsætisráðherra. „Við virðum val ísraelsku þjóðarinnar og vonum að friðarferlið haldi áfram,“ sagði Yasser Arafat, leiðtogi sjálfstjórnarinnar, í gær. Fatah-samtök Arafats hvöttu sjálfstjórnina hins vegar til að mynda hvorki tengsl við Sharon né ganga til viðræðna við hann og boðuðu frekari mótmæli á sjálfstjórnarsvæðunum. Þá sagði palestínski upplýsinga- málaráðherrann, Yasser Abd-Rabbo, að kjör Sharons væri „vanráðnasti at- burðurinn í sögu Ísraels“. Í yfirlýsingu frá Hamas-hryðju- verkasamtökunum segir að sigur Sharons gefi þeim tilefni til frekari andstöðu og fleiri hryðjuverkasamtök Palestínumanna tóku í sama streng. Þrátt fyrir að Ariel Sharon hafi í sigurræðunni reynt að sannfæra heimsbyggðina um einlægan vilja sinn til að semja frið við Palestínu- menn eru fréttaskýrendur nokkuð uggandi um framhald friðarferlisins. Palestínskir embættismenn lýstu því yfir í gær að ekki yrði litið við neinum tillögum af hálfu Ísraela sem gengju skemur en þær sem Barak lagði síðast fram, en þær fólu meðal annars í sér að Palestínumenn fengju yfirráð yfir nær öllum Vesturbakkan- um og Gaza-svæðinu. Sharon hefur hins vegar hafnað því að eftirláta Pal- estínumönnum stjórn yfir meira land- svæði en þeir hafa nú þegar. Palest- ínumenn gera einnig kröfu um yfirráð yfir hinum arabíska hluta Jerúsalem, sem Barak hafði lýst sig reiðubúinn að ganga að, en Sharon útilokar að borginni verði skipt. Auk þess sem Sharon er almennt mun harðari í afstöðunni til Palest- ínumanna og krafna þeirra en Barak vantreysta Palestínumenn hinum ný- kjörna forsætisráðherra vegna fortíð- ar hans. Það mátti til dæmis heyra á eftirfarandi yfirlýsingu palestínska útvarpsins í gær: „Saga Sharons er lituð blóði og fjöldamorðum.“ Ekki stoðar að uppreisn Palestínumanna braust út eftir umdeilda heimsókn hans á Musterishæðina í Jerúsalem í lok september á síðasta ári. Á hitt ber að líta að stefna Baraks í friðarmálum naut augljóslega ekki stuðnings meðal ísraelsku þjóðarinn- ar og erfitt er að fullyrða að friðar- samningar hefðu örugglega náðst á næstunni ef hann hefði setið áfram í embætti. Samkvæmt nýrri skoðana- könnun á vegum háskólans í Tel Aviv virðist það vera ríkjandi skoðun með- al þjóðarinnar að tilslökunarstefna Baraks hafi verið Palestínumönnum hvati til að þrýsta sífellt á um meiri eftirgjöf af hálfu Ísraela og að það hafi komið í veg fyrir að samkomulag næðist. Þetta gæti átt við rök að styðjast. Þá er ljóst að Sharon stendur og fellur með friðar- og öryggismálunum og líklegt verður að teljast að hann leggi sig fram um að ná árangri. Ísraelskir kjósendur höfnuðu stefnu Ehuds Baraks í forsætisráðherrakosningunum á þriðjudag Sharons bíða erfið verkefni Ísraelskir kjósendur höfnuðu stefnu Ehuds Baraks í friðarmálum og tryggðu Ariel Sharon yfirburðasigur í forsætisráð- herrakosningunum á þriðjudag. En því fer þó fjarri að Sharon eigi náðuga daga fyrir höndum, eins og fram kemur í grein Aðalheiðar Ingu Þorsteinsdóttur. Ekki er hlaupið að stjórnarmyndun á hinu sundurleita þingi Ísraels, auk þess sem for- sætisráðherrans bíður það erfiða verkefni að kveða niður átökin á sjálfstjórnar- svæðum Palestínumanna. Jerúsalem. AFP, AP, Reuters, The Daily Telegraph. Reuters Palestínskur flóttamaður les fréttir í dagblaði af kjöri Ariels Sharons í flóttamannabúðum í Jórdaníu í gær. AP Ariel Sharon flytur sigurræðu sína aðfararnótt miðvikudags.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.