Morgunblaðið - 08.02.2001, Page 42
FRÉTTIR
42 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Trésmiðir
Smiðir vanir mótauppslætti (kerfismót) óskast.
Upplýsingar gefur Hans í símum 892 0369 og
553 5832.
Múlakaffi óskar að ráða starfsfólk til
afgreiðslustarfa
Vinnutími frá kl. 16—21 virka daga.
Upplýsingar gefa Guðný í síma 899 9960 og
Valgerður í síma 698 7472.
Starfsmaður
í mötuneyti
Laust er starf í mötuneyti starfsmanna Mennta-
skólans við Sund. Umsóknarfrestur er til 23.
febrúar nk. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst.
Starfið felst í því að sjá um mötuneyti fyrir
starfsmenn skólans; að annast innkaup og taka
til morgunkaffi, hádegismat og síðdegiskaffi.
Um er að ræða heilsdagsvinnu í 9 mánuði og
hálfsdagsvinnu í einn mánuð eða 80% starf
á ársgrundvelli. Fullt starf kemur til greina að
viðbættum öðrum verkefnum.
Reynsla og góð þekking á sviði mat- og fram-
reiðslu er nauðsynleg.
Leitað er að jákvæðum starfsmanni og liprum
í samskiptum.
Launakjör skv. kjarasamningum starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir skulu sendar skólanum á eyðublöð-
um sem þar fást.
Nánari upplýsingar veita rektor og fjármálstjóri
í síma 553 3419 og 553 7300.
Rektor.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Útboð
Aðveitustöðin á Brennimel
Þéttavirki
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í
þéttavirki fyrir aðveitustöðina á Brennimel,
samkvæmt útboðsgögnum BRE-30.
Verkið felst í deilihönnun, framleiðslu, flutn-
ingi, uppsetningu og prófunum á 50 MVAr
samþétti með 245 kV rofabúnaði og öllum
nauðsynlegum hjálparbúnaði.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu inn-
kaupadeildar Landsvirkjunar, Háaleitisbraut
68, 103 Reykjavík, frá og með fimmtudeginum
8. febrúar 2001 gegn óafturkræfu gjaldi að upp-
hæð 10.000 krónur fyrir hvert eintak.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, Reykjavík, fyrir kl. 14.00
mánudaginn 2. apríl 2001 þar sem þau verða
opnuð og lesin upp að viðstöddum fulltrúum
þeirra bjóðenda sem þess óska.
STYRKIR
Styrkir
Umsóknir óskast um styrki
til jarðhitaleitar
Iðnaðarráðuneyti, Orkuráð og Byggðastofnun
hafa ákveðið að halda áfram sérstöku átaki til
leitar jarðhita til húshitunar á svæðum, þar sem
hitaveitur eru ekki í nú. Átakinu er einkum
ætlað að vera hvati að rannsóknum og jarðhita-
leit á svæðum, þar sem jarðhiti er lítt eða ekki
þekktur á yfirborði.
Ekki er veittur styrkur fyrir kostnaði sem var
áfallinn áður en átakið hófst.
Um er að ræða tvenns konar styrki samkvæmt
nánari reglum þar um:
A) Styrkir til almennrar jarðhitaleitar með hitasti-
gulsborunum og jarðvísindalegum aðferðum,
gegn eðlilegu mótframlagi umsækjanda.
B) Styrkir vegna þróunar og prófunar á nýjum
aðferðum við vinnslu jarðvarma og nýting-
ar, s.s. skáborun, örvun á borholum, niður-
dælingu o.fl.
Styrkir standa til boða sveitarfélögum, orkufyr-
irtækjum og öðrum aðilum, en við forgangs-
röðun verkefna verður einkum tekið tillit til eft-
irtalinna atriða:
1) Að verkefnið sé þjóðhagslega arðbært,
m.a. með tilliti til flutnings- og dreifikerfis
raforku.
2) Að verkefnið efli byggð í landinu.
Umsóknarfrestur vegna annars áfanga þessa
átaks er til 28. febrúar 2001. Umsóknir skulu
sendar Orkustofnun á þar til gerðum eyðublöð-
um sem þar fást og merktar þannig:
Jarðhitaleit á köldum svæðum,
Auðlindadeild/Helgi Torfason,
Orkustofnun, Grensásvegi 9,
108 Reykjavík.
Fyrirspurnir b.t. Helga Torfasonar, Orkustofnun,
Grensásvegi 9, 108 Reykjavík, sími 569 6000,
fax 568 8896, netfang heto@os.is
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 5 181288 9.II*
Landsst. 6001020819 VIII
I.O.O.F. 11 181287½
Fimmtudagur 8. febrúar kl.
20 Tunglskinsganga í Viðey.
Um 2 klst. rölt um eyjuna. Brott-
för frá Viðeyjarbryggju, Sunda-
höfn. Verð 600 kr. f. félaga og
700 kr. f. aðra. Börn kr. 200.
Sjá utivist.is og textavarp bls. 616.
Aðaldeild KFUM
Holtavegi 28
Fundur í kvöld kl. 20.00.
Ísrael í máli og myndum.
Umsjón: Bjarni Karlsson og Hró-
bjartur Árnason.
Allir karlmenn velkomnir.
Í kvöld kl. 20.00. Gospeltón-
leikar í Hvítasunnukirkjunni, Há-
túni 2. Moss gospelkór, frá Nor-
egi, syngur ásamt fleirum.
Ath. engin samkoma á Her.
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, í kvöld kl. 20.00.
Vitnisburðir. Ræðumaður:
Jóhanna Ólafsdóttir.
Fjölbreyttur söngur. Kaffi að
lokinni samkomu. Allir velkomnir.
www.samhjalp.is .
