Morgunblaðið - 08.02.2001, Side 60
DAGBÓK
60 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Goðafoss kemur og fer í
dag. Blackbird kemur í
dag. Vestmannaey og
Baldvin Þorsteinsson
fer í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Rán kom í gær. Ýmir og
Heltermaa fóru í gær.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
baðþjónusta og bók-
band, kl. 9–16.30 penna-
saumur og bútasaumur,
kl. 9.45 morgunstund,
kl. 10.15 leikfimi, kl. 11
boccia, kl. 13 opin
smíðastofa, kl. 9 hár- og
fótsnyrtistofur opnar
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8
hárgreiðsla, kl. 8.30
böðun, kl. 9 leikfimi, kl.
9–12 myndlist, kl. 9–16
handavinna og fótaað-
gerð, kl. 14 dans, kl. 14–
17 glerskurður. Kl. 10
Helgistund með sr.
Tómasi Sveinssyni.
Félagsvist kl. 13.30
Eldri borgarar í Mos-
fellsbæ, Kjalarnesi og
Kjós! Félagsstarfið á
Hlaðhömrum er á
þriðjudögum og fimmtu-
dögum, kl. 13–16.30, spil
og föndur. Leikfimi er í
íþróttasal á Hlaðhömr-
um á þriðjudögum kl.
16. Sundtímar á Reykja-
lundi kl. 16 á miðviku-
dögum á vegum Rauða-
krossdeildar Mos.
Pútttímar eru í Íþrótta-
húsinu á Varmá kl. 10–
11 á laugardögum. Kór-
æfingar hjá Vorboðum,
kór eldri borgara í Mos.,
eru á Hlaðhömrum á
fimmtudögum kl. 17–19.
Jógaleikfimi kl. 14 á
föstudögum í Dvalarh.
Hlaðhömrum. Uppl. hjá
Svanhildi í s. 586-8014
kl. 13–16. Tímapöntun í
fót-, hand- og andlits-
snyrtingu, hárgreiðslu
og fótanudd, er í s. 566-
8060 kl. 8–16.
Félagsstarf aldraðra,
Dalbraut 18–20. Kl. 9
böðun, hárgreiðslu-
stofan og handavinnu-
stofan opnar, kl. 9.30
danskennsla, gler- og
postulínsmálun, kl. 13
opin handavinnustofan
og klippimyndir, kl.
14.30 söngstund.
Félagsstarf aldraðra
Lönguhlíð 3. Kl. 8 böð-
un, kl. 9 fótaaðgerð, kl.
10 hársnyrting, kl. 11.10
leikfimi, kl. 13 föndur og
handavinna.
Félagsst. Furugerði 1.
Kl. 9 aðstoð við böðun,
smíðar og útskurður,
glerskurðarnámskeið og
leirmunagerð, kl. 9.45
verslunarferð í Austur-
ver, kl. 13.30 boccia.
Félag eldri borgara í
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ Kaffistofan er
opin virka daga frá kl.
10–13. Matur í hádeg-
inu. Brids í dag kl. 13.
Fyrsti fræðslufundur,
„Heilsa og hamingja“,
verður laugardaginn 10.
febrúar kl. 13.30. í Ás-
garði, Glæsibæ. Ólafur
Ólafsson, formaður
FEB og fyrrverandi
landlæknir, gerir grein
fyrir rannsóknum sínum
á heilsufari og högum
aldraðra. Þorsteinn
Blöndal yfirlæknir
greinir frá helstu sjúk-
dómum í lungum, sem
aldraðir verða fyrir. All-
ir velkomnir. Leikhóp-
urinn Snúður og Snælda
sýnir „Gamlar perlur“
sem eru þættir valdir úr
fimm gömlum þekktum
verkum. Sýningar eru á
miðvikudögum kl. 14 og
sunnudögum kl. 17 í Ás-
garði, Glæsibæ. Miða-
pantanir í s. 588-2111,
568-9082 og 551-2203.
Sjávarfangsveisla með
hausum, hrognum, lifur
og ýmsu öðru góðgæti
úr sjárvarfangi, verður
haldin 16. febrúar, dans-
að á eftir borðhaldi.
