Morgunblaðið - 11.02.2001, Síða 42
FRÉTTIR
42 SUNNUDAGUR 11. FEBRÚAR 2001 MORGUNBLAÐIÐ
OPIÐ Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 12-14
OPIÐ HÚS
í dag frá kl. 14-16
í Hvassaleiti 26, Reykjavík.
OPIÐ HÚS
í dag frá kl. 14-16
í Álftahólum 6, Reykjavík. íbúð 5B
Gullfalleg 5 herb. endaíbúð á efstu
hæð til hægri í góðu fjölb. Stærð
139 fm + 21,7 fm bílskúr. 3 svefn-
herbergi og 2 saml. stofur. Húsið og
sameign í góðu ástandi. Góður
garður. Útsýni.
Steinunn og Sigurður bjóða ykkur
velkomin milli kl. 14 og 16. í dag.
Rúmg. 3ja herb. 96 fm íbúð á 5.
hæð merkt B í góðu lyftuhúsi ásamt
29 fm bílskúr. 2 svefnherb. og stofa.
Mikið útsýni. Húsið og sameign í
góðu ástandi. Góður garður. Verð
10,8 millj.
Fanney og Kristmundur
bjóða ykkur velkomin
milli kl. 14 og 16. í dag.
EINBÝLI
Dalhús - fallegt einbýli
Erum með í einkasölu þetta fallega og
virðulega einbýlishús á besta stað í
Húsahverfi. Um er að ræða u.þ.b. 282
fm hús á tveimur hæðum með inn-
byggðum bílskúr. Eignin er fullbúin og
í góðu ástandi og er lóð frágengin.
Húsið stendur á skjólgóðum stað í
vesturhlíðum Húsahverfis. V. 26,9 m.
1213
RAÐHÚS
Bæjargil - raðhús
Vorum að fá í einkasölu fallegt og
vandað raðhús á tveimur hæðum,
u.þ.b. 177 fm, auk 32 fm bílskúrs.
Parket og góðar innréttingar. Góð lóð
með timburverönd til vesturs. Rúm-
góður nýlegur bílskúr. Vönduð eign á
eftirsóttum stað. V. 21,0 m. 1209
Reyðarkvísl - frábært úts.
Glæsilegt tvílyft raðhús, um 220 fm,
ásamt 38 fm bílskúr. Á neðri hæðinni
er forstofa, hol, stórt eldhús, búr/
þvottahús, sólstofa og stórar stofur
með arni. Á efri hæðinni eru fjögur
rúmgóð herbergi, hol og baðherbergi.
Húsið er staðsett syðst í Ártúnsholtinu
og er engin byggð sunnan þess. Góð
sólrík hellulögð verönd út af stofu. V.
24,9 m. 1115
HÆÐIR
Laufbrekka m. bílskúr
Töluvert endurnýjuð 113 fm efri sér-
hæð ásamt 26 fm bílskúr. Íbúðin skipt-
ist í 3 svefnherb., eldhús, stofu og
bað. Nýtt eldhús og bað. Laus fljót-
lega. V. 14,0 m. 9438
4RA-6 HERB.
Grandavegur - efsta hæð
Vorum að fá í einkasölu fallega og
bjarta 3ja-4ra herbergja íbúð á efstu
hæð. Íbúðin skiptist m.a. í stofu, tvö
herbergi, eldhús, bað og gott sjón-
varpshol í risi. Góðar suðursvalir.
Parket og góðar innréttingar. Íbúðin er
laus. V. 12,9 m. 1211
3JA HERB.
Blikahöfði - glæsiíbúð
Vorum að fá í einkasölu glæsilega og
vandaða, nánast nýja 3ja herbergja
íbúð á 3. hæð (efstu) í litlu og vönduðu
fjölbýli. Íbúðin er fullbúin. Parket og
flísar á gólfum, vandaðar kirsuberja-
innréttingar í eldhúsi, hurðir eru úr
mahóní og skápar úr kirsuberjaviði. Í
íbúðinni er góð halógen-lýsing sem
fylgir með. Flísalagt baðherbergi með
hornbaðkari og sturtu. Stórar suð-
vestursvalir með glæsilegu útsýni. V.
12,3 m. 1208
Smáragata
Gullfalleg og björt 64,3 fm 2ja-3ja her-
bergja íbúð á þessum frábæra stað í
tvíbýlishúsi. Eignin skiptist m.a. í
snyrtingu, baðherbergi, stofu, eldhús,
tvö herbergi og sérþvottahús. Parket
og flísar á gólfum. Sérsmíðuð eldhús-
innrétting. Fallegur og gróinn garður
með leiktækjum. Mjög falleg eign á
vinsælum stað. V. 9,5 m. 1204
Laugarnesvegur
Vel skipulögð 83 fm 3ja-4ra herbergja
íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýlishúsi.
