Morgunblaðið - 08.02.2001, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 08.02.2001, Qupperneq 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 51 Sími 562 0200 Erfisdrykkjur Vinátta okkar hófst á sjöunda áratugnum þegar við hófum störf hjá Innkaupastofnun ríkisins en hann var þar skrifstofustjóri. Okk- ur varð snemma ljóst að þarna höfðum við ekki aðeins fengið góð- an yfirmann sem alltaf var boðinn og búinn til að leiðbeina okkur og aðstoða, heldur einnig félaga til lífstíðar sem batt okkur alla tryggðarböndum. Björn var mikill náttúruunnandi og útivistarmaður en ekki síður hafði hann áhuga á félagsmálum, því var það meðal annars fyrir hans forgöngu að starfsmannafélag var stofnað sem síðan réðst í byggingu sumarhúss í Grímsnesi. Í 30 ár höf- um við félagarnir hist þar hvern bóndadag og blótað þorra. Allra síðustu árin varð heilsubrestur Björns til þess að hann gat ekki verið með okkur þar, frá þeim tíma hafa þorraferðirnar ávallt hafist í Grænuhlíðinni hjá Diddu og Bjössa með síldarhlaðborði og fleira góð- meti. Nú að leiðarlokum viljum við þakka kærum vini samverustund- irnar og vottum fjölskyldu hans okkar dýpstu samúð. Pétur, Óskar, Jón Sverrir og Magnús Björn. Í dag kveð ég æskufélaga minn og kæran vin í meira en 65 ár, Björn Stefánsson. Við ólumst upp á Ásvallagötunni, ég á númer 73 en hann á númer 54 í húsi foreldra sinna ásamt bræðr- um sínum, Stefáni Val og Ólafi, og þeirri ágætu konu Þóru. Við gengum saman alla skóla- gönguna, fyrst í Landakoti og síðan í Versló og útskrifuðumst þaðan vorið l953 með þeim fræga árgangi. Björn hóf fljótlega að starfa hjá Sambandinu og vann þar í nokkur ár, en færði sig um set og hóf störf hjá Innkaupastofnun ríkisins og vann þar í mörg ár, síðast sem skrifstofustjóri. Þegar Björn vann hjá SÍS kynnt- ist hann glæsilegri konu, Guðríði Tómasdóttur (Diddu), ættaðri frá Sólheimatungu í Borgarfirði, þau gengu í hjónaband 16. 2. 1957. Syn- ir þeirra eru Stefán, Þórir og Gunnar, allir hinir vænlegustu drengir. Er Björn vann hjá SÍS byggði hann sér íbúðarhúsnæði í Bogahlíð ásamt nokkrum af félögum sínum, þar bjó hann í nokkur ár en flutti síðan yfir í Grænuhlíð 13, þar sem hann bjó fjölskyldu sinni glæsilegt heimili. Á bæði þessi heimili var notalegt að koma og njóta samvista þeirra hjóna og sona. Síðasta teitið er hann bauð okkur vinum og félögum sínum í var stórkostlegt, bæði í mat og drykk, þar naut hann sín ásamt Diddu og sonum sem gestgjafi, hrókur alls fagnaðar, broshýr, kátur og mikill vert. Björn gekk ekki heill til skógar hin síðustu ár, svo kom reiðarslagið nú fyrir nokkru er læknar greindu hann með krabbamein og eftir stutta legu var hann allur, að kveldi 30. janúar. Síðasta heimsókn mín til hans ásamt Leifi Ísleifssyni verður okk- ur ávallt minnisstæð, er við kvödd- umst og hann brosti til okkar sínu fallega brosi, sem hann hafði erft frá sinni töfrandi móður, frú Helgu. Já, kæri vinur, svona er lífið, en ég hefi trú á því að það sé annað og öðruvísi líf framundan og að þar muni þér líða vel, kannski eigum við eftir að ræða betur um æskuár- in og alheims áhugamál við aðrar aðstæður. Það er sárt að sjá á eftir góðum dreng, en sárastur er þó missir fjölskyldunnar, megi hinn almátt- ugi guð vera með ykkur og blessa. Svandís og ég sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Þinn vinur, Walter