Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 29
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 29
BORGARSTJÓRN Okinawa-borgar
í Japan krafðist þess í gær að yfir-
manni bandarísku hersveitanna á
Okinawa yrði vikið frá fyrir að lýsa
embættismönnum eyjunnar sem
„brjálæðingum“ og „púkum“ í tölvu-
pósti.
Borgarstjórnin samþykkti ein-
róma ályktun þar sem bandarísk
stjórnvöld eru hvött til að víkja Earl
Hailston undirhershöfðingja frá sem
yfirmanni hersveitanna. Enn fremur
var óskað eftir því að bandarísku
hermönnunum á eyjunni yrði fækk-
að.
Þetta er í fyrsta sinn sem borg-
arstjórn í Japan hvetur til þess að
hátt settum bandarískum herfor-
ingja sé vikið frá. Embættismenn
Okinawa-borgar hyggjast senda
ályktunina til George W. Bush
Bandaríkjaforseta, Thomas Foley,
sendiherra Bandaríkjanna í Tókýó,
og Pauls V. Hesters, yfirmanns
bandaríska heraflans í Japan.
Baðst afsökunar
á ummælunum
Hailston sendi þrettán bandarísk-
um herforingjum tölvupóst 23. janú-
ar þar sem hann hvatti þá til að
stemma stigu við glæpum hermanna
á Okinawa-eyju. Hann kvartaði einn-
ig yfir því að héraðsstjóri Okinawa
og fleiri æðstu embættismenn eyj-
unnar skyldu ekki hafa varið Banda-
ríkjaher þegar þing eyjunnar hvatti
til þess nýlega að bandarísku her-
mönnunum á eyjunni yrði fækkað.
„Ég tel að þeir séu allir brjálæðingar
og púkar,“ bætti undirhershöfðing-
inn við, að sögn stærsta dagblaðs Ok-
inawa, Ryukyu Shimpo, sem kvaðst
hafa fengið afrit af tölvupóstinum.
Talsmenn Bandaríkjahers hafa
neitað að staðfesta að undirhershöfð-
inginn hafi látið þessi orð falla og
ekki var vitað hvernig tölvupóstur-
inn barst blaðinu.
Hailston fór þó á fund héraðs-
stjóra Okinawa, Keiichi Inamine, og
gaf út yfirlýsingu þar sem hann
baðst afsökunar á ummælunum.
Craig Quigley, aðaltalsmaður Don-
alds Rumsfelds, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði að Hail-
ston yrði ekki refsað.
Þing Okinawa hvatti til þess að
bandarísku hermönnunum á eyjunni
yrði fækkað og gerðar yrðu ráðstaf-
anir til að stemma stigu við glæpum
eftir að bandarískur hermaður var
handtekinn fyrir að lyfta pilsi jap-
anskrar skólastúlku og taka myndir
af henni.
Um 47.000 bandarískir hermenn
eru í Japan og tveir þriðju þeirra eru
á Okinawa. Íbúar eyjunnar hafa
lengi kvartað yfir því að þetta hlut-
fall sé of hátt og andstaðan við veru
bandaríska hersins á eyjunni magn-
aðist 1995 þegar þrír hermenn
nauðguðu skólastúlku. Margir íbú-
anna eru þó á báðum áttum í málinu
því herstöðvarnar eru mikilvægar
fyrir efnahag eyjunnar.
Yfirmaður Bandaríkjahers á Okinawa í vanda vegna tölvupósts
Lýsti leiðtogum Okinawa
sem „brjálæðingum“
AP
Earl Hailston, yfirmaður bandarískra hersveita á Okinawa (fyrir
miðju), á fundi með Keiichi Inamine, héraðsstjóra Okinawa.
Tókýó. The Daily Telegraph, AP.
LÍBÝSKI leyniþjónustumað-
urinn, sem dæmdur var sekur
um aðild að hryðjuverkinu yfir
Lockerbie 1988, áfrýjaði dómn-
um í gær. Hann er nú í gæslu-
varðhaldi í Camp Zeist, gamalli
herstöð í Hollandi, en hún var
færð undir skoska lögsögu
meðan á réttarhöldunum stóð.
Vitað var, að Abdel Basset
Ali al-Megrahi myndi áfrýja
dómnum en skosku dómararnir
þrír, sem dæmdu í málinu,
dæmdu hann í lífstíðarfangelsi.
Félagi hans, Al-Amin Khalifa
Fhimah, var hins vegar sýkn-
aður af aðild að sprengingunni í
Pan Am-þotunni en hryðju-
verkið kostaði 270 manns lífið.
Dómnum
áfrýjað
Edinborg. AFP.
Lockerbie-málið
Lyklakippur
Litir: Gyllt, silfrað
aðeins 350 kr.
NETVERSLUN Á mbl.is