Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 30
ÞRÍR ljósmyndarar
fengu viðurkenningu
fyrir athyglisverðar
myndir á sýningu
Ljósmyndarafélags
Íslands sem stendur
yfir í Gerðarsafni –
Listasafni Kópavogs
þessa dagana.
Gréta S. Guðjóns-
dóttir hlaut fyrstu
verðlaun, önnur
verðlaun komu í hlut
Ragnars Th. Sigurðs-
sonar og Kristján
Pétur Guðnason átti
myndina sem hafnaði
í þriðja sæti.
32 ljósmyndarar
32 ljósmyndarar
eiga myndir á sýn-
ingunni sem haldin
er í samvinnu við Blaðaljósmynd-
arafélag Íslands. Henni lýkur á
sunnudaginn kemur.
Í dómnefnd sátu að þessu sinni
Sverrir Björnsson framkvæmda-
stjóri hönnunarsviðs hjá Hvíta
húsinu, Gotti Bernhöft hönnuður
og Sigríður Bragadóttir hönnuður.
Athyglisverðustu
ljósmyndirnar
Fyrstu verðlaun: Gréta S. Guðjónsdóttir.
Þriðju verðlaun: Kristján Pétur Guðnason.
Önnur verðlaun: Ragnar Th. Sigurðsson.
LISTIR
30 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Tæknilegar uppl‡singar
105 hestöfl, 1,6i, 16 ventla
Bensíney›sla skv. Evrópusta›li:
Beinskiptur/Sjálfskiptur
Utanbæjar: 7,6l / 7,7l
Sjálfvirkt fjórhjóladrif, Veghæ›: 19,0cm
STUNDUM er eins og Hlynur
Helgason geri sig fullkomlega
ánægðan með listina sem vettvang
fyrir einkarannsóknir sínar; svo mjög
að nærri liggur við að sýningar hans
séu aukaatriði; meira gerðar til að
gleðja okkur samferðamenn hans en
til að svala brýnni tjáningarhvöt.
Þetta má ekki skilja sem svo að Hlyn-
ur sé ómerkilegur dútlari sem skorti
metnað. Það er miklu frekar að hann
sé svo niðursokkinn í pælingar sínar
að hann megi varla vera að því að líta
upp til að slá um sig með sýningu.
Sumir listamenn þéttast og taka á
sig mynd kringum sýningar, aðrir eru
vinnustofusæknir. Þetta er spurning
um það hvar og hvernig hinn skap-
andi maður kemst í fókus og skýrist
gagnvart sjálfum sér og öðrum. Hlyn-
ur leyfir sér að halda úti merkilega
dreifðu verksviði enda er engu líkara
en hann láti sig varða allar hliðar
myndlistarinnar hversu ólíkar og
mótsagnakenndar sem þær eru.
Með sýningu sinni í Ásmundarsal,
gryfjunni og austurstofunni – svokall-
aðri arinstofu – reynir hann til dæmis
að skerpa skilning okkar á tvíkynja
eðli listarinnar, það er hinu kartes-
íska – samkvæmt franska heimspek-
ingnum Descartes – lögmáli hennar
sem lýtur að ytri, áþreifanlegum
veruleik heimsins eins og hann er
numinn af sjón okkar og höndum og
innri vitund okkar eins og heilabúið
meðtekur þennan sama heim sem til-
veru.
Þannig eru akrýlmálverkin tuttugu
og þrjú – aðgreind með raðnúmerum
og ártali – dæmi um áhuga Hlyns á
aðferðarfræði myndlistarinnar. Að
mála er í eðli sínu það að draga pens-
ilfylltan lit yfir tilgreindan flöt. Í mál-
verkunum undirstrikar hann athöfn-
ina í öllum sínum einfaldleik og
umbúðaleysi.
Með svipaðri könnun á möguleik-
um samskiptalegrar hljóðlistar býr
Hlynur sér vettvang tengdan safninu.
Á lóð Listasafns ASÍ stendur stöpull
sem Ásmundur nýtti forðum daga
fyrir höggmyndir sínar. Nú er hann
auður, íbúum þeim sem sjá stöpulinn
daglega til furðu og íhugunar. Hlynur
virkjar þessa íbúa með samræðum
um mögulega nýtingu á stöplinum. Á
niðurstöðurnar má hlusta í röð af
tækjum með heyrnarskjólum, en ofan
við hvert þeirra er ljósmynd af stöpl-
inum góða eins og viðkomandi mann-
eskja sér hann út um gluggann sinn.
Í arinstofunni við hliðina á gryfj-
unni eru svo tvær kvikmyndir, sín í
hvoru sjónvarpstækinu. Önnur bygg-
ir á ferðalagi vestur endilanga Miklu-
braut, frá Ártúnsholti að Granda. Hin
kvikmyndin er frá eldhúsi á Öndólfs-
stöðum í Reykjadal. Þær augljósu
andstæður sem birtast í kvikmynd-
unum hljóta að vekja okkur til um-
hugsunar um hver við erum, hvaðan
við komum og hvert við ætlum, svo
vitnað sé í aldagamla spekúlasjón
franska málarans Paul Gauguin um
stöðu mannsins í tilverunni.
Af sýningu Hlyns má ráða tvennt.
Listamenn þurfa ekki að vera upp-
teknir af einu atriði, ekki einu sinni á
einni og sömu sýningunni. Þeir geta
haft mörg og ólík járn í eldinum án
þess að óttast of mikla sundurgerð.
Reyndar hefur Hlynur Helgason
ávallt teflt á tæpasta vaði í þeim efn-
um og vonandi lætur hann seint eða
aldrei af þeim ósóma.
Hitt virðist vera ætlun Hlyns að
sanna ótvírætt samskipta- og sam-
ræðugildi og margbreytileik sam-
tímalistarinnar um leið og hann bend-
ir á augljós tengsl hennar við list fyrri
tíðar og allra tíma. Dæmið um það
hvernig hann fetar í fótspor Gauguin
ætti að sanna það hversu ólíkur sem
miðillinn kann að vera. Það er með
öðrum orðum sterkur uppfræðslu-
keimur af sýningu Hlyns án þess að
það saki eða skaði. Hitt er svo annað
mál hvort honum tekst að koma þess-
um eigindum listar sinnar klakklaust
yfir til áhorfenda.
Næstum fyrir
sjálfan sig
MYNDLIST
L i s t a s a f n A S Í ,
F r e y j u g ö t u 4 1
Til 18. febrúar. Opið þriðjudaga til
sunnudaga frá kl. 14–18.
BLÖNDUÐ TÆKNI –
HLYNUR HELGASON
Halldór Björn Runólfsson
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfsson
Nokkur raðnúmeraðra málverka Hlyns Helgasonar í Ásmundarsal.
Nokkur af tækjunum þar sem hlýða má á ólík sjónarmið íbúa Freyju-
götu og Mímisvegar um hvað gera skuli við stöpulinn á lóð safnsins.