Hjaltested. Mikill sómamaður er fallinn frá löngu fyrir aldur fram, lífshlaupi Björns vinar míns er lokið, eftir stendur skarð sem ekki verður aft- ur fyllt. Hann hafði átt við verulega vanheilsu að stríða mörg undafarin ár og mjög erfiðan sjúkdóm í lokin og kom mér í sjálfu sér því ekki á óvart að frétta um andlát hans þó að andlátsfregn nákomins félaga komi manni ávallt í opna skjöldu. Ég ætla ekki að rekja lífsferil Björns en langar aðeins til að setja á blað nokkur orð í virðingar- og þakklætisskyni. Kunningsskapur okkar Björns hafði staðið í 48 ár. Við hittumst fyrst þegar hann kom til starfa í innflutningsdeild Sambands ísl. samvinnufélaga vorið 1953, en hann hafði þá nýlokið prófi frá Versl- unarskóla íslands, en ég hafði kom- ið þar til starfa árið áður. Hann starfaði í innflutningsdeildinni um árabil, en var einnig við störf á skrifstofu Sambandsins í Leith um tíma. Með okkur tókst strax góður kunningsskapur og náin tengsl í starfi og á mörgum ánægjulegum samfundum, sem hefur staðið allar götur síðan. Við vorum ungir lífs- glaðir menn á svipuðum aldri og fundum okkur ýmislegt til dægra- dvalar, sem er geymt en ekki gleymt, þegar færi gafst frá störf- unum. Við áttum meðal annars það sameiginlegt að finna konuefnin okkar meðal starfsfélaga okkar í Sambandinu. Það atvikaðist þannig að um þetta leyti hafði Bergur Óskarsson, sem þá var starfsmaður Framsókn- arflokksins, unnið að því að stofna byggingaflokk innan Byggingasam- vinnufélags Reykjavíkur og gekk ég ásamt fleiri ungum starfsmönn- um Sambandsins í þennan bygg- ingaflokk, enda þóttum við flestir vera þannig litir í pólitíkinni að við værum gjaldgengir þar. Þetta horfði svolítið öðruvísi við með Björn því að hann hafði þá þegar ákveðnar skoðanir á stjórnmálum og var hallur undir Alþýðuflokkinn. En sem betur fór sáu menn hvern kostamann Björn hafði að geyma og fyrir meðmæli mín var hann tekinn í byggingaflokkinn sem svo stóð að því að byggja 24 íbúða fjöl- býlishús í Bogahlíð 12–18, en þar var þannig staðið að málum þar að félagarnir gátu unnið við bygg- inguna sjálfir og þannig unnið fyrir stærsta hlutanum af kostnaðinum við að gera íbúðirnar fokheldar. Margir okkar voru peningalitlir eða jafnvel peningalausir á þessum tíma og varð þarna til vinnuflokkur vaskra unga manna sem unnu í öll- um sínum frítíma við bygginguna og oft fram á nætur. Þarna hófst ennþá nánara sam- starf okkar Björns og vorum við með þeim allra hörðustu í vinnu- framlagi og tókst okkur með þess- ari miklu vinnu að koma okkur upp íbúðum þrátt fyrir mjög takmark- aða greiðslugetu að öðru leyti. Eft- ir að við fluttum í Bogahlíðina héld- um við Björn áfram að vinna saman ýmis verkefni fyrir húsfélagið við lokafrágang á húsinu og bar aldrei skugga á það samstarf okkar. Þá atvikaðist það þannig að þeg- ar félagarnir drógu um íbúðirnar lentum við Björn með okkar fjöl- skyldur í sama stigagangi á númer 12. Þar áttum við saman mörg góð ár í sérstaklega vinsamlegri sam- búð og síðan gerðist það merkilega að þegar að við fluttum burt úr blokkinni okkar þá héldu húsráð- endur úr stigaganginum á nr. 12 áfram að hittast einu sinni á ári til skiptis hver hjá öðrum og þá helst fyrstu helgi í nýju ári og hefur sá siður haldist áfram og síðast hitt- umst við hinn 13. janúar sl. en þá var Björn okkar orðið það sjúkur að þau hjónin gátu ekki verið með