Morgunblaðið - 08.02.2001, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 59
Útsala!
10—50% afsláttur
Úlpur
Kápur
Jakkar
Pelskápur
líta út sem ekta
Opið laugardaga
frá kl. 10—16
Mörkinni 6,
sími 588 5518
Allir vetrarskór
B a r n a - D ö m u - H e r r a
með
50%
eða meiri afslætti
Kringlunni 8-12, sími 568 6211
Skóhöllin Bæjarhrauni 16, Hafnf. sími 555 4420
SP
RE
NGI TILBOÐ
Ve
rð
áð
ur
2.9
90
NÚ 1.200
Munið söfnunarreikninginn
vegna hæstaréttardóms
nr. 286/1999 og kæru til
Mannréttindadómstóls Evrópu
4 4 4 4 4
í SPRON á Skólavörðustíg.
GEÐFÖTLUN, geðraskanir, of-
virkni og hegðunarraskanir. Þegar
fólk heyrir þessi orð yfir veikindi og
fatlanir barna og fullorðinna vilja
flestir stinga hausnum í sandinn og
láta sem ekkert sé! En svo auðvelt er
málið ekki. Við sem tökumst á við
þessar fatlanir daglega viljum að fólk
sýni þessu skilning og þá sérstaklega
peningavaldið í landinu. Það vill
brenna við að fjármagn til aðstoðar
þessu fólki sé af skornum skammti.
Mín fjölskylda fékk að finna fyrir því
nú á dögunum. Ég á tvö börn sem
greinst hafa með fatlanir af þessu
tagi, annað með ofvirkni með athygl-
isbresti, kvíða, þunglyndi og mót-
stöðu-þrjóskuröskun hitt er hinsveg-
ar með mótstöðu-þrjóskuröskun.
Þau eru bæði undir 9 ára aldri. Það
sem til ráða er lyfjagjöf og fræðsla til
foreldra. Best þykir að kenna for-
eldrum hvernig meðhöndla eigi
börnin til að ná sem mestum árangri.
Námskeið fyrir foreldra barnanna
hafa verið haldin á vegum BUGL
(barna og unglingageðdeildar) sem
er gott og blessað. Okkur hjónum
var boðið að komast á biðlista fyrir
námskeið af þessu tagi, við þáðum
það með þökkum þar sem við höfum
mikla trú á árangri í framhaldi þess-
ara námskeiða. Við höfum þegar ver-
ið á einu þjálfunarnámskeiði þegar
annað barnið okkar lá inni í grein-
ingu.
Nú, aftur að námskeiðinu, við
fengum bréf um daginn þess efnis að
nú væri að fara af stað nýtt námskeið
og okkur boðin þátttaka sem við
fögnuðum þangað til tímasetningin
var skoðuð, þá versnaði í því. Nám-
skeiðið átti að vera kl 13:30–15:30!
Þetta kom okkur verulega á óvart
því við stóðum í þeirri meiningu að
námskeiðin færu fram á kvöldin eða
eftir vinnutíma flestra foreldra. Ég
vinn reyndar ekki eftir hádegi þar
sem ég verð að vera heima og sinna
börnunum sökum veikinda þeirra. Í
framhaldi af bréfinu var hringt í okk-
ur, mér lá forvitni á að vita hvað
stýrði því að námskeiðin væru á
þessum tíma! Í ljós kom að ekki
fengist fjármagn til að borga fagfólki
eftirvinnu til þess að halda nám-
skeiðin!
Þar höfum við það! Enn og aftur er
skorið niður þar sem síst skyldi. Ég
held að háttvirtur fjármálaráðherra
ætti að eyða eins og einum degi inni á
BUGL og kynna sér ástand þessara
barna og hversu brýnt það er að ná
tökum á þeim meðan þau eru ung. Ef
foreldrarnir kunna það ekki, hverjir
eiga þá að gera það? Staðreyndin er
sú að ef ekki er unnið með vandamál
þessara barna meðan þau eru ung þá
getum við allt eins reiknað með að
þurfa að kosta stórfé í alls kyns með-
ferðir og hjálp handa þeim þegar þau
nálgast unglingsárin. Þá erum við
farin að horfa á þjóðfélagsvandamál!
Rannsóknir sýna að 65% „þessara“
barna lenda í einhverskonar mis-
notkun (eiturlyf, innbrot, árásir
o.fl.). Væri ekki gáfulegra að kasta
nokkrum krónum í námskeið handa
foreldrum sem vilja hjálpa börnun-
um sínum, frekar en eyða stórfé í
sama fólk síðar á ævinni?
KATRÍN BJÖRK
EYJÓLFSDÓTTIR,
Skógarási 5, Reykjavík.
Gleymdu
börnin…
Frá Katrínu Björk Eyjólfsdóttur:
SLIM-LINE
dömubuxur frá
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
BRIDSHÁTÍÐ Bridssambands
Íslands, Flugleiða og Bridsfélags
Reykjavíkur verður haldin í 20. skipti
í ár. Að þessu sinni er hátíðin óvenju
vel skipuð erlendum þátttakendum
og á þátttökulista er bæði að finna
nöfn fólks sem telja má til fastagesta
á hátíðinni og ný andlit við spilaborð-
in á Hótel Loftleiðum.
Boðssveitrnar verða þrjár að þessu
sinni. Zia Mahmood, sem nú telst til
Bandaríkjamanna, kemur til leiks
ásamt félögum sínum Barnet Shenk-
in, George Mittelman og Ralph Katz.
Þessa kappa þarf vart að kynna því
þeir hafa allir komið oft á Bridshátíð.
