Morgunblaðið - 08.02.2001, Side 68
68 FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
NÝTT OG BETRA
Álfabakka 8, sími 587 8900 og 587 8905
FYRIR
990 PUNKTA
FERÐU Í BÍÓ
Sýnd kl. 3.45. ísl tal Vit nr. 169
Sýnd kl. 4 og 6. Vit nr. 178
Sýnd kl. 8 og 10. B.i.16 ára.
Vit nr. 185.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. b.i.12 ára. Vit nr. 192. Sýnd kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.15. Vit nr. 191
Sýnd kl. 8 og 10.15. Vit nr. 177
Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit nr. 167
Sýnd kl. 3.50 og 5.55.Vit r. 168
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. Vit nr. 183.
kl. 4 og 6. enskt tal. Vit nr. 187.
B R I N G I T O N
Ekkert loft, engin miskunn,
engin undankomuleið.
Háspennumynd ársins sem
fær hárin til að rísa.
Frá leikstjóra "Goldeneye"
og "The Mask of Zorro."
HENGIFLUG
Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit nr.188.
www.sambioin.is
1/2
Kvikmyndir.com
Matseðill 10. febrúar
Sitrusmarineruð smálúða og hörpuskel
á kornköku með mangóvinigrette.
•
Ofnsteiktur lambahryggjarvöðvi með
sóltómötum, þistilhjörtum, röstikartöflu
og soðsósu.
•
Sykurhljáð peruterta með vanillukremi.
Þrjár einstakar
söngskemmtanir
á laugardögum í vetur
og þrírétta kvöldverður
Verð kr. 5.400
Stillið á 94,3
í samvinnu við
Kringlukrána
Leitið tilboða fyrir hópa!
Nánari upplýsingar
og borðapantanir
í síma 568 0878
Pálmi
Gunnarsson
Andrea Gylfadóttir,
Berglind Björk Jónasdóttir
og Ellen Kristjánsdóttir,
ásamt píanósnillingnum
Eyþóri Gunnarssyni
og Þórði Högnasyni
bassaleikara, með frábæra
söngskemmtun,
sem enginn sannur
tónlistarunnandi missir af.
STJÖRNUKVÖLD
Borgardætur
næsta laugardag:
Tveir af ástsælustu söngvurum
þjóðarinnar saman komnir
með einstaka söngskemmtun
sem lætur engan ósnortinn.
Sigga Beinteins
Björgvin Halldórsson
Pálmi Gunnarsson
hefur sungið sig
inn í hug og hjörtu
landsmanna í
gegnum tíðina.
Nú kemur hann
fram ásamt lands-
frægum tónlistarmönnum í glæsilegum
salarkynnum Kringlukráarinnar.
Borgardætur
Hljómsveit
Rúnars Júlíussonar
leikur fyrir dansi nk.
föstudag og laugardag.
Sýnd kl. 8 og 10.30.
HÁSKÓLABÍÓ
Hagatorgi sími 530 1919
þar sem allir salir eru stórir
Sýnd kl. 6 og 8.
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
SV Mbl
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6.Með íslensku tali.
INGVAR E. SIGURÐSSON
BJÖRN JÖRUNDUR FRIÐBJÖRNSSON
EGGERT ÞORLEIFSSON
NANNA KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR
EDDA BJÖRGVINSDÓTTIR
SV Mbl
DAGUR
ÓFE Sýn
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Golden Globe fyrir
besta leik
Var á toppnum í
Bandaríkjunum í 3 vikur.
Sýnd kl. 10.30.
Coen hátíð
Sýnd kl. 6.
1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
1/2
AI MBL
ÓHT Rás 2
ÓHT Rás 2 DV
Blumarine fæst á eftirtöldum útsölustöðum:
• Andorra Hafnarfirði • Gullbrá Nóatúni • Libia Mjódd
• Nana Hólagarði • Fína Mosfellsbæ • Hagkaup Kringlunni
• Hagkaup Smáranum • Hagkaup Skeifunni
• Hagkaup Spönginni • Laugarnes apótek
• Snyrtistofan Hrund Kópavogi • Snyrtivöruverslunin Glæsibæ
• Fríhöfnin • Apótek Vestmannaeyja • Apótek Seyðisfjarðar
• Árnes apótek Selfossi • Gallerý Förðun Keflavík
• Hagkaup Akureyri • Ísold Sauðárkróki • Laufið Bolungarvík
• Sól og fegurð Ísafirði • Okkar á milli Egilstöðum.
