Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 21
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 21
Ný förðunarlína
Kynnist
nýstárlegri förðunarlínu þar sem hægt er
að kaupa fyllingar á varaliti, blýanta,
kinnaliti og augnskugga hjá útsölustöðum
Kanebo.
Útsölustaðir:
Andorra, Strandgötu 32, Sara, Bankastræti 8, Hagkaup,
Kringlunni, Smáranum og Spönginni, Fína, Mosfellsbæ, Para-
dís, Laugarnesvegi, Lyf og heilsa, Austurstræti og Glerártorgi,
Tara, Akureyri, Synrtistofa Ólafur, Selfossi.
vefi og í reynd tengla í hvaðeina
sem gagnast má áhugafólki um
leikrita- og handritsgerð.
Þar eru jafnframt birtir allir ís-
lenskir samningar um leikið efni
við leikhús og ljósvakamiðla.
Þar er einnig Fléttan, vett-
vangur til umræðu um leikritun
og handritsgerð. Í Fléttunni eru
birtar fréttir, greinar um leik-
ritun og handritagerð, tilvitnanir
í íslensk leikskáld o.m.fl. auk þess
sem þar verður lifandi umræðu-
vettvangur.
Jafnframt því sem vefurinn
verður opnaður verður þess
minnst að um þessar mundir eru
liðin 25 ár síðan fyrstu heildar-
samningar leikritahöfunda við
Þjóðleikhúsið og Leikfélag
Reykjavíkur voru undirritaðir.
Slóðin á vef Leikskáldafélags
Íslands er http://www.leikskald.is
NÝR vefur Leikskáldafélags Ís-
lands var opnaður á föstudag við
hátíðlega athöfn í Gunnarshúsi að
Dyngjuvegi 8. Svava Jakobsdóttir
rithöfundur opnaði vefinn og
Benóný Ægisson leikritahöfundur
útskýrði vefinn og fletti upp í
honum fyrir viðstadda. Vefur
Leikskáldafélagsins geymir kynn-
ingu á félaginu og starfi þess, og
birtir fundargerðir frá aðal- og
stjórnarfundum. Þar eru jafn-
framt stuttar kynningar á félag-
inu á fimm tungumálum öðrum en
íslensku, þ.e. ensku, dönsku,
þýsku, frönsku og spænsku.
Á vefnum má finna kynningu á
íslenskum leikskáldum og verkum
þeirra. Leikverkaskrár eru þar
og mikill fjöldi tengla á heimasíð-
ur leikskálda, leikhúsa, erlendra
leikskáldafélaga, leikrita- og
handritsnámskeiða, kvikmynda-
Morgunblaði/Þorkell
Svava Jakobsdóttir opnar vefinn. Árni Ibsen fylgist með.
Leikskáldafélagið
opnar vefsíðu
FÉLAG um Listaháskóla Ís-
lands efnir til félagsfundar á
miðvikudag kl. 20 í húsnæði
Listaháskóla Íslands, Laugar-
nesvegi 91. Fjallað verður um
framtíðarskipan Listaháskóla
Íslands og húsnæðismál hans.
Hjálmar H. Ragnarsson
rektor lýsir þróun deilda inn-
an skólans, m.a. tónlistar-
deildar og hönnunardeildar,
og svarar spurningum þar að
lútandi. Fulltrúar félagsins í
stjórn munu fjalla um hús-
næðismálin. Farið verður í
saumana á skýrslu Björns
Hallssonar um húsnæðismál
Listaháskólans og að því
búnu verða almennar umræð-
ur.
Fundur um
húsnæðismál
Listaháskóla
Íslands