Morgunblaðið - 08.02.2001, Qupperneq 66
FÓLK Í FRÉTTUM
66 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
Rollin Limp Bizkit
Dont Tell Me Madonna
Love Dont Cost A Thing Jennifer Lopez
Spit It Out Slipknot
Road Trippin Red Hot Chili Peppers
My Generation Limp Bizkit
Gravel Pit Wu Tang Clan
Shiver Coldplay
Last Resort Papa Roach
Farðu í röð Botnleðja
Man Overboard Blink 182
Dadada Ding Dong & Naglbítarnir
Lítill fugl 200.000 Naglbítar
Trouble Coldplay
Stan Eminem & Dido
Testify Rage Against the Machine
Independent Women Destinys Child
Again Lenny Kravitz
Dont Mess With My Man Lucy Pearl
My Love Westlife
Vikan 1.2. - 7.2.
http://www.danol.is/stimorol
Skráning er í síma 565 9500
www.hradlestrarskolinn.is
HRAÐLESTRARNÁMSKEIÐ
Lestrarhraði þátttakenda á námskeiðum rúmlega fjór-faldast
að jafnaði og eftirtekt batnar.
Öllu námi og öllum stjórnunarstörfum fylgir mikið lestrarálag.
Þeir sem eru fljótastir ná bestum árangri. Hvert stefnir þú?
Ef þú stefnir hátt skaltu skrá þig strax.
Næsta námskeið hefst þriðjudaginn 13. febrúar.
ÞETTA VAR sá tími þegar
menn voru með sítt að aft-
an, og vart fannst sú flík
sem ekki hafði axlarpúða.
Þetta voru þau ár þegar
Michael Jackson og Duran
Duran sungu sig inn í
hjörtu ungmenna um allan
heim með dúnmjúkum
popplögum. Þetta var upp-
haf 9. áratugarins og nú
hafa nemendur Verslunar-
skóla Íslands tekið sig til
og frumsýna í kvöld söng-
leik um þessi broslega hall-
ærislegu ár Sodastream og
fótanuddtækja.
Lyklabarn á tímaflakki
Þetta er í 69. sinn sem
Nemendamót Verslunar-
skólans, eða Nemó, er haldið og
sýna þeir í ár dans- og söngvaleik-
inn Wake me up before you go go.
„Sagan fjallar um Tomma sem er
17 ára sonur einstæðrar móður,“
segir Gunnar Helgason sem er nú
að leikstýra Nemendamótsupp-
færslu annað árið í röð. „Honum
finnst mamma sín afskaplega leið-
inleg og fer því, eins og von er, að
þreytast á samvistum með henni.
Þegar honum gefst síðan kostur á
að ferðast aftur í tímann þá grípur
hann tækifærið og fer aftur til árs-
ins 1984, þegar hann var sjálfur
tveggja ára, og reynir að hindra
foreldra sína í að skilja í þeirri von
að gera framtíð sína, eða öllu held-
ur nútíð, bærilegri. En eins og
vænta má hafa ferðalög Tomma
síðan ófyrirsjáanlegar og æði
spaugilegar afleiðingar í för með
sér.“
Hópur hæfileikafólks
„Mér finnst mjög gott að vinna
með þessum hópi og finnst þau
reyndar alveg ótrúlega þroskuð og
efnileg – ég var að minnsta kosti
ekki svona þroskaður þegar ég var
17 ára!“ segir Gunnar og hlær.
Hann segir nemendurna ráða mjög
vel við hlutverkin, þó krefjandi séu:
„Það koma einmitt margir efnilegir
krakkar í Verslunarskólann til þess
að geta tekið þátt í Nemendamóts-
uppfærslunni, því hér gefst þeim
sem hafa hæfileika á sviði dans- og
sönglistar mun betra tækifæri til
að spreyta sig á þeim sviðum en
þeir gætu við aðra skóla.“
Fjöldinn allur af nemendum
kemur nálægt sýningunni og er
valinn maður í hverju hlutverki og
sumir jafnvel með ágætis leikhús-
feril að baki þrátt fyrir ungan ald-
ur. Nítján leikarar stíga á svið og
fara þar fremst í flokki Þorvaldur
Davíð Kristjánsson sem leikur að-
alsöguhetjuna Tomma, Valdimar
Kristjónsson sem leikur hlutverk
Hauks, föður Tomma, og Rakel Sif
Sigurðardóttir sem leikur Lindu,
móður Tomma. Til viðbótar leik-
urunum eru 18 dansarar, og þá eru
ótaldir allir þeir sem vinna bak-
sviðs: 8 sviðsmenn, 4 ljósamenn og
12 manns sem sjá um förðun og
búninga.
Frumsaminn söngleikur
Nemendunum til halds og
trausts eru heldur engir aukvisar.
Gunnar Helgason sem landsmönn-
um er að góðu kunnur leikstýrir
verkinu, tónlistargúrúinn Jón
Ólafsson stjórnar tónlistinni og
Guðfinna Björnsdóttir hefur um-
sjón með dansatriðunum.
Verkið er samið af Hallgrími
Helgasyni sem íslenskaði þá fjöl-
mörgu slagara sem fluttir eru í
söngleiknum og ber þar að líta titla
á borð við Við teljum niður („Final
countdown“) og Komdu með að
dansa gó gó („Wake me up before
you go go“).
Þegar Gunnar var sjálfur 17
Það er ekki laust við að slái roða
á kinnar honum þegar Gunnar seg-
ist sjálfur hafa verið 17 ára er 9.
áratugurinn gekk yfir og fór hann
að eigin sögn síður en svo varhluta
af tískustraumum tímabilsins.
Hann hefur því eflaust átt í litlum
vandræðum með að hjálpa leikur-
unum að túlka anda þessara ára
þegar Nokia var best þekkt fyrir
stígvélagerð, þegar spilakassar
með Pac-man og breik-íspinnar
voru upp á sitt besta og Gleðibank-
inn var í þann mund að fara að
sigra Evrópsku söngvakeppnina.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Þau brosa að vonum út að eyrum á skemmtilegri sýningu, þau Hallgrímur Helgason handritshöfundur, Jón
Ólafsson tónlistarstjóri, Guðfinna Björnsdóttir danshöfundur og Gunnar Helgason leikstjóri.
Verslingar með
sítt að aftan
Á Nemendamóti í ár flytja Verslingar söng-
leikinn Wake me up before you go go eftir
Hallgrím Helgason. Ásgeir Ingvarsson leit
inn á æfingu og ræddi við Gunnar Helgason
leikstjóra um lakkrísbindi og bleik jakkaföt.
Nemendamót Verslunarskólans sýnir Wake me up before you go go
Þau lifa sig inn í sykursætan anda 9. ára-
tugarins: Þorvaldur Kristjánsson, Védís
Árnadóttir, Sigurður Hjaltason og Rakel
Sigurðardóttir.