Þá koma tvö pólsk pör. Annað
mynda þeir Krzysztof Jassem og
Piotr Tuszynski sem báðir hafa spilað
hér á landi áður. Þeir voru í liðinu
sem spilaði til úrslita við Ítali um ól-
ympíutitilinn í Maastricht sl. haust.
„Fjandvinum“ okkar Íslendinga,
þeim Adam Zmudzinski og Cecari
Balicki, var einnig boðið en þeir gátu
ekki þegið boðið þegar til átti að taka
og skarð þeirra fylla Jacek Romanski
og Apolinary Kowalski sem ekki eru
síðri spilarar. Romanski hefur spilað
á Bridshátíð áður en hann var lengi
fastamaður í pólska landsliðinu.
Þá koma ensku tvíburarnir Jason
og Justin Hacket á Bridshátíð og
sveitarfélagar þeirra verða Fu Zhong
frá Kína og Wayne Chu frá Suður-
Afríku. Hacket-bræðurnir eru mjög
litríkir og skemmtilegir spilarar og
eru ásamt föður sínum, Paul, eftir-
sóttir á bridsmót um allan heim. Fu
og Chu spiluðu báðir í síðustu keppni
um Bermúdaskálina, Fu með lands-
liði Kína og Chu með landsliði Suður-
Afríku.
Íslenski landsliðsmaðurinn Magn-
ús Magnússon, sem nú er búsettur í
Svíþjóð, kemur á Bridshátíð ásamt
sambýliskonu sinni, sænsku lands-
liðskonunni Catharine Midskog. Með
þeim í sveit verða hjónin Hans og
Eva-Liss Göthe. Hans Göthe var oft
gestur á íslenskum mótum hér áður
fyrr en hann er enn með annan fótinn
í sænska landsliðinu. Eva-Liss hefur
einnig spilað í sænskum kvenna-
landsliðum. Þá kemur önnur sterk
sænsk sveit á Bridshátíð á eigin veg-
um, sem skipuð er Anders Morath,
Mårten Gustawsson, Björn Wenne-
berg og Lars Goldberg. Það þarf ekki
að kynna Morath fyrir íslenskum
spilurum en þeir Göthe voru makker-
ar í eina tíð og eitt sterkasta par Evr-
ópu fyrir rúmum tveimur áratugum.
Og þeir Gustawsson voru í sænska
landsliðinu sem keppti á Norður-
landamótinu á Hótel Örk í sumar.
Að lokum koma góðir gestir frá
Bandaríkjunum. Hjördís Eyþórs-
dóttir kemur að venju og spilar að
þessu sinni við margfaldan heims-
meistara kvenna bæði í sveitakeppni
og tvímenningi, Carol Sanders.
Sveitarfélagar þeirra verða hjónin
Sue Ellen og John Solodar sem vann
Bermúdaskálina árið 1981 og hefur
margsinnis unnið bandarísk meist-
aramót.
Zia í fínu formi
Þótt heldur hafi farið minna fyrir
Zia Mahmood að undanförnu en oft
áður, virðist hann vera í ágætu formi
og um miðjan janúar varði hann
ásamt Englendingnum Andy Robson
titilinn á hollenska boðsmótinu sem
kennt er við Cap Gemini. Þar voru
Pólverjarnir Jassem og Tuszynski
einnig meðal þátttakenda og þeir
enduðu í 3. sæti.
Í þessu spili beitti Zia dæmigerðu
bragði til að tryggja sér geimsveiflu:
Norður
♠ KD
♥ 863
♦ DG42
♣ D976
Vestur Austur
♠ G6 ♠ 109762
♥ K1097 ♥ ÁD52
♦ 98653 ♦ 7
♣ K3 ♣ G85
Suður
♠ Á843
♥ G4
♦ ÁK10
♣ Á1042
Zia opnaði í suður á 1 grandi og
Robson í norður lyfti í 3 grönd. Í AV
sátu Frakkarnir Poul Chemla og Ala-
ín Lévy og Chemla spilaði eðlilega út
tígulníunni. Zia átti slaginn á drottn-
ingu í borði og þar sem hann sá í
hendi sér að vörnin myndi skipta í
hjarta þegar hún kæmist næst inn,
tók hann um hornin á bola og spilaði
hjarta úr borði á gosann heima.
Chemla fékk slaginn á kóng og
skipti nú í spaðagosa; fékk eitthvað
loðið kall frá Lévy. Zia átti slaginn á
kóng í borði og reyndi nú lauf á tíuna.
Chemla fékk á kónginn og varð nú að
skipta í hjarta. En hann hafði ekkert
fyrir sér, nema það helst að Zia var
sagnhafi. Á endanum spilaði hann
spaðafimmunni og Zia fékk 10 slagi.
Mikið mannval á Bridshátíð
BRIDS
H ó t e l L o f t l e i ð u m
Bridshátíð verður haldin á Hótel
Loftleiðum dagana 16. til 19. febr-
úar. Keppt er í tvímenningi og
sveitakeppni. Skráningarfrestur er
til 8. febrúar og er hægt að skrá sig
á skrifstofu Bridssambands Íslands
eða á heimasíðu sambandsins,
www.bridge.is
Morgunblaðið/Arnór
Zia Mahmood hefur komið oftar á Bridshátíð en nokkur annar erlendur
spilari. Á myndinni sést hann með vini sínum, kvikmyndaleikaranum
Omar Sharif, þegar þeir spiluðu hér fyrir rúmum áratug.
Guðm. Sv. Hermannsson