Morgunblaðið - 08.02.2001, Side 32
LISTIR
32 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
FINNUR Bjarnason tenórsöngv-
ari hlaut í vikunni verðlaun úr
Joaninha-sjóðnum, sem styrkir
unga og efnilega
söngvara sem eru að
ljúka námi eða hafa
nýlokið því. Átta
söngvarar voru til-
nefndir til að taka
þátt í forkeppni, sem
haldin var sl. sunnu-
dag. Tónlistarháskól-
arnir í Bretlandi til-
nefna einn söngvara
hver og einnig
Monteverdi-kórinn
og Glyndebourne-
óperan, sem sendi
Finn sem sinn full-
trúa.
Finnur kveðst að
vonum ánægður með
verðlaunin, sem eru
að upphæð 5.000 pund eða sem
svarar um 625.000 íslenskum
krónum. Auk þess sem pening-
arnir koma sér vel segir hann að
það sé alltaf gott fyrir sjálfs-
traustið að fá viðurkenningu.
Verðugastur
verðlaunanna
„Sjóðurinn var stofnaður af
auðugri hefðarkonu sem mun
hafa rætt það við sópransöng-
konuna Kiri Te Kanawa hvernig
hún gæti best hjálpað ungum
söngvurum. Hún svaraði því til
að þeim kæmi best fjárstuðning-
ur. Þá stofnaði frúin þennan
sjóð, sem er kenndur við hana og
heitir Joaninha Trust Award,“
segir Finnur.
Keppnin fór þannig fram að
hver söngvari flutti um tuttugu
mínútna efnisskrá fyrir dóm-
nefnd, sem svo
komst að þeirri
niðurstöðu að
Finnur væri verð-
ugastur verð-
launanna og titils-
ins „efnilegasti
söngvarinn“. „Ég
söng ýmislegt;
Händel, Mozart,
Schubert, Poulenc
og Britten,“ segir
hann aðspurður
um hvað hann hafi
sungið til að sann-
færa dómnefndina.
Finnur kveðst
vera á leið heim í
næstu viku til að
syngja á frönskum
tónleikum í Salnum ásamt þeim
Sigurði Halldórssyni sellóleikara
og Daníel Þorsteinssyni píanó-
leikara. „Annars er mestmegnis
óperusöngur framundan. Ég er
að fara að syngja í óperu eftir
Bellini í vor og sumar í Grange
Park Opera og eitt og annað er í
bígerð fyrir haustið.
Þá er Glyndebourne-óperan
búin að bjóða mér hlutverk Don
Ottavios í Don Giovanni eftir
Mozart á næsta ári, alls átta sýn-
ingar,“ segir Finnur en þess er
skemmst að minnast er hann
stökk inn í það hlutverk á síð-
ustu stundu í forföllum Stephen
Rookes á liðnu hausti og fékk
góða dóma, m.a. í The Times og
Opera magazine.
„Gott fyrir
sjálfstraustið“
Finnur
Bjarnason
Finnur Bjarnason tenórsöngvari
hlýtur verðlaun úr breskum sjóði
ÞAR SKILUR á milli hugmyndar
og útfærslu, að hugmyndaferlið
tengist skapandi hvötum en útfærsl-
an er í flestum tilvikum hreint fag.
Undantekningin er þegar listamað-
urinn er þátttakandi í öllu saman-
lögðu ferlinu, eða hann stjórni því að
meira eða minna leyti.
Á sama hátt og listamenn eru af
öllum gæðastigum eru til misfærir
fagmenn, allt upp í snillinga. Þetta
gengur mörgum hérlendum seint að
skilja og rugla gjarnan þessum hug-
tökum, leggja fag og list að jöfnu.
Stétt fagmanna sem aðstoða lista-
menn við útfærslu hugmynda sinna
erafar fámenn, ef hún er þá til, og
þeir sem aðstoðað hafa þá ekki sér-
menntaðir í þeirri grein, þótt þeir
valdi handverkinu til hlítar. Nú út-
skrifa engir skólar fagmenn beinlínis
til að aðstoða listamenn, nema að
stór hluti þeirra sem útskrifast úr
leirlistardeildum erlendis fer til
starfa á verkstæðum og postulíns-
verksmiðjum, hins vegar hafa ófáir
haft það að ævistarfi, einkum í vef-
listum svo og hvað stein- og marm-
arahögg snertir. Sagan segir af
mörgum kynslóðum slíkra sem ofið
hafa glitvefi eða útfært leirstyttur
meistaranna í stein og marmara og
fjölmargir hafa eytt allri ævi sinni á
grafíkverkstæðum eða við að aðstoða
málara sem þá hafa getað gengið
beint til verks. Listaverk hverju
nafni sem það nefnist getur verið af-
ar flókið vinnuferli, eins og ég hefi
margoft vikið að, og fagleg aðstoð
auðveldar stórum leið listamannsins
að kjarna sköpunarferlisins jafn-
framt því sem hann getur nýtt sam-
anlagða orku sína í þjónustu þess.
