Morgunblaðið - 08.02.2001, Qupperneq 61
60 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 8.
febrúar, verður sextugur
Þorsteinn Daníel Marels-
son, áfengisráðgjafi hjá
SÁÁ, Unufelli 27, Reykja-
vík. Eiginkona hans er
Hólmfríður F. Geirdal.
Þau verða með opið hús í
Félagsheimili Vals milli kl.
15-18 laugardaginn 10.
febrúar.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 61
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
ef t i r Frances Drake
VATNSBERI
Þú ert vel til forystu fallinn
og hvikar ekki frá, þegar til
þín er leitað um leiðsögn.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Flest virðist ganga þér í hag-
inn og haldir þú vöku þinni
ætti ekki að verða breyting
þar á. Þótt í mörgu sé að snú-
ast er það bara vel.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú þarft að sýna tillitssemi
og umburðarlyndi, því að þér
verður sótt, en haldir þú ró
þinni, muntu standa uppi í
lokin með hreinan skjöld.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Vendu þig á að tala hreint út
um málin, því að öðrum kosti
áttu á hættu að fólk misskilji
þig og málstaður þinn fái lít-
inn sem engan hljómgrunn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Stundum á það við að halda
að sér höndum, en undir öðr-
um kringumstæðum fer best
á því að gripið sé til skjótra
aðgerða. Íhugaðu því málin.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Gættu þess að verða ekki
fórnarlamb sjálfselsku og
þröngsýni. Vertu þvert á
móti víðsýnn og vingjarnleg-
ur – þá mun þér ganga flest í
haginn.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú þarft, hvað sem það kost-
ar, að fá tíma með sjálfum
þér. Það er ótrúlegt hvað slík
stund gefur mikið öryggi og
þrek til nýrra átaka.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Nýttu þér þann byr sem
sköpunargáfa þín nýtur nú.
Það er aldrei að vita hvenær
vindurinn blæs úr annarri átt
og gott að eiga sjóð þegar þar
að kemur.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gættu þess að ganga ekki svo
hratt fram að þú farir fram
úr atburðarásinni og eigir þá
á hættu að missa frumkvæðið
meðan þú bíður eftir hinum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú hefur lengi talað um þörf-
ina á því að endurskoða
vinnulag þitt. Nú er komið að
því og ekki um annað að ræða
en ganga til þess opnum hug.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Haltu hugmyndum þínum
hjá þér um sinn, því nú blæs
ekki byrlega. En áður en þú
veist af er þeirra þörf og þá
mun þinn tími koma.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þótt þú sért ekki á því að
gefa tommu eftir í ákveðnu
máli, skaltu íhuga vandlega
hvort þú getur þokað því
áleiðis með einhverjum til-
færslum.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Láttu það ekki draga úr þér
kjarkinn, þótt vinir og vanda-
menn geri lítið með skoðanir
þínar þessar dagana. Staða
þín er óbreytt og áfram
traust.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÞESSA dagana er dálkahöf-
undur að glugga í nýja varn-
arbók eftir Eddie Kantar –
Advanced Bridge Defense.
Kantar er góður höfundur og
reyndur bridskennari, en
hann er svolítið háður mark-
aðslögmálunum og hefur til-
hneigingu til að setja varnar-
þrautirnar upp sem einkamál
annars spilarans og er enn-
fremur ragur við að nota nú-
tímalegar reglur um varnar-
samvinnuna. Svona er þetta
því miður í bridsbókmennt-
um nútímans – of flókin um-
fjöllun þýðir færri kaupend-
ur. Við sáum dæmi á
þriðjudaginn úr bók Kantars
og hér er annað af svipuðum
toga:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♠ 105
♥ KDG863
♦ Á5
♣ 875
Vestur
♠ K4
♥ 1092
♦ DG1073
♣ KG2
Vestur Norður Austur Suður
-- -- -- 1 spaði
Pass 2 hjörtu Pass 2 spaðar
Pass 4 spaðar Allir pass
Lesandinn er í vestur og
kemur út með tíguldrottn-
ingu. Sagnhafi drepur með ás
og spilar spaðatíu og lætur
hana rúlla yfir á kóng vest-
urs. Hvað nú?
Norður
♠ 105
♥ KDG863
♦ Á5
♣ 875
Vestur Austur
♠ K4 ♠ 872
♥ 1092 ♥ 75
♦ DG1073 ♦ 9862
♣ KG2 ♣ ÁD94
Suður
♠ ÁDG963
♥ Á4
♦ K4
♣ 106
Kantar tekur fram að
makker hafi vísað tíglinum
frá, sem sýnir að suður á
kónginn. Ástæðan fyrir því að
sagnhafi byrjar ekki á hjart-
anu er augljós, segir Kantar –
suður er sjálfur með hjartás-
inn. Þetta kalla á hvassa vörn
– lauf frá KG í þeirri von að
makker eigi ásinn.