Bluemarine II
meira en draumur...
U2 voru mál málanna á verðlaunahá-
tíð tónlistarblaðsinNME sem haldin
var á þriðjudaginn. Dublinardreng-
irnir voru ærlega skjallaðir af tónlist-
armiðlinum sem hefur nú hingað til
ekkert verið að fara um þá neinum
silkihönskum, fremur en aðra risa-
rokkara. Blaðið tók sveitina inn í sína
formlegu dýrðlingatölu og lét ekki
þar við sitja heldur nefndi hana
„Bestu rokkhljómsveitina“. Bono
þakkaði innilega fyrir sína hönd og
félaganna með því að viðurkenna
treglega að NME ætti ríflegan þátt í
tónlistarlegu uppeldi þeirra. Hann
sagði að með umfjöllun sinni um unga
óþekkta Dublinarsveit hefði blaðið
aðstoðað U2 að ná sér í sinn fyrsta út-
gáfusamning: „Það eru því ansi marg-
ir vesalingarnir staddir hérna sem ég
vil nota tækifærið til að þakka.“
Allt helsta þotuliðið í breska tón-
listarbransanum var í verðlaunateit-
inu, þar á meðal bræðurnir brúna-
loðnu Liam og Noel Gallagher, All
Saints, Liam Howlett úr Prodigy og
Coldplay.
Það voru einmitt Coldplay sem yf-
irgáfu svæðið með flesta verðlauna-
gripina sem þeir fengu fyrir að vera
bestu nýliðarnir, eiga besta lagið og
standa sig best allra þeirra sem tóku
lagið í breska jaðartónlistarþætti
BBC The Evening Sessions. Þegar
Chris Martin söngvari tók við verð-
laununum lét hann ansi hreint klaufa-
leg orð falla um Craig David í þeirri
viðleitni að reyna að vera hnyttinn.
Báðir aðilar eru
tilnefndir til
Bresku tónlistar-
verðlaunanna
Brit og sagði
Martin: „Þetta er
örugglega einu
verðlaun okkar,
því Craig David
er ekki á staðn-
um. Ég þyrfti
trúlega að hafa
blómkál á hausn-
um til þess að
eiga séns á að
vinna eitthvað á
Brit.“
Hann fattaði
þó strax hverju
hann hafði verið
að ýja að, dró í
land og áréttaði
að þetta hafi ver-
ið létt spauga.
Svo hélt hann
áfram að afsaka
sig það sem eftir
lifði athafnarinn-
ar, augsýnilega
miður sín yfir
aulahúmornum.
U2 skjallaðir
bak og fyrir
Dýrðlingarnir frá Dublin.
GOSPELTÓNLISTINNI hefur vax-
ið fiskur um hrygg undanfarin ár
og hafa hljómleikar, lagðir undir þá
stefnuna, verið haldnir reglulega
undanfarin misseri. Í kvöld í Hvíta-
sunnukirkjunni Fíladelfíu verða
haldnir slíkir tónleikar, og það í
stærri kantinum. Það er tónlistar-
klúbburinn Hljómar sem stendur
fyrir kvöldinu en markmið klúbbs-
ins er að kynna og hafa á boðstólum
kristilega tónlist.
Í kvöld mun norski gospelkórinn
Moss Gospel Company leika undir
stjórn Tone K. Ødegaard. Þetta er
28 manna kór en fjöldi gospelkóra
er mikill og góður hjá náfrændum
okkar Norðmönnum. Kórinn var
stofnaður árið 1991 og markar
heimsókn þeirra hingað upphafið
að 10 daga reisu um Bandaríkin.
Gospelkór Reykjavíkur mun
einnig koma fram. Þetta er 20
manna kór sem stofnaður var í
tengslum við kristnitökuhátíðina í
fyrra. Stofnandi og stjórnandi er
Óskar Einarsson. Hann stýrir einn-
ig Gospelkompaníinu sem er ellefu
manna hópur, níu söngvarar og
tveir hljóðfæraleikarar. Jafnframt
mun Páll Rósinkranz koma fram og
taka lagið.
Hljómsveit kvöldsins er skipuð
þeim Óskari Einarssyni, Jóhanni
Ásmundssyni, Halldóri G. Hauks-
syni og Sigurði Flosasyni.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 og
er aðgangseyrir kr. 1800.
Gospeltónleikar í Fíladelfíu
Moss Gospel Company
Heyr, himneskir
tónar
NME verðlaunin