Í listaskólum er mikil áhersla lögð
áað kenna nemendum leirlistadeild-
ar á rennibekkinn, en það er þegar
allt kemur til alls hreint fag, skýrasta
dæmið er sjálfur Picasso, en þar var
hann hinn mesti klaufi. Hugmynda-
auðgi hans átti sér hins vegar engin
takmörk þegar kom að þeim þætti að
töfra fram form úr leirnum.
En svo finnast þeir er gera sjálft
vinnuferlið í leirnum og efnisþætti
hans að virku sköpunarferli, leggja á
sig mikið erfiði í því skyni, sem auð-
vitað er fullgilt. Virkja eld, vatn, ís og
veðrabrigðin, sólina jafnt og rign-
inguna, grafa jafnvel verk sín í jörðu
niður til að þau öðlist fyllingu tímans
eins og Michaelangelo er hann eft-
irgerði myndastyttur fornaldar.
Þessar hugleiðingar sóttu á við
skoðun leirmuna Magnúsar
Þorgrímssonar í listhúsinu
Fold, sem hafa svo sterk
einkenni jarðtengds vinnu-
ferlis, efnisáferðin og mót-
unin eitt. Svo mjög er ger-
andinn vígður vinnuferlinu í
öllum sínum þáttum og þró-
unarstigum að það gengur
að vissu marki út á sjálfa
mótunina. Hún er sáraein-
föld og sígild en skal alls
ekki vanmetin, því að fátt
krefst meiri aga né er vand-
meðfarnara til úrskerandi
árángurs en sjálfur einfald-
leikinn. Þetta kemur afar
vel fram í vösunum númer 4
og 5, hinn síðasttaldi vakti
umsvifalaust athygli mína
við fyrstu yfirsýn, svo mjög
skar hann sig úr fyrir fágaða
mótun og formtilfinningu.
Þá var ekki enn búið að stilla
ljósin, en þegar það hafði
verið gert lifnuðu fleiri vas-
ar við, einkum nr. 13 og 14,
en ég efast þó um ávinning-
inn af þessum leik með ljós
og skugga í rýminu. Á stundum get-
ur hann verið blekkjandi og vel for-
maður hlutur sker sig alltaf úr lit-
lausri fjöldaframleiðslu svona líkt og
fornbíll í umferðarþunga nútímans.
Þetta eru ekki hlutir notagildis held-
ur eiga að vera auganu hátíð, halda
ekki einu sinni vatni og er hér dýrt
kveðið eins og stundum er sagt um
skáldskap, og í sjálfu sé er vinnuferl-
ið náskylt.
Þegar Magnúsi tekst að samræma
form og skreyti verður útkoman hrif-
mest og þótt skreytið sé allajafna
náttúrutengt og mjög í hófi nær hann
sýnu eftirtektarverðustum árangri í
samþjöppuðum einfaldleika þessara
tveggja frumþátta. Í heild falleg sýn-
ing og án vafa besti árangur Magn-
úsar til þessa, lofar góðu um áfram-
haldið.
Eldur og eldsneyti
MYNDLIST
L i s t h ú s i ð F o l d
Opið virka daga frá 10-18.
Laugardaga 10-17,
Sunnudaga 14-17. Til 18. febrúar.
Aðgangur ókeypis.
LEIRLIST
MAGNÚS ÞORGRÍMSSON
Vasi nr. 5 á sýningu Magnúsar
Þorgrímssonar.
Bragi Ásgeirsson
EDDA Ýr Garðarsdóttir, útskriftar-
nemi í Listaháskólanum, opnar sýn-
ingu í Galleríi Nema Hvað við Skóla-
vörðustíg á föstudag kl. 17.
Verkið sem sýnt verður í Galleríi
Nema Hvað ber nafnið Í sturtu og er
innsetning með hljóði. Gestum er
boðið til sætis fyrir framan sturtu-
klefa þar sem þeir í hlutverki áhorf-
anda og áheyranda geta notið verks-
ins.
Sýningin stendur til 14. febrúar og
er opin frá kl. 14.00–18.00.
Edda Ýr er fædd 1976. Hún hefur
stundað myndlistarnám í Myndlista-
skóla Reykjavíkur, við Listaakademí-
ið á Fjóni og í Listaháskóla Íslands.
Í sturtu í
Nema hvað
SAMBA og bossa nova hljómsveitin
Felicidade heldur aðra tónleika sína
á nýju ári í Kaffileikhúsinu á föstu-
dag.
Áherslan verður sem fyrr lögð á
eldri og nýrri tónlist frá Brazilíu sem
á að ylja áheyrendum í skammdeg-
inu.