Kantar lætur hjá líða að
geta þess að austur gat kallað
í laufi með spaðafylgjunni í
öðrum slag. Hvernig þá? Með
því að fylgja lit með tvistin-
um, sínu lægsta spili. Þetta er
nútímaleg vörn, en þó of flók-
in fyrir hinn almenna mark-
að.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
Staðan kom upp í sjöttu
skák einvígis þeirra Vikt-
ors Kortsnojs (2639) og
Ruslan Ponamariovs
(2677) sem lauk fyrir
skömmu. Báðir keppendur
eru eitilharðir baráttujaxl-
ar og virðist sem hinn ungi
Ruslan sé enginn eftirbát-
ur Viktors grimma í þeim
efnum. Hann stýrði svörtu
mönnunum í stöðunni og
þvingaði öldunginn til upp-
gjafar með næsta leik.
36... Rg4! Og hvítur gafst
upp. Uppgjöfin virðist vera
snemma á ferðinni en þeg-
ar nánar er að gáð er hvít-
um allar bjargir bannaðar.
T.d. eftir 37.
Bxg4 hxg4 38.
hxg4 Df2+ 39.
Kh1 Hf3 mátar
svartur í næstu
leikjum. Aðrir
möguleikar virð-
ast ekki heldur
björgulegir.
Skákin tefldist í
heild sinni svona:
1. Rf3 Rf6 2. g3
d5 3. Bg2 c6 4.
O-O Bg4 5. d3
Rbd7 6. Bf4 Rh5
7. Bc1 Rhf6 8. h3
Bh5 9. Bf4 e6 10.
c4 Be7 11. cxd5 cxd5 12.
Rc3 O-O 13. g4 Bg6 14.
Rh4 Rxg4 15. Rxg6 fxg6
16. e3 Rgf6 17. Rb5 Da5
18. a4 a6 19. b4 Bxb4 20.
Bc7 b6 21. Rd4 Bc3 22.
Hb1 Bxd4 23. exd4 Dc3 24.
Bxb6 Rxb6 25. Hxb6 Dxd4
26. Hxe6 a5 27. Da1 Dxd3
28. Hd1 Df5 29. He5 Dc2
30. He7 Kh8 31. Hxd5
Hab8 32. Hb5 Hbd8 33.
Bf3 Hd3 34. He3 Hxe3 35.
fxe3 h5 36. Hxa5
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
80 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 8.
febrúar, er áttræður Har-
aldur Helgason, fyrrver-
andi kaupfélagsstjóri,
Goðabyggð 2, Akureyri.
Haraldur og kona hans,
Áslaug Einarsdóttir, taka
á móti gestum í Hamri,
félagsheimili íþróttafélags-
ins Þórs, laugardaginn 10.
febrúar frá kl. 17.
70 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 8.
febrúar, verður sjötugur
Pétur Pétursson hagfræð-
ingur, Þrastanesi 4,
Garðabæ. Hann og eigin-
kona hans, Björk E. Jóns-
dóttir, taka á móti ætt-
ingjum og vinum í
Sunnudal, Hótel Sögu, kl.
17–19 í dag.
Árnað heilla
70 ÁRA afmæli. Í dag,8. febrúar, verður
sjötugur Tómas Þórhalls-
son, Fellsmúla 10, Reykja-
vík, fyrrv. bifreiðastjóri
hjá Olís, síðar Olíudreif-
ingu. Eiginkona Tómasar
er Sigrún Pálsdóttir. Þau
verða að heiman í dag.
Svartur á leik
LJÓÐABROT
VOR Í SKAFLI
Sá dagur var ei draumsjón köld og ber
sem dyra knúði og spurði eftir mér,
hann var mín gæfa, veröld fersk og ný
sem vor í skafli, moldin dökk og hlý.
Þú varst sá dagur, ung með augu brún
og yl sem fari sunnangola um tún,
og grasið var mín unga ást til þín.
Ég er þitt ljóð og þú ert stúlkan mín.
Úr þvalri jörð mun þiðna krapamor
og þá mun aftur koma túngrænt vor
með sumarbros og sólskinslokk um kinn.
Mín sól ert þú og ég er skuggi þinn.
Matthías Johannessen.