Skráning hafin á skrif-
stofu FEB. Silfurlínan
opin á mánudögum og
miðvikudögum frá kl.
10–12. Ath. skrifstofa
FEB er opin frá kl. 10–
16. Uppl. í s. 588-2111.
Félag eldri borgara í
Hafnarfirði, Hraunseli,
Reykjavíkurvegi 50.
Púttæfing í Bæjarút-
gerðinni kl. 10–12.
Félagsvist í Hraunseli
kl. 13:30. Leikhúsferð
24. febr. „Á sama tíma
síðar“. Skráning stend-
ur yfir.
Félag eldri borgara,
Kópavogi, heldur al-
mennan félagsfund í
Gullsmára 13, laug-
ardag 10. febrúar kl. 14.
Dagskrá: félagsheimilin
og starfsemi. Óskað hef-
ur verið eftir að
bæjarfulltrúar mæti og
ræði málin og svari
fyrirspurnum.
Félagstarf aldraðra,
Garðabæ. Spilað í
Kirkjulundi á þriðju-
dögum kl. 13.30. Spila-
kvöld, félagsvist á Álfta-
nesi 8. feb. kl. 19.30.
Akstur samkvæmt áætl-
un.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9.30 sund og leik-
fimiæfingar í Breið-
holtslaug, kl. 10.30
helgistund, umsjón Lilja
G. Hallgrímsdóttir
djákni, frá hádegi spila-
salur og vinnustofur
opnar. Myndlistarsýn-
ing Ólafs Jakobs Helga-
sonar stendur yfir. Veit-
ingar í kaffihúsi
Gerðubergs. Fimmtu-
daginn 22. febrúar er
leikhúsferð í Þjóðleik-
húsið að sjá leikritið
„Með fulla vasa af
grjóti“, skráning hafin.
Aðstoð frá Skattstofu
við skattframtöl verður
veitt miðvikudaginn 7.
mars. Skráning hafin.
Allar upplýsingar um
starfsemina á staðnum
og í síma 575-7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnnustofan op-
in, leiðbeinandi á staðn-
um, kl. 9–15, gler og
postulín kl. 9.30, leikfimi
kl. 9.05, kl. 9.50 og kl.
10.45, kl. 13 taumálun,
og klippimyndir, kl. 20
gömlu dansarnir, kl. 21
línudans, Sigvaldi kenn-
ir. Kl. 17 Söngfuglarnir
taka lagið kl. 17, Guðrún
Guðmundsdóttir mætir
með harmonikkuna.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9.15 postulíns-
málun, kl. 10 jóga og
ganga, kl. 13 brids, kl.
14 boccia, kl. 13–16
handavinnustofan opin,
leiðbeinandi á staðnum.
Hraunbær 105. Kl. 9–
16.30 bútasaumur,
perlusaumur og korta-
gerð, kl. 9 fótaaðgerð,
kl. 9.45 boccia, kl. 14
félagsvist.
Félagsstarfið, Hæðar-
garði 31. Kl. 9–16.30 op-
in vinnustofa, gler-
skurður, kl. 9–17
hárgreiðsla og böðun,
kl. 10 leikfimi, kl. 13.30
bókabíll, kl. 15.15 dans.
Hvassaleiti 56–58. Kl. 9
opin handavinnustofa
búta- og brúðusaumur,
böðun, fótaaðgerðir og
hárgreiðsla, kl. 10
boccia, kl. 13 handa-
vinna, kl. 14 félagsvist.
Norðurbrún 1. Kl. 9
handavinnustofurnar
opnar, útskurður, kl. 10
leirmunanámskeið.
Vesturgata 7. Kl. 9 fóta-
aðgerðir og hárgreiðsla,
kl. 9.15–12 aðstoð við
böðun, kl. 9.15–15.30
handavinna, kl. 10
boccia, kl. 13–14 leik-
fimi, kl. 13–16 kóræfing.
Miðvikudaginn 21.
febrúar verður farið kl.
13.20 í Ásgarð, Glæsi-
bæ. Sýndar verða gaml-
ar perlur með Snúði og
Snældu. Kaffiveitingar
seldar í hléinu, skráning
í síma 562-7077.