Felicidade skipa þau Tena Palm-
er, Hilmar Jensson, Guðjón Þorláks-
son, Matthías Hemstock og Óskar
Guðjónsson stígur inn í stað Jóels
Pálssonar en Óskar er hér í stuttri
heimsókn frá Lundúnum þar sem
hann er búsettur um þessar mundir.
Húsið verður opnað kl. 20 og tón-
leikarnir hefjast kl. 22.
Felicidade
aftur á ferð
OPNUÐ verður málverkasýning
Mynd-Máls, Myndlistaskóla Rúnu
Gísladóttur, listmálara og kennara,
á laugardag kl. 15. Sýnt verður í
Listasal Kvenfataverslunarinnar
Man, Skólavörðustíg 14, og stendur
sýningin til 25. febrúar. Hún verður
opin alla virka daga og laugardaga
kl. 10–18, en sunnudaga kl. 14–18.
Gengið er í gegnum verslunina þeg-
ar hún er opin, annars um næstu
dyr til hægri. Nemendur munu sýna
olíumálverk og vatnslitamyndir
sem þeir hafa unnið á námstíma sín-
um undir handleiðslu Rúnu.
Sýningin er liður í náminu og er
frumraun nemanna á sýningarvett-
vangi, enda fyrsta sýningin á veg-
um skólans.
Mynd-Mál, Myndlistaskóli Rúnu
er til húsa á Látraströnd 7 og hefur
verið starfræktur á Seltjarnarnesi í
16 ár. Hann hafa sótt margir
áhugamálarar á breiðu aldursbili
og flestir þeir sem eiga verk á sýn-
ingunni hafa stundað nám við skól-
ann í nokkur ár. Aðgangur er
ókeypis.
Einn nemenda Rúnu Gísladóttur við vinnu sína í skólanum.
Málverkasýning
Mynd-Máls
AF óviðráðanlegum orsökum
er tónleikum Ellenar Lang
sópransöngkonu og Jónasar
Ingimundarsonar píanóleikara,
sem vera áttu í Salnum sunnu-
daginn 18. febrúar næstkom-
andi, frestað fram til haustsins
2001.
Tónleikum
frestað
OPNUÐ verður sýning á ljós-
myndum eftir sex norræna ljós-
myndara í sýningarsölum Nor-
ræna hússins á laugardag kl. 16.
Finn Thrane, forstöðumaður og
sýningarstjóri Museet for Foto-
kunst í Óðinsvéum, hefur haft
veg og vanda af undirbúningi
sýningarinnar. Sýningin var fyrst
sett upp í Berlín í árslok 1999 í
tilefni þess að tekinn var í notk-
un nýr sýningarsalur í húsakynn-
um norrænu sendiráðanna þar í
borg.
Ljósmyndararnir sem eiga
verk á sýningunni eru Eva Merz,
Danmörku, Pia Arke, Grænlandi,
Fin Serck-Hanssen, Noregi,
Lars Tunbjörk, Svíþjóð, Pekka
Turunen, Finnlandi, og Kristján
Maack er fulltrúi Íslands.
„Titill sýningarinnar vísar til
þrár mannsins á öllum tímum
eftir betra lífi. Grasið er jú alltaf
grænna hinum megin við lækinn.
Þrátt fyrir margbreytilega
menningu landanna hafa menn
tilhneigingu til að vísa til Norð-
urlandanna sem ákveðinnar
heildar og þá bregður oft fyrir
klisjum á borð við ljós norðursins
eða hin frosna ímynd. En hvern-
ig lítur hinn norræni veruleiki
út? Ljósmyndararnir sex leitast
við að svara þeirri spurningu í
verkum sínum. Í myndunum
birtist þráin í norrænum ásjón-
um og landslagi en nálgun ljós-
myndaranna sex endurspeglar
margbreytilega túlkun þeirra á
norrænum raunveruleika,“ segir
í kynningu.
Ljósmyndasýning-
in Þrá eftir þrá
LEIKRIT Elíasar Snæland Jóns-
sonar Fjörbrot fuglanna hefur nú
verið sýnt um nær tveggja ára skeið í
Dresden í Þýska-
landi. Leikritið
var frumsýnt 17.
apríl 1999 í þýskri
þýðingu undir
nafninu Vögel in
Todeskampf í
Theater Junges
Generation.
Síðustu þrjár
sýningar þess
verða 27. febrúar,
5. og 10. mars.
Fjörbrot fuglanna er harmleikur
sem gerist í nútímanum og fjallar um
dauðadans harðstjórans og fórnar-
lamba hans. Leikritið kom út á ís-
lensku sama ár og það var frumsýnt í
Dresden. Útgefandi er bókaútgáfan
Hergill. Nýlega birtist lofsamlegur
ritdómur um leikritið eftir Lanae
Hjortsvang Isaacson í bandaríska
tímaritinu World Literature Today.
Sýningum
lýkur í
Dresden
Elías Snæland
Jónsson
Fjörbrot fuglanna