okkur. Björn var háttvís í framkomu, hlýr í viðmóti og ljúfur maður í allri umgengni. Hann var einkar athug- ull og vandaður starfsmaður, sam- viskusemi og heiðarleiki voru hon- um í blóð borin og rækti hann störf sín af alúð og nærgætni við sam- starfsmenn sína og viðskiptavini. Hvar sem spor hans lágu gat ekki hjá því farið að ljúfmennska hans og fáguð framkoma gæddu umhverfið næsta honum sérstökum andblæ sem skilur eftir sig var- anlegar kenndir hlýju og mann- gæsku hjá samferðamönnunum. Þegar hann er nú horfinn af sjónarsviðinu erum við öll sem næst honum stóðum og störfuðum fátækari og söknum góðs félaga. Á bak við fátæklegan búning þessara kveðjuorða dyljast hugs- anir og tilfinningar sem eru tvinn- aðar úr mörgum þáttum, sem ekki er auðvelt að setja á blað, en hinn sterkasti þeirra er þó tengdur end- urminningum mínum um persónu- leg samskipti okkar fyrr og síðar. Hafi hann að leiðarlokum heila þökk fyrir langa og flekklausa sam- fylgd. Fyrir hönd félaganna úr Boga- hlið 12 og fjölskyldna þeirra vott- um við eiginkonu hans, sonum og öðrum í fjölskyldu hans dýpstu samúð og biðjum þeim öllum bless- unar guðs og þeim megi öðlast frið- ur og styrkur til að sigrast á þeim þeim harmi sem að þeim er kveð- inn. Jón Þór Jóhannsson. Hann Bjössi Stefáns er farinn til feðra sinna. Spilafélagar hans í gegnum tíð- ina vilja minnast góðs félaga með nokkrum orðum, þótt í léttari dúr verði, því okkur finnst það eiga best við Bjössa, sem jafnan var kátur og hress, og óformlegur. Það var strax fyrstu ár okkar saman í Verzló, fyrir um hálfri öld, að við skólabræðurnir tókum upp á því að spila bridge í frímínútum. Stundum tóku margir í árgangin- um þátt í spilamennskunni, og við settum jafnvel upp sveitakeppnir á fjórum eða sex borðum eftir skól- ann. Meðal skólafélaga okkar voru nokkrir mjög slyngir spilarar, sem síðar tóku þátt í stórmótum. Við í þrengri hópnum urðum aldrei nema meðalskussar, kannski vant- aði okkur keppnisskapið. Engu að síður nutum við ævinlega þeirra vikulegu spilakvölda, sem við tók- um snemma upp fjórir saman, heima hjá hver öðrum. Þá var jafn- an glatt á hjalla og margt brallað. Lagt var í sjóð, sem notaður var til skemmtanahalds á öldurhúsum bæjarins einu sinni á vetri. Þegar áhyggjulausir ungkarlarnir urðu að ábyrgum fjölskyldufeðrum breytt- ust áhugamálin. Þá var frekar boð- ið upp á matarveislur með eigin- konunum heima hjá okkur til skiptis, sem varð til þess að kon- urnar kynntust enn betur. Við eigum afar góðar minningar um móttökurnar á æskuheimili Bjössa á Ásvallagötunni, því rausn- arheimili. Ekki voru síðri móttök- urnar hjá Bjössa og Diddu, eftir að þau stofnuðu heimili, fyrst í Boga- hlíð og svo í Grænuhlíð. Með slík- um gagnkvæmum heimsóknum fylgdumst við vel með viðgangi fjöl- skyldna hver annars, heimilis- bragnum og fjölskyldulífinu. Spila- mennskan var kannski aldrei í fyrirrúmi, heldur félagsskapurinn. Við græna borðið var margt skrafað, fyrst um prófin og kenn- arana og um skólaböllin og stelp- urnar í bekknum, svo um atvinnu okkar hvers og eins og seinna um börnin og barnabörnin. Margvís- legar skemmtisögur um menn og málefni voru sagðar í glaðværum vinahópi, enda var stundum lögg hellt í glas. Einnig bar stjórnmál stundum á góma, og oftar en ekki var það Bjössi sem bryddaði upp á þeim, sérstaklega í seinni tíð, þegar hann var orðinn