Suðursvalir og parket á gólfum. Laus
fljótlega. V. 10,5 m. 1215
Geithamrar m. bílskúr
Falleg 3ja-4ra herbergja 95 fm íbúð á
jarðhæð í litlu fjölbýli, ásamt 26 fm bíl-
skúr. Allt sér, þvottahús, inngangur og
garður. Íbúðin skiptist í stofu, eldhús,
bað og 3 herbergi. Parket og flísar á
gólfum. Vandaðar innr. V. 14,5 m. 1205
Vesturbær
Góð 3ja herbergja 70 fm íbúð á 1. hæð
í litlu fjölbýli á horni Meistaravalla og
Hringbrautar. Gengið er inn í húsið frá
Grandavegi. Íbúðin snýr öll út að
Grandavegi (þ.e.a.s. til suðurs). Parket
á gólfum, svalir til suðurs og bílastæði
á lóð. V. 9,2 m. 1177
Opið í dag, sunnudag, frá kl. 12-15
Falleg og björt 92 fm neðri hæð í skelja-
sandshúsi auk 30 fm herbergis í risi.
Eignin skiptist í tvær góðar samliggjandi
stofur, eldhús, baðherbergi og tvö her-
bergi á hæðinni auk góðs herbergis í risi.
Mjög gott skipulag og góð staðsetning.
Karl og Stefanía sýna íbúðina í dag,
sunnudag, milli kl. 13 og 16. V. 13,4 m.
9629
OPIÐ HÚS Reynimelur 58
OPIÐ HÚS Hrafnhólar 4
Eignir óskast
Óskum eftir einbýlishúsi, parhúsi eða raðhúsi í Reykjavík á svæðum 101-110
og í Garðabæ. Eignin þarf að hafa 4-5 svefnherb. og má kosta allt að 26 millj.
Hraðar greiðslur. Uppl. gefur Kjartan.
Óskum eftir einbýli eða raðhúsi í Vesturbæ eða á Seltjarnarnesi. Má kosta allt
að 30 millj. Æskileg stærð 160-260 fm og 4-5 svefnherb. Uppl. gefur Kjartan.
Erum með fjárst. kaup. að einb. í Fossvogi. Allar nánari uppl. gefur Sverrir.
Traustur kaupandi óskar eftir sérbýli í Hvassaleiti, Fossvogi eða Suðurhlíðum.
Eign með beinu aðgengi fyrir fatlaðan einstakling óskast.
Eignamiðlunin óskar eftir 5 herbergja íbúð, parhúsi eða raðhúsi með beinu að-
gengi á einni hæð eða í lyftuhúsi fyrir traustan viðskiptavin. Eignin þarf að
vera aðgengileg fyrir fatlaða og æskilegt er að tvö baðherbergi séu fyrir hendi.
Uppl. gefur Óskar.
Óskum eftir 3ja-4ra herbergja íbúð miðsvæðis í vönduðu húsi fyrir traustan
viðskiptavin.
Mjög góð 2ja herbergja 65 fm íbúð á 3.
hæð í litlu fjölbýlishúsi með suð-vestur-
svölum í Hrafnhólum. Eignin skiptist m.a.
í eldhús, baðherbergi, stofu og herbergi.
Nýleg gólfefni. Lögn f. þvottavél á baði.
Rúmgóð íbúð. Jóhanna og Valdimar
sýna íbúðina í dag, sunnudag, milli kl. 14
og 16. V. 7,7 m. 1153
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.
Álfheimar - útsýni
Mjög falleg og mikið endurnýjuð 107 fm 4ra herb. endaíb. á 4. hæð í góðu
fjölbýli. Björt stofa m. suðursv. og 3 rúmg. svefnherb. Hús og sameign í
góðu ástandi. Stutt í skóla og þjónustu. Verð 12,4 millj.
Laugavegur - laus strax
Nýkomin í sölu 119 fm skemmtileg 4ra-5 herb. íbúð á 2. hæð. Góð
lofthæð er í íbúðinni sem skiptist í stórt anddyri, tvær stofur og 2-3 svefn-
herb. Furugólfborð. Verð 11,7 millj.
Eiríksgata - 3ja herb.
Góð 81 fm 3ja herb. íbúð á efstu hæð. 2 góð herb., stofa og rúmgott eld-
hús. Gott útsýni úr íbúð. Nýlegt rafmagn. Áhv. byggsj/húsbr. 4,0 millj.
Verð 10,9 millj.
Íbúðir við Vitastíg
Vel skipulagðar og nýinnrétt. íbúðir á 2. hæð í reisulegu steinhúsi. Um er
að ræða tvær 3ja herb. íbúðir og eina 2ja herb. íbúð. Svalir út af hverri
íbúð og sérgeymsla í kj. Íb. afh. fullbúnar með vönduðum innrétt. en án
gólf-efna í mars nk. Mikil lofthæð. Allar lagnir, gler og gluggar endurnýj-
aðir. Nánari uppl. á skrifstofu.
Þórsgata - 2ja og 3ja herb. íbúðir
Höfum fengið til sölu íbúðir í góðu húsi í Þingholtunum. 2ja herb. risíbúð
sem er öll endurnýjuð. Verð 4,4 millj. 65 fm 3ja-4ra herb. íbúð á jarðhæð
með sérinngangi. Mikið endurnýjuð. Verð 8,9 millj. og ósamþykkt ein-
staklingsíb. á jarðhæð. Verð 3,2 millj.
