Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 41

Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 41
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 41 Hverjir eru kostirnir? EKKERT er óeðli- legt við að rætt sé um skipulag innanlands- flugs. Skipulagsmál eru snar þáttur umhverfis- mála og um þau þyrfti almennt að vera önnur og meiri umræða en raun ber vitni. Hitt er lakara ef Reykjavíkur- borg ætlar að efna til sérstakra kosninga um framtíð Reykjavíkur- flugvallar án þess að málið hafi áður fengið víðtæka og markvissa athugun. Margt misvísandi hefur komið fram í umræðum um málið, meðal annars þegar látið er að því liggja að margra kosta sé völ. Rætt hefur m.a. verið um byggingu nýs flugvallar á Lönguskerjum í Skerja- firði eða á Vatnsleysuströnd. Hvor- ugur þessara kosta sýnist álitlegur, hinn fyrri vegna kostnaðar og hækk- andi sjávarstöðu, sá síðari m.a. vegna þess hve lítið vinnst miðað við að fara alla leið til Keflavíkurflugvallar. Mið- að við umrædda kosti virðist mér spurningin um framtíðaraðstöðu fyr- ir innanlandsflugið á höfuðborgar- svæðinu snúast um val milli Reykja- víkurflugvallar í breyttri mynd og Keflavíkurflugvallar. Hugsanlega koma fram nýjar hugmyndir til álita síðar en málið er hvorki nægilega rætt eða undirbúið til að takast á um það í atkvæðagreiðslu með eða móti Reykjavíkurflugvelli. Skipulagsmál af þessum toga þarf að skoða í víðu samhengi og hafa í huga að niður- staðan snertir samgöngustefnu fyrir landið sem heild. Gagnkvæmur hagur af flugvelli Það er ósköp eðlilegt að þeir sem ekki hafa þurft að fljúga innanlands að neinu ráði eigi erfitt með að átta sig á annmörkum þess að flytja mið- stöð innanlandsflugs til Keflavíkur, en sveitarstjórnarmenn, einnig borg- arfulltrúar í Reykjavík, ættu að geta sett sig í þau spor. Fyrir fólk sem erindi á milli landsbyggðar og Reykjavíkur er það ótvíræður kostur að eiga skammt á flugvöll. Þessu veldur bæði mik- ill tímasparnaður við góð skilyrði en ekki síð- ur mikið hagræði þeg- ar seinkanir eru á flugi eða flugi er aflýst með skömmum fyrirvara eins og oft gerist vegna veðurskilyrða. Fyrir Reykjavík, bæði sem höfuðstað og ferða- mannastað, hlýtur það að teljast mik- ilvægt að miðstöð innanlandsflugs færist ekki langt út úr borginni. Hafa ætti einnig í huga að því fylgja óskráðar skyldur að vera miðstöð stjórnsýslu í landinu en það finnst mér stundum gleymast í hita leiksins í borgarstjórn Reykjavíkur. Innanlandflug drægist mikið saman Flutningur miðstöðvar innan- landsflugs til Keflavíkur og þó ekki væri nema hálfa leið getur jafngilt því að það heyri að mestu sögunni til. Líklegt er að ef innanlandsflugi yrði beint þangað eða suður á Vatnsleysu- strönd fækki þeim mjög sem nýti flugið sem ferðamáta og velji þess í stað bílinn. Því fylgja augljósir ann- markar, m.a. meira slit á þjóðvegum. Austurland er sá landshluti sem lengst á að sækja landleiðina til Reykjavíkur. Samt er það svo að menn aka á milli í vaxandi mæli, sum- part vegna hækkandi flugfargjalda. Ýtt væri mjög undir þá þróun ef óhagræðið af því að komast í flug færi að skipta klukkustundum um- fram það sem nú er. Keflavík liggur í gagnstæða átt og flugtími þaðan til staða innanlands lengist. Um leið vex eldsneytiskostnaður, bæði í flugi og á landi og jafnframt losun gróðurhúsa- lofttegunda. Ekkert liggur fyrir um tilhögun samgangna eftir 15–20 ár milli Reykjavíkur og Keflavíkur nema krafan um „tvöföldun Reykja- nesbrautar“. Endurskipulagning Reykjavíkurflugvallar Áður en lengra er haldið ætti að grandskoða hvernig koma megi inn- anlandfluginu fyrir einu og sér á hluta af núverandi athafnasvæði Reykjavíkurflugvallar og minnka það svæði sem til þarf svo sem frek- ast er unnt. Allt annað flug víki þaðan og hætt verði að gera ráð fyrir Reykjavíkurflugvelli sem varaflug- velli fyrir millilandaflug. Þess í stað verði Egilsstaðaflugvöllur treystur í sessi frekar en orðið er sem varaflug- völlur. Jafnframt verði flug yfir miðbæ Reykjavíkur stöðvað nema í algjörum undantekningartilvikum. Í slíkri lausn gæti verið fólgin mála- miðlun ólíkra sjónarmiða og