gramur og þjak- aður af óskiljanlegum veikindum sínum. Hann hafði alla tíð fastmót- aðar skoðanir á þjóðmálunum og var virkari á þeim vettvangi en við hinir, sem honum fannst stundum vera mestu viðrini í pólitík. Björn Stefánsson var myndar- legur á velli, bjartur yfirlitum sem Baldur, karlmannlegur og fríður sýnum sem Apollo og mesta kvennagullið í hópnum. Hann tók okkur líka fram á flestum sviðum íþrótta, þótt hann miklaðist aldrei af því. Við spilaborðið vorum við aftur á móti allir jafningjar. Við tókum aldrei upp háþróuð skipa- kerfi, heldur notuðum okkar heimabúna afbrigði af Vínar- kerfinu. Oft þurfum við að rifja upp sagnakerfið og bera saman bækur okkar, ekki síst í seinni tíð, þegar langur tími gat liðið milli spila- kvölda, af ýmsum ástæðum. Við söknuðum þess síðustu árin að geta ekki oftar hist yfir spilum til að stinga saman nefjum og hlæja saman. Allt slíkt léttir lund og lengir lífið. Á margan hátt var Bjössi gæfu- maður í lífinu, þótt sjúkdómur hans hafi endanlega leikið hann grátt og umturnað lífi hans. Mesta gæfa hans í lífinu var kvonfang hans, myndarleg heimasætu úr Borgar- firðinum, Guðríði Tómasdóttur, sem bjó honum afar hlýlegt heimili og fæddi honum mjög myndarlega syni þrjá. Móðir og synir stóðu jafnan þétt saman við að sýna fjöl- skylduföðurnum umhyggju og stuðning í vandamálum hans gegn- um tíðina. Það er einmitt á slíkum stundum sem reynir á, hversu traustir innviðir fjölskyldunnar eru. Við minnumst þeirrar skemmti- legu kvöldstundar, sem við áttum í Grænuhlíðinni fyrir tveimur árum, þegar við vorum að tilefnislausu, að því er virðist, boðaðir til kvöldfagn- aðar ásamt fleiri nánum vinum Bjössa og fyrrverandi starfsfélög- um, sem synirnir munu hafa átt frumkvæði að. Hann bar veikindi sín þá með mesta æðruleysi, var glaður í góðra vina hópi eins og alltaf áður. Aðeins nokkrum dögum seinna felldu læknar loks dóminn um sjúkleika hans, eftir áratuga meðgöngu, og var þá ekki að sök- um að spyrja. Enginn fær sín örlög flúið. Fyrir marga okkar varð þetta síðasta stundin sem við áttum með þessum trausta og glaðværa vini okkar til svo margra ára, í faðmi fjölskyldu hans. Okkur spilafélagana tekur það sárt að hafa ekki getað hitt Bjössa oftar á meðan hann átti erfiðast undir lokin. Við fylgdumst þó vel með heilsufari hans úr fjarska, því Wolli, varamaður í spilahópnum og tryggur æskuvinur Bjössa af Ás- vallagötunni, gaf okkur nákvæma skýrslu um gang mála með ákveðnu millibili. Á vissan hátt er- um við þó ánægðir með að Bjössi skyldi loks fá hvíld frá sínum þung- bæra sjúkdómi. Hans verður innilega saknað í okkar hópi. Ekki síður verður skarð fyrir skildi í árgangnum okk- ar stóra, VÍ-53, þar sem Bjössi var aufúsugestur á árlegum skemmti- kvöldum eða ferðalögum, alltaf léttur og ljúfur. Það er gæfa okkar hinna að hafa átt slíkan samferða- mann á lífsleiðinni. Megi Guð og gæfan fylgja fólk- inu hans. Spilafélagar. Fréttin var slæm. Björn fallinn frá um aldur fram. Ég hitti Björn fyrst fyrir tæpum tuttugu árum. Eftir eina skákæfinguna í Tafl- félagi Reykjavíkur var ég skyndi- lega kominn á heimili foreldra vin- ar míns í Grænuhlíð 13. Ég var kynntur fyrir Birni og Diddu og innan skamms voru allir sestir við eldhúsborðið og mér var boðið uppá mjólk og kökur. Ekki grunaði mig þá að næstu 10 árin ætti ég eftir að koma svo oft á þetta heimili og njóta