Söluturn í eigin húsnæði
í Hafnarfirði
Höfum til sölu söluturn í eigin húsnæði, staðsettur við fjölfarna
verslunarmiðstöð. Lottósöluvél. Góð velta.
Grenimelur
Glæsilegt parhús á þremur hæðum
við Grenimel. Húsið er 210 fm auk 27
fm bílskúrs og rislofts og hefur verið
mikið endurnýjað á undanförum
árum. Er í mjög góðu ásigkomulagi. 3
saml. stofur, stórt vandað eldhús,
endurn. baðherb. og fjöldi herb. Hiti í
innkeyrslu og stéttum. Nánari uppl. á
skrifstofu.
Opið hús
í dag í Foldasmára 20 í Kópavogi milli kl. 15 og 18.
Um er að ræða 195 fm fullbúið raðhús á tveimur hæðum
með innbyggðum bílskúr.
Vandaðar innréttingar og gólfefni.
Upplýsingar í símum 564 2739, 699 2125 og 861 7153.
SALA á Microsoft-hugbúnaði á
sérkjörum fyrir skólafólk er að
hefjast hérlendis og er það í fyrsta
skipti sem skólafólki á öllum skóla-
stigum býðst hugbúnaðurinn á sér-
kjörum fyrir tilstuðlan mennta-
málaráðuneytisins og Tölvu-
dreifingar hf. Búnaðurinn kostar
frá 4.350 kr. til 12.890 og mun
hvergi vera ódýrari í heiminum að
því er talsmenn Microsoft fullyrða.
Í fréttatilkynningu frá mennta-
málaráðuneytinu kemur fram að
með samvinnu Tölvudreifingar,
menntamálaráðuneytisins og
Microsoft sé um að ræða einstakt
tækifæri fyrir mjög stóran hóp
notenda tölvubúnaðar að eignast
nýjustu útgáfur Microsoft-hugbún-
aðar á góðu verði og með löglegum
hætti. Sá búnaður sem er í boði er
Office Professional 2000 á 10.990,
sem hefur m.a. að geyma Word,
Excel, Power Point og Access, eða
nýjasta Microsoft-hugbúnaðar-
pakkann fyrir Macintosh: Office
2001 Macintosh Edition. Einnig er
í boði Office Premium 2000 á
12.890 kr., sem hefur að geyma
sömu forrit og Office Professional
og FrontPage 2000 og PhotoDraw
2000.1 að auki. Þá er í boði Visual
Studio Pro 6.0 á 6.990 kr., sem m.a.
hefur að geyma forritunarmálin
Visual Basic 6.0, Visual C++ 6.0,
Visual InterDev. Að lokum eru í
boði nýjustu Windows-stýrikerfin á
4.350 kr., sem eru Windows ME
eða Windows 2000.
„Með samvinnu menntamála-
ráðuneytisins, Tölvudreifingar og
Microsoft um sölu ofangreindra
leyfa til nemenda og kennara er
komið til móts við óskir ráðuneyt-
isins, skóla og heimila um hent-
ugan búnað á hagstæðu verði til
handa þessum hópi. Mikilvægur
kostur þess að festa kaup á þessum
forritum er sú samhæfing sem þau
bjóða þegar unnið er í tilteknum
skjölum á milli stýrikerfa, svo sem
á milli Windows og Macintosh. Að
auki er unnt að vinna verkefni
bæði heimavið og í skólanum.
Megintilgangur samningsins er
að hamla gegn ólöglegri notkun
hugbúnaðar hérlendis, en mennta-
málaráðuneytið hefur, m.a. í sam-
vinnu við Töluvdreifingu hf., lagt
mikinn metnað í að vinna gegn
slíkri notkun á undandförnum ár-
um.
Nemendur og kennarar geta
keypt Microsoft-hugbúnaðarpakk-
ana af seljendum tölvubúnaðar
með því að sýna staðfestingu á
skólavist. Foreldrar allra skóla-
barna geta keypt skólaleyfi fyrir
Microsoft-hugbúnaðinn fyrir hönd
barna sinna,“ segir í fréttatilkynn-
ingu.
Microsoft-
hugbúnað-
ur á sér-
kjörum fyr-
ir skólafólk
ARNFIRÐINGAFÉLAGIÐ hefur
undanfarin ár haldið sólarkaffi í
byrjun febrúar þar sem félagsmenn,
brottfluttir Arnfirðingar, hafa komið
saman til að styrkja vináttu og átt-
hagabönd. Nú hefur verið ákveðið að
bregða út af þeim vana og fagna sól-
arkomu í Arnarfirði með þorrablóti í
Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14,
föstudaginn 16. febrúar. Allir eru
velkomnir.
Félagið hefur áform um að opna
heimasíðu með ýmiss konar lifandi
fróðleik um allt er tengist Arnarfirði.
Þeir Arnfirðingar sem luma á efni
sem gaman væri að birta á síðunni
ættu að hafa samband við stjórn
félagsins, segir í fréttatilkynningu.
Þorrablót
Arnfirðinga-
félagsins
♦ ♦ ♦