Morgunblaðið - 08.02.2001, Blaðsíða 43
KRABBAMEINSFÉLAGIÐ 50 ÁRA
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 43
KRABBAMEINSFÉLAG
Reykjavíkur var stofnað árið 1949.
Frá þeim tíma hefur stærsta verkefni
félagsins verið að styðja í hvívetna
baráttuna gegn krabbameini og m.a.
fræða almenning um krabbamein og
varnir gegn því. Auk þess hefur það
stuðlað að aukinni menntun heilbrigð-
isstétta í greiningu og meðferð
krabbameins. Krabbameinsfélag
Reykjavíkur hefur umsjón með út-
gáfu bæklinga og fréttabréfs.
Fræðsluritin er hægt að nálgast á
heilsugæslustöðvum og apótekum um
land allt og á Netinu (www.krabb.is).
Félagið veitir ýmiss konar ráðgjöf,
sinnir einstaklingsviðtölum og heldur
námskeið í reykbindindi. Forvarnir í
grunnskólum eru einn veigamesti
þátturinn í tóbaksvarnastarfi
Krabbameinsfélagsins. Um sjötíu
ársverkum hefur félagið varið til
skipulagðra tóbaksvarna í grunnskól-
um landsins undanfarinn aldarfjórð-
ung.
Veigamesta orsök sjúkdóma
Tóbaksnotkun er veigamesta orsök
sjúkdóma og ótímabærs dauða. Meira
en 40 ár eru síðan niðurstöður fyrstu
rannsókna um reykingar og lungna-
krabbamein voru birtar. Síðan hafa
verið birtar í fagtímaritum yfir 60.000
greinar með niðurstöðum úr vísinda-
legum rannsóknum um áhrif tóbaks-
notkunar á heilsuna. Um 370–400 Ís-
lendingar deyja árlega af völdum
beinna og óbeinna reykinga. Árlega
deyr fleira fólk á Íslandi af völdum
reykinga en af völdum ólöglegra
fíkniefna, áfengis, umferðarslysa,
morða, sjálfsmorða, eldsvoða og al-
næmis samanlagt. Bandaríski heil-
brigðisráðherrann sagði í janúar
1990: „Sígarettan er eina löglega var-
an á markaðnum sem er banvæn þeg-
ar hún er notuð eins og til er ætlast.“
Tóbak veldur 500.000 dauðsföllum í
Evrópu á ári og er talið að um 500
milljónir manna, sem eru á lífi í dag,
muni látast af völdum reykinga.
Forvarnarstarf
Ein áhrifaríkasta leiðin til þess að
koma í veg fyrir aukningu krabba-
meins hér á landi er að draga úr reyk-
ingum landsmanna. Þess vegna er
lögð áhersla á forvarnir í grunnskól-
um landsins og fræðslu um afleiðing-
ar tóbaksneyslu. Samstarf Krabba-
meinsfélagsins og reykingavarna-
nefndar, síðar tóbaksvarnanefndar,
hefur verið mikið frá árinu 1977. Sam-
vinna hefur verið um ýmsar hug-
myndir varðandi tóbaksvarnir, að-
gerðir, forvarnir og viðræður þegar
tóbaksvarnalög hafa verið til með-
ferðar á Alþingi. Í aðalnámskrá
grunnskóla, sem tók gildi árið 1999,
er kveðið á um skyldur grunnskóla í
tóbaksvörnum. Árið 1997 réðust
Krabbameinsfélag Reykjavíkur og
tóbaksvarnanefnd í verkefnið „Sköp-
um reyklausa kynslóð“. Í því fólst
stefnubreyting í tóbaksvörnum meðal
grunnskólanemenda. Áhersla var
lögð á að dreifa námsefni í tóbaks-
vörnum til allra grunnskóla á landinu
(til nemenda í 6.–10. bekk), skólunum
að kostnaðarlausu. Fræðslufulltrúar
Krabbameinsfélags Reykjavíkur
annast námsefnisgerð, veita kennslu-
ráðgjöf, standa fyrir námskeiðum í
tóbaksvörnum fyrir starfsfólk í skóla,
halda kynningarfundi fyrir foreldra,
kennara og fleiri. Árlega veita
Krabbameinsfélagið og tóbaksvarna-
nefnd reyklausum (tóbakslausum)
nemendum í áttunda, níunda og tí-
unda bekk verðlaun. Reykleysis-
samningar eru sendir heim til for-
eldra og skrifa nemendur undir
ásamt forráðamönnum. Mjög margar
staðfestingar berast. Dregið er úr
innsendum samningum árlega og fá
450 heppnir reyklausir unglingar sér-
hönnuð armbandsúr og bakpoka í
verðlaun.