Vitatorg. Kl. 9 smiðjan
og hárgreiðsla, kl. 9.30
glerskurður, fatasaum-
ur og morgunstund, kl.
10 boccia og fótaaðgerð-
ir, kl. 13 handmennt,
körfugerð og frjálst spil.
Gullsmárabrids. Brids-
deild FEBK í Gullsmára
býður alla eldri borgara
velkomna að brids-
borðum í félagsheim-
ilinu að Gullsmára 13 á
mánudögum og fimmtu-
dögum. Mæting og
skráning kl. 12.45. Spil
hefst kl. 13.
ÍAK. Íþróttafélag aldr-
aðra í Kópavogi. Leik-
fimi kl. 11 í Digra-
neskirkju.
Sjálfsbjörg, félag fatl-
aðra á höfuðborg-
arsvæðinu, Hátúni 12.
Kl. 19.30 tafl.
Kvenfélag Bústaða-
sóknar heldur aðalfund
í Safnaðarheimilinu
mánudaginn 12. febrúar
kl. 20. Venjuleg aðal-
fundarstörf. Óvænt
uppákoma.
GA-fundir spilafíkla
eru kl. 20.30 á fimmtud.
í fræðsludeild SÁÁ
Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safnaðar-
ins við Háteigsveg á
laugard. kl. 10.30.
Húnvetningafélagið,
félagsvist í Húnabúð,
Skeifunni 11, í kvöld kl.
20. Annað kvöld í fjög-
urra kvölda parakeppni.
Kaffiveitingar. Allir vel-
komnir.
Í dag er fimmtudagur 8. febrúar,
39. dagur ársins 2001. Orð dagsins:
Enginn dragi sjálfan sig á tálar.
Ef nokkur þykist vitur yðar á
meðal í þessum heimi, verði hann
fyrst heimskur til þess að hann
verði vitur.
(I. Kor. 3, 18.)
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar:
569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156,
sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT-
STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 165 kr. eintakið.
Víkverji skrifar...
UM síðustu mánaðamót greiddiTryggingastofnun ríkisins ör-
yrkjum lífeyrisbætur í samræmi við
ný lög um almannatryggingar en
þau voru sett í kjölfar dóms Hæsta-
réttar í máli sem Öryrkjabandalagið
höfðaði gegn ríkinu. Af þessu tilefni
gaf stofnunin út fréttatilkynningu,
væntanlega til að skýra málið og
upplýsa hvernig staðið væri að þess-
um greiðslum. Þar segir að tekju-
trygging verði áfram reiknuð út frá
sameiginlegum tekjum hjóna. En
síðan segir í fréttatilkynningunni:
„Komi í ljós, eftir þann útreikning,
að tekjutrygging skerðist verulega
eða falli alveg niður tekur önnur og
ný reikniregla við, þannig að 2/3
hlutar eigin tekna, þ.m.t. launa-
tekjur, greiðslur úr lífeyrissjóðum
og helmingur fjármagnstekna koma
til skerðingar samkvæmt nýju lög-
unum en einungis í þeim tilvikum
sem tekjutrygging verður lægri en
25.000 kr. eftir útreikning eins og
hann hefur hingað til verið.“
Víkverji skal verða fyrstur til að
viðurkenna að þetta mál er flókið og
ekki einfalt að skilja það en ef þessi
setning á að verða til skilningsauka
segir Víkverji bara pass.
x x x
VÍKVERJA fannst merkilegt aðlesa frétt Morgunblaðsins um
lausagang bifreiða. Í fréttinni er vís-
að til reglugerðar nr. 788/1999 en þar
segir m.a.: „Óheimilt [er] að láta vél-
ar kyrrstæðra ökutækja ganga leng-
ur en í örstutta stund nema sérstak-
lega standi á.“
Víkverja var hugsað til ráðherra-
bílstjóranna sem margir hverjir
þurfa að bíða eftir ráðherrunum tím-
unum saman og freistast þá oft til að
hafa bílana í gangi. Víkverja varð
einnig hugsað til leigubílstjóra sem
oft þurfa að bíða lengi eftir að við-
skiptavinir kalli eftir þjónustu
þeirra. Þessir bílstjórar verða lík-
lega það sem eftir lifir vetrar að búa
sig af stað með vettlinga og húfu,
klæða sig í þykka lopapeysu og helst
draga fram föðurlandið ef þeir eiga
ekki að krókna úr kulda meðan þeir
eru í vinnunni. A.m.k. hugsaði Vík-
verji til leigubílstjóra og ráðherrabíl-
stjóra í vikunni þegar hann horfði á
veðurfréttir og sá að spáð var kóln-
andi veðri.
