Morgunblaðið - 08.02.2001, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 08.02.2001, Qupperneq 27
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 27 HERMENN Talibanastjórnarinn- ar í Afganistan myrtu að minnsta kosti 300 manns er þeir náðu aftur á sitt vald afskekktum bæ í síðasta mánuði. Var um að ræða shíta- múslima en þeir eru andvígir Tali- bönum, sem aðhyllast sunni-grein trúarinnar. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, skýrði frá því 19. janúar síðastliðinn, að „meira en 100 manns“ kynnu að hafa verið drepnir og þar á meðal Afganar, sem störfuðu á vegum hjálpar- stofnana. Gerðist það er Talibanar náðu bænum Yakawolang í Haz- arajat-héraði úr höndum stjórnar- andstæðinga. Fólk, sem komst lífs af, sagði fulltrúum Sameinuðu þjóðanna, að pakistanskir og arabískir öfga- menn á snærum hryðjuverka- mannsins Osama bin Ladens hefðu auk Talibananna tekið þátt í fjölda- morðunum, sem einnig hefðu verið framin í mörgum þorpum nálægt Yakawolang. Mohammed Omar, leiðtogi Talibana, hefur bannað starfsmönnum hjálparstofnana og blaðamönnum að fara til héraðsins. Karlmenn skotnir í höfuðið „Þegar Talibanarnir náðu bæn- um stilltu þeir upp öllum karl- mönnum á aldrinum sautján ára til sjötugs og skutu þá í höfuðið, þar á meðal nokkurn hóp öldunga, sem komnir voru til að fagna þeim,“ sagði einn fulltrúa Sameinuðu þjóðanna. Stjórnarandstæðingar í Afgan- istan hafa aftur náð Yakawolang á sitt vald en Talibanar eru að und- irbúa mikla sókn gegn þeim. Hefur Amnesty International fordæmt fjöldamorðin mjög harðlega. Tals- menn stjórnarandstöðunnar segja, að einnig hafi fundist fjöldagrafir í Takhar-héraði í norðausturhluta Afganistans, en hermenn Talibana hörfuðu þaðan í síðasta mánuði. AP Afgönsk börn leika sér í flóttamannabúðum nálægt landamærum Af- ganistans og Pakistans. Sameinuðu þjóðirnar hafa óskað eftir fram- lögum til að hægt verði að koma hundruðum þúsunda afganskra flótta- manna til hjálpar. Hundruð flóttamanna hafa dáið af völdum kulda og hungurs í flóttamannabúðum í Afganistan síðustu mánuði. Talibanar sakað- ir um fjöldamorð Islamabad. Daily Telegraph. HÆTTA er nú talin á að þjóð- ardrykkur Finna, Kosken- korva-vodka, komist í hendur útlendinga og hefur það orðið til þess að hópur málsmetandi manna hefur komið drykknum til varnar. Ástæðan er fyrir- huguð einkavæðing Altia, sem á Primalco er framleiðir vodk- að. Altia var áður hluti finnsku ríkiseinkasölunnar á áfengi, sem hefur nú verið skipt í tvennt. Fyrsta skrefið í átt að al- þjóðavæðingu finnska vodkans var stigið á síðasta ári þegar annar þjóðardrykkur, Finland- ia vodka, komst í hendur bandaríska fyrirtækisins Brown-Forman sem er í sam- vinnu við Altia. Þegar í ljós kom að Kosken- korvan kynni ekki aðeins að fara sömu leið heldur einnig að framleiðslan yrði flutt úr landi, brugðust kornbændur og verkamenn ókvæða við, enda sáu yfir 3.000 manns fram á að missa vinnuna. Mótmæli þeirra hafa náð að hjarta margra Finna sem ruku upp til varnar Koskenkorvunni. Hafa tónlist- armenn og aðrir listamenn stofnað samtökin Pro-Kosken- korva og hafið undirskrifta- söfnun til að halda vodkanu heima. Ekki er hins vegar ljóst hvaða áhrif þetta hefur haft á neyslu drykkjarins. Til bjargar vodkanu Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ÞJÓÐVERJI, sem hafði fengið 15 ára bandaríska stúlku er hann komst í kynni við á Netinu til að hitta sig í