hags- muna. Skoðanakönnun eins og nú virðist að stefnt er ekki farsæl byrjun til að undirbúa ákvarðanir í vanda- sömu og flóknu máli sem þessu. Það mikill tími er til stefnu að unnt á að vera að viðhafa vönduð vinnubrögð. Ég efast um að atkvæðagreiðsla nú eins og allt er í pottinn búið verði til framdráttar sjónarmiðum þeirra sem heimta „flugvöllinn burt úr Vatnsmýrinni,“ helst strax á morgun. Flugvallarumræða í öngstræti Hjörleifur Guttormsson Reykjavíkurflugvöllur Skoðanakönnun eins og nú virðist að stefnt, segir Hjörleifur Guttormsson, er ekki farsæl byrjun til að und- irbúa ákvarðanir í vandasömu og flóknu máli sem þessu. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. AÐ undanförnu hafa almenningssamgöngur á höfuðborgarsvæðinu verið talsvert til um- ræðu. Borgarstjórn Reykjavíkur hefur samþykkt að ganga til samstarfs við sex önn- ur sveitarfélög á höfuð- borgarsvæðinu um að sameina rekstur al- menningssamgangna allra sveitarfélaganna undir einum hatti. Markmiðið með þess- ari samþykkt er að efla og treysta almennings- samgöngur á svæðinu. Löngu tímabært Um margra ára skeið hefur það verið baráttumál félagshyggjufólks í Reykjavík og víðar að auka hlut al- menningssamgangna og draga um leið úr óheftum vexti bílaumferðar í borginni. Lengi vel hefur verið tal- að fyrir daufum eyrum í þessu máli en allt frá því að Reykjavíkurlistinn komst í meirihluta í borginni hefur verið unnið að þessu markmiði. Það er löngu tímabært að Reykjavík komist í flokk með öðrum evrópsk- um borgum í þessu efni en til þess þurfum við að taka okkur tak. Þró- un byggðar í landinu með miklum fólks- flutningum hingað á höfuðborgarsvæðið kallar á nýjar lausnir því það verður ekki hægt að halda áfram á þeirri braut sem lengst hefur ráðið hér, að byggja ný og ný umferðarmannvirki fyrir einkabílinn. Umhverfismál Með því er ekki sagt að einkabíllinn sé rétt- laus, því fer víðs fjarri. Á hinn bóginn býður umhverfið ekki upp á það að við tökum sífellt meira rými fyrir umferðarstórfljót og mis- læg gatnamót, á tímum þegar mönnum verður sífellt ljósari sú auðlind sem umhverfi okkar er og hversu mikilvægt það er að skipu- leggja borgarsamfélagið með vellíð- an borgarbúa að leiðarljósi. Á næstu tveimur áratugum má búast við að íbúum höfuðborgarsvæðisins fjölgi um nálega 60 þúsund. Þeirri umferðaraukningu, sem óbreytt samgöngustefna hefði í för með sér, verður einfaldlega ekki komið fyrir í gatnakerfi borgarinnar. Og það ekki þótt menn gjarnan vildu. Af þeim sökum og mörgum fleiri verður að leita annarra lausna. Rekstrarfyrirkomulag Í þessari umræðu hefur nokkuð borið á mismunandi afstöðu til rekstrarfyrirkomulags nýs almenn- ingsvagnafyrirtækis. Ljóst er að bæði SVR og Almenningsvagnar hf verða lögð niður í núverandi mynd en nýtt fyrirtæki stofnað. Samstaða er um það að leggja til stofnun byggðasamlags um almennings- samgönguþjónustuna. Með því móti verður þessi mikilvæga þjónusta áfram í höndum sveitarfélaganna og tryggt að hagsmunir almennings verða hafðir að leiðarljósi. Enn fremur er tryggt að réttarstaða starfsmanna er óbreytt frá því sem nú er, sem og kjör þeirra, en það er sömuleiðis mikilvægt. Ekki er hægt að leggja af stað í svona breytingar öðruvísi en í góðri sátt við starfs- fólk, til þess eru vítin að varast þau. Ég tel að með þeirri leið sem borg- arstjóri hefur lagt til náist þetta markmið og vænti þess að starfs- menn og samtök þeirra leggi þessu brýna hagsmunamáli lið. Hlutur ríkisins Þá hefur einnig verið rætt um það hvort ríkinu beri ekki að koma inn í rekstur almenningssam- gangna á höfuðborgarsvæðinu. Fyrir því eru margvísleg rök. Í fyrsta lagi má nefna að fyrirsjáan- legt er að ríkið muni leggja tugi milljarða í samgöngukerfi höfuð- borgarsvæðisins á næstu árum og áratugum og brýnt er að þeir fjár- munir nýtist sem best og komi sem allra flestum til góða. Í öðru lagi tekur ríkið nú þegar þátt í rekstri- almenningssamgangna (t.d. Vestmannaeyjaferja, Breiða- fjarðarferja). Í þriðja lagi hefur rík- isstjórnin skuldbundið sig skv. Rio- sáttmála Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar til að