x x x
VÍKVERJI horfði á úrslitaleikinná heimsmeistrarmótinu í hand-
bolta sl. sunnudag. Þetta var afar
spennandi og skemmtilegur leikur
sem endaði með sigri Frakka á Sví-
um eins og flestum ætti að vera
kunnugt. Víkverji skipti síðan yfir á
fréttarásirnar CNN og Sky og horfði
á þær góða stund. Það vakti athygli
að hvorug sjónvarpsrásin greindi frá
því að heimsmeistaramótinu væri
lokið. Þar er þó fjallað talsvert um
íþróttir. Þetta sýnir vel hve áhuginn
á handbolta í heiminum er takmark-
aður þó að áhugi Íslendinga sé mik-
ill.
x x x
FYRIR stuttu sá Víkverji sýninguí ráðhúsi Reykjavíkur þar sem
fjallað var um ofsóknir nasista á
hendur Vottum Jehóva í síðari
heimsstyrjöldinni. Sýningin var
fyrst sett upp í minjasafni Neuen-
gamme-fangabúðanna í Þýskalandi
árið 1997. Vottar Jehóva neituðu
staðfastlega að gegna herþjónustu
þrátt fyrir hótun um dauðarefsingar.
Þetta leiddi til þess að vottarnir voru
ofsóttir áður en heimsstyrjöldin
braust út. Tíu þúsund vottar af þeim
25.000, sem voru í Þýskalandi á þess-
um tíma, sættu grimmilegum of-
sóknum og 6.000 voru hnepptir í
fangabúðir. Á bilinu 1.600 til 2.000
dóu í fangabúðum. Þar af voru 250
teknir af lífi. Um 840 börn voru tekin
frá foreldrum sínum. Ólíkt öðrum
föngum gátu vottarnir fengið sig
lausa. Þeir þurftu ekki að gera annað
en að undirrita yfirlýsingu þess efnis
að þeir afneituðu trú sinni. Sárafáir
gerðu það.
ALVEG er með ólíkindum
kúariðufárið í fjölmiðlunum.
Dag eftir dag er tuðað um
þennan óskaplega faraldur í
Evrópu. Jú, eitt hundrað til-
felli hafa greinst þar af þeim
hundruðum milljóna íbúa
sem þar búa. Tæplega telst
þetta faraldur. Gæti verið
að einhverjir hefðu hag af
því að hræða fólk frá því að
neyta nautakjöts? Í Morg-
unblaðinu 24. janúar sl. er
sagt frá mikilli söluaukn-
ingu á lambakjöti! Samt er
kindariða landlæg á Íslandi.
Kamfýlóbakterfárið í fyrra
gekk næstum af kjúklinga-
rækt dauðri þótt engin
hætta væri í raun með réttri
matreiðslu. Getur verið að
fréttastofur og fjölmiðlar
láti kaupa sig til að níða
vissar framleiðslugreinar til
hagnaðar fyrir samkeppnis-
aðila? Getur verið að þetta
sé nýjasta tækni til að auka
markaðshlutdeild?
Borgari.
Frelsi eða ósómi?
ÉG var að hlusta á Rúnu hjá
Stígamótum á Bylgjunni
fyrir stuttu um klámiðnað-
inn á Íslandi og ég verð að
segja það að maður skamm-
ast sín eiginlega fyrir að
vera maður. Það er kominn
tími til þess að við opnum
þessa umræðu og viður-
kennum þennan ósóma og
losum okkur við hann strax.