Evrópusamkeppni
Skólaárið 2000–2001 standa tób-
aksvarnanefnd og Krabbameinsfélag
Reykjavíkur fyrir samkeppninni
„Evrópusamkeppni meðal reyklausra
bekkja“ í annað sinn. Öllum 7. og 8.
bekkjum á landinu stendur til boða að
vera með, svo fremi að enginn nem-
enda reyki. Samkeppnin nýtur fjár-
stuðnings frá Evrópusambandinu og
eru vegleg verðlaun í boði svo sem
ferð til útlanda, helgarferð innan-
lands, óvissuferð fyrir fjóra bekki,
ferðageislaspilarar, geisladiskar o.fl.
Rúmlega 300 bekkir í 7. og 8. bekk
hafa þegar skráð sig. Kennarar hafa
lýst yfir mikilli ánægju með keppnina
og telja hana hvatningu til reykbind-
indis. Alls taka 13 Evrópuþjóðir þátt í
samkeppninni auk Íslands. Verndari
keppninnar á Íslandi er Ingibjörg
Pálmadóttir heilbrigðisráðherra.
Samkvæmt niðurstöðum úr könn-
uninni Ungt fólk 2000 kemur fram að
23% nemenda í tíunda bekk reyktu
daglega árið 1998. Árið 2000 reyktu
16% nemenda í tíunda bekk daglega.
Eins og sjá má hefur dregið verulega
úr daglegum reykingum nemenda í
10. bekk (einnig 8. og 9. bekk) frá
árinu 1998 til ársins 2000.
Hættu að reykja –
það er aldrei of seint
Kannanir sem gerðar voru fyrir
tóbaksvarnanefnd sýndu að árið 2000
reyktu um 25% fullorðinna Íslend-
inga (18–69 ára) daglega. Þetta hlut-
fall hefur lækkað að meðaltali um 1%
á ári undanfarin ár og var 40% árið
1985. Því fylgir mikill og skjótur
heilsufarslegur ávinningur að hætta
tóbaksneyslu. Þetta á einnig við um
þá sem þegar hafa fengið sjúkdóma
sem tengjast reykingum. Menn sem
ekki reykja eða hætta að reykja eru
hraustari en þeir sem reykja, mælt í
veikindadögum og læknaheimsókn-
um. Líkur á kransæðastíflu eru þegar
orðnar helmingi minni einu ári eftir
að fólk hættir að reykja, miðað við þá
sem reykja. Hætta á lungnakrabba-
meini er orðin helmingi minni en hjá
reykingamönnum tíu árum eftir að
hætt er að reykja.
Þeir sem ekki geta hætt tóbaks-
neyslu af eigin rammleik eiga kost á
að leita sér aðstoðar. Krabbameins-
félag Reykjavíkur veitir ráðgjöf, hef-
ur gefið út leiðbeiningarit og stendur
fyrir námskeiðum í reykbindindi.
Námskeiðin hafa verið fyrir einstak-
linga og einnig geta fyrirtæki haft
samráð varðandi námskeið í reyk-
bindindi fyrir starfsfólk sitt. Næsta
námskeið í reykbindindi mun hefjast
13. febrúar og er hægt að skrá sig
með því að hringja í Krabbameins-
félag Reykjavíkur í síma 540 1900 eða
með tölvupósti alda@krabb.is eða
arndis@krabb.is. Fleiri aðilar standa
einnig fyrir námskeiðum í reykbind-
indi eða hjálpa fólki á annan hátt.
Ef einn reykir – reykja allir. Þeir
sem reykja ekki en þurfa að anda að
sér lofti menguðu tóbaksreyk eru því
í vissum skilningi að reykja þó að þeir
hafi ekki kosið sér það sjálfir. Lík-
urnar á að fá krabbamein vegna
óbeinna reykinga eru um það bil 100
sinnum meiri en af völdum krabba-
meinsvaldandi mengunarvalda utan-
húss, svo sem umferðarmengunar.