gestrisni Björns og Diddu. Unglingsárin mín eru að mörgu leyti mörkuð af verunni í Grænu- hlíðinni. Við vinirnir ég og Gunnar ásamt fleirum, annaðhvort að tefla eða spila. Björn stundum að fylgjast með, stundum að spyrja frétta úr skák- pólitíkinni eða segja brandara. Á þessum árum stofnuðu nokkrir unglingar félag í Grænuhlíðinni sem lifir enn í dag og er skamm- stafað B.D.T.R. Meginmarkmið félagsins var að tefla og hlusta á tónlist ásamt fleiru. Björn kom að stofnun félagsins og ekki veitti af því semja þurfti lög og reglur. Það kom því aldrei neitt annað til greina en að Gunnar yrði formaður félagsins þar sem foreldrar hans voru alltaf tilbúnir að leggja okkur lið ef á þyrfti að halda. Björn var ákaflega skemmtilegur maður og aldrei minnist ég þess að hann brygði skapi við mig, nema til að glettast eða hlæja. Hann hafði frábæra kímnigáfu og oft veltist maður um af hlátri í stofunni í Grænuhlíðinni. Þótt heimsóknirnar í Grænuhlíð- ina hafi ekki orðið eins margar og maður hefði viljað í seinni tíð, þá hitti ég Björn nokkrum sinnum á förnum vegi síðustu árin. Alltaf tókum við tal saman og oft snerust umræðurnar um skák eða pólitík. Björn fylgdist vel með því sem var að gerast og aldrei kom maður að tómum kofanum. Ég minnist Björns með virðingu, vináttu og þakklæti fyrir skemmti- leg kynni. Diddu og strákunum, Stefáni, Þóri og Gunnari, sendi ég mínar einlægu samúðarkveðjur. Þröstur Þórhallsson. Mörg árin hafa liðið og mörg hárin hafa gránað frá því að við Inga keyptum íbúð í húsi þeirra Björns og Diddu við Grænuhlíð. Það liðu ekki nema fáir dagar frá því skrifað var undir kaupsamning- inn þar til Björn hringdi og bauð okkur í kaffi. Þá voru tveir mánuðir eftir þar til við fengjum íbúðina af- henta og gætum flutt, en Birni fannst ekki að það mætti bíða að bjóða ungu hjónin velkomin í húsið. Upp frá þessu áttu þau Björn og Didda vináttu okkar. Nábýlið var gott en varð ekki langt. Nógu langt þó til þess að við gætum málað húsið og sinnt ýmsu öðru sameiginlegu sem sinna þurfti. Vináttan varð miklu lengri en nábýlið og breyttist ekki þótt lengra yrði á milli okkar. Björn naut þess að bjóða og vera boðinn, segja frá og hlýða á aðra. Lífs- gleðin var í því fólgin að sýna sig og sjá aðra og fagna með vinum sínum og fjölskyldu. Björn og Didda áttu fallegt heimili í Grænuhlíð, sem gaman var að koma á og Sólheimatunga í Borgarfirði var kær staður þar sem þau vildu dvelja á sumrin og bjóða vinum sínum að njóta með sér eftir því sem tækifæri gáfust til. Enda þótt Björn hafi átt við al- varleg veikindi að stríða um langt skeið finnst okkur sem endalokin hafi komið skyndilega og óvænt og var okkur þó ljóst að heilsa Björns og þrek hefði brostið fyrir löngu. Björn er í minningunni alltaf sá lífsglaði og hlýi vinur sem við kynntumst í upphafi. Eitt átti Björn sem aldrei brást og það er kona hans. Didda hefur áunnið sér virðingu allra sem hana þekkja fyrir styrk sinn og hetju- lega baráttu. Það er ekki lítið álag að þurfa skyndilega að axla ein ábyrgð á fjölskyldu og heimili og mikið afrek að inna það af hendi með þeim hætti sem Didda hefur gert. Við hjónin vottum henni og son- um hennar samúð okkur og vonum að hún megi áfram standa af sér storma lífsins með þeim hætti sem hún hefur gert fram til þessa. Inga Rósa og Þorvarður Elíasson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.