Grikklandi, var hnepptur í gæsluvarðhald í grísku borginni Þessalóniku í vikunni. Stúlkan, sem hefur ekki verið nafngreind, strauk að heiman í ágúst og ferðaðist til Grikklands á fölsku vegabréfi til fundar við Konstantin Bähring, sem er 35 ára gamall. Foreldrar stúlkunnar höfðu leitað hennar síðan, en hún sendi móður sinni tölvupóst eftir að hún hljópst á brott. Bähring sagði eftir handtökuna að hann væri ástfanginn af stúlk- unni og vonaðist til að giftast henni. „Ég elska hana enn, ég geymi hana í hjarta mínu. Þegar hún verður 18 ára getum við geng- ið í hjónaband, ef hún finnur mig.“ Rannsóknardómari í Þessalón- iku hefur gefið út ákæru á hendur Þjóðverjanum fyrir að hafa numið ungling undir lögaldri á brott, með það fyrir augum að fremja ósiðleg- ar gjörðir, en viðurlög við því broti eru allt að tíu ára fangelsi. Bähring er einnig ákærður fyrir að hafa dregið ungling á tálar og framið óviðurkvæmilegt athæfi og gæti fyrir það hlotið fimm ára dóm. Stjórnendur spjallþátta vilja fá stúlkuna í viðtal Stúlkan er farin aftur til Banda- ríkjanna í fylgd móður sinnar, en fjölskyldan býr í Tampa í Flórída. Lögfræðingur hennar, Robert Valentine, segir að stúlkan muni fá aðstoð við að skilja að hún hafi ver- ið fórnarlamb misnotkunar. Að hans sögn hafa margir stjórnend- ur spjallþátta í sjónvarpi haft samband og óskað eftir að fá stúlk- una í viðtal, en Valentine biður fjöl- miðla að gefa henni grið, svo hún geti náð áttum. „Hún lítur ekki á sjálfa sig sem fórnarlamb, og ef hún verður fræg mun það enn frekar styrkja þá trú að hún sé það ekki,“ sagði Valentine í samtali við AP-fréttastofuna. Netverji hnepptur í gæsluvarðhald Tældi 15 ára stúlku til Grikklands Thessaloniki. AP. RANNSÓKNARMENN á vegum al- ríkisstjórnarinnar bandarísku eru nú að kanna hvort öldungadeildar- þingmaðurinn Robert G. Torricelli og fyrrverandi aðstoðarmenn hans hafi brotið lög um fjármögnun kosningabaráttu árið 1996, að sögn The New York Times. Torricelli er demókrati og þing- maður New Jersey-ríkis, hann hef- ur haft afskipti af deilunum um skipaflutninga fyrir varnarliðið í Keflavík. Upphaflega snerist rann- sókn dómsmálaráðuneytisins vestra um meint ólögleg framlög í sjóði Torricellis en nú hefur um- fangið aukist og er hugað að per- sónulegum fjármálum þingmanns- ins. Eitt af því sem hann er grunaður um er að hafa reynt að hamla gegn rannsókninni með því að fá David Chang, mann er gaf mikið fé í kosningasjóðinn, til að vinna ekki með yfirvöldum. Sjálfur vísar Torricelli öllum ásökunum á bug og segir rannsóknina skelfi- lega og hún sýni að embættismenn fari offari. „Þetta er gróft dæmi um tilraun til að finna eitthvað, hvað sem er, sem hægt er að saka einhvern áhrifamann um.“ Mikilvægasta vitnið er Chang sem er kaupsýslumaður í New Jersey. Hann segist hafa veitt af höfðingskap fé í sjóði Torricellis og gefið honum gjafir í staðinn fyrir loforð þingmannsins um að fá aðstoð við að innheimta um 71 milljón dollara, nær sex milljarða króna, sem Norður-Kóreumenn skulduðu Chang í vangoldin gjöld vegna kornflutninga með skipum snemma á tíunda áratugnum. Tals- menn Torricellis draga í efa heið- arleika Changs og segja hann hafa orðið uppvísan að því að nota föls- uð gögn og skrökva í tíma og ótíma, m.a. um tengsl við æðstu ráðamenn landsins. Rannsókn bandarískra stjórnvalda Fjármál Torricellis undir smásjá
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.