Ég skora á dómsmálaráð-
herrann að gera eitthvað
raunhæft í þessu máli.
Hætta verður að leyfa þetta
undir formerkjum frelsis.
Þetta hefur ekkert með
frelsi að gera. Þetta er
subbuskapur og á að með-
höndlast sem slíkt.
Páll.
Tapað/fundið
Sjóngleraugu
töpuðust
SJÓNGLERAUGU með
dökkblárri umgjörð glötuð-
ust sl. laugardag á milli Ing-
ólfsstrætis og Njálsgötu.
Fundarlaun. Finnandi vin-
samlega hringi í síma 551-
6362.
Eyrnalokkur og silki-
trefill töpuðust
EYRNALOKKUR með
fjólubláum steinum og
rauður silkitrefill töpuðust,
annaðhvort við Borgar-
bókasafnið við Tryggvagötu
eða á Háskólasvæðinu í lok
janúar sl. Upplýsingar í
síma 551-5216.
Hvítt loðið vesti
tapaðist
HVÍTT loðið rennt vesti
tapaðist á Píanóbarnum við
Hafnarstræti, laugardags-
kvöldið 3. febrúar sl. Vestið
var keypt sama dag og er
sárt saknað af eigandanum.
Skilvís finnandi er vinsam-
legast beðinn að hafa sam-
band í síma 866-6496 hve-
nær sem er sólharhringsins.
Stórt, grátt
ullarsjal tapaðist
STÓRT, grátt ullarsjal tap-
aðist á Laugaveginum,
seinnipart laugardagsins 3.
febrúar sl. Upplýsingar í
síma 551-9902 eða 897-9902.
Dýrahald
Hvítur fressköttur
KONAN, sem var að leita
að hvítum fressketti í ná-
grenni Skólavörðuhollts í
sumar er vinsamlegast beð-
in að hafa samband í síma
562 8304 eftir kl. 20, ef hún
er enn að leita.
Pési pjakkur
er týndur
Pési pjakkur hvarf frá
Öldugötu 7A í Reykjavík
föstudaginn 2. febrúar sl.
Pési er bröndóttur á baki og
afturfótum, hvítur á kviði og
trýni. Hann er með köflótta
ól. Pési er ljúfur fjögurra
ára geltur fress og gegnir
nafni. Ef einhver veit um
ferðir hans, vinsamlegast
hafið samband í síma 552-
1250.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Kamfýlóbakter
og kúariða
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
K r o s s g á t a
LÁRÉTT:
1 skinhelgi, 8 drepur, 9
súrefnis, 10 viljug, 11 bik,
13 ryðja, 15 klúrt, 18
fljótt,
21 sprækur, 22 skýrði
frá, 23 fylginn sér, 24
kjötréttinum.
LÓÐRÉTT:
2 rás, 3 beina augum að, 4
tryllist, 5 odds, 6 auka-
skammtur, 7 kvenfugl,
12 rándýr, 14 ýlfur, 15
megna, 14 margt, 17
mannsnafni, 18 lítill
böggull, 19 fæddur,
20 þyngdareining.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
Lárétt: 1 hámar, 4 fúlar, 8 lamin, 8 ættuð, 9 nár, 11 afar,
13 ólar, 14 órækt,
15 hælt, 17 treg, 20 fis, 22 fúska, 23 vætan, 24 afinn, 25
ramma.
Lóðrétt: 1 helga, 2 mamma, 3 rann, 4 flær, 5 lítil, 6 rúð-
ur, 10 ámæli, 12 rót, 13 ótt,
15 hefja, 16 losti, 18 ritum, 19 gunga, 20 fann, 21 sver
MIG langar einfaldlega að þakka þeim matvöruversl-
unum sem selja ekki klámblöð og um leið hvetja aðrar
til að gera það sama eða í það minnsta hylja forsíður
blaðanna. Það er um eitt blað að ræða í þessum versl-
unum sem hefur ekkert þangað að gera frekar en önn-
ur sams konar blöð. Ég bið almenning að huga að
þessu og allt eins beina verslun sinni annað. Takk fyrir,
Sylvía.s
Þakkir til matvöruverslana