efla al- menningssamgöngur. Í fjórða lagi eru almenningssamgöngur þjóð- hagslega hagkvæmar. Þess vegna verður að knýja á um það að rík- isvaldið leggi sitt af mörkum til þess að styrkja þennan þátt í sam- göngumálum þjóðarinnar. Nýjar leiðir Í hugum flestra snúast almenn- ingssamgöngur hér á landi um strætó. Vitaskuld er það forgangs- verkefni að efla almenningssam- göngur með því að auka tíðni og áreiðanleika hjá strætó. En til framtíðar litið hljótum við að velta fyrir okkur nýjum leiðum. Lestar- samgöngur hefur þar borið á góma. Að mínu mati er tímabært að fram fari heildstæð og umfangsmikil at- hugun á hagkvæmni þess að reka lestarkerfi á höfuðborgarsvæðinu, sem gæti jafnt verið ofan jarðar og neðan. Þær athuganir sem þegar hafa verið gerðar eru nokkuð mis- vísandi og því ættu sveitarfélögin hér, í samvinnu við ríki, raforkufyr- irtæki, rannsóknastofnanir o.fl. að taka höndum saman og kanna þessi mál til hlítar. Reykjavík setur markið á að verða fjölmenningarleg alþjóðaborg sem stenst samkeppni við útlönd um unga fólkið okkar. Það á raunar ekki bara að vera metnaðarmál borgarinnar heldur landsmanna allra. Það markmið á líka að ná til sam- göngumála. Byggðasamlag um bættar almenningssamgöngur Árni Þór Sigurðsson Samgöngumál Að mínu mati er tíma- bært, segir Árni Þór Sigurðsson, að fram fari heildstæð og umfangs- mikil athugun á hag- kvæmni þess að reka lestarkerfi á höfuðborg- arsvæðinu. Höfundur er formaður skipulags- og byggingarnefndar Reykjavíkur. KJÖRSÓKN í há- skólanum hefur lengi verið vandamál. Þeir sem nýta atkvæðisrétt sinn eru að jafnaði minna en helmingur stúdenta. Til að breyta þessu þarf að gera tvennt, annars vegar að gera hagsmunamál stúdenta þannig að nemendum háskólans finnist málin varða þá beint. Hins vegar þarf að gera sem flestum stúdentum kleift að kjósa. Það hefur verið töluvert vandamál, þar sem það er vita- skuld erfitt að finna kjördag sem hentar öllum. Lýðræðislegri kosningar Vaka hefur verið þeirrar skoðunar að fjölga beri kjördögum úr einum í tvo með það að leiðarljósi að fleiri stúdentar kjósi og kosningaúrslit verði því um leið lýðræðislegri. Á stúdentaráðsfundi þriðjudaginn 30. janúar var samþykkt að breyta lög- um Stúdentaráðs til þess að gefa kjörstjórn heimild til þess að hafa kosningar á tveimur dögum. Í tillög- unni felst að kjörstjórn getur ákveð- ið að hafa kjörfund frá 9 til 13 fyrri daginn og 9 til 18 hinn síðari. Vaka hefur haft frumkvæði að þessu máli og náði samkomulagi við forsvars- menn Röskvu um að breyta lögunum þannig að heimilt yrði að hafa tvo kjördaga, eftir strangar viðræður. Það hefur alltaf verið nokkuð strembið að velja kjördag, meðal annars vegna þess að kosningar eru gjarnan á þeim tíma sem árshátíðir nemendafélaga eru haldnar. Það er slæmt að halda kosningar á dögum þar sem heilu deildirnar eru alls ekk- ert í skólanum. Með því að halda kjörfund á tveimur dögum er hættan á að val kjördags hindri þátttöku til- tekinna deilda minnkuð til muna. Vaka lagði fram tillöguna með það að leiðarljósi að auka kjörsókn. Vaka lítur svo á að hér hafi unnist mikill sigur fyrir lýðræðið í háskólanum og um leið nemendur skólans. Vaka hefur í vetur staðið fyrir ótrúlega öflugu starfi, og hefur auk hins venjubundna málefnastarfs staðið fyrir mörgum uppákomum, svo sem hádegisfundum, skemmti- kvöldum og öðru. Nú fer í hönd spennandi kosningabarátta, en sá tími ársins er án efa skemmtilegasti hluti starfsins í Vöku. Á undanförn- um vikum hefur ótrúlega mikill fjöldi stúdenta haft samband við Vöku og af því má sjá að málflutningur Vöku hefur meðbyr hjá stúdentum. Það er von okkar að í komandi kosningum, sem fram fara dagana 27.–28. febrú- ar, muni sem flestir stúdentar nýta sér atkvæðisrétt sinn og kjósa. Tveir kjördagar í háskólanum Baldvin Þór Bergsson Höfundar sitja í Stúdentaráði fyrir hönd Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Kosningar Vaka lítur svo á að hér hafi unnist mikill sigur fyrir lýðræðið í háskól- anum, segja Þorbjörg Sigríður Gunnlaugs- dóttir og Baldvin Þór Bergsson. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.