Kvöldganga á fullu tungli
8. febrúar kl. 19:30. Brottför frá
BSÍ og Mörkinni 6. Um 3 klst.
ferð. Allir velkomnir. Farar-
stjóri Snævarr Guðmundsson.
Stjörnukíkir með í för. Takið með
ykkur litla sjónauka og verið hlý-
lega klædd. Verð 800 kr.
Gönguferð sunnud. 11. febr.,
brottför kl. 10:30.
4 sæti laus í þorrablótsferð
10.—11. febrúar.
www.fi.is, textavarp RUV bls.
619. Sími á skrifstofu 568 2533.
DILBERT
mbl.is
EFTIRFARANDI ályktun var
samþykkt á fundi miðstjórnar ASÍ
7. febrúar sl.:
„Miðstjórn Alþýðusambands Ís-
lands lýsir áhyggjum af uppsögn-
um fiskverkafólks og þeim áhrifum
sem verkefnaskortur í landvinnslu
hefur á aðrar starfsgreinar, at-
vinnustigið almennt og framtíð
fjölda byggðarlaga í landinu.
Miðstjórn ASÍ bendir á að ekki
sé hægt að kenna langtímaþróun í
atvinnugreininni um þau áföll sem
dunið hafa yfir fiskverkafólk og
sjávarbyggðir að undanförnu.
Tækninýjungum við vinnslu, sem
kalla á minna vinnuafl, og annarri
slíkri þróun þarf að mæta með
framtíðarsýn. Beita þarf aukinni
þekkingu til verðmætasköpunar
með fullvinnslu afla, markaðssetn-
ingu og sölu á hugviti og tækni-
búnaði í sjávarútvegi.
Sá bráðavandi sem landvinnslan
stendur nú frammi fyrir víða um
land er annars eðlis og snýst öðru
fremur um að tryggja lífvænlegum
fyrirtækjum, sem skapa bæði at-
vinnu og verðmæti, aðgang að hrá-
efni til vinnslu.
Þau rekstrarskilyrði sem land-
vinnslan býr við eru ákvörðuð með
lögum og stjórnvaldsaðgerðum.
Hafi þau í för með sér að verð-
mætar fjárfestingar í atvinnutækj-
um standi ónýttar, að sérmenntað
starfsfólk gangi atvinnulaust og
grundvelli heilu byggðarlaganna
sé stefnt í voða er ekki hjá því
komist að spyrja um atvinnu- og
byggðastefnu stjórnvalda.
Miðstjórn ASÍ tekur því undir
og ítrekar samþykkt framkvæmda-
stjórnar Starfsgreinasambandsins
frá 6. febrúar.“
ASÍ lýsir eftir atvinnu-
stefnu stjórnvalda
ÍSLAND er eitt 45 þátttökulanda í
Evrópsku tungumálaári 2001 og mun
menntamálaráðuneytið standa fyrir
setningarathöfn tungumálaársins í
dag, fimmtudaginn 8. febrúar kl 16 í
Þjóðmenningarhúsinu.
Við setningarathöfnina flytur
Björn Bjarnason, menntamálaráð-
herra, ávarp. Vigdís Finnbogadóttir,
fyrrverandi forseti Íslands og vel-
gerðarsendiherra tungumála hjá
UNESCO, fjallar um mikilvægi
tungumálakunnáttu. Ennfremur
fjallar Hulda Styrmisdóttir, aðstoðar-
maður forstjóra Íslandsbanka FBA,
um tungumálakunnáttu í atvinnulífi.
Einnig koma fram nemendur úr
grunn-, framhalds- og háskólum og
skemmta með upplestri og söng á
mismunandi tungumálum. Má þar
nefna Kór Menntaskólans við
Hamrahlíð, fjölmenningarlega kórinn
Heimsljós, ljóðaupplestur nemanda
úr Háskóla Íslands og tvísöng nem-
enda úr Austurbæjarskólanum. Síð-
asti dagskrárliður setningarathafnar-
innar er flutningur Benedikts
Erlingssonar leikara á Gunnars-
hólma.
Menntamálaráðherra, Björn
Bjarnason, skipaði snemma á síðasta
ári landsnefnd til að vinna að undir-
búningi tungumálaársins hér á landi.
Í nefndinni eiga sæti Auður Hauks-
dóttir, Höskuldur Þráinsson, Jónína
Á. Sanders, Jórunn Tómasdóttir,
Kristján Árnason og María Gunn-
laugsdóttir. Jafnframt var í janúar
síðastliðnum skipuð verkefnisstjórn
sem í eiga sæti Ari Páll Kristinsson,
Birna Arnbjörnsdóttir og Guðni Ol-
geirsson. Verkefnisstjóri er Jórunn
Tómasdóttir.
Drög að innlendri dagskrá Evr-
ópsks tungumálaárs 2001 og nánari
upplýsingar um tungumálaárið má
nálgast á vefsíðu menntamálaráðu-
neytisins www.menntamalaradu-
neyti.is
Setningarathöfn
Evrópsks tungumálaárs
LÝST er eftir vitnum að umferðar-
óhappi er átti sér stað á Höfðabakka
við Bíldshöfða þriðjudaginn 6. febrú-
ar. kl. 13.31. Þarna varð árekstur
með rauðri fólksbifreið af gerðinni
Subaru Impreza og blárri fólksbif-
reið af gerðinni Toyota Land Cruis-
er. Ágreiningur er um stöðu umferð-
arljósa er óhappið varð. Þeir sem
upplýsingar geta veitt um mál þetta
eru vinsamlega beðnir að hafa sam-
band við lögregluna í Reykjavík.
Lýst eftir vitnum