Börn reykja óbeint þegar reykt er í
kringum þau og skaðar það heilsu
barnsins og getur valdið miklum
óþægindum. Hjá ungum börnum eru
öndunarvegir hlutfallslega þröngir
sem gerir þau sérlega viðkvæm fyrir
tóbaksreyk. Börn eru viðkvæmari
fyrir bakteríum og þeim er tvisvar til
fjórum sinnum hættara við öndunar-
færasýkingum en fullorðnum. Þriðj-
ungur af öllum eyrnabólgutilfellum er
sennilega vegna óbeinna reykinga.
Mæðravernd
Reykingavarnir þurfa að hafa for-
gang í mæðravernd. Í mæðravernd
gefst einstakt tækifæri til að ná til
ungs fólks á „besta aldri“ og það tæki-
færi þurfa heilbrigðisstarfsmenn að
nýta sér á jákvæðan hátt. Heilsugæsl-
an hefur markað sér stefnu í tóbaks-
vörnum (skv. lögum um heilbrigðis-
þjónustu). Hún á að annast fræðslu
um skaðsemi beinna og óbeinna reyk-
inga fyrir verðandi foreldra. Krabba-
meinsfélagið hefur í samvinnu við
tóbaksvarnanefnd gefið út fræðslurit-
ið Til foreldra – um börn og óbeinar
reykingar sem notað er af heilsugæsl-
unni í mæðra- og ungbarnaeftirliti.
Bæklingurinn er hluti af samvinnu-
verkefni krabbameinsfélaganna á
Norðurlöndum.
Borgar sig
Þar sem alvarlegustu afleiðingar
reykinga koma ekki strax í ljós er erf-
itt fyrir marga að gera sér í hugar-
lund það heilsutjón sem reykingar
geta valdið þegar til lengri tíma er lit-
ið – „það kemur ekki fyrir mig“. Unnt
er að greina heilsuspillandi áhrif
reykinga nokkrum vikum eftir að við-
komandi byrjar að reykja og er hætta
á heilsutjóni meiri ef menn byrja ung-
ir. Rannsóknir sýna að þeim börnum
sem koma frá reykingaheimilum er
mun hættara við að ánetjast tóbaki en
þeim sem koma frá heimilum þar sem
ekki er reykt. Þess vegna verðum við
sem foreldrar að vera börnunum góð
fyrirmynd. Tóbaksbindindi borgar
sig – alltaf!
Alda
Ásgeirsdóttir
Unnt er að greina heilsuspillandi
áhrif reykinga nokkrum vikum
eftir að viðkomandi byrjar að
reykja, segja þær Arndís Guð-
mundsdóttir og Alda Ásgeirsdóttir.
Hætta á heilsutjóni er meiri ef
menn byrja ungir. Skjótur heilsu-
farslegur árangur fylgir þó því að
hætta tóbaksneyslu.
Arndís er mannfræðingur og Alda er
hjúkrunarfræðingur. Þær eru
fræðslufulltrúar hjá Krabbameins-
félagi Reykjavíkur.
Arndís
Guðmundsdóttir
Áhrifaríkast að
draga úr reykingum
Nýskr. 8.1999, 2000cc vél,
4 dyra, sjálfskiptur, blár,
ekinn 27 þ.
Verð: 1.530 þ.
Hyundai
Sonata GLSi
Grjóthálsi 1
Sími 575 1230/00
bíla
land
notaðir bílar
bilaland.is
B&L
Barnaskautar
(Smelluskautar)
Stærðir 29-36
Áður kr. 3.990
nú kr. 2.400
Skeifunni 11, sími 588 9890
Opið laugardaga frá kl. 11-15
10%
AFSLÁ
TTUR
Ú T S A
L AListskautarVinilHvítir: 28-44Svartir: 33-46Áður kr. 4.201
nú kr. 2.500
Hokkískautar
Reimaðir
Stærðir 37-46
Áður kr. 9.338
nú kr. 5.600
Smelluskautar
Stærðir 29-41
Áður kr. 4.989
nú kr. 2.993
Hokkískautar
Smelltir
Stærðir 36-46
Áður kr. 5.990
nú kr. 3.600
Listskautar
Leður
Hvítir: 31-41
Svartir: 36-45
Áður kr